Þjóðviljinn - 18.11.1983, Blaðsíða 11
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. nóvember 1983
Föstudagur 18. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Hreyfing fólks sem vill
sjálft skapa sína sögu
Við verðum að eignast stjórnmála-
samtök sem eru svo sterk og öflug að það
gerist aldrei aftur að flokkar fésýsluaflanna
nái saman til þess að mynda ríkisstjórn á
íslandi.
Þetta er meginlærdómur sumarsins 1983.
Ríkisstjórnin var að nokkru leyti mynduð í
skjóli sundrungar vinstrimanna sem nú eru
skiptir í fjóra þingflokka. Sú sundrung hef-
ur orðið þjóðinni dýr. Því miður náði ákall
okkar um „einingu um íslenska leið“ ekki
nógu langt. Alþýðubandalaginu tókst að
vísu sem flokki að standa af sér storminn,
en það var ekki nóg því framsókn hægri
aflanna myndaði sína stjórn. Afrek hennar
eru einstök á íslenska vísu eins og komið
hefur fram að undanförnu og nú síðast í
hótunum um „staðbundið atvinnuleysi".
Ríkisstjórnin hefur sýnt verkalýðshreyfing-
uiíni beina fyrirlitningu og hún traðkar á
frelsi einstaklingsins í þágu fjármagnsins.
Ríkisstjórn sem hefur sagt í sundur friðinn
hlýtur að uppskera samkvæmt því. Komi til
átaka á vinnumarkaði verða þau átök á
ábyrgð ríkisstjórnarinnar.
Alþýðubandalagið hefur alltaf verið
reiðubúið til þess að taka þátt í því að berja
niður verðbólguna, og hinn almenni launa-
maður er reiðubúinn til þess að gefa eftir af
sínum hlut í þessu skyni. En hann setur það
skilyrði að eitt sé látið yfir alla ganga. En
það er ekki gert nú - meðan launamaðurinn
fórnar í lífskjörum hefur ekkert verið gert
til þess að draga úr óhófseyðslu milliliðanna
né þeirri sóun sem meðal annars á sér stað í
meginatvinnuvegum okkar.
Bruðlið kostar
5-6 miljarða
Fróðir menn telja að margvísleg skipu-
lagsmistök, sóun og bruðl í milliliðunum og
fjárfestingu kosti þjóðina á ári upphæð sem
nemur 8-10% af þjóðarframleiðslunni eða
5-6 miljarða króna á árinu 1984. Þessi ó-
freskja heimtar sitt áður en arðurinn af
þjóðarbúinu kemur til skiptanna, áður en
heimilin fá launin sem þau lifa á, áður en
skipin eru gerð út á veiðar. Grundvallar-
atvinnuvegir þjóðarinnar og hagur heimil-
anna situr á hakanum. Fiskvinnslufyrir-
tækin stöðvast eitt af öðru og hundruð
verkafólks, einkum kvenna, hafa fengið
uppsagnarbréf.
Núverandi ríkisstjórn breytir ekki þess-
um skiptahlutföllum í þjóðfélaginu - hún
stendur vörð um eyðsluna og skipulags-
leysið. Afskipti hennar í atvinnumálum fel-
ast í því einu að skipta nýprentuðum seðlum
milli frystihúss Framsóknarflokksins og
frystihúss Sjálfstæðisflokksins. Heildarsýn
er ekki til. Þess vegna er atvinnuöryggi í
meiri hættu en um árabil. Stefna ríkis-
stjórnarinnar í atvinnumálum birtist í ráð-
leysisfálmi og vantrú gagnvart innlendum
atvinnuvegum, en um leið oftrú á erlent
fjármagn. Ríkisstjórnin lofaði fullri atvinnu
- en nú á að nota atvinnuleysisgrýluna til
þess að koma í veg fyrir það að launafólk
geri kaupkröfur.
