Þjóðviljinn - 16.11.1983, Side 7
Miðvikudagur 16. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Grenada:
Bishop var fórnarlamb
kreddumarxista
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið hefur birt skjöl sem
innrásarliðið á Grenada lagði
hald á. Skjöl þessi varða ann-
ars vegar samninga Grenada
við Sovétríkin, Kúbu og N-
Kóreu um vopnakaup og
hins vegar innbyrðis deilu þá
sem leiddi til morðsins á for-
sætisráðherra landsins,
Maurice Bishop. Að sögn
utanríkisráðuneytisins eiga
þessi skjöl að sýna að Gren-
ada hafi verið „sovésk-
kúbönsk-nýlenda“ og að
megintilgangur hennar hafi
verið að „flytja hryðjuverk-
astarfsemi út til annarra
landa“.
Danska blaöið Information hef-
ur það eftir sérfræðingi frá banda-
rísku stofnuninni Center for De-
fence Information að þeir vopna-
sölusamningar og þær vopnabirgð-
ir sem fundist hafi á Grenada hafi
eingöngu náð til varnarvopna og
hafi mestmegnis verið um gamla
riffla að ræða sem hafi nægt til 2000
manna herliðs og 4000 manna
heimavarnarliðs.
Ástæðan fyrir því að stjórnin
hafði þó þetta mikinn vígbúnað var
sú að hún óttaðist hernaðaríhlutun
frá Bandaríkjunum, ekki hvað síst
eftir heræfingu Bandaríkjanna
1981, Ocean Venture, þar sem
bandaríski herinn setti á svið innrás
í Grenada til þess að frelsa banda-
ríska gísla.
Ekkert kemur fram í skjölum
þessum er bendir til þess að Kú-
banir hafi ætlað að koma upp her-
liði á eyjunum. Þvert á móti er í
einu skjalinu talað um áform um að
27 kúbanskir hernaðarsérfræðing-
ar verði á eyjunni til frambúðar, en
því til viðbótar verði 13 menn tíma-
bundið. í skjali sem stimplað var
„leynilegt“ var sagt að sérfræðing-
ar þessir ættu að aðstoða við þróun
og áætlanagerð í vörnum eyjarinn-
ar.
Dólgamarxismi
Þau skjöl sem greina frá innri
ágreiningi innan stjórnarinnar
virðast varpa nokkru ljósi á þá
valdabaráttu sem átti sér stað fyrir
morðið á Maurice Bishop. Gögn
þessi benda til þess að hópur sá er
stóð að baki Bernard Coard hafi
verið djúpt sokkin í kreddubundn-
um marx-lenínisma á meðan
Maurice Bishop hafi byggt meira á
því beina sambandi sem honum
hafði tekist að ná við almenning í
landinu. Skjöl þessi sýna að stjórn-
in í Grenada leit á Kúbu og Sovét-
ríkin sem bandamenn sína og víða
er vitnað til Kúbu sem lýsandi for-
dæmis, sem og til stjómar Sandín-
ista íNicaragua. Hins vegar kem-
ur ekkert það fram í skjölum þess-
um er bendir til þess að Sovétríkin
eða Kúba hafi beitt stjómina á
Grenada þrýstingi. í bókun sem
virðist gerð af herráðinu sem tók
völdin eftir dauða Bishops er það
hins vegar harmað að Kúba skuli
ekki hafa skilið nauðsynina á því að
koma Bishop frá völdum. í bókun
þessari er gefið í skyn að vegna per-
sónulegrar vináttu Fidels Castro og
Maurice Bishop hafi Kúbanir
„tekið persónulega en ekki stéttar-
lega afstöðu til þróunar mála á
Grenada".
„Leníniskur agi“
í öðmm skjölum er að finna
fundargerð frá fundum í stjórn
flokksins í september sl., þar sem
framtíð og skipulag New Jewel
Movement er á dagskrá. Á fundum
þessum virðast stuðningsmenn Co-
ards hafa haft sig mest í frammi, og
töldu þeir flokkinn í upplausn og
að aðeins væri spurning um mánuði
hvenær flokkurinn missti völdin ef
fram héldi sem horfði. Var Bishop
kennt um þessi þverrandi ítök
flokksins meðal fólksins og þess
krafist að hann gengi inn í samvirka
forystu flokksins með Coard og að
flokkurinn skyldi innleiða „lenín-
ískan aga“. í deildum þessum skil-
greindu stuðningsmenn Coards
ágreiningurinn út frá sígildu
mynstri þar sem andstæðingarnir
voru kallaðir „hægri-tækifærissinn-'
ar“ og „sósíaldemókratar" á með-
an þeir skilgreindu sig sem „marx-
lenínista“ og er byggðu á „forsend-
um verkalýðsstéttarinnar" (sem
ekki er ýkja fjölmenn á Grenada).
