Þjóðviljinn - 16.11.1983, Side 5

Þjóðviljinn - 16.11.1983, Side 5
Miðvikudagur 16. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Guðmundur J. Guðmundsson í samtali við Þjóðviljann Alþýðubandalagið þatfað hrífa verkafólk með sér Undanfarna daga hefur Morgunblaðið birt margar fréttir um óánægju Guð- mundar J. Guðmundssonar með Alþýðubandalagið, haft eftir honum ummæli gömul og ný, rifin úrsam- hengi, þessu til sönnunar. Þá var sagt í blaðinu í gær að Guðmundur myndi ekki setjast á Alþingi í bráð og ekki sækja landsfund Al- þýðubandalagsins sem hefst á morgun, en skýring- um á þessu sleppt. Vegna þessa átti Þjóðviljinn viðtal við Guðmund í gær og spurði hann nánar út í þessi mál. „Pólitískt veikindafrí“ Ég orðaði það víst svo við fréttamann Moggans á dögunum að ég væri að fara í pólitískt veikindafrí, sagði þetta svona í bríaríi. Sannleikurinn er sá að ég er að koma af sjúkrahúsi og lækn- ar hafa skipað mér að taka mér algera hvfld frá félagsstörfum í nokkrar vikur og til þess að fá frið verð ég að vera erlendis og ætla mér það. Þetta er nú ástæðan fyrir því að ég fer ekki á lands- fundinn og tek mér frí frá þing- störfum, sagði Guðmundur. Hann bætti því við að þetta hefði fréttamaður Mbl. vitað um þótt hann hefði kosið að sleppa því í skrifum sínum. Nú er því haldið fram að þú sért í stríði við konur innan Al- þýðubandlagsins og að þú hafir kallað þær „gamlar rauðsokku- kellingar“? Það má vel vera að ég háfi ein- hvern tímann misst þetta útúr mér, ég man það ekki. Hitt er rétt að ég er langt í frá ánægður með ýmsa þá áherslupunkta sem þær hafa uppi í jafnréttisbaráttunni. Margt sem þær halda fram, rekst á við mitt uppeldi og mínar skoð- anir sem mótuðust í verkalýðs- hreyfingunni þegar ég var ungur. Síðan þá hef ég verið þeirrar skoðunar að jafnréttisbarátta kvenna væri stéttabarátta. Það vareinmitt þessi skoðun sem olli því að verkalýðshreyfingin í heild sinni, ekki bara verkakvennafé- lögin, barðist fyrir því að greidd væru sömu laun fyrir sömu vinnu og hafði það að lokum í gegn. Höfuðkenningin í þessu máli í gegnum tíðina var sú að ef at- vinnurekendur ættu kost á ódýru vinnuafli sem væru konur, þá kæmi minna í hlut verkalýðs- hreyfingarinnar í heild. Konan í þessu máli var og er móðir, systir, eiginkona eða dóttir. Hvaða karl- maður vill hlut þessara kvenna minni en annarra í verkalýðs- hreyfingunni? Þarna er ekki um fjandsamlega aðila að ræða, þetta er sama stéttin, verkalýðs- stéttin. Því var maður alinn upp við það að einhenda sér í barátt- unni fyrir jafnrétti kynjanna. Konur gegn körlum Það sem mér finnst að í baráttu margra kvenna innan Alþýðu- bandalagsins er það, að þær stilla karlmanninum upp sem höfuðó- vininum. Þær líta gjarnan á sig sem aðila sem þurfi að berjast við karlmenn og að þeir sitji yfir þeirra hlut í einu og öllu. Þetta eru afskaplega torræð fræði fyrir mig, ég nær ekki þessum öfgum. Nú er jafnvel talað um að aðskilja konur og karla í verkalýðshreyf- ingunni. Búa til sérstaka verka- lýðshreyfingu kvenna. Ég hef aft- ur á móti verið þeirrar skoðunar lengi að konur og karlar eigi að vera í sama verkalýðsfélagi. Þetta á ekki að gera með lagaboðum | eða skipulagsboðum ofan frá. Hinsvegar hefur þróunin orðið í þá átt að konur og karlar séu í sama félagi. Ég vil gjarnan nefna sem dæmi samvinnu Dagsbrúnar og Verka- kvennafélagsins Framsóknar. Þar er mjög gott samstarf