Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 7
V V fi 5 *, ^ -\ y'; t1 | | »-'v • » i. f •, i i'« kl.jV.r *• f) ■'
Miðvikudagur 5. öktóber 1983 ÞJCHÖVILJINN - SIÐA 7
Spánn
undir stjórn
sósíalista
Nú er um það bil eitt ár liðið
síðan Sósíalistaflokkur Spán-
ar, undirforystu Felipe Gonz-
alez, vann einhvern stærsta
kosningasigursem sögurfara
af á Vesturlöndum hin síðari
árin. Flokkurinnfékk53% at-
kvæða og vel á annað hundr-
að þingsætameirihlutaí
spænska þinginu Cortes, en
hafði áður verið flokkur með
um 20% atkvæða á bak við
sig.
Ástæðurnar fyrir þessum mikla
og óvænta sigri flokksins eru fleiri
en ein, en þó mun tvennt hafa
vegið þyngst. í fyrsta lagi hafði
ríkisstjórn Miðflokkabandalags-
ins, sem setið hafði við völd frá
árinu 1977, en þá var kosið í
fyrsta sinn að Franco gamla
gengnum, mistekist eða gefist
upp við flest það sem hún reyndi í
framfaramálum á Spáni.
Atvinnuleysi var meira en í öðr-
um löndum Evrópu, eða um 30%
vinnufærra manna, verðbólga
Spánn er enn fyrst og fremst landbúnaðarland og þorp landbúnaðarverkamanna eins og þetta á myndinni
skipta þúsundum á Spáni. Ferðamannastraumurinn til Spánar færir þjóðinni um 37% af gjaldeyristekjum
hennar, enda komu 40 miljónir ferðamanna til Spánar 1982. Nú er lögð mest áhersla á að efla hverskonar
iðnað í landinu.
„Það er stjórnað44
meiri en dæmi voru um áður á
Spáni eða allt að 25% á ári þegar
hún var mest. f annan stað er Fel-
ipe Gonzalez án vafa glæsilegasti
stjórnmálamaður Spánar í dag,
auk þess að vera mælsku-
snillingur og einstaklega
sannfærandi. Auk þess virðist
hann hafa óvenju mikið starfs-
þrek, sem kom m.a. fram í því að
í kosningabaráttunni í fyrra vann
hann dag og nótt í marga mánuði.
Hann heimsótti allar stærstu
borgir landsins, og flestar þær
minni líka, hélt fundi um allt land
og mun enginn annar stjórnmála-
maður hafa farið jafn vítt yfir í
kosningabaráttunni oghann. Þar
við bættist svo að málflutningur
hans þótti mjög skynsamlegur
miðað við ástand mála í landinu,
laus við glamuryrði og fyrirfram
vonlaus kosningaloforð.
Felipe Gonzales, forsætisráð-
herra Spánar.
Og hvað hefur
svo gerst?
Þetta er eðlileg spurning, eftir
að stjórn Felipe Gonzalez hefur
setið að völdum í tæpt ár. Svo
sannarlega hefur margt gerst á
þessum tíma á Spáni. Samherjar
hlaða hann og ríkisstjórn hans
lofi, en ef maður spyr andstæð-
inga hans þá svara þeir „það er
stjórnað á Spáni núna“. Flestir
sem rætt er við um þetta mál á
Spáni telja að Sósíalistaflokkur-
inn hafi aukið fylgi sitt frá því í
fyrra, svo mörgum góðum málum
hafi hann komið í höfn.
Þegar Gonzalez tók við í fyrra
var hann sem fyrr segir, atvinnu-
leysið um 30% og verðbólgan
22%. Á innan við einu ári hefur
stjórninni tekist að koma verð-
bólgunni niður í 13% og því er
spáð að hún verði komin niður í
8% í byrjun næsta árs. Þar að
auki hefur atvinnulausum fækk-
að á Spáni, að vísu ekki mikið, en
það stefnir í rétta átt, eftir að
atvinnuleysið hafði aukist jafnt
og þétt næstu árin á undan. Þá
hefur stjórninni orðið mjög vel
ágengt við lausn vandamála sem
fyrir voru á heilbrigðis- og fé-
lagsmálasviðinu. En mest áber-
andi hefur þó verið hvernig
stjórnin hefur verið að hreinsa til
í þeirri gífurlegu spillingu sem
ríkt hefur á öllum sviðum
efnahags- og atvinnurekstrar á
Spáni, sem er arfleifð frá tímum
Francos.
