Þjóðviljinn - 27.10.1983, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 27. október 1983 'ÞJÓÐVÍLjlNN - SÍÐA 7
„Við látum það viðgangast að við séum skilgreindar sem varavinnuafl44 segir m.a. í ályktun
ráðstefnunnar í Gerðubergi um sl. helgi. Mvndin er tekin í einum umræðuhópnum.
Fjölsótt ráðstefna um launkjör kvenna
Um tvö hundruð konur komu á ráðstefnu í Gerðubergi um sl. helgi en þar var rætt um
orsakir launamisréttisins á vinnumarkaðinum og leiðir til úrbóta í þeim efnum. Ljósm.
Magnús.
Stofauð verði Samtök
kvenna á vinnumarkaði
Um 200 konur sátu ráð-
stefnu um „orsakir launa-
misréttis karla og kvenna á
vinnumarkaði og leiðir til úr-
bóta“ í Gerðubergi s.l. laug-
ardag. Á ráðstefnunni var
ákveðið að gangast fyrir
stofnfundi Samtaka kvenna
á vinnumarkaðinum og er
þeim ætlað að standa sam-
eiginlega að baráttumálum
kvenna og vera þar stefnu-
markandi og bakhjarl þeirra
kvenna sem gegna trúnaðar-
störfum í launþegasam-
tökunum.
Á ráðstefnunni fluttu þær
Bjarnfríður Leósdóttir og Heiga
Sigurjónsdóttir framsögu um or-
sakir launamisréttis karla og
kvenna en þær Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir og Lilja Ólafsdóttir
höfðu framsögu um leiðir til úr-
bóta. Að lokum framsöguerindum
þeirra skiptu fundarmenn sér í 16
hópa sem skiluðu niðurstöðum síð-
degis.
Samþykkt var að efna til fundar
með öllum þeim konum sem sitja í
næstu samninganefndum laun-
þegasamtakanna til að ræða um
komandi samningagerð og launa-
kröfur kvenna. Jafnframt var þeim
hópi sem undirbjó ráðstefnuna fal-
Fyrirspurn frá
Helga Seljan
Skipulag
geðheil-
brigðismála
Heigi Seljan hefur lagt fram
fyrirspurn á alþingi til
heilhrigðis- og tryggingamála-
ráðherra um geðheilbrigðis-
mál, sem nú eru n\jög í um-
ræðu í þjóðfélaginu.
Helgi spyr:
1. Hvað líður störfum nefn-
dar sem skipuð var til að
endurskoða skipulag geð-
heilbrigðismála? Hefur hún
skilað tillögum. og ef svo er,
hver eru áform heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins
um framkvæmd þeirra?
2. Eru uppi áform í ráðu-
neytinu um skipulega forvarn-
arvinnu í geðheilbrigðismál-
um?
3. Hver eru að dómi ráðu-
neytisins forgangsverkefni í
þessum málaflokki og hvaða
áform eru þar uppi?
-«g-
ið að hafa samvinnu við þverpólit-
íska nefnd sem skipuð var eftir ráð-
stefnu Alþýðuflokkskvenna um
launamisréttið á vinnumarkaðnum
í september s.l. ma. um útgáfu
upplýsingabæklings um stöðu og
kjör kvenna.
Einnig var samþykkt að skora á
útvarpsráð að koma á föstum þátt-
um í útvarpi og sjónvarpi sem fjalli
um stöðu kvenna og kjör.
Sérhagsmunasamtök á
vinnumarkaði?
Á ráðstefnunni kom fram eftir-
farandi tillaga, sem ekki var af-
greidd efnislega, en vísað til vænt-
anlegra Samtaka kvenna á vinnu-
markaðinum: „Nú þegar verði
stofnaður undirbúningshópur, sem
hafi það verkefni að leggja drög að
skipulagi hagsmunasamtaka
kvenna á vinnumarkaðinum. Slík
samtök hafi þann tilgang að annast
kjarasamninga og önnur mál, sem
nú eru í verkahring launþegasant-
takanna".
Varðandi orsakir launamisréttis
voru þessar niðurstöður helstar:
„Allt þjóðfélagið er mótað af því
viðhorfi að sjálfsagt sé að karlar
hafi forystu og forræði f öllurn mál-
um. Við konur göngumst undir
þessar karlveldishugmyndir og
treystum körlum betur en okkur
sjálfum til að tryggja hag okkar.
Áfleiöingar þessa eru m.a. að
körlunt reynist auðvelt að sundra
konurn í sameiginlegri
hagsmunabaráttu þeirra. Við van-
metum eigin getu og dómgreind.
Við látum það viðgangast að vera
skilgreindar sem varavinnuafl.
