Þjóðviljinn - 27.10.1983, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. október 1983 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 9
Vaxtarbroddur ríkisstjórnarinnar
Minnsta fjármagn til
orkumála síðan 1964!
Þaö var skrítinn svipur á
Sverri Hermannssyni iönaö-
arráðherra frammi fyrir alþjóð,
þegar Hjörleifur Guttorms-
son benti á þaö í viöræöuþætti í
sjónvarpinu í fyrrakvöld, að
samkvæmt fjárfestingar- og
lánsfjáráætlun fyrir 1984 væri
ætlaö minna fjármagn til orku-
mála en sést hefur síöan árið
1964. Sem hlutfall af þjóöar-
framleiðslu er til ráöstöfunar í
þennan „vaxtarbrodd" sam-
kvæmt stjórnarsáttmála 2.86%
af þjóðartekjum sem er
lægsta hlutfall í tuttugu ár.
Samdrátturinn frá síðasta ári er
rúm 37% reiknað á sama verö-
lagi.
Þessi mikli samdráttur til ra-
forkumála, sem er langt umfram
samdrátt þjóðartekna, kemur m.a.
fram í eftirfarandi:
Sverrir Hermannsson: Setti upp
skrítinn svip frammi fyrir alþjóð.
Blönduvirkjun frestast „um
a.m.k. eitt ár“ eða til 1988. Til
.virkjunarinnar eru ætlaðar 200
m.kr. næsta ár, en Landsvirkjun
telur þurfa 320 m.kr., ef tryggt eigi
að vera að hægt sé að gangsetja 1.
vél Blönduvirkjunar haustið 1988.
Kröfluvirkjun fær ekki krónu
Hjörleifur Guttormsson: í orku-
málum er allt látið snúast um
hagsmuni Alusuisse.
vegna borana til gufuöflunar, en
tvö síðustu ár hefur loks farið að
miða sæmilega á nýju jarðhita-
svæði við Hvíthóla.
Suðurlína á að fresta annað árið í
röð samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar og Sverris iðnaðar-
ráðherra, en framkvæmdir við lín-
una voru langt kontnar við
stjórnarskiptin sl. vor og átti línan
að tengjast nú í haust.
Kísilmálinvcrksmiðja er ekki á
blaði nema hvað sagt er í texta:
„Ekki er gert ráð fyrir framkvæmd-
um við Kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði, en samþykki Alþingis
þarf til að hefja byggingu verk-
smiðjunnar."
Það sem ekki er hins vegar
skorið niður af óskunt Lands-
virkjunar eru lán til framkvæmda
á Þjórsársvæðinu, þ.e. við
Kvíslveitur og Þórisvatnsmiðlun.
Hjörleifur vakti athygli á þessari
staðreynd og að hún tengdist
greinilega áformunum um stækkun
álversins í Straumsvík. I orkumál-
unum sé allt látið snúast um
hagsmuni Alusuisse og uppgjafar-
samninginn sent undirritaður var í
síðasta mánuði.
Greinasafn eftir
Erlend Patursson
„Sjón og seiggj" heitir greina-
safn sem nýlega kom út og er eftir
Erlend Patursson, hinn kunna for-
ingja færeyskra Þjóðveldismanna,
en hann varð sjötugur fyrr á þessu
ári.
Greinarnar í bókinni fjalla marg-
ar unt sjálfstæðisbaráttu Færeyinga
sem og um baráttu verkamanna og
sjómanna fyrir lífvænlegum
kjörum. Ennfrentur eru í bókinni
greinar unt fiskvinnslu, verslun-
armál, skólamál, bókmenntir og
margt fleira.
Ástríður Sigurðardóttir með sýnishorn af framleiðslunni. Mynd: mb.
Álafossdagar
Fyrirtækið Álafoss hefur nú brotið upp á þeirri nýbreytni að
efna til svonefndra Álafossdaga. Hófust þeir þann 25. þ.m. og
standa til 7. nóv. n.k.
Tilgangurinn með dögunum er
fyrst og fremst sá, að kynna fyrir-
tækið og framleiðslu þess og þá
einkum hverskonar nýjungar í
framleiðslu verksmiðjunnar. Að
þessu sinni verður fyrirtækið kynnt
sem heild. Rútuferðir eru alla dag-
ana frá Álafossbúðinni á Vestur-
götu 2, kl. 14.00. Þar í búðinni er
og
alla dagana kynning á starfsemi
fyrirtækisins og verða þar ýmsar
nýjungar til sýnis. Hugmyndin er
að Álafossdagar verði árlegur við-
burður eftirleiðis.
Ýmsar prjóna- og saumastofur á
landinu starfa í samvinnu við Ála-
foss og einnig kaupir fyrirtækið
flíkur af einstaklingum. Um 80%
framleiðslunnar er flutt út. Starfs-
menn í höfuðstöðvunum eru um
400 og álíka margir eru búsettir úti
á landi.
Álafossverksmiðjan er elsta iðn-
fyrirtæki, sem starfandi er á ís-
landi, stofnað árið 1896 af Birni
Þorlákssyni bónda og hreppstjóra
á Varmá, en hann setti niður tó-
vinnuvélar við fossinn.
- mhg.
Það er ekki slegið slöku við handavinnuna í Álafossbúðinni þessa dagana.
Mynd: -mb.
PORT SALUT á sér langa og merkilega sögu, eöa allt
frá 13. öld er munkar i samnefndu klaustri hófu
tilraunir meö hann. Osturinn er mjúkur meö sterkum
bragö- og lyktareinkennum auk mjúkrar skorpu sem
ýmsum þykir hlö mesta hnossgæti.
Bragögæöi ostsins njóta sfn best sé hann látinn
standa utan kælís í 1—2 klst. fyrir neyslu.
Mlffar Karlsson er ostameistari Mjólkursamlags K.Þ. á Húsavfk og
hefur starfaö þar frá þvf aö hann lauk mjólkurfræöinámi
f Danmörku áriö 1977.