Frægasta dæmið þar um er yfir-
taka stjórnarinnar á risafyrirtæk-
inu Rumansa sem er eitt allra
stærsta fyrirtæki og auðhringur
Spánar. Rumansa á, auk hundr-
uða fyrirtækja, tvo af stærri
bönkum landsins og eigendur
þess léku þann leik að taka allt fé
sem inn kom hjá fyrirtækinu og
flytja það í svissneska banka.
Greinilegt var að þeir ætluðu sér
að láta fyrirtækið „rúlla“ eftir að
hafa blóðmjólkað það og komið
peningunum undan til Sviss. Ef
Rumansa hefði farið yfirum er
talið að það hefði leitt til þess að
yfir ein miljón manna hefði misst
atvinnu og framfæri sitt. Ríkis-
stjórnin sagði þegar hún yfirtók
fynrtækið, að Spánn hefði ekki
efni á því að Rumansa hætti störf-
um. Hún sagði ennfremur að
koma ætti fyrirtækinu á réttan
kjöl, til þess þyrfti mikið fé, en
þegar þeirri viðureisn væri lokið
gætu eigendur þess fengið það
aftur í hendur - en aðeins gegn
því að greiða til baka hvern ein-
asta peseta sem ríkissjóður hefði
lagt til endurreisnar þess. Sú
endurreisn stendur nú yfir.
Að vekja traust
Þótt yfirtaka Rumansa sé lang
stærsta málið sem upp hefur
komið í upprætingu spillingar,
var raunar á sínum tíma heims-
frétt, þá hefur verið hreinsað til á
mörgum fleiri stöðum og því
verki er hvergi lokið. Það tekur
lengri tíma en eitt ár að hreinsa til
í jafn stóru landi og Spáni, eftir40
ára spillingu og einræði Francos
og fylgifiska hans. Því er spáð að
með því að uppræta þessa spill-
ingu, muni ríkisstjórn Sósíalista
takast að vekja traust erlendis og
með því móti tekja áhuga er-
lendra fyrirtækja á því að leggja
fé í atvinnurekstur á Spáni. Flest-
ir Spánverjar eru sammála unt
það að nauðsyn beri til að fá er-
lent fjármagn til landsins, með
öðrum hætti verði ekki unninn
sigur á atvinnuleysinu. Þá má og
geta þess að Spánverjar hafa sótt
um inngöngu í EBE og eru nú á
svokölluðum biðtíma í því máli,
en margir eru bjartsýnir á betri
tíð, fái Spánn inngöngu í banda-
lagið. Það mun vera nokkuð
þungt fyrir fæti hjá Spánverjum
að komast þárna inn, vegna and-
stöðu Frakka og ítala, sem óttast
samkeppnina á vínmarkaðnum
og er víst ekki bætandi á þá sem
fyrir er, milli þessara tveggja
þjóða. Spánverjar eru, eins og ef-
laust flestir vita, álíka stórir vín-
framleiðendur og ítalir og Frakk-
ar.
Fullyrða má að framvindu
mála á Spáni næstu árin verður
áhugaverð, ekki síst fyrir evróp-
ska vinstrimenn, sem, ef allt fer
fram sem horfir, geta mikið af
spönskum sósíalistum lært.
- S.dór.
Undanúrslit um helgina
Undanúrslit Bikarkeppni Bridge-
sambands íslands verða á laugar-
daginn nk., í Hreyfils-húsinu v/
Grensásveg. Þá spila saman sveitir
Ólafs Lárussonar (Hermann Lár-
usson, Hrólfur Hjaltason og Jónas
P. Erlingsson) gegn Sævars Þor-
björnssonar (Jón Baldursson,
Hörður Blöndal, Sigurður Sverris-
son og Valur Sigurðsson) og Karls
Sigurhjartarsonar (Ásmundur
Pálsson, Guðlaugur R. Jóhanns-
son og Örn Arnþórsson) gegn
Gests Jónssonar (Sverrir Kristins-
son, Jón P. Sigurjónsson og Sigfús
Ö. Árnason).
Leikirnir hefjast kl. 13.00 og
verða spiluð 48 spil milli sveita.
Sigurvegararnir úr þessum tveim
leikjum spila síðan til úrslita á
sunnudag á sama stað og veröur sá
leikur sýndur á sýningartöflu.
Áhorfendur eru velkomnir.
Afmœlismótið
á Selfossi
Spilarar eru minntir á að láta
skrá sig hið allra fyrsta í afmæli-
smótið mikla á Selfossi, sem haldið
verður laugardaginn 15. október
nk. 4o pör taka þátt í mótinu, sem
verður barometer og 2 spil millj
para. Góð peningaverðlaun eru í
boði. Skráningarlistar liggja fram-
mi í félögunum í Reykjavík, t.d.
B.R. í kvöld.
Frá
Bridgefélagi V-Hún.
Hvammstanga
Vetrarstarfið hófst 20.9 með tví-
menningi. Úrslit:
1. Örn - Einar 126
2. Unnar - Ragnhciður 119
3. Aðalbjörn - Sverrir 117
Meðalskor 108.
27.9 var einig spilaður tvímenn-
ingur, úrslit:
1. Karl - Kristján 101
2. Eggert K - Flemming 90
3. Baldur - Eggert L 87
Meðalskor 84.
Hið vinsæla Guðmundarmót fé-
lagsins,boðsmót með þátttöku 28
para, verður haldið 29.10 nk.
Stjórn félagsíns skipa nú Örn
Guðjónsson, Flemming Jessen og
Eggert Ó. Levy.
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Urslit í eins kvölds tvímennings-
keppni mánudaginn 26.9 sl. urðu:
Aðalsteinn Jörgensen -
Ólafur Gíslason 256
Sigurður Steingrímsson -
Sigurður Aðalsteinss. 241
Dröfn Guðmundsdóttir -
Einar Sigurðsson 223
Eysteinn Einarsson -
Ragnar Halldórsson 222
Jón Gíslason -
Sigurður Lárusson 221
Aðaltvímenningskeppni félags-
ins hófst sl. mánudag. Keppnis-
stjóri félagsins er Hermann Lárus-
son.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Sl. fimmtudag átti að hefjast
haust-tvímenningskeppni félags-
ins, en vegna lélegrar þátttöku var
honum frestað um eina viku.
(Hefst semsagt á morgun, allir
velkomnir). Þess í stað var spilaður
eins kvölds tvímenningur með
þátttöku 12 para. Úrslit urðu þessi:
Grímur Thorarensen -
Guðmundur Pálsson 188
Sigurður Sigurjónsson -
Júlíus Snorrason 182
Þórir Sveinsson -
Jónatan Líndal 176
Björn Halldórsson -
Hrólfur Hjaltason 174
Gamlir sem nýir félagar eru
hvattir til að mæta á morgun.
Keppnisstjóri er Hermann Lárus-
son. Tekið skal fram að spila-
menn skan hefst kl.20.Spilað er í
Þinghól v/Hamraborg.
Frá Breiðfirðingum
Úrslit á 3. kvöldi tvímenning-
skeppni deildarinnar (42 pör)urðu:
A>
Birgir ísleifsson - Karl Stefánsson 201
Guðlaugur Nielsen - Óskar Þráinsson 191
Hans Nielsen - Lárus Hermannsson 184
B) Ragnar Björnsson - Eiríkur Bjarnason 209
Guðjón Kristjánsson - Þorvaldur Matthíasson 183
Baldur Árnason - Svcinn Sigurgeirsson 182
C) Árni Magnússon - Jon Ámundason 189
Magnús Oddsson - Jón G. Jónsson 184
Birgir Sigurðsson - Hjörtur Bjarnason 172
Og efstu pör eftir 3 kvöld eru:
1. Guðlaugur Nielsen - Óskar Þráinsson 621
2. Birgir ísleifsson - Karl Stefánsson 540
3. Eggert Benónýsson -
Olafur Lárusson
skrifar um
bridge
Sigurður Ámundason 535
4. Baldur Árnason -
Sveinn Sigurgeirsson 533
5. Birgir Sigurðsson -
Hjörtur Árnason 524
6. Ingibjörg Halldórsdóttir -
Sigvaldi Þorsteinsson 512
Frá Bridgefélagi
Sauðárkróks
Starfsemi félagsins hófst
mánudaginn 26. septembersl. með
eins kvölds tvímenningi og urðu
úrslit þessi:
A- riðill:
Andrés Þórarinsson -
Rúnar Pálsson 120 st.
Stcingrímur Sigfússon -
Jón Tryggvi Jökulsson 119 st.
Einar Svansson -
Skúli Jónsson 116 st.
Erla Guðjónsdóttir
Haukur Haraldsson 109 st.
B-riðill:
Gunnar Þórðarson
Árni Rögnvaidsson 128 st.
Árni Stefánsson -
Björn Magnús Björgvinsson 115 st.
Agnar Sveinsson -
Valgarð Valgarðsson 113 st.
Broddi Þorsteinsson -
Hjördís Þorgeirsdóttir 111 st.