Fyrirvinnuhugtakið og þá ein-
göngu tengt körlum, ræður launa-
kröfurn launþegasamtakannæ.
Rödd kvenna við kröfugerð og
samninga er veik og þar eins og á
öðrum sviðum þjóðlífsins ráða
karlar stefnunni. Þrátt fyrir þá
staðreynd að viðurkennt sé að tvo
þurfi til að vinna fyrir heimili, eru
hugmyndir um karla sent fyrirvinn-
ur énn ráðandi í launamálum eins
og áður var bent á. Jafnframt er öll
ábyrgð á umönnun barna sett á
herðar kvenna, og ekkert tillit
tekið til hins sívaxandi hóps
kvenna sem eru einar fyrirvinnur".
Niðurstöður hópa um lciðir til
úrbóta á því hrikaleg misrétti sem
ríkir varðandi launakjör kynjanna
beindust einkum að tveimur megin
hugmyndum. Annars vegar að
koma á „Kvótakerfi" sent tryggði
konum 52% sæta i stjórnum og
nefndum launþegasamtakanna.
Hinsvegar að konur bindist sam-
tökum þvert á stéttarfélög í því
skyni að standa sameiginlega aö
baráttumálum kvenna.
Orlög Alþýðublaðsins í
höndum Sighvats og Arna
Þcir Sighvatur Björgvinsson og Árni Gunnarsson voru á mánudaginn
kosnir til að stjórna rekstri Alþýðublaðsins ásamt Ásgeiri Jóhannessyni úr
Reykjaneskjördæmi þartil annað hefur verið ákveðið.
Vart var blekið þornað af fréttaskýringu Þjóðviljans um helgina þarsem
frá því var skýrt að þeir Sighvatur og Árni væru í sókn til forystu í
Alþýðuflokknum, þegar ákvörðunin um yfirstjórn Alþýðublaðsins var
tekin. Ásgeir Jóhannesson var prófkjörskandidat krata í Kópavogi fyrir
síðustu kosningar en tapaði þá naumlega.
Sighvatur, Árni og Asgeir munu fyrst um sinn fara í saumana á fjár-
hagsstöðu blaðsins og gera tillögur um næstu skref í útgáfumálunum.
Þykir nú heldur blása byrlegar fyrir Alþýðublaðið þegar „þungaviktar-
menn" og væntanlegir forystumenn Alþýðuflokksins hafa nú hafið verk
þetta.
-ór.
Fréttaskýring Þjóðviljans um sl. helgi þar sem fjallað var unt forystu-
kreppuna í Alþýðuflokknum.
Óskar
Guftmundsson
skrifar
fréttaskýrina
Erfiðlcikar i Alf)ý<)nJ1okki:
Lausnir á forystukreppu
Vistunar-
vandi
öryrkja
„Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir því að
leysa vandamál þeirra öryrkja sem
eiga sakir andlegrar og líkamlegrar
fötlunar örðugt um vistun á þeim
stofnunum sem fyrir eru.
Helst yrði um að ræða að efla
stuðning við hjúkrun í heimbyggð
eða stofnun sérdeildar við ríkisspít-
ala“.
Þannig hljóðar þingsályktunar-
tillaga frá Helga Seljan, Guðrúnu
Agnarsdóttur, Guðrúnu Hclga-
dóttur og Kristínu S. Kvaran, sem
lögð hefur verið fram á alþingi.
-óg-
Frumvarp til jafnréttislaga
Er til skoðunar
hjá ríkisstj órninni
Frumvarp til jafnréttislaga er til
umfjöllunar hjá ríkisstjórnarþing-
flokknum, sagði Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra á
alþingi í svari við fyrirspurn frá
Svavari Gestssyni. Sagðist ráðher-
rann reikna með að frumvarpið
yrði lagt fram óbreytt í þinginu
fljótlega.
Svavar Gestsson sagðist vilja
fylgja þessu máli eftir og að hann
vonaðist til að það kæmi sem allra
fyrst til kasta þingsins.
Jóhanna Sigurðardóttir lýsti yfir
einörðum stuðningi við málið og
þakkaði Svavari kurteislega og af
háttvísi fyrir málafylgjuna. Salome
Þorkelsdóttir spurði hvort Alex-
ander hefði fengið boð frá
jafnréttisráði um að kom á fund, en
slíkt boð hefðu konur á þingi feng-
ið sem og Svavar Gestsson fyrrver-
andi félagsmálaráðherra og skipari
nefndarinnar. Alexander Stefáns-
son kvað það nú ekki vera. Hins
vegar hefði hann snætt hádegisverð
með stjórn jafnréttisráðs á dögun-
um og hefði það verið fróðlegt fyrir
báða aðila. -óg.