Þjóðviljinn - 27.10.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. október 1983
Útþensla bensmsölukerfisins
Sölu- og
dreifingar-
kostnaður
á bensíni
228 miljónir
á einu ári
Landsmenn kaupa árlega bensín
fyrir um 2 miljarði og rúmar 60
miljónir kr. af bensínstöðvum
hérlendis, ef miðað er við verð
það sem greiða þarf fyrir bensín-
líterinn í dag, 22.90 kr., og að alls
séu seldir 90 þús. tonn af bensíni á
ári sem verið hefur ársalan hér-
lendis undanfarin ár.
Af þessum rúmum tveimur milj-
örðum er kostnaður vegna sölu-
og dreifingar 11.1 % eða sem
nemur228 miljónum kr. áári.
Það skal tekið fram að í þessari
tölu er ekki tiltekinn kostnaður
vegna bygginga og endurnýjunar
bensínstöðva, heldurráðstafa
olíufélögin fjármagni til þeirra
hluta af afskriftarfé eða tekjuaf-
gangi. Ekki er heldur er inni í
þessari tölu kostnaður vegna
verðjöfnunar á bensíni um allt
land, þar kemur til sérstakt gjald
sem lagt er á bensínverð utan við
dreifingar- og sölukostnað.
Bensín-
verðið
Rúm 11%
í kostnað
Bensínlíterinn kostar nú eftir síðustu
hækkun 22.90 kr. óg er þá hæsta
bensínverð í Evrópu og Ameríku og
þótt víðar væri leitað.
Samkvæmt upplýsingum frá Verð-
lagsstofnun er verðskipting bensín-
verðsinsþessi, per. líter:
Cif-verð ................. 6.66 kr.
Opinbergjöld ............13.20 kr.
Dreifingarkostn.......... 2.54 kr.
Verðjöfnunargjald ........ 0.31 kr.
Tiliagtil innkaupareikn. 0.19 kr.
22.90 kr.
Hlutfallslega er verðskiptingin þessi:
Innkaupsverð ............ 29.08%
Opinbergjöld .............57.6 %
Dreifingarkostn...........11.1 %
Verðjöfnun ............... 1.4 %
Tillag til innkaup........ 0.8 %
100.0 %
Borgum 228
miljónir á ári
í dreifingar- og
söiukostnað
ii
Svan Friðgeirsson ráðgjafi Olís
Ekkert bruðl
yy
„Ég tel að menn séu almennt
á því að það eigi aö byggja
eftir skynseminni í þessum
efnum, en ekki ótakmarkað,
en þetta er auðvitað um leið
atvinnuskapandi“, sagði
Svan Friðgeirsson ráðgjafi
hjá Olís.
„Jú margir tala um að það sé dýrt
byggt, en við reisum okkar stöðvar
í billegri kantinunr. Hitt er líka að
það er ásókn hjá sveitarfélögum að
menn byggi myndarlega, en ég vil
taka fram að nýja bensínstöðin í
Garðabæ var ekki dýr bygging. Það
er hægt að gera hluti fallega án þess
að þeir þurfi endilega að vera dýrir.
Það er ekkert bruðl hjá okkur, það
er ekki okkar stefna."
Þið hafið sótt eftir að byggja við
Vesturlandsveg. Er þörf á bensín-
stöð þar, þar sem tvær stöðvar eru
aðeins neðar í Artúnsbrekku?
„Við teljum að við höfunr dregist
aftur úr hinum félögunum. Höfunt
þurft að leggja niður margar stöðv-
ar á liðnum árum eins og t.d. við
Hlemm. Ég tel að það sé full þörf á
bensínstöð á svæðinu við Höfða-
bakka. Þarna er hraðbraut og við
teljum okkur eiga rétt á að fá að
reisa stöð við hraðbraut hér í borg-
arlandinu“, sagði Svan Friðgeirs-
son.
- 'g-
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Essó
Hver er þörfín fyrir alla þessa útþenslu bensínstöðva?
Hvert er hlutíali sölu- og dreifikostnaðar í bensínverði?