í deildum sem áttu sér stað 26.
Frá E1 Salvadornefndinni:_
Innrás yfírvof-
andi í Nicaragua
E1 Salvadornefndin á íslandi hélt
ársfund sinn helgina 12.-13. nóv-
ember sl. Meðal verkefna nefndar-
innar er að kynna ástandið í E1 Sal-
vador og öðrum ríkjum Rómönsku
Ameríku og afla þjóðfrelsisöflun-
um í E1 Salvador stuðnings á ís-
landi. Unnið er að því að ríkis-
stjórn íslands viðurkenni FMLN/
FDR sem réttmæta fulltrúa salva-
dorönsku þjóðarinnar. E1 Salva-
dornefndin leitar eftir stuðningi og
samstarfi við verkalýðsfélög,
flokka og félagasamtök hér á landi.
í ályktun ársfundarins segir
m.a.:
Evrópusamband verkalýðsfélaga:
Evrópa án
kjarnorkuvopna
„Evrópusamband verkalýðsfé-
laga, sem hefur innan sinna vé-
banda 44 miljónir meðlima í
Vestur-Evrópu, skorar á ríkis-
stjórnir Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna, að láta það tækifæri sem
Genfarviðræðurnar um takmörk-
un meðaldrægra kjarnorkuvopna
eru ekki ónotuð, heldur beina þró-
uninni inn á brautir sem leiða til
þess að gjöreyðingarvopn verði
eyðilögð. ETUC lýsir alvarlegum
áhyggjum sínum yflr að þessar við-
ræður skuli hafa verið árangurs-
lausar fram að þessu“, segir í yfir-
lýsingu frá ETUC um Genfarvið-
ræður stórveldanna.
Evrópusambandið leggur í þeirri
samþykkt sem að ofan er vitnað til
áherslu á nauðsyn þess að leitað
verði allra leiða til að ná samkomu-
lagi um að komið verði í veg fyrir
að upp verði settar nýjar kjarnork-
ueldflaugar í Evrópu. Þar segir og
að þátttaka Evrópuríkja í samning-
aviðræðum milli Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna hafi ekki verið sem
skyldi. Þá segir ennfremur í álykt-
uninni:
„ETUC beinir því til ríkisstjórna
allra Evrópuríkja að þau beiti
áhrifum sínum á ríkisstjórnir risa-
veldanna til að koma á þeirri
skipan í kjarnorkuvopnamálum,
sem leiði til þess að engin kjarnork-
uvopn verði í Evrópu. Jafnframt
vilja samtökin minna verkalýðs-
samtök í Austur-Evrópu á skyldur
sínar um að þrýsta á viðkomandi
ríkisstjórnir í þessu sambandi í
samræmi við það sem ETUC gerði
1981.
ETUC álítur lífsnauðsynlegt að
viðræðurnar í Genf leiði til veru-
legrar fækkunar og eyðileggingar á
SS 20 eldflaugum og þess, að ekki
verði komið fyrir Cruise og Pers-
hing eldflaugum, þar sem eyðilegg-
ing allra kjarnavopna sem eru í
Evrópu eða er beint að henni, er
eina viðunandi lausnin sem verka-
lýðsfélög í Evrópu geta sætt sig
við.“
E1 Salvadornefndin á íslandi for-
dæmir innrásina á Grenada harð-
lega og bendir á, að hér er aðeins
um að ræða fyrsta skrefið í hemað-
aráætlun Bandaríkjastjórnar og
nokkurra harðstjóra Mið-Ameríku
um að kæfa í blóði sérhverja tilraun
til að brjótast undan oki fátæktar
og ófrelsis.
í fyrsta lagi er yfirvofandi innrás
á frelsuðu svæðin í E1 Salvador, þar
sem í fyrsta skipti í sögu landsins
eru starfandi svæðisstjórnir, sem
kjömar era lýðræðislegri kosn-
ingu. Góður árangur skæraliða-
sveitanna að undanförnu hefur
knúið stjórnvöld í E1 Salvador til
að leita eftir aukinni aðstoð. Nú
standa milli 500 og 8000 hermenn
frá Guatemala og Honduras gráir
Ifyrir járnum á landamæram þess-
ara rflcja og E1 Salvador, auk þess
sem 20.000 bandarískir dátar eru á
herskipum við strendur Mið-Ame-
ríku, og 5.000 taka þátt í heræfing-
um á landamærum Honduras og
Nicaragua. Margt bendir til þess,
að innrás í Nicaragua sé fyrirhugað
fyrir árslok. Komið yrði á fót lepp-
stjórn á nicaraguönsku landsvæði,
en hún myndi síðan biðja um að-
stoð bandaríska hersins og herja
grannríkjanna.
