Þjóðviljinn - 27.10.1983, Blaðsíða 15
Fimmfudagur 27. október 1983 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA ‘15
RUV0
Fimmtudagur
27. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Þórný Þórarinsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „ Leitin
að vagnhjóli" eftir Meindert DeJong
Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sina (20).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. Forustugr.
dagbl. (utdr.).
10.35 Ég man þá tið“ Lög Irá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.50 Þáttur af séra Jóni Hjaltalín Séra
Sigurjón Guðjónsson flytur.
11.35 Nýtt popp
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
Erlingur Sigurðarson heldur áfram
með sína hressilegu íslenskuþætti kl.
19.00
ingar. Tónleikar.
14.00 „Kallað í Kremlarmúr" eftir Agnar
Þórðarson Höfundur les (3).
14.30 Á frívaktinni Margrét Guðmunds-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Nathan Milstein
leikur á fiðlu Partítu nr. 3 í Es-dúr eftir
Johann Sebastian Bach / Alicia de Lar-
rocha leikur Pianósónötu i e-’moll op. 7
eftir Edvárd Grieg / Arthur Grumiaux og
Clara Haskil leika Fiölusónótu i G-dúr
K301 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Ðagskrá kvöldsins.
Nfna Björk Árnadóttir er með þátt um
danska skáldlð Henrik Nordbrandt kl.
22.35.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt
mál. Erlingur Sigurðarson flytur þáttinn.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Guðlaug'
M. Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdóttir.
20.00 Leikrit: „Flótti“ eftir Alan McDonald
Þýðandi og leikstjóri: Benedikt Árnason.
Leikendur: Baldvin Halldórsson, Þor-
steinn Gunnarsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Herdís Þorvaldsdóttir. Guðbjörg
Þorbjarnardóttir og Árni Tryggvason.
21.15 Ptanóleikur í útvarpssal Kristinn
Gestsson leikur a. Sjö skissur op. 9 eftir
Béla Bartók b. Serenöðu í A-dúr eftir Igor
Stravinsky.
21.30. „Fáráðlingurinn", smásaga eftir
Susan Sontag Sigurður Á. Friðþjófsson
les þýðingu sina.
21.55 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 í fjarlægri nánd Þáttur um danska
skáldið Henrik Nordbrandt í umsjáNínu
Bjarkar Árnadóttur.
23.00 Siðkvöld með Gylfa Baldurssyni.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Allt um íþróttir helgarinnar.Sjá bls.11-14
FJOLBREYTTARfl
0G BETRft BIAÐ!
Þríðjudagur 25. oklober 1983
247. tóiublað - 67. argangur
Siðumula 15-PosthoTf 370 Rtyknvik - Ritsno'r 8630C- Auglysingar 18300- AtgmáiU og avkntr 88300 - Kvoklsimar 86387 og 8S306
.OÐNUVEIÐAR HEFJAST j=f’
Hlutafélag
skal það vera
Norðlendingur skrifar:
í ráði virðast nú vera breyting-
ar á útgáfumáium Tímans. Hing-
að til hefur blaðið verið gefið út
af Framsóknarflokknum. Ætla
hefði mátt að næst fjölmennasti
stjórnmálaflokkur þjóðarinnar
risi undir því, að halda úti dag-
blaði án stórfelldra erfiðleika og
það því fremur sem samvinnu-
hreyfingin hefur löngum verið
blaðinu drjúgur fjárhagslegur
bakhjarl. Hefur flokkurinn og
blaðið jafnan talið sig sérstakan
málsvara samvinnuhreyfingar-
innar. En ekkert hefur hrokkið
til. Og nú er svo komið, að blaðið
sér ekki lengur út úr skuldakóf-
inu.
Orðrómur var á kreiki um það
á dögunum, að Sambandið
hyggðist taka að sér rekstur Tím-
ans. Ótrúlegt þótt mér sú saga.
Vel má vera að hjá forkólfum
Sambandsins hafi gætt nokkurrar
tilhneigingar til þessa björgunar-
starfs. En óhægt er um vik að
ganga hreint til verks fyrir félags-
skap, sem segist standa utan
flokkapólitíkur. Og sá feluleikur
varla hugsanlegur, að ekki sæist í
gegnum hann.
