Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 01.10.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 1.—2. október 1983 •>' daeaurmál (sígiid?) Egó, fulltrúi íslands á hljómleikum í tengslum við Nomus-ráðstefnu, bar af eins og gull af eir... Nomus — Norrænt músiksamstarf: Islenskt rokk gróskumest? Kukl með Þaö hefur líkast til farið framhjá fjölmörgum að hljómsveitin Kukl hefur sent frá sér tveggja laga plötu. Á plötunni eru lögin „Pönk fyrir byrjendur" og „Söngull" en bæði lögin voru á efnisskrá hljóm- sveitarinnar á tónleikunum Við krefjumst framtíðar. „Söngull" var seinasta lagið sem hljómsveitin lék á tónleikunum en þetta lag er að mínu mati eitt það besta sem heyrst hefur á þessu ári. Margir hafa haldið að hljóm- sveitin væri hætt eða tekið sér frí, en það er nú alls ekki svo. Þó einn meðlima hennar sé nú við nám í London er Kuklið til ennþá og starfar af miklum móð þessa dag- ana. Kuklið er ekki hljómsveit í eiginlegri merkingu þess orðs held- ur miklu frekar félagsskapur tón- listarmanna sem vinna saman þeg- ar þá langar til og þeim hentar. Þess á milli starfa þau svo með sín- um eigin hljómsveitum, Björk með Tappanum, Einar Melax með Van Houtens Kókó, Birgir Mogensen með Með nöktum, Þeysararnir Gulli og Sigtryggur og svo Einar Örn eru ekki í neinni einni hljóm- sveit sem stendur. Kuklið mun starfa í ýmsum út- gáfum í vetur. Þau ætla að koma fram eitt, tvö, þrjú, fjögur eða fimm allt eftir eðli þeirra tónleika sem hyggjast koma fram á. Eins og þau segja sjálf, „þá munu þau koma fram í litlum einingum fyrir litla hópa“. Þetta verður svona Kuklararnir Björk og Einar Örn, Gulli í baksýn. Myndina tók Billi Laugardalshöll (Við krefjumst framtíðar). „Pönk fyrir byrjendur” og „Söngull” Það hefur verið ætlun mín um nokkurt skeið að greina frá Nomus (Nordisk musiksamarbejde) ráð- stefnu sem haldin var í Osló síðustu daga ágúst. Þessi ráðstefna fjallaði um rokktónlist og fóru þeir Ás- mundur Jónsson og Hilmar J. Hauksson á þessa ráðstefnu fyrir tilstuðlan SATT og FA. Nomus er samvinnu- og samhæfingaraðili fyrir tónlistarmenn á Norðurlönd- um. Markmið ráðstefnunnar var að safna saman fólki sem er viðloð- andi rokktónlist og ræða hvort um frekari samvinnu gæti orðið á milli Norðurlandanna í þessum efnum. Og gefa fólki tækifæri til að hittast og koma á samböndum sín á milli. Viðfangsefni ráðstefnunnar voru fjögur. 1) Saga rokksins, bak- grunnur og þróun. Staða rokksins með tilliti til annarrar tónlistar. 2) Samtök og skipulag rokktónlistar- manna, sölukerfi, styrkjakerfi og annað því um líkt á Norðurlönd- um. 3) Plötuútgáfa. Staða rokk- hljómplötuiðnaðarins í hverju Norðurlandanna. 4) Hljómleika- ferðir rokktónlistarmanna innan Norðurlanda, skipuiagning þeirra, bókanir osfrv. Niðurstöðurnar úr þessum um- ræðum voru þær að staða rokktón- listarmanna er best í Danmörku. Þar hafa þeir vel skipulögð samtök og þar standa þeim styrkir til boða. Hin Norðurlöndin standa Dönum nokkuð að baki hvað þetta varðar. Danskir fjölmilar, sérstaklega sjónvarp og útvarp veita innlendu rokki þónokkuð rými, hins vegar er minna um þetta á hinum Norð- urlöndunum og eins og allir vita nánast ekkert hér. Plötuiðnaðurinn er illa staddur á öllum Norðurlöndunum en allra verst er staðan hér á íslandi. Skýr- ingin er fyrst og fremst smæð mark- aðarins og að plötur hér eru tvöfalt