Sóunin hrifsar til sín fjármuni sem ekki
eru til. Þess vegna verður að gefa út meiri
peninga, fleiri seðla en raunveruleg verð-
mæti standa á bak við til þess að unnt sé að
fóðra milliliðina og alæturnar. Af þeim
ástæðum hefur skipulagsleysið, fjárfesting-
arbruðlið, eyðslan í för með sér verðbólgu.
Slík efnahagsstefna skapar þvf ný vandamál
jafnharðan - sóunin er óseðjandi hít sem
brennir verðmætin upp í báli verðbólgunn-
ar. Þess vegna er svokallaður árangur ríkis-
stjórnarinnar í baráttunni gegn verðbólgu
aðeins blekking og talnaleikur eins og
Morgunblaðið hefur bent á. Meðan ríkis-
stjórnin hefur ekki ráðist gegn dýrtíðar-
kerfinu sjálfu heldur verðbólgan áfram að
magnast.
Einokun
hinna fjársterku
Stefna ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum skapar um leið v'erulega hættu á
því að hvers konar smærri atvinnurekstri
verði útrýmt. Stórverslanir yfirtaka versl-
unina og stórfyrirtæki eins og SÍS og SH
ráða sjávarútveginum í vaxandi mæli. Á
dögunum voru notaðir hermangspeningar í
eitt frystihúsið. Þannig bendir allt til þess að
ríkisstjórnin sé að útrýma atvinnurekstri
margra aðila og að hér sé í uppsiglingu alls-
herjareinokun helmingaskiptaflokkanna
sem sitja yfir hvers manns hlut í stórum
byggðarlögum. fbúum þessara byggðarlaga
birtist ríkisstjórn miskunnarleysisins líka í
fantalegu háu vöruverði verslananna og
einokun í mannaráðningum.
í þessu kerfi einokunarinnar liggja rætur
þeirrar andstöðu stjórnarflokkanna við
lýðræðislega stjórnarhætti sem hafa komið
fram í sumar í lokun alþingis og banni við
starfsemi verkalýðsfélaganna. Þarna koma
líka fram höfuðandstæður íslenskra stjórn-
mála - einræði fjármagnsins gegn lýðræði
fólksins.
Fólkiö
slítur fjötrana
Alþýðubandalagið berst gegn alræði
fjármagnsins, einokunar- og alræðisvaldi
fámennrar valdaklíku en fyrir lýðræði og
jafnrétti á öllum sviðum. Alþýðubandalag-
ið er hluti af þeirri heildarhreyfingu fólksins
sem alls staðar krefst jafnréttis og lýðræðis
og betri lífskjara, menningarlífs og félags-
lífs, frelsis til að lifa. Þar er hreyfing þess
fólks sem vill sjálft skapa sína sögu og
skynjar að það getur enginn annar gert,
ekki flokkar, ríkisstjórnir, stjórnmálafor-
ingjar né verkalýðsforingjar.
Það er af þessum grundvallarástæðum
sem við krefjumst þess að allir lagafjötrar
verði leystir af launamannahreyfingunni
strax þannig að unnt verði að gera kjarsa-
samninga, einnig um dýrtíðarbætur, með
eðlilegum hætti. Við bendum á að ef ríkis-
stjórnin sér ekki sóma sinn í að leysa þessa
fjötra mun fólkið taka sér á ný þann rétt
sem það á. Verkalýðshreyfingin á íslandi
hefur á liðnum áratugum kynnst því að
skammt dugir að bíða eftir því að réttlætið
renni upp fyrir stéttarandstæðingnum -
þess vegna verður launamaðurinn sjálfur
að leysa af sér fjötrana - eða höggva á þá.
Það verður áreiðanlega gert ef þörf krefur.
Róttæk ráð gegn
stöðvunarstefnu
Góðir fundarmenn:
Við viljum að nú verði gerðar eftirfarandi
ráðstafanir í efnahags- og atvinnumálum til
þess að bæta lífskjörin og tryggja fulla at-
vinnu:
1. Losaðir verði lagafjötrar af iaunamann-
ahreyfingunni.