Og nú er sagt að niðurstaðan
hafi orðið sú, að reyna að bjarga
blaðinu með því að stofna urn það
hlutafélag. Flokkurinn ætlar
sjálfur að eiga fullan helming
hlutabréfanna. Síðan má hver,
sem lyst hefur á, kaupa afganginn
af þrotabúinu. Óvíst er að það
verði Framsóknarmenn. Ef þeir
hafa áhuga á að bjarga blaðinu þá
geta þeir alveg eins gert það án
þess að myndað sé um það
hlutafélag. Peningar verða ekk-
ert verðmeiri þótt þeim sé varið
til hlutabréfakaúpa í sökkvandi
fyrirtæki en til beinna styrktar-
framlaga. Hugsanlegt er, að ein-
hverjir pólitískir andstæðingar
Framsóknarflokksins, - og þá úr
peningastéttum þjóðfélagsins -
sæju sér leik á borði með að ná
einhverjum tökum á blaðinu í
gegnum hlutabréfakaup. Eins og
sakir standa gerist þó ekki þörf á
þeim ítökum. Tíminn er, í ýmsum
greinum, þröngsýnni og íhalds-
samari en sjálft Morgunblaðið.
Hann stendur ennþá dyggilegri
vörð um stækustu íhaldsstjórn,
sem setið hefur að völdum á fs-
landi en Morgunblaðið.
Tíminn hefur um árabil verið á
niðurleið fjárhagslega, og raunar
á öðrum sviðum einnig. Hann var
um langt skeið best skrifaða blað
landsins. Nú er öldin önnur. Við-
unandi fjárhagsstaða blaðsins
byggðist á dreifbýliskaupendum.
einkum bændum. Allir fram-
sóknarbændur fengu Tíniann og
innheimta var örugg gegnum
kaupfélögin. Þessi grunnur hefur
brostið. Bændum hefurstórfækk-
að. Ymsir yngri bændur eru síður
en svo hrifnir af Framsóknar-
flokknum. Hinir eldri, margir
hverjir, hafa einnig sínar efa-
semdir og eru fjarri því að vera
jafn skelegg baráttusveit og áður
fyrr.
Aukning á kaupendatölu
blaðsins varð því að koma úr
þéttbýlinu, einkum af Reykjavík-
ursvæðinu. En þar er erfitt um
vik og þröng á þingi. Allur þorri
fólks hefur ekki efni á því að
kaupa nema eitt dagblað. Tíminn
liefur lotið í lægra haldi í sam-
keppninni á þéttbýlismarkaðin-
um. Og það eru ekki horfur á að
hann vinni þar ný lönd. En á
meðan íhaldið telur sig þurfa á
Framsókn að halda er hugsanlegt
að samkeppnismenn séu til með
að auglýsa í blaði „sanivinnu-
manna“ til þess að halda því
hérna megin grafar. Spurningin
er hvort það lengi ekki aðeins
dauðastríðið.
En úr því að hugmyndin er að
stofna félag um Tímann því þá
ekki samvinnufélag? Telur Tím-
inn sig ekki vera samvinnublað?
Segjast ekki Framsóknarmenn
vera samvinnumenn og raunar
þeir einu, sem rísi undir því nafni
hér á hólmanum? Hafa ekki
Framsóknarntenn haldið því
fram, sínkt og heilagt, að stefna
flokksins sé samvinnustefnan?
En svo þegar þessir „samvinnu-
menn“ ætla að stofna féiag um
blað sitt, þá skal það ekki vera
samvinnufélag heldur hlutafélag.
Nú er ég hræddur um að Jónas frá
Hriflu hefði hleypt í brýrnar.
Annars eru þessi blaðamál
Framsóknar býsna kostuleg. Á
meðan Tíminn er að kafna í
skuldum, ræða Framsóknarmenn
fyrir norðan um það, að gera Dag
á Akureyri að dagblaði. Hugsun-
in virðist vera þessi: Vegna fjár-
hagserfiðleika getum við illa rek-
ið eitt dagblað. Það er á hinn bóg-
inn ekki óhugsandi að við getum
rekið tvö. Og skilji nú hver sem
skilið getur.
