Þjóðviljinn - 01.10.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 1.—2. október 1983
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf-
ingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafssen.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðárdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Úlafsson,
Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gislason, Ólafur Gíslason,
Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.
Ólafur Björnsson
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaöaprent h.f.
ritstjórnargrcin starf 03 Kjjör
Albert ver
Steingrím
S *■
A fyrstu mánuðum nýrrar ríkisstjórnar kom fljótlega
í ljós að aðgerðir ráðherranna voru með sérstökum
Tívolí-brag. Þeir boðuðu aðhald og sparnað en fóru svo
fljótlega að hygla sjálfum sér og vildargæðingum. Al-
menningur átti að herða sultarólina en hirðin í kringum
ráðherrana hélt áfram að gera það gott.
Frumherji Tívolístælsins í stjórnarráðinu var sjálfur.
fjármálaráðherrann Albert Guðmundsson. Hann var
fljótur að hjálpa hamborgarasalanum vini sínum, sem
hafði gefið hátt í tvö þúsund hamborgara á Háskóla-
bíósfundi Alberts. Pétur í Aski þurfti á reddingu að
halda til að Tívolígróðinn sæti nú í réttum höndum og
auðvitað launaði ráðherrann vinargreiðann frá kosn-
ingunum í vor.
Fjármálaráðherrann gaf svo sjálfur út tilskipun til
Gjaldheimtunnar um að hætt yrði að taka skatta-
greiðslur af ráðherralaununum hans. Þess í stað var
vísað á heildsölu ráðherrans út í bæ sem hann heldur
áfram að reka „sem hluta af sínum persónulega fjár-
hag“ svo notuð séu orð forstjóra fyrirtækisins. Fjár-
málaráðherrann hefur því þá sérstöðu meðal opinberra
starfsmanna að fá í sinn hlut öll launin án þess að
nokkrar skattgreiðslur séu dregnar frá. Tívolíkerfið um
fríðindi þeirra sem unnu í happdrættinu um ráðherra-
stólana átti strax í sumar skeleggan talsmann í fjármála-
ráðuneytinu.
Það er því við hæfi og þarf ekki að koma neinum á
óvart, að Álbert Guðmundsson skuli í Morgunblaðinu í
gær taka að sér að verja bílafríðindi Steingríms Her-
mannssonar. Auðvitað ofbýður Albert ekkert í þessum
efnum. Hann sér ekkert athugunarvert við bílarúlettu
forsætisráðherrans.
Tívolíráðherrann úr fjármálaráðuneytinu og Blazer-
ráðherrann í forsætisráðuneytinu hafa því greinilega
myndað bandalag til að verja spillingu á æðstu stöðum.
Kröfur þeirra um kjaraskerðingu almennings eiga sjálf-
isagt eftir að aukast í réttu hlutfalli við þörf þeirra á að
greiða götu eigin fríðinda. Fversagnirnar í stjórnarfar-
inu ætla greinilega að verða forkostulegri en nokkurn
grunaði í upphafi stjórnarsetunnar.
Um leið og Albert heldur áfram að verja bílarúlettu
Steingríms þarf hann að veita aðstoðarráðherra sínum
Geir Haarde rækilega áminningu. Aðstoðarráðherr-
ann ungi taldi að ráðherrar ættu alls ekki að hagnast á
bílakaupum.
Kannski notar Albert helgina til að útskýra fyrir Geir
Haarde línuna úr Morgunblaðsviðtalinu, að ráðherrar
eigi víst að fá að hagnast á slíkum kaupum - „það sé
ódýrara fyrir ríkið.“
Dómur
Seðlabankans
Seðlabankinn hefur verið hlynntur þessari ríkis-
stjórn. Jóhannes Nordal flutti í vor guðföðurræðu sem
síðan varð uppistaðan í stefnu stjórnarinnar.
Nú eru höfðingjarnir í Seðlabankanum greinilega
komnir með einhverja bakþanka. í ritstjórnargrein í
september hefti efnahagsrits Seðlabankans er því lýst
yfir að stefna í ríkisfjármálunum um þessar mundir sé
langt frá því að vera skynsamleg. Albert Guðmundsson
fær lélega einkunn hjá Seðlabankanum. í raun er dóm-
ur Seðlabankans sá að fjármálaráðherrann sé kolfallinn
á prófinu um nauðsynlegt aðhald í ríkisfjármálum.
ór
Hús upp á 3-4 miljónir. (Ljósm. -eik—).
Áttföld lágmarkslaun
og flottir bílar
ar hótelreikning hans og flugfarið
er frítt fram og til baka.
Bílar Steingríms
Forsætisráðherra þjóðarinnar,
Steingrímur Hermannsson, hefur
aðgang að þremur bifreiðum.
Blazerinn margumræddi kostar
1,2 miljónir. Láglaunafólkið í
landinu greiddi í honum 700 þús-
und og mun greiða bensín, við-
haldskostnað og afskriftir meðan
Steingrímur er ráðherra. Árið
1979 keypti Steingrímur stóran
Blazer með sömu kjörum og
„Iitla“ Blazerinn og hefur fengið
fyrir hann í afskriftir upphæð sem
nemur því er hann þurfti að reiða
fram fyrir litla Blazerinn, þ.e. 500
þúsund krónur.
Steingrímur hefur aðgang að
öðrum bíl. Það er Buick Skylark,
amerískur árgerð 1981. Slíkur bíll
var síðast leystur út hjá véladeild
Sambandsins í febrúar á þessu ári
og kostaði þá 750 þúsund krónur.
Svo er það gamli ráðherrabíll-
inn. Það er Chevrolet Caprice,
hin veglegasta kerra. Hann er
notaður „til að keyra mönnum í
veislur og svoleiðis", segir
Steingrímur.
Hús Steingríms
Forsætisráðherra þjóðarinnar,
Steingrímur Hermannsson býr að
Mávanesi 19 á Álftanesi. Hús á
borð við hús Steingríms munu
seljast á 3-4 miljónir um þessar
mundir að sögn fasteignasala.
ast.
Undanfarnar vikur hefur
Þjóðviljinn kynnt lesendum
sínum starf og kjör nokk-
urra íslendinga. í síðustu
viku var rætt við konu, er
starfar á saumadeild Ríkis-
spítalanna og í vikunni þar
á undan fólk í fiskiðjuveri
Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur.
í dag kynnir Þjóðviljinn
starf og kjörforsætisráð-
herra þjóðarinnar, Stein-
gríms Hermannssonar,
Mávanesi 19, Álftanesi,
Garðabæ.
„Ekkert svigrúm til
launahækkana.“
„Þjóðin verður að spara“, er
boðskapur forsætisráðherra
landsins til þjóðarinnar. Forsæt-
isráðherra hefur ennfremur boð-
að að ekkert „svigrúm“ gefist til
launahækkana á næsta ári.
Laun Steingríms
Blazerinn: 1,2 miljónir og
veislubfllinn. (Ljósm. -eik-).
Forsætisráðherra þjóðarinnar,
Steingríms Hermannssonar, hef-
ur eftir 1. október 77.118,00
krónur í mánaðarlaun (þing-
mannslaun 38.356,00, ferða-
kostnað 1.825,00 og forsætisráð-
herralaun 36.937,00). Steingrím-
ur Hermannsson hefur frían síma
og þegar hann fer til útlanda fær
hann í vasann 3.828 krónur á dag
(110 SDR) sem hann verður að
vísu að greiða matinn sinn með.
Sendiráð viðkomandi lands borg-
Hinn bfllinn: Buick Skylark (Ljósm. -eik-).