2. Gerðir verði kjarasamningar sem byggj-
ast á því að launakjör versni ekki meira
en nemur falli þjóðarteknanna. Jafn-
framt verði gerðir samningar um félags-
legar ráðstafanir eins og samfellt húsn-
æðislánakerfí opinberra aðila, banka og
lífeyrissjóða.
3. Breyta verður í grundvallaratriðum
fjármögnun atvinnuveganna með nýju
lánsfé þannig að rekstur helstu fram-
leiðslufyrirtækjanna verði tryggður svo
þau geti komið betur til móts við launa-
fólk. Jafnframt verði framkvæmd alls-
herjarskuldbreyting á lánum húsbyggj-
enda í bönkum og hjá lífeyrissjóðum svo
komið verði í veg fyrir þá eignaupptöku
kjaraskerðingarinnar sem kemur fram í
aukaútgáfum Lögbirtingablaðsins þessa
dagana.
4. Stöðva verður óhófsfjárfestingu hvar-
vetna í verslun, hjá bönkum og á vegum
milliliða í landbúnaði. Skipulega verði
gengið á sóunina í atvinnuvegunum
þannig að meira verði til skiptanna.
Lögð verði áhersla á að tryggja fyrst
afkomu heimilanna og rekstur fram-
leiðsluat vinnu veganna.
5. Hafnað verði einokun fárra fjármagns-
eigenda í atvinnuvegunum, svo og forr-
æði útlendinga, en reynt að tryggja fjöl-
breytni íslensks atvinnulífs þar sém forr-
æði landsmanna sjálfra sé virt í öllum
greinum. Lögð verði áhersia á uppbygg-
ingu hvers konar iðnaðar undir íslensku
forræði og á aukna verðmætasköpun í
fiskveiðum og fiskvinnslu.
Þessi eru meginverkefni flokksins út á við
á næstu mánuðum - að skapa þjóðarsam-
stöðu um róttæk úrræði gegn stöðnunar-
stefnu ríkisstjórnarinnar þar sem augljóst
er að nota á atvinnuleysið sem hagstjórnar-
tæki.
Betra baráttutæki
f sókn og vörn
Á þessum landsfundi verður fjallað um
þessi mál og önnur grundvallaratriði. Við
leggjum hér fram tillögilr um breytingar á
skipulagi flokksins. Tilgangurinn er sá að
gera hann betra baráttutæki í sókn og vörn.
Við erum óvinir stöðnunarinnar en við vilj-
um taka fullt tillit til reynslunnar og læra af
henni. Skipulagið myndar starfsumgjörð
flokksins en stefnan er inntakið. Þar liggja
fyrir afgerandi grundvallaratriði, en ég teldi
engu að síður nauðsynlegt að hefj a nú stefn-
uskrárumræðu. Mun ég því leggja fyrir
fundinn tillögu um stefnuskrárvinnu í fram-
haldi af landsfundi.
Alþýðubandalagið er lifandi starfsflokk-
ur sem fylgist með hreyfingu samtímans,
um leið og Alþýðubandalagið er flokkurinn
sem afturhaldið óttast. Við eigum að hafa
alla möguleika til þess að skapa ennþá víð-
tækari einingu um Alþýðubandalagið - því
hver sem skerst úr leik er í raunini að þjóna
undir andstæðinga jafnréttis og lýðfrelsis -
það má ekki gerast því nú er brýnni þörf á
einingu en nokkru sinni fyrr. f núverandi
ríkisstjórn birtast vítin til að varast, því hún
varð til vegna sundrungar vinstrimanna.
Reynslan frá sumrinu 1983 kennir okkur
að standa saman. Við þurfum að eignast
stjórnmálaafl sem ræður við fjármagns-
öflin. Það er aðalverkefni þessa fundar að
marka spor í þá átt.
Sumarið ’68 og
Alþýðubandalagið
Góðir félagar!