Útvarp kl. 20.45:
Flótti
í kvöld verður flutt í Útvarpinu
leikritið Flótti, eftir Alan
McDonald. Þýðingin er gerð af
Benedikt Árnasyni og hann ann-
ast einnig leikstjórn.
Efni leiksins er í sem stystu
máli eftirfarandi:
John er millistéttarmaður og
lifir á eftirlaunum. Ýmislegt hef-
ur brugðist honum, eins og verða
vill og líf hans því orðið með öðr-
um hætti en hann gerði sér vonir
um. í raun og veru er það bæði
Guðbjörg Þorbjarnard Hcrdís Þorvaldsdúttir. Tinna Gunnlaugsdóttir.
viðburðarsnautt og gleðivana og lest hittir hann þá konu, sem
nú er svo komið, að hann er hann telur sig alltaf hafa dreymt
jafnvel farinn að hata konu sína, um. Og þár með eru örlög hans
sem er rúmliggjandi sjúklingur. ráðin. En áhvern vegráðast þau?
Svö skeður það, að í járnbrautar- " _ mhg
Árni Tryggvason.
Baldvin Halidórsson.
Bencdikt Árnason.
Þorsteinn Gunnarsson.
Karpov að tafli - 222
Þrátt tyrir afleita trammistöðu á Evrópu-
mótinu í Skara var Karpov þó ekki að baki
dottinn. I þrem næstu mótum sem hann tók
þátt í tókst honum ávallt að vinna sigur og
var Ijóst að keppnin í Skara var aðeins
frávik frá reglu þeirri sem mælti svo um að
engum væri kleift að sigra heimsmeist-
arann. I næstu þrem mótum, í Bad Kissing-
en, Amsterdam og Bugonjo gætti gamla
öryggisins. I ettirfarandi viðureign situr
Karpov gegnt Bent Larsen frá Danmörku í
fyrri helminq stórmótsins í Amsterdam
1980:
abcdefgh
Karpov - Larsen
34. d5! cxd5
(Eða 34. - exd5 35. Df5 - og vinnur).
35. C6+! Kxc6
36. Db5+
- og Larsen gatst upp þar sem hrókurinn á
g1 fellur eftir skák annaðhvort á c5 eða b6
bridge
Það var óhemju mikið um skemmtileg
og „villt“ skiptingárspii í fyrstu lotum
kvenna tvímenningsins sem sþilaður var
sl. helgi og fóru spilin afar illa viö mjög
svo rólegan „stil" kvennanna. Þó slædd-
ust með hæglætisspil:
Spil no 9..Gjafari N, A/V á hættu: (átt-
um breytt).
Norður
S G10
H A52
T K72
L KG872
Vestur
S K9876
H 3
TG6
L D9654
Austur
S D43
H KD974
T A1095
L 10
Suður
S A52
H G1086
T D843
L A3
Viö eitt boröið, sátu Ester Jakobsdóttir
og Ragna Ólafsdóttir með N/S spilin og
þar gengu sagnir:
A S V N
Ester Ragna ■
1-H pass pass 2-L
pass 2 Gr. pass/hr.
Vestur kom út með spaða sem Ester
gaf tvivegis og vestur braut litinn. Ester
tók næst lauf ás og smátt laut á sjöu
blinds, austur kastaði hjarta. Þá lítið
hjarta úr borði, og inni á drottningu var
austur strax í vanda, valdi tígul sem var
hleypt á kóng (n.b. tiguil var látinn úr
borði i 3. spaðann).
Ester tók nú laut kóng og eins og sjá
má er austur nú bjargarvana og hún varð
að sjá af enn einu hjarta.
Framhaldið er nú einfalt, en Ester
hafði „Týnt“ fyrsta atkasti austursog var
staðan ekki Ijós. í stað þess að taka á
hjarta ás og spila meira hjarta sem
skapar slag á hjarta með sannaða
innkomu á tígul drottningu, bað hún um
tígul úr borði, Austur var allsekki á verði.
lét lítið og tígul drottning og meiri tíguli
skapaði síðan endaspilið og 8. slag
leiðinni. 120 gaf eðlilega mjög góða skor.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Liðin skoruðu sitthvorl
markið.
Rétt væri: Liðin skoruöu sitt mark
ið hvort.
Leiðréttum börn sem flaska
þessu!