dýrari en á hinum Norðurlöndun- um. En verðið á hljómplötum segir ekki alla söguna. Á Islandi þurfa menn að vinna 5-7 klukkustundir fyrir einni hljómplötu en fyrir venjulega Svfa tekur það aðeins 45 mínútur. Á hinum Norðurlöndunum er innlendum hljómlistarmönnum borgað af útvarpi fyrir magn spil- aðrar tónlistar en ekki föst upp- hæð, eins og tíðkast hér á landi. Þessi fasta upphæð skiptist síðan á mismargar hendur allt eftir því hve oft lag eftir viðkomandi listamann hefur verið spilað í útvarpi. Kjör tónlistarmanna eru alls staðar svip- uð það hafa allir það miklu betur sem vinna við rokkbransann en tónlistarmennirnir sjálfir. Ætlunin er að virkja Nomus til að reyna að rífa rokktónlist upp úr þeirri ládeyðu sem hún er í með því að þrýsta sem allra mest á þá aðila sem tengjast málinu. Reyna að fá meiri spilun í útvarpi o.s.frv. Það merkilegasta við þessa ráð- stefnu var ef til vill það álit sem aðrar Norðurlandaþjóðir hafa á ís- lenskri rokktónlist. Það var sam- dóma álit að hér væri hún grósku- mest. Finnski fulltrúinn sagði að rokktónlist hér væri mörgum skref- um á undn rokktónlist á hinum Norðurlöndunum. í tilefni af þess- ari ráðstefnu var ein hljómsveit frá hverju landi fengin til að leika í Club 7. Fulltrúi íslands var Egóið. Var það álit þeirra sem hlýddu á þessa tónleika að Egóið hefði borið af hinum hljómsveitum eins og gull af eir. Segir það sína sögu. En hér heima eru menn sofandi yfir þessum málum og skilja ekki að íslensk rokktónlist er mjög frambærileg og á allt gott skilið. Velgengni Mezzoforte á erlendri grund hefur varla farið framhjá neinum. Hljómsveitin komst hátt upp á vinsældalistann í Englandi með „Garden Party“. í kjölfar þeirra vinsælda og mikils kynning- arstarfs á undanförnum árum flutti hljómsveitin aðalstöðvar sínar til Englands og hefur starfað þar í sumar af miklum krafti. Hljóm- sveitin fór í sex vikna hljómleika- ferð um England í sumar og náði ferðin hápunkti í Dominion leikhúsinu í London. Voru þeir tónleikar hljóðritaðir og eru nú komnir út á plötu sem heitir Sprell- lifandi. Platan hefur að geyma lögin kammersamstarf. Þau munu halda einhverja tónleika hér heima en aðalvettvangur þeirra verður er- lendis. Það er ekki komið til af neinum hroka heldur fyrst og fremst af því að meiri áhugi er fyrir þeim í útlandinu og þau segjast hafa ýmsa góða möguleika til að komast af erlendis fyrir lítinn pen- ing. Þau stefna að því að halda út til tónleikahalds á fyrstu sex mánuð- um næsta árs. En áður en haldið verður í víking er ætlunin að hljóðrita nokkur lög bæði hér heima og í Englandi og það sem allra fyrst. Það er Grammið sem mun gefa út efni plötunnar, mér i liggur við að segja að sjálfsögðu því ' hvar værum við ef við hefðum ekki Grammið? Eins og menn kannski muna þá var hljómsveitin stofnuð sérstak- lega fyrir síðasta þátt Áfanga og nefndist þá Sérsveitin. Það var Guðni Rúnar sem valdi hópinn og skoraðist enginn undan kallinu. „Danger/High VoItage“ (Háspenna/Lífshætta), „Surprise" (Uppstúf), „Gazing at the Clouds“ (Spáðu í skýin), „Early Autumn“ (Tilhugalíf í gamla bænum), „Mid- night Express" (Miðnæturhrað- lestin), „Garden Party“ (Sprett úr spori), „Surprise Surprise“ (Fyrsta paragraf (A)). Tvö ný lög eru á plötunni, „The Venue“ og „Blue Ice“. Sprelllifandi geymir nánast hljómleikadagskrá Mezzo eins og hún var á Bretlandstúrnum nema hvað sleppa varð lögunum „Action Man“ (Fjörkálfur) og „Rockall". Einnig varð að stytta trommusóló Gulla í laginu „Surprise Surprise" Samstarfið tókst með slíkum ágæt- um að ákveðið var að halda því áfram og þá undir nafninu Kukl. Þrátt fyrir ólíkan tónlistarlegan bakgrunn hefur samstarfið blessast mjög vel. Það má ef til vill segja að kjölur hljómsveitarinnar hafi verið lagður eftir tengsl þeirra Sigtryggs, Gulla og Birgis við Killing Joke. Með þessu samstarfi vill hin tvö- falda heilaga þrenning sýna að hægt sé að starfa saman án þess að detta ofan í hinn hefðbundna hljómsveitarfarveg. Þau segja að goðsögnin um hljómsveitir og tón- listarmenn hafi eingöngu spillt fyrir eðlilegri þróun tónlistarinnar og þeim grunni sem hljómsveitir eiga að starfa á. f þessu sambandi þá benda þau sérstaklega á þátt fjöl- miðla sem hafa matreitt þessa ímynd fyrir hinn almenna lesanda og beinlínis í sumum tilfellum búið til goðsagnir sem eiga ekkert skylt við raunveruleikann. Það verður fróðlegt að fylgjast með Kuklinu í vetur og þeim en það var upphaflega rúmar sjö mínútur. Að þessu frátöldu á platan að gefa sanna mynd af tón- leikum Mezzo. Engir auka hljóð- færaleikarar voru notaðir, eina sem gert var við upptökurnar er að þær voru mixaðar. Það stóð aldrei til að gera neina hljómleikaplötu með Mezzo en þegar menn heyrðu upptökurnar frá tónleikunum í Dominion þann 30. júlí fæddist hugmyndin. Ekki var látið sitja við orðin tóm heldur drifið í að „mixa“ upptökurnar og reyna að endurskapa þá stemningu eins og hún var í Dominion þegar tónleikarnir fóru fram. Það er auðheyrt á Sprelllifandi myndum sem það kann að birtast í, eitt er víst að þau hafa góðar hug- myndir svo er bara að sjá og vona að þeim takist að standa við hug- myndir sínar. Tónlist Kuklsins alla vega „Söng- ull“ minnir mig á tónlist Þeysara. Lagið er mjög kraftmikið og þungt og borið uppi af stórgóðum trommuleik Sigtryggs sem „mixað- ur“ er mjög framarlega. í bak- grunninum heyrir maður svo hinn sérstaka gítarleik Gulla. Ég heyrði bæði lögin „ómixuð" og var þá söngurinn hafður aftar, einhvern veginn finnst mér að sú útgáfa af laginu sé betri en sú sem er á plötu- nni. Einar Örn og Björk koma vel frá sínu sérstaklega finnst mér rödd Bjarkar njóta sín vel við þessa teg- und tónlistar. Einar Melax og Birg- ir eru góðir en besta við þetta lag svo og „Pönk fyrir byrjendur" er hve heildin er sterk. Það má alltaf deila um einstaka hljómsveitar- menn en það er heildin sem skiptir máli og hér er hún mjög góð. Ég hef þá trú að Kuklið eigi eftir að gera ýmsa góða hluti og er sannfærður um að næsta plata hljómsveitarinnar verði söguleg. JVS. að Mezzo hafa verið í fínu formi þetta kvöld og leikið við hvern sinn fingur. Þeir eru alveg hrikalega ör- uggir og vel samæfðir, það er hvergi veikan blett að finna í hljóð- færaleik þeirra. Miðað við tónleika hér heima sýna þeir miklar fram- farir, þeir eru frískari, kraftmeiri og í alla staði mun öruggari. Fyrir okkur sem sitjum heima í stofu þá skapast viss hljómleika- stemning þó stundum finnist manni þeir teygja lopann um of, t.d. í „Garden Party“. Þetta er hægt að segja ef hlustað er á upptökurnar í heimahúsi en hefði örugglega hljómað allt öðru vísi ef maður hefði verið viðstaddur sjálfa tón- - JVS. „Sprelllifandi” Mezzoforte

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.