Alþýðubandalagið er nú 15 ára. Sumarið
1968 hefur sérstakan hljóm í eyrum okkar
flestra - þá urðu meiri sviptingar í alþjóð-
legum stjórnmálum en löngum fyrr. Gömul
sannindi urðu úrelt á einni nóttu og ný sann-
indi létu á sér standa - efinn tók við þar sem
hinum algildu sannindum sleppti. Banda-
ríkjastjórn hafði verið alheimslögregla
heimsvaldastefnunnar um áratugaskeið allt
frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og
Bandaríkjamenn voru blóðugir upp fyrir
axlir í villimannlegu árásarstríði á bláfá-
tæka alþýðuna í Víetnam. Þúsundum og
miijónum saman sáu kynslóðir unga fólks-
ins í gegnum grímu þeirra talsmanna vest-
urveldanna sem lögðust á sveif með Banda-
ríkjastjórn. Fleiri og fleiri sneru baki við
þeim viðhorfum sem bandaríska
heimsveldið var tákn fyrir - þar til enginn
var eftir um allan heim nema Morgunblaðið
á íslandi. Þessar sviptingar komu ekki að-
eins fram í viðhorfum fólks gagnvart
Bandaríkjastjórn því um leið og jörðin fór
að hreyfast fór allt á hreyfingu! Unga fólkið
í skólum Vestur-Evrópu lét í sér heyra og
eldrauðar kenningarnar flugu um salina í
Svartaskóla Parísar og í hinum Frjálsa Há-
skóla Vestur-Berlínar. Ungt fólk reis upp
og neitaði að láta segja sér fyrir verkum -
neitaði að láta mata sig á svokölluðum „við-
teknum sannindum". Bylting unga skóla-
fólksins náði inn í hvern einasta skóla og
enginn var ósnortinn. Sá sem horfði á Rudi
Dutscke fyrir utan Sprenger-húsið í Vestur-
Berlín halda eldræðu gleymir því aldrei allt
sitt líf - bíður þess aldrei bætur! - hvar sem
hann síðar verður staddur á jarðarkring-
lunni. Og gleymum ekki að í þessum há-
skólum Vestur-Evrópu var fólk úr öllum
heiminum, úr Afríku, Suður-Ameríku og
Asíu - hvarvetna að. Þannig hafði þessi
hreyfing áhrif á allt og alla og hún hefur
áhrif um allan heim enn í dag.
Verkamannabörn
í uppreisn
Jafnvel Austur-Evrópa fór ekki varhluta
af hinni miklu byltingu - ég sagði og segi
byltingu! Vorið í Prag bræddi brynju kalda
stríðsins af mörgum riddara ofstækisins.
„Manneskjulegur sósíalismi" hét það og
sósíalistar um allan heim fylgdust af eld-
legum áhuga með hverju fótmáli þeirrar
hreyfingar sem þeir höfðu beðið eftir í 40 ár
- sumir lengur.
í ágúst 1968 var herlið fimm Varsjár-
bandalagsríkja sent inn í Prag til þess að
kæfa vorið; það tókst að sjálfsögðu ekki að
fullu því ylur vorsins í Prag er enn aflvaki
með okkur öllum. Alþýðubandalagið tók
strax afstöðu gegn innrásinni og það gerði
einnig og reyndar fyrstur flokka - Samein-
ingarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn.
Hann lagði okkur því til veganesti víðsýni
og alþjóðahyggju, samhliða virðingu fyrir
sjálfstæði íslands og hollustu við málstað
íslenskar alþýðu. Samþykkt Sósíalistaflok-
ksins frá í ágúst 1968 og Alþýðubandalags-
ins frá sama mánuði, sem fordæma
innrásina í Tékkóslóvakíu, er vissulega
einn hornsteinn Alþýðubandalagsins og
þeim grundvallaratriðum sem þar eru skráð
stendur ekki til að breyta.
