Þjóðviljinn - 01.10.1983, Page 21

Þjóðviljinn - 01.10.1983, Page 21
skák Helgin 1.—2. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 Arnór Björnsson efstur á Haustmóti Ljóst er af þrem fyrstu umferðum Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur, að sigurstranglegustu keppendunum, þeim Margeiri Péturssyni og Jóhanni Hjartarsyni, mun ekki veitast eins auðvelt að ná efstu sætum og buast mátti við þegar lagt var af stað í mótinu. Að loknum þrem umferðum hafa þeir báðir tapað skák. Margeir Pétursson tapaði óvænt fyrir Arnóri Björnssyni í 2. umferð og í 3. umferð tapaði Jóhann fyrir Sævari Bjarnasyni. Af úrslitum fyrstu umferðar, jafnvel þó að fjölmargar biðskákir setji stórt strik í reikninginn, má ráða að Arnór Björnsson, Elvar Guðmundsson, Sævar Bjarnason og Róbert Harðarson blandi sér í barátt- una. Vegna helgarskákmótsins á Fá- skrúðsfirði varð að færa 3. umferð fram á fimmtudagskvöld, en ekki verður teflt í A-riðlinum á föstudag og sunnudag. Úrslit í 2. umferð á miðvikudagskvöldið urðu þessi: Arnór vann Margeir og Róbert vann Karl. Aðrar skákir fóru í bið. í 3. umferð vann Margeir Bene- dikt, Sævar vann Jóhann og Karl og Elvar gerðu jafntefli. Aðrar skákir fóru í bið. Staðan á mótinu eftir 3 umferðir, þegar ólokið er sæg biðskáka, er þessi: 1. Arnór 2 v. + 1 biðskák. 2. Margeir 2 v.. 3.-4. Elvar og Róbert IV2 v. + 1 biðskák hvor. 5. Sævar 1 v. + 2 biðskákir. 6. Jóhann 1 v. + 1 bið- skák. 7. Karl 1 v.. 8.-11. Dan Hans- son, Benedikt, Halldór og Hrafn 0 v. + 2 biðskákir hver. 12. Hilmar 0 v. + 1 biðskák. 4. umferð mótsins verður tefld næsta mánudag og munu þá þeir keppendur sem eru með í helgar- mótinu á Fáskrúðsfirði verða búnir að tefla 10 skákir á 6 dögum. Arnór Björnsson er tvímæla- laust sá keppandi sem mest hefur komið á óvart. Verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu hans á mótinu, en þess má geta að hann stendur síst lakar að vígi í biðskák sinni gegn Hrafni Loftssyni eftir að hafa lent í miklum erfiðleikum í byrjun tafls. Sigur Arnórs yfir Margeiri Pét- urssyni var athyglisverður. Eftir að TRAUST hf Sími91-83655 LAUSFRYSTI- TÆKI fyrir flök og flakaeftirlíkingar islensk framleiösla. Ödýr tæki. Útvegum mótunarvélar fyrir flakaefti rlíkingar. Nýjir áöur óþekktir möguleikar í mark- aösmálum. , Box 4413, Knarravogi 4 124 Reykjavík Helgi Ólafsson skrifar Mikið er um að skákmenn fari á rölt milli leikja. Hér hefur Elvar Guðmundsson tekið sér hvíld og virðir fyrir sér stöðuna í skák Hrafns Loftssonar og Dan Hansson. Ljósm.: -eik. Margeir hafði orðið að gefa peð vegna ónákvæmni í byrjun tafls náði hann góðum gagnfærum ,og þurfti Arnór að hafa sig allan við að vinna úr stöðu, þar sem hann hafði mikla liðsyfirburði, tvö peð og skiptamun yfir, en viðsjárverða kóngsstöðu: Hvítt: Arnór Björnsson. Svart: Margcir Pctursson. Sikileyjarvörn. 