á milli, sem m.a. leiddi af sér að við náð- um fram sama kaupi fyrir karla og konur í almennri verkamanna- vinnu. Ef ég nefni sem dæmi bón- usvinnu í frystihúsum, þá hafa konur oft hærra kaup en karlar. En það er aftur á móti algengt að þar sem eru 40 störf í frystihúsi fyrir konur, vinni 80 konur. Síðan er það leikið að taka heildartöl- una sem greidd er í laun til kvenna og deila í með höfðatölu og segja, sjáið þið, konur hafa lægri laun en karlar. En svona aðferðir dæma sig sjálfar. Aftur á móti má segja að hjá hinu opinbera sé hlutur kvenna lakari og þar tel ég að félög eins og BSRB og til að mynda Félag bankamanna hafi ekki staðið sig eins vel og verkalýðsfélögin í að jafna launin. Þar er sannarlega verk að vinna. Nú er það svo að á íslandi er talið að um 70% giftra kvenna vinni utan heimilis. Þetta mun vera hærra hlutfall en í öðrum löndum. Orsakir þessa eru marg- ar. Konur eiga nú auðveldara „Mér hefur verið fyrir- skipað að taka méralgera hvíld frá félagsstörfum í nokkrar vikur.“ með að vinna utan heimilis en áður vegna ýmissa hjálpartækja á heimilinu, þar fyrir utan eru laun hins vinnandi manns svo lág hér á landi að bæði hjónin verða að vinna utan heimilis. Þegar svona er komið þá tel ég það skyldu karlmanna að vinna alveg til jafns á við konur að heimilisstörfum. Að því leyti er ég sammála þeim konum sem ég var að deila á hér áðan. Ég veit að það er erfitt að fá karlmenn á mínum aldri til að taka upp heimilisstörf, en yngri menn gera þetta í vaxandi mæli og foreldrar ættu að sjá til þess að synir þeirra lærðu öll heimilis- störf til jafns við dæturnar. Um þetta þarf ekki að deila. En það sem konur í Alþýðu- bandalaginu eru alltaf að tala um er að það séu of fáar konur í topp- stöðum, of fáar bankastjórar, eða skrifstofustjórar. Þær eru ekki að tala um hlut verka- kvenna, þeirra sem halda uppi ís- lenskum iðnaði og þeirra sem halda frystihúsum landsins gang- andi. Þarna er ég þeim mjög ó- sammála. í stað þess að vera að tala um fáar toppstöður eiga þær að einhenda sér að því að bæta og ,JNú er jafnvel talað um að aðskilja konur og karla í verkalýðshrey fingunni. Búa til sérstaka verkalýðs- hreyfingu kvenna. Ég hef aftur á móti verið þeirrar skoðunar lengi að konur og karlar eigi að vera í sama verkalýðsféiagi,“ segir Guðmundur J. Guð- mundsson m.a. í þessu við- tali þar sem hann ræðir um „pólitískt veikindafrí“ sitt, jafnréttismál, gáfu- mannafélagið, stöðu AI- þýðubandalagsins meðal verkafólks og fleira. lyfta upp hlut hinnar almennu konu í þjóðfélaginu, sem og hins almenna vinnandi karlmanns. Þessa sakna ég. Hljómar ekki nógu sterkt í Mogganum er eftir þér haft að þú teljir fylgi Alþýðubandalags- ins í Verkamannasambandinu fara minnkandi? Ég hef aldrei sagt þetta við blaðamann Mbl. Hinsvegar hef ég sagt það í vinahópi að ég óttist að fylgið muni þverra, vegna þess að barátta hins almenna verka- fólks hljómi ekki nógu sterkt í Alþýðubandalaginu sem heild. Hér á ég ekki við forystumenn flokksins, sem ég veit að eru heilir og einlægir í baráttu sinni fyrir verkafólk, enda hefur flokk- urinn viljað vera verkafólki og málstað þess trúr. Þegar ég segi að barátta verkafólks hljómi ekki nógu sterkt í flokknum, þá er ég ekki að halda því fram að flokk- urinn sé að svíkja það, heldur að menn geri sér ekki grein fyrir því hversu gífurlegt átak þarf til að leiðrétta kjör þess. Mér finnst