Allt rann hið mikla fljót umbreytinganna
saman í eitt ægihaf og hafði líka áhrif á
íslandi: Mótmælagöngur og kröfugöngur
unga fólksins voru hygg ég fleiri þetta ár en
nokkru sinni fyrr og síðar. Lögreglan var
send á vettvang þannig að valdastéttin hér
fann vald sitt eins og annars staðar í heimin-
um, þegar fangelsin í Reykjavík fylltust af
byltingarfólki. Þó runnu tvær grímur á
fangaverðina því unga fólkið grét ekki í
fangelsinu, það söng hástöfum byltingars-
öngva sem bárust langt út á götu. Aldrei
fyrr hafði verið sungið í tugthúsum á ís-
landi.
Stundum er talað um menntamenn og
verkamenn sem andstæður; það er mikil
fjárstæða. Og hverjir voru það nema börn
verkamannanna sem gerðu uppreisnina
miklu vorið 1968 í háskólum Vestur-
Evrópu. Það voru þau börn sem höfðu
kynnst kjörum verkamannanna en nutu
ávaxtanna af erfiði þeirra í menntun og
þekkingu. Það var ekkert eðlilegra en ein-
mitt þessi kynslóð risi upp og setti spurn-
ingamerki þar sem áður hafði staðið amen á
eftir efninu.
Mikil tíðindi
og umskipti
Þetta sumar gerðust og þau miklu tíðindi
að Kristján Eldjárn var kosinn forseti fs-
lands, og það er mikil gæfa að hafa fengið
að lifa þá björtu sumarnótt þegar úrslit for-
setakosninganna 1968 lágu fyrir. Þá rofaði
til eftir vetur viðreisnarstjórnarinnar því
forsetakosningarnar urðu uppreisn gegn
henni: Viðreisnarárin á fslandi voru nefni-
lega ömurlegur tími sem endaði með
atvinnuleysi og landflótta, álverksmiðju í
Straumsvík og hermannasjónvarpi þegar
ísland hafði verið reyrt fast í viðjar hins
alþjóðlega peningakerfis verslunarfrelsis-
ins sem er yfirleitt ekkert annað en frelsi
hinna sterku til að græða á þeim veiku.
Einmitt á þessu ári voru mikil átök innan
Alþýðubandalagsins. Andstæðingar okkar
töldu að þar með væri stjórnmálaflokkur
okkar að líða undir lok. Vissulega var Só-
bandalagið vann sinn stærsta kosningasigur
1978. Síðan tókst Alþýðubandalaginu í
meginatriðum að halda hlut launafólks í
þjóðarframleiðslunni og í ríkisstjórnum
þeim sem Alþýðubandalagið var aðili að-
náðist jöfnun í lífskjörum með margvís-
legum félagslegum ráðstöfunum jafnframt
því sem unnið var að því að treysta grund-
völl íslenskra atvinnuvega með íslenskri
iðnaðar- og orkustefnu.
síalistaflokkurinn lagður niður á þessu ári,
1968, en sama árið var stofnaður nýr flokk-
ur, Alþýðubandalagið. Fyrsta landsfundi
Alþýðubandalagsins lauk fyrir nákvæmlega
15 árum - 3. nóvember, sem við teljum þar
með fæðingardag Alþýðubandalagsins sem
stjórnmálaflokks. Þessum unga flokki
fylgdu góðar óskir víðs vegar að og hann
fékk gott veganesti, en hann var ekki sterk-
ur og stæltur, heldur að sumu leyti veik-
burða eftir langvinn innri átök.
Það var greinilegt að andstæðingar okkar
voru sigurvissir því að þeir töldu að hinn
ungi flokkur væri fátt annað en nafnið tómt.
Okkur fylgdu bölbænir og hrakspár eins og
þegar ritstjóri Morgunblaðsins komst svo
að orði.
„Öll rök mæla með því að hægt verði að
þurrka út áhrif þeirra í íslenskum
stjórnmálum ef rétt er á haldið og lýðræðis-
öflin standa saman um það verkefni...."