Hvert stefnir í samkeppni olíufélaganna þegar
bensínsölustöðvar nútímans eru m.a. reistar með það í
huga að selja og versla með ýmsa aðra og ólíka hluti en
bensínvörur, sbr. sælgæti og matvörur? Er verið að
bruðla með peninga þegar olíufélögin virðast vera
komin í kapphlaup um að reisa sem glæsilegastar
bensínsöluhallir víðs vegar um landið? Forsvarsmenn
olíufélaganna voru m.a. beðnir um svör við þessum
spurningum og ýmsum fleiri.
Ólafur R. Eggertsson hjá Shell
„Nýir tímar“
^Sker íaugunu
„ Við höfum ekki áhuga á að
eyða miklu í bensínstöðvar, en
það eru kröfur nútímans að
skipta um, þetta eru nýirtímar",
sagði Ólafur R. Eggertsson hjá
Skeljungi.
„Það er erfitt að svara því hvort
Stór-Reykjavíkursvæðið sé full-
mettað. Eftir því sem byggðin flyst
til þá koma til nýjar þarfir. Hins
vegar hefur akstursmynstrið breyst
mikið á síðustu árum. Það eru
komnir minni og sparneytnari bíl-
ar. Menn skipta örar á bílum og
dauðakeyrsla hefur dregist saman.
Þá hefur dýrtíðin haft sín áhrif og
langkeyrslur í sumarfríum og
hringvegsferðalög hafa nær alveg
lagst af. Þetta heyrir sögunni til.
Bensínsala hefur ekki aukist og við
höfum reynt að gæta ýtrustu hag-
kvæmni í uppbyggingu og endur-
nýjun“, sagði Olafur.
En áfram rísa nýjar bensínstöðv-
ar, og bensín hækkar, á sama tíma
og bíleigendur spara við sig hvern
dropann.
- Ig-
„Ég tel grundvallaratriöi að það
eigi ekki að ofíjárfesta í
bensínstöðvum. Það vargert
samkomulag um þessi mál
1970. Þá náðist fram mjög
happasæl niðurstaða, en það
hefur ýmislegt farið úr skorðum
á síðustu árum. Stöðin á
Seltjarnarnesi kom mértil
dæmis mjög á óvart. Það er
verst fyrir olíufélögin sjálf ef þau
yfirbyggja sig í þessum efnum.
Það skeríaugun hjáfólki. Það
er ekki hægt að neita því að það
eru til staðir úti á landi sem búið
er að yfirbyggja", sagði
Höfðabakkastöðin
Eldri
umsókn
Ólafur R. Eggertsson hjá Skelj-
ungi vildi taka það fram vegna
frétta í blaðinu í gær um áhuga
Oiís-manna á að reisa hensínstóð
við Vesturlandsveg á móts við
Höfðabakka, að Skeljungur hefði
sótt um til borgaryfirvalda fyrir 8
árum síðan að reisa bensínstöð á
þessum slóðum og ætti því rétt á
þessari bensínstöð ef hún yrði
heimiluð. - Ig.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri
OlíufélagsinsEsso.
Margir nefna bensínstöðvar
„Musteri nútímans“ Hvað finnst
þér?
Ég held að þetta sé misskilning-
ur. Það er meiri þjónusta veitt en
áður fyrr og meira um bílavörur í
stöðvunum. Þetta kallar á nteira
rými. Sums staðar getur vel verið
að byggt sé með óvenju miklum
glæsibrag, en ég held að það sé ekki
yfir heildina."
Hvað kostar að byggja bensín-
stöð?
„Það er í raun ekki hægt að gefa
neina tölu yfir það. Jarðvinna er
dýrust, þvottaplön og grunnur, en
byggingarnar eru ekki dýrari en
önnur hús. Menn reyna hins vegar
að hafa þetta þokkalega stórt til að
gera það hagkvæmara. Hitt er rétt
aðeins og staðan er orðin í dag þá
þolir höfuðborgarsvæðið ekki
mikið meira. Bílunum hefur fjölg-
að en það hefur engin aukning orð-
ið í sölu á bensíni á síðustu árum.“
Er hörð samkeppni í bensínsöl-
unni?
„Það hefur alltaf veri hörð sam-
keppni, en hún sr\ýst ekki um verð-
ið heldur er það þjónustan.“
Hvað vegur þessi þjónusta þungt
á bensínverðið?
„Það er ekki mikið, þetta er lítil
prósenta af útsöluverði, innan við
10%“, sagði Vilhjálmur Jónsson.
- Ig-