Þjóðviljinn - 03.09.1983, Side 26
2fc‘SÍÐÁ - ÍOÓÖÝIÍJlNr'Í Hélgln 3.-4. september 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráðstefna Ab á Vestfjörðum
veröur haldinn aö Birkimel í V-Barðastrandarsýslu dagana 10. og 11.
september. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson, formaöur Alþýðu-
bandalagsins.
Dagskrá:
Laugardagur:
Sunnudagur:
Ráöstefnan hefst kl. 13.00. Skýrsla formanns. Forval og
forvalsreglur. Framtíð byggðar á Vestfjörðum - lífskjör -
atvinnuskilyrði. Stjórnmálaviðhorfið og fleira. Framsögu-
maður Svavar Gestsson.
Nefndarstörf hefjast kl. 9.00. Kl. 13.00: Skipulag flokksins.
Framsögumaður Svavar Gestsson. Afgreiðsla ályktana.
Kosning stjórnar og uppstillinganefndar. Áætlað er að
ráðstefnunni Ijúki kl. 17.00.
Stjórn kjördæmisráðs
Frá Alþýðubandalaginu
Starfsmaður óskast nú þegar til að ræsta skrifstofuna að Hverfisgötu 105.
•Upplýsingar í síma 17500.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Félagsfundur verður haldinn að Kirkjuvegi 7 Selfossi fimmtudaginn 8. sept-
ember nk. kl. 20.30. Dagskrá: Samtök herstöðvaandstæðinga og friðarmál.
Framsögumaður verður Rúnar Ármann Arthúrsson. Önnur mál.
Stjórnin
Út-hérað:
Hjaltalundur
almennur fundur
Alþingismennirnir Helgi Seljan og
Hjörleifur Guttormsson verða á
almennum fundi í félagsheimilinu
Hjaltalundi laugardaginn
3. september kl. 16.00. Fund-
urinn er öllum opinn.
Alþýðubandalagið
Helgi
Hjörleifur
Alþýðubandalagið Akureyri -
bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 5. september kl. 20.30 í
Lárusarhúsi. Félagar, mætið vel og stundvíslega.
Alþýðubandalagið Neskaupstað
Almennur félagsfundur verður haldinn í Egilsbúð, fundarsal, þriðjudaginn 6.
september kl. 21.30. Dagskrá: 1. Kosning í bæjarmálaráð. 2. Alþýöubandalag-
ið í stjórnarandstöðu. Framsögumaður Hjörleifur Guttormsson. 3. Önnur mál.
Stjórnin
Æskuíýðsfylking Alþýðubandalagsins
Lítið við á skrifstofunni
Skrifstofa Æskulýðsfylkingarinnar að Hverfisgötu 105 er opin virka daga kl.
16-19. Á þeim tíma er alltaf einhver stjórnarmanna á staðnum til skrafs og
ráðagerða yfir kaffibolla. - Nýir félagar sérstaklega velkomnir.
Æskuiýðsfylking Abl.
Fræðslukvöld
Þriöjudagskvöldið 6. sept. kl. 20:30 sýnum við vídeómyndina „Is it me you want
to kill" (og fleiri myndir ef tími vinnst til) í flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu 105.
Allir sem vilja kynna sér friðarhreyfinguna erlendis og starfsemi hennar, mega
ekki láta þessa spólu óséða. í umræðum á eftir spjallar Erling Ólafsson við
þátttakendur um myndina og friðarhreyfinguna.
Æskulýðsfylking Abl.
Haustfagnaður
Við fögnum hausti föstudagskvöldið 9. sept. að Hverfisgötu 105. Það má búast
við frábærum skemmtiatriðum og diskóteki á heimsmælikvarða. Smáatriðin
auglýst síðar.
Æskulýðsfylking Abl.
Frá
Tónlistarskóla
Kópavogs
Innritun fer fram 8.-10. september aö báöum
dögum meðtöldum kl. 9-12 og 16-18.
Innritað veröur á sama tíma í forskóladeildir.
Nemendur eru beðnir að láta stundaskrár
fylgja umsóknum. Athygli skal vakin á því, að
meðal annars verður kennt á kontrabassa,
óbó, fagott og horn. Upplýsingar á skrifstofu
skólans, Hamraborg 11,2. hæð, sími 41066
og 45585.
Skólastjóri
Hreppsnefnd Mýrahrepps um ratsjárstöð vestra
Mótmælir harðlega
öllu hernaðarbrölti
Amælisvert pukur stjórnvalda
- Hreppsnefnd Mýrarhrepps í Vestur-ísafjaröarsýslu mótmælir
harðlega því hernaðarbrölti sem virðist í uppsiglingu hér í sveitar-
féiaginu -, segir í ályktun frá hreppsnend Mýrarhrepps sem sam-
þykkt var 30. ágúst. Menn í Mýrarhreppi hafa orðið varir við ferðir
þyrlu og mælingamanna í námunda við Barðann og víðar þar í
héraðinu.
Amœlisvertpukur
f ályktuninni er einnig tekið
fram að hreppsnefndinni þyki
ámælisvert það pukur sem fylgir
þessu máli, þareð heimamenn eru
að frétta á skotspónum að verið sé
að skoða staði sem hentugir þættu
fyrir ratsjárstöðvar Nató án nokk-
urs samráðs við viðkomandi
sveitarstjórnir.
Stjórnvöld viti
hug heima-
manna
„Því er þessi ályktun gerð að
yfirvöld viti þannig hug sveitar-
stjórnar Mýrarhrepps", segir að
lokum í þessari ályktun.
Engar frekari upplýsingar hafa
borist frá ríkisstjórninni og banda-
ríska setuliðinu um ratsjármálið.
Brimnesið
sökk
Brjmnes SH sökk í gærmorgun
skammt vestur af Snæfellsnesi,
eftir að eldur hafði komið upp í
bátnum. Skipverjar komust i
gúmmíbjörgunarbát og var bjarg-
að um borð í Saxhamar frá Rifi.
Brimsnesið var 70 tonna trébátur.
Islenska
skáksveit-
m 1 oðru
sæti
íslenska skáksveitin er nú í öðru
sæti í heimsmeistaramóti skák-
manna 26 ára og yngri í Chicago.
Sovétmenn eru í efsta sæti.
60 þúsund
Haukur Jóhannsson skipstjóri á
Sjöfn Ve varð 60 þúsundasti gest-
urinn á iðnsýningu 83 laust fyrir kl.
16.00 í gær. í fylgd með konum var
eiginkona hans Emma Kristjáns-
dóttir.
Haukur hlaut í verðlaun tíu þús-
gestir
und króna vöruúttekt hjá íslensk-
um iðnfyrirtækjum innan FÍI.
Tveir dagar eru til loka sýningar-
innar, en hún hefst kl. 13.00 báða
dagana. Gestir eru taldir verða yfir
70 þúsund og hefur verið ákveðið
að heiðra 70 þúsundusta gestinn á
sama h^tt.
Iðnsýningin
S
Nýjung hjá Rauðakrossi Islands
Skipuleggur hjálp
til bjargar heyi
Rauði kross íslands hefur ákveðið að skipuleggja hjálparstarf til
heybjargar á þurrkasvæðunum og geta sjálfboðaliðar hringt á
skrifstofu samtakanna og Búnaðarfélags íslands frá kl. 10-12 í
dag, laugardag, og á morgun sunnudag og látið skrá sig. Einnig
mun tekið við skráningum í símum þessara skrifstofa frá og með
mánudagsmorgni næsta.
Talsmenn Rauða krossins
kynntu þessa nýjung í hjálparstarfi
samtakanna á fréttamannafundi í
gær og þar kom m.a. fram að ó-
þurrkarnir á Suður- og Vesturlandi
hafi valdið því að margir bændur
hafa aðeins náð inn hluta heyja
sinna. Sé auðsætt ef ekki bregði til
þurrviðris næstu daga að vá verði
fyrir dyrum hjá fjölda bænda. Því
hafi verið ákveðið að reyna að
koma til aðstoðar með því að
skipuleggja hjálparstarf þeirra sem
gætu hugsað sér að fara í heyskap.
Rauði krossinn og Búnaðarfélag
fslands hafa haft samvinnu um
þetta mál eins og áður sagði en
einnig hvetur Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda menntilað leggja til
ökutæki svo unnt reynist að flytja
sjálfboðaliðana af þéttbýlis-
svæðunum til bænda.
Talsmenn þessara aðgerða
bentu á að auk þess að hafa sam-
band við skrifstofur samtakanna
gætu sjálfboðaliðar haft beint sam-
band við bændur sem eru vinir
þeirra og venslamenn en æskilegt
væri að skipuleggjendur fengju um
það vitneskju til að koma í veg fyrir
að tveir hópar sjálfboðaliða kæmu
til starfa á sama bæ.
Sími Reykjavíkurdeildar RKÍ er
28222 og 26722 er sími aðalskrif-
stofunnar. Þar eru veittar allar
upplýsingar þessara aðgerða til
hjálpar bændum á óþurrka-
svæðunum.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða VERKAMENN
við lagningu jarðsíma á stór-
Reykjavíkur- svæðið.
Nánari upplýsingar verða veittar í síma
26000.