Sem betur fer varð ritstjóri Morgun-
blaðsins ekki sannspár og 10 árum seinna
skrifaði hann grein í Morgunblaðið þar sem
hann bað þess lengstra orða að flokkurinn
sem hann ætlaði að þurrka út 1968 gengi í
ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Svona getur skýrum mönnum skrikað
fótur á svellinu, en honum var vorkunn.
Hann sá aðeins ytra form Alþýðubanda-
lagsins, landsfund þess og stofnun. Hann
skynjaði ekki að Alþýðubandalagið hafði
tímann með sér - þróunin var okkur hlið-
holl og flokkurinn tók strax á móti samtím-
anum tveim höndum, sem m.a. sést á
stefnuskrá Alþýðubandalagsins sem er
ótrúlega framsýn á marga lund.
Þjóðleg reisn
gegn hægri vantrú
Veturinn 1968-1969 var mikið atvinnu-
leysi hér á landi og landflóttinn hófst með
því að hundruð fyrst og síðan þúsundir ís-
lenskra verkamanna og iðnaðarmanna
flýðu land til grannlanda okkar. Þá var van-
trúin ríkjandi einkenni á afstöðu
stjórnvalda til íslenskra atvinnuvega: Ríkis-
stjórnin neitaði að endurnýja fiskiskipaflot-
ann, bátarnir voru úreltir og þjóðin horfði á
togarana ryðga niður inni í fjörðunum.
Atvinnuleysi var landlægt árið um kring
víðs vegar um land því frystihúsin voru að-
eins starfrækt hluta úr árinu. í blöðunum
birtust fréttir um hörgulsjúkdóma aldraðs
fólks sem þá hafði ellilífeyri sem er langt
innan við helmingur þess sem er í dag.
Hermannasjónvarpið náði inn á annað
hvert heimili hér á þéttbýlissvæðinu. Land-
helgin var aðeins 12 sjómflur en við-
reisnarstjórnin hafði gert nauðungarsamn-
ingana frægu við Breta og Vestur-
Þjóðverja sem lokuðu á frekari útfærslu
landhelginnar.
En á tímabilinu 1968-1971 var Alþýðu-
bandalagið byggt upp sem sterkur og sam-
stæður stjórnmálaflokkur; þrátt fyrir það
gerðu andstæðingarnir sér vonir um að Al-
þýðubandalagið næði ekki nokkurn tíma
þeim styrk sem bestur hafði verið áður.
Með þrotlausu starfi, nákvæmni og heildar-
sýn til allra átta tókst að vinna kosninga-
sigur 1971 þannig að Alþýðubandalagið
varð nú strax sem flokkur ámóta sterkt og
það hafði áður verið sem kosningabanda-
lag. Vinstri stjórnin var mynduð þá um
sumarið. Hún lagði grundvöll að alhliða
framfarasókn þjóðarinnar í efnahags- og at-
vinnumálum með útfærslu landhelginnar
og uppbyggingu fiskveiða og fiskvinnslu um
leið og gerðar voru ráðstafanir til þess að
tryggja launafólki hlut í auknum hagvexti
með aukinni samneyslu - til dæmis bættri
heilbrigðisþjónustu - og um 20% betri
kaupmætti en var í ársbyrjun 1971. Fram-
farasóknin 1971-1974 var svo afgerandi að
ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar tókst ekki
að eyðileggja það sem hafði verið byggt upp
í tíð fráfarandi ríkisstjórnar. Undir lok
valdaferils síns gerði ríkisstjórnin tilraunir
til þess að knýja fram gjörbreytingu á tekj-
uskiptingu í þjóðfélaginu með kaupráns-
lögunum. Þessi tilraun mistókst og Alþýðu-
Hreyfiafl
gagnrýninnar
Alþýðubandalagið og 1968 kynslóðin uxu upp saman og styrkur bandalagsins hefur ætíð legið
í því að leggja hlustir við hræringum samtímans, sagði Svavar Gestsson í landsfundarræðu
sinni. Ljósm.: - eik.