flokkurinn ekki ná nógu vel til þessa fólks. Hann virðist ekki hafa þann tón sem hrífur. í þessu sambandi vil ég líka taka fram að ég held að verka- lýðsfélögin sjálf séu að mörgu leyti mjög stöðnuð. Það félags- fundaform sem þau eru enn með virðist úrelt. Það er komið nýtt þjóðfélag með nýja siði og háttu. Sjónvarp, leikhús, bifreiðar, ferðalög, allt eru þetta breytingar sem átt hafa sér stað á síðustu áratugum og hafa valdið miklum breytingum. En verkalýðshreyf- ingin hefur að mínum dómi ekki verið í takt við tímann að öllu leyti og á því sjálf nokkra sök. Þá má líka benda á að margir litlir hópar í þjóðfélaginu, sem kallað- ir eru þrýstihópar, svo sem hjúkr- unarkonur, læknar og fleiri hóp- ar, hafa orðið margfalt sterkari verkfallsstöðu heldur en verka- lýðshreyfingin. Allir eru þessir þrýstihópur á margfalt hærri launum en verkafólk og þeir eru miklu harðskeyttari og illvígari en verkalýðshreyfingin. Þessir hópar eiga sterka talsmenn innan Alþýðubandalagsins á meðan rödd hins almenna verkamanns verður veikari að mínum dómi. Gáfumanna- félagið Er það ef til vill „Gáfu- mannafélagið“ sem þú hefur stundum nefnt, sem á sök á þessu? Nei, það er ég ekki að segja. En þegar þú minnist á mennta- menn þá hefur því verið haldið fram að ég sé á móti þeim, það er af og frá. Hinu hef ég haldið fram að þeir sem ég kalla menntamenn innan Alþýðubandalagsins hafa ekki sem hópur, sterkt afl, beitt sér fyrir hag verkafólks, eins og ég hefði viljað. Ég er ekki að tala þarna um einn og einn mann, heldur hópinn allan. Þetta tel ég vera eitt af því sem veldur, þegar ég tala um að verkalýðshreyfing- in eigi ekki eins sterka talsmenn innan flokksins og ég vildi að væri. Menn benda á að vinstri- menn í verkalýðshreyfingunni hér fyrrum hafi verið gáfaðasti hluti hennar, sem er rétt. En þeir menn beittu gáfum sínum til þess að berjast fyrir hreyfinguna á öllum sviðum, sá er munurinn á þeim og hópnum sem ég hef kall- að „Gáfumannafélagið" í dag, og hefur fjarlægst verkalýðshreyf- inguna og lítur þjóðfélagið öðr- um augum en við sem erum að berjast fyrir hagsmunum hins vinnandi manns. Nú hefurðu komið fram með gagnrýni á flokkinn, finnst þér þú vera að fjarlægjast Alþýðu- bandalagið? Þótt Mogginn sé að hafa eftir mér eitt og annað, sem gæti bent til þess að ég væri að fjarlægjast flokkinn, þá mega menn ekki gleyma því, að Mogginn segir oft- ast: „Guðmundur mun hafa sagt, ...heyrst hefur..., því er haldið fram að Guðmundur hafi sagt þetta eða hitt. Það er vissulega rétt að ég tala oft opinskátt og gríni við menn og það er gripið á lofti sem hörð meining mín, og haft eftir án skýringa. Þetta er auðvitað fjarri lagi Nei, ég er ekki að fjarlægjast flokkinn, en ég er ósammála ýmsu því sem fram hefur komið innan Alþýðubandalagsins, og raunar ekki hægt að ætlast til að allir félagar hans séu sammála um allt sem þar er gert eða sagt, frek ar en í öðrum flokkum. En eins og ég sagði áðan er ég óánægður með að Alþýðubandalagið virðist ekki ná nógu vel til hins almenna verkafólks, það er rót þeirrar óá nægju,sem éghef haftuppi. Aðr- ir hópar eiga þar sterkari tals menn. Ef til vill er það breytt þjóðfélagsmynd sem veldur, og ég er ekki að berjast gegn fjöl mennu hópunum úr þjónustu greinunum, en það má samt sem áður ekki verða að þeir ráði ferð inni á kostnað verkalýðsins. - S.dór

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.