Almenningsálitið í Bandaríkjun-
'um sjálfum og heiminum öllum
getur komið í veg fyrir slíka
óheillaþróun. Nefndin hvetur því
til aukinnar baráttu gegn pólitískri
og hernaðarlegri íhlutun Banda-
Iríkjanna í Mið-Ameríku og Karí-
bahafssvæðinu.
Styðjum sjálfsákvörðunarrétt
þjóða Mið-Ameríku og Karíba-
hafs!
Styðjum frelsisbaráttu alþýðunnar
í Mið-Ameríku og Karíbahafl!
Frá því að nefndin var stofnuð í
ársbyrjun 1982 hefur náðst mjög
góður árangur í því að kynna á-
standið í E1 Salvador og Mið-
Ameríku, samstarf verið aukið við
pólitísk samtök, verkalýðsfélög og
önnur félagasamtök. Þessum ár-
angri er mikilvægt að fylgja vel
eftir, og við hvetjum áhugasamt
fólk til þess að starfa með okkur.
Vefkefnin era óteljandi.
Upplýsingar í síma 1-92-18
(fjármálahópur), 2-25-07 (fræðslu-
hópur) og 1-93-56 (samstarfshóp-
ur).
„Sovéska herstöðin" á Grenada. Ein af réttlætingum Reagans fyrir
innrásina á Grenada var sú að eyjan hafl verið sovésk herstöð, og var
flugvöllurinn sem Kúbumenn og Bretar unnu að í sameiningu helsta
vísbendingin um það. Myndin sýnir flugbrautina sem er 2700 metra löng
og átti að verða lyftistöng fyrir ferðamannaþjónustu á eyjunni. Hugsanlegt
er að kýrnar tilheyri því sovéska setuliði sem ógnaði öryggi Bandaríkj-
september lýsti Austin Hudson,
sem síðar stýrði herráðinu eftir
morðið á Bishop, deilunni við Bis-
hop við baráttu Sovétstjórnarinnar
við andstæðinga sína í Ungverja-
landi 1956, í Tékkóslóvakíu 1968
og í Póllandi í dag.
Enn hefur ekki verið uppljóstrað
um hvað raunverulega gerðist þeg-
ar Bishop var drepinn, en eftir
morðið gaf herráðið út tilkynningu
þar sem Bishop og stuðningsmenn
hans voru stimpluð sem „þekktir
gagnbyltingarsinnar og stuðnings-
menn harðstjórans Gairy“. (Það
var Bishop sem steypti Gairy af
stóli 1979). í tilkynningunni sagði
enn fremur:
„Félagar, þessir menn sem pré-
dikuðu fyrir okkur að málstaður
grenadínsku þjóðarinnar væri
þeim hjartfólginn létu ekki einn
einasta fulltrúa verkalýðsstéttar-
innar hafa eftirlit með hinum
glæpsamlegu gerðum sínum...“.
Það er hins vegar vitað að 3000
manna hópur - sem er stór hópur af
100 þúsund manna þjóð - fór og
frelsaði Bishop úr stofufangelsi því
sem hann hafði verið hnepptur í og
gekk með honum upp að Rupert-
virkinu þar sem aðalstöðvar her-
ráðsins voru. Spurningin er hvort
verkalýðsstéttin hafi ekki átt sína
fulltrúa í þeim 3000 manna hópi?
ólg./inf.
Vetrarskoðun
1983 -1984
3
4
5
6
Nú er rétti tíminn fyrir
Ladaeigendur að koma
með bifreiðir sínar
í vet rarskoðun
Athuga ástand ökutækisins.
Athuga olíu á vél, stýrisvél og vökva á rafgeymi,
kælikerfi, rúðusprautum, bremsum og kúplingu.
Mæla frostlög og bæta á ef þarf.
Mæla rafgeymi og hleðslu og hreinsa geymasam-
bönd. >
Hreinsa síur í bensíndælu og blöndungi.
Athuga og skipta um, ef þarf, þétti, platínur,
kveikjuhamar, kveikjulök, kertaþræði, kerti,
loftsíu og viftureim.
7 Athuga ventlalokspakkningu og viðbragðsdælu-
nál.
8 Strekkja tímakeðju.
9 Stilla kveikju og blöndung.
10 Athuga sviss, startara, mæla, kveikjara, þurrkur j
og miðstöð.
11 Athuga öll Ijós.
12 Stilla Ijós.
13 Athuga hurðir, þéttikanta og smyrja læsingar.
INNIFALIÐ& 1.690
t
Hver fnan ekki eftir síðasta vetri?
Bein lína á verkstæði 39760
Látið fagmenn yfirfara ástand
bifreiðarinnar
*/l ML Bi frei iðarog Suðurlandsb ra LamHiúnaðarvél Ut 14 — Sími 38800 — 31236. ar «3