Á sama tíma og við sjáum margt eftir
flokka okkar í ríkisstjórnum skynjum við
einnig og skiljum hreyfiafl gagnrýninnar.
Iðulega hefur tekist að knýja fram afger-
andi breytingar á samfélaginu þegar flokk-
urinn héfur verið í stjórnarandstöðu - eða
þá að stöðva áform sem hefðu kollvarpað
þeirri samfélagsgerð sem við vfljum varð-
veita hér á landi.
Þrátt fyrir mikinn árangur er þó áuðvitað
engin ástæða til sjálfánægju, en það er
nauðsynlegt að líta yfiríarinn veg og meta
það sem vel er gert ekki síður en það sem
miður hefur tekist. Því verður ekki á móti
mælt að Alþýðubandalagið hefur haft af-
gerandi áhrif á þeim tíma sem liðinn er -
ekki fyrst og fremst með því að framhefja
hina pólitísku tilveru sína, heldur sérstak-
lega með því að taka vel á móti hraðfara
sviptingum samtímans.
Eg minntist á afgerandi afneitun viðtek-
inna sanninda og þær spurningar um allt og
alla sem þá vöknuðu. Goðunum var ekki
einasta steypt af stalli - þeim var hrint út í
Skjáifandafljót þaðan sem þau eiga aldrei
afturkvæmt. í staðinn hafa menn orðið að
spyrja sig spurninga því engin algild for-
múla er lengur til. Upp úr þessu urðu til
margvíslegar hrevfingar sem byggðu á nýj-
um forsendum. I þessum efnum nefni ég
kvennahreyfinguna og jafnréttisbaráttu
kvenna sem á þessum árum vaknaði til vit-
undar; íslenskar konur fóru í verkfall og sú
hreyfing átti sér ekki síst rætur í okkar
stjórnmálahreyfingu. Þessi hreyfing ís-
lenskra kvenna hefur verið þeimmun sterk-
ari hér á landi sem þátttaka íslenskra
kvenna í forystustofnunum þjóðfélagsins
hefur verið minni hér en annars staðar.
Kvennahreyfingin hefur þegar skilað mikl-
um árangri en þó er enn mikið verk óunnið í
jafnréttisbaráttu kvenna þar sem þær eru
enn víða varavinnuafl og verða harðar fyrir
barðinu á kreppunni og íhaldsstjórninni en
aðrir þjóðfélagshópar. Þá sést best að
kvennabaráttan er óaðskiljanlegur hluti
verkalýðsbaráttunnar, stéttabaráttan mun
að vísu ekki ein leysa konurnar en barátta
kvennanna er tengd stéttabaráttunni órjúf-
anlegum böndum.
Aðrar hreyfingar hafa einnig látið til sín
taka og leitað sér að nýjum vettvangi. Ég
nefni hreyfingu. umhverfisverndarmanna
sem mótmælir því að tækniæðið og meng-
unin eyðileggi forsendur lífsins og krefst
ræktunar en hafnar rányrkju.
Sameining um
Alþýðubandalagið og
félagsleg úrræði
Viðstöndum nú á krossgötum. Framund-
an eru ár minni hagvaxtar en síðustu
fimmtán árin. Nú þarf að skipta minni
aukningu en áður. Það kallar á úrræði
jöfnunar. Þegar þrengir að verður mark-
aðshyggja fráleit. Félagsleg úrræði eru
aldrei brýnni en þá - smáþjóð eru þau
lífsnauðsyn. Á 40 ára afmæli lýðveldisins á
næsta ári hefur verið traðkað svo á sjálf-
stæði þjóðarinnar af ráðandi öflum að með
ólíkindum er og hefði enginn spáð því á
Þingvöllum 1944 að landið yrði hersetið um
áratugi, að ísland yrði aðili að hernaðar-
bandalagi og að haldið yrði upp á fjörutíu
ára afmæli lýðveldisins með hrikalegri um-
svifum erlends her í landinu en nokkru sinni
fyrr.
