Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 3
- Helgin 1.-2. október 1983! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Vasapeningamálið
Skýringar ráðii nevtis
Blómaskreytingafólkið Uffe Balslev, Berty Miir og Cor de Gooyer innan
um hluta þurrblómaskreytinganna. (Ljósm. Magnús).
Verslunin Blómaval:
Þurrblóma- og
skreytingasýning
f gær barst Þjóðviljanum svofellt
bréf, dagsett 29. desember, með
beiðni um birtingu:
„Athugasemd
frá heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu varðandi ákvörðun
um ráðstöfunarfé vistmanna dval-
arstofnana skv. 26. gr. laga 91/1982
um málefni aldraðra.
í tilefni af ritstjórnargrein Þjóð-
viljans í gær, 28. september, verður
ekki hjá því komist að óska birting-
ar á eftirfarandi staðreyndum til
leiðréttingar á margþættum mis-
skilningi, sem birst hefur í blaðinu
um þetta mál.
1. Fram að gildistöku laga um
málefni aldraðra gilti sú regla að
dvöl á hjúkrunardeildum, hjúkr-
unarheimilum og sjúkradeildum
fyrir langlegusjúklinga var að fullu
greidd fyrir aldraða og fyrir ör-
orkulífeyrisþega, óháð tekjum við-
komandi. Dvöl á dvalarheimili
aldraðra varð vistmaður hins vegar
að greiða að hluta sjálfur, ef hann
hafði tekjur t.d. úr lífeyrissjóði sín-
um. - Með fyrrnefndum lögum var
ákveðið, að vistmenn (sjúklingar)
hjúkrunardeilda, hjúkrunarheim-
ila og sjúkradeilda fyrir langlegu-
sjúklinga skyldu frá og með 1. jan-
úar 1983 greiða eins og vistmenn
elliheimila „allt að fullu vistgjaldi“
og mátti ganga beint að lífeyris-
sjóði vistmanns, ef um hann var að
ræða, en ella að vistmanni sjálfum.
Þó var jafnframt ákveðið að við-
komandi skyldi jafnan halda eftir
15% tekna sinna og aldrei minna
en kr. 1330 á mánuði. Vistmenn
elliheimila skyldu halda eftir 25%
tekna og aldrei minna en kr. 1950 á
mánuði.
í bráðabirgðaákvæði laganna
var ákveðið að reglur þessar kæmu
til framkvæmda í áföngum sam-
kvæmt nánari ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar.
2. Fyrrihluta aprílmánaðar á-
kvað þáverandi ríkisstjórn fyrsta
áfanga skv. bráðabirgðaákvæðun-
um. Þáverandi tryggingamálaráð-
herra lét útbúa og undirritaði
reglugerð hinn 14. apríl sl. þar sem
þágildandi fjárhæðir vasapeninga
(ráðstöfunarfjár) voru hækkaðir í
kr. 1326,- til vistmanna á elliheim-
ilum og í kr. 1113,- til vistmanna á
hj úkrunarstofnunum.
Samkvæmt gildandi reglum
skyldi ráðstöfunarfé næst greiðast
hinn 10. júní, en það er greitt á 3ja
mánaða fresti, og féllst ráðherra á
þau tilmæli Tryggingastofnunar að
fyrstu greiðslur skv. reglugerðun-
um yrðu greiddar út þá. Þess vegna
er dagsetning þessa fyrsta áfanga í
júní en ekki í apríl/maí eins og fyrst
var ráðgert.
Engar dagsetningar voru í reglu-
gerðinni um frekari hækkanir síðar
á árinu umfram það sem leiða
kynni af hækkun bóta almanna-
trygginga. í reglugerðardrögum frá
7. mars s.l. var gert ráð fyrir hæ(ck-
unum í 5 áföngum fram til 1. mars
1984. Að athuguðu máli taldi ráð-
herra ekki annað eðlilegt en að við-
takandi ríkisstjórn tæki ákvarðanir
um frekari áfangahækkanir eins og
lögin mæla fyrir um. Af þeim
sökum varð áfanginn aðeins einn.
3. Eftir setningu bráðabirgðalag-
anna nr. 56/1983 barst ráðuneytinu
fyrirspurn frá deildarstjóra endur-
skoðunardeildar Tryggingastofn-
unar ríkisins um hvort og þá hver
áhrif þau lög ættu að hafa á upphæð
ráðstöfunarfjár skv. fyrrnefndum
reglugerðum, sem greiða ætti út í
fyrsta sinn hinn 10. júní. Ráðu-
neytið svaraði um hæl með bréfi
hinn 31. maí á þá leið að 8% hækk-
un skv. brb.lögum skyldi koma
ofan á upphæð þá, sem tilgreind
væri í reglugerðunum.
Á fundi tryggingaráðs hinn 1.
júní var mál þetta rætt. Var bréf
ráðuneytisins Iesið fyrir ráðið svo
og reglugerðirnar. Niðurstaða
tryggingaráðs var hins vegar ein-
róma sú, að sniðganga túlkun ráðu-
neytisins og láta 8% hækkunina
ekki reiknast ofan á upphæðir
reglugerðanna heldur á eldri og
lægri grunn, rétt eins og reglugerð-
irnar hefðu aldrei verið settar.
Þessi ákvörðun var ekki kynnt
ráðuneytinu sérstaklega, sem ást-
æða hefði þó verið til að gera eins
og málum var háttað. Að vísu fær
ráðuneytið til kynningar eintak
fundargerða ráðsins og hefði því í
flestum tilfellum átt að geta uppgö-
tvað slíka misvísun í fyrirmælum
ráðherra og ráðuneytis annars veg-
ar og í ákvörðun tryggingaráðs hins
vegar. Svo varð þó ekki í þetta sinn
og þess vegna kom ekki til leiðrétt-
ingar fyrr. Það harmar ráðuneytið
að sjálfsögðu og kennir um að-
gæsluleysi, sem að hluta á rót sína í
þeirri verkaskiptingu, sem verður
að vera í þessum málum, og að
treysta verður framkvæmdavaldi á
öllum stjórnstigum til að fram-
kvæma lög og reglugerðir eins og
fyrir er lagt hverju sinni af bæru
yfirvaldi.
4. Ráðuneytið telur ummæli í
leiðara Þjóðviljans 28. þ.m. um
þátt ráðuneytisins í þessu máli ó-
makleg og harmar að hafa með
þessum hætti verið dregið inn í pól-
itískar leikfléttur fjölmiðils. Slíkt
er sem betur fer næstum einsdæmi.
F.h.r.
Páll Sigurðsson (sign)
Jón Ingimundarson (sign).“
Þurrblóma- og þurrkskreytinga-
sýning stendur nú yfír í versluninni
Blómaval í Reykjavík. Hingað voru
fengnir til landsins tveir Hollend-
ingar meðal þeirra færustu í sinni
grein, þau Berty Miir og Cor de
Gooijer og munu þau starfa í versl-
uninni um helgina.
Þau Berty og Cor komu með
! margs konar efni í farangri sínum
til landsins og kennir þar þurrkaðra
blóma og grasa úr öllum heimsálf-
um. Úr þessu töfra þau fram fal-
legar skreytingar og myndir á
furðuskömmum tíma. Með þeim
starfar einnig Daninn Uffe Balslev,
sem kom hingað til lands á síðasta
ári. Þau þrjú verða með sýnikenns-
lu um helgina á opnunartíma versl-
unarinnar. Skreytingarnar munu
verða til sölu.
HAMRABORG 9 - SÍMI42222
Sverrir
útibússtjóri
Lilja
ínnián
Una
féhiröir
gjaldeyrir
ViÖ tökum til starfa föstudaginn 30.
september og önnumst öll innlend og
erlend bankaviðskipti.
Bankastjórn og starfsfólk býður ykkur
velkomin í bankann til að hefja við-
skipti og þiggja kaffisopa.
Björg
útlán
íris
innlán
Oddrún
gjaldkeri
BIÍNAÐARBANKI ÍSLANDS