1. c4 c5 7. Rc3 0-0 2. Rf3 Rc6 8- Be2 b6 3. d4 cxd4 9. 0-0 Bb7 4. Rxd4 g6 10. Rdb5 Hc8 5. c4 Bg7 11. Ba6 6. Be3 Rf6 12. Ra3 e6? (Eftir hægfara byrjun sem maður freistast til að álíta að falli vel að hægfara skákstíl Margeirs verður svörtum á ónákvæmni. Annað- hvort hefur honum hreinlega sést yfir næsta leik hvíts eða hreinlega vanmetið hann.) 13. Db3! (Svartur missir peð, svo mikið er víst. Margeir reynir eftir fremsta megni að fá sem mest fyrir það.) 13. .. d5 16. exd5 Rb4 14. Bxb6 De7 17. Bc4 Hb8 15. cxd5 exd5 (Þó að hvítur sé tveim peðum yfir í augnablikinu er enn ekki öll nótt úti fyrir svartan. Hann getur gert sér vonir um að ná mótspili vegna klúðurslegrar staðsetningar hvítu mannana.) 18. Bf2 Ba8 19. Bg3 (Efnishyggjan hefur náð tökum á hvítum. Hér kom til greina að leika 19. Ddl.) 19. .. Da7+ 21. Bxb8 Hxb8 20. Khl Rbxd5 22. Da4 Rc3 (Svartur hefur náð rífandi spili fyrir það lið sem hann hefur orðið að láta af hendi. Arnór þarf að við- hafa mikla loftfimleika til að koma í veg fyrir að svartur nái afgerandi sóknarfærum.) 23. Hgl DcS 24. Bb3 Hb4? (Margeir taldi þennan leik ekki þjóna neinu sérstöku hlutverki. En í öllu falli er það freistandi að bæta hróknum í atlöguna að kóngi hvíts. 25. Dxa6 Bb7 26. Dd3 Rh5? (Hugmyndin er einföld en gallinn sá að hvítur á ágætan mótleik. Hér var upplagt að leika 26. - Hh4 því að svartur getur gruggað mikið í stöðunni sem kemur upp eftir: 27. Dd8+ Bf8 28. Dxf6 Hxh2+ 29. Kxh2 Bd6+ o.s.frv.) 27. Re2 (Svartur hótaði 27. - Rg3+ 28. hxg3 Dh5 mát.) 27. .. De5 abcdefgh (Hótanir svarts eru þess eðlis að það er auðvelt að gera við þeim. Hér er meiningin að leika 28. - Dxh2+! 29. Kxh2 Hh4 mát!) 28. Rc4! (Hróknum á b4 er byrgð sýn. Hvít- ur hefur komið skipulagi á lið sitt og getur litið björtum augum fram á við. Á þessu augnabliki var Margeir orðinn mjög tíma- naumur.) 28. .. Rxc4 29. Bxc4 Bf8 (?) (Sjálfsagt var 29. - Hxb2.) 30. Hgdl Hxb2 31. Dd7! Be7 33- Dd4 Hxbl 32. Habl Rf6 ^4- Hxbl (Að sjálfsögðu ekki 34. Dxe5 Hxdl+ 35. Rgl og þó hvítur sé enn liði yfir á hann mjög óhægt um vik.) 34. .. Dc7 37. Dg4 Kg7 35. Hdl Bc6 38. Rd5 Bxd5 36. Rc3 Rh5 39. Bxd5 - Margeir féll á tíma í þessari stöðu, en staða svarts er algerlega vonlaus. NYOG BETRI OPNARIDAG AÐ HÖFÐABAKKA9 Til sýnis eru nýir Lílar. Þýsleu gflæsivagfnamir OPEL REKORD og OPEL ASCONA. Japönsleu liörleutólin ISUZU 1 ROOPER og' ® ISUZU PICK-UR OPIÐ KL. 10-17 * ** smÆ >v; BIFREIBADEILD SAMBANDSI LASALA HÖFÐABAKKA 9-SIMI 86750 KRO

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.