Margt er líkt með skyldum og hið sama
má segja um ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar og viðreisnarstjórnina. Það
sýndist ekki líklegt að að sá ungi flokkur
sem staðfesti tilveru sína í nóvember 1968
yrði líklegur til þess að fella þá sterku ríkis-
stjórn sem þá sat. Svo tókst þó til að lokum
eins og hér hefur verið lýst. Við munum nú
setja okkur það verkefni að hrinda af hönd-
um þjóðarinnar stjórnarstefnunni og koma
í veg fyrir að afleiðingar hennar verði enn
hrikalegri fyrir íslenskt þjóðlíf en þegar er
orðið. Við munum leggja áherslu á að sam-
eina umhverfis Alþýðubandalagið allan
þann skara íslendinga sem eiga samleið
með okkur í grundvallaratriðum. Við ætl-
um að gera Alþýðubandalagið að því
stjórnmálaafli sem ég nefndi í upphafi ræðu
minnar. Þau grundvallaratriði sem við vilj-
um að setji svip á íslenska þjóðfélagið eru
þau hin sömu og einkenna flokk okkar.
Þess vegna á Alþýðubandalagið að geta
orðið samnefnari fyrir þúsundir og aftur
þúsundir íslendinga sem til þessa hafa fylgt
öðrum flokkum - einnig stjórnarflokkum.
Flokkspólitískur hroki á ekki við í þessu
efni heldur samvinna á jafnréttisgrundvelli.
Myndum meirihluta
um grundvallaratriði
Grundvallaratriði Alþýðubandalagsins
sem ættu að geta náð til allrar þjóðarinnar
eru sem hér segir:
- Alþýðubandalagið er flokkur sem
leggur áherslu á jafnrétti á öllum sviðum.
Þar er átt við jafnrétti án tillits til búsetu eða
kynferðis. Flokkurinn styður af alhug
jafnréttisbaráttu kvenna og við teljum það
tvímælalaust eitt af höfuðverkefnum
flokksins að greiða fyrir baráttu kvenna
fyrir jafnrétti.
- Alþýðubandalagið er verkalýðsflokkur
sem stendur ásamt verkalýðsstéttinni gegn
fjármagnsöflunum. Alþýðubandalagið
óskar ekki eftir því að ráða yfir verkalýðs-
baráttunni á neinn hátt, en við bendum á að
verkalýðsbarátta án skýrra pólitískra mark-
miða er dæmd til að mistakast. Við viljum
að flokkur okkar nálgist launafólk beint á
vinnustöðunum og í félagslífi þess, en á síð-
ustu árum höfum við stóraukuð vinnustað-
astarf flokksins. Þannig viljum við vera -
meðal fólksins mitt í því lífi sem það heyr,
einnig við hina hversdagslegu önn.
Alþýðubandalagið leggur áherslu á lýð-
ræði á öllum sviðum. Við krefjumst þess að
stjórnmálaflokkar fái að starfa við allar
kringumstæður þannig að þjóðfélagið sé
fjölþætt, „pluralistiskt“, en ekki einhæft.
Við erum ekki ríkiseinokunarmenn og mót-
mælum þeim einræðis- og einokunartil-
hneigingum sem koma fram hjá núverandi
ríkisstjórn. Við gerum kröfu um að starfs-
fólk fái að ráða úrslitum um vinnustaðinn.
Alþýðubandalagið tekur frelsi einstakling-
sins alltaf fram yfir frelsi fjármagnsins. Þess
vegna vorum við á móti bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar því sósíalisminn er það
þjóðfélag þar sem frjáls þróun einstakling-
sins er skilyrði fyrir frjálsri þróun heildar-
innar.
- Alþýðubandalagið tekur þátt í friðar-
baráttunni og fagnar þeim árangri sem frið-
arhreyfingin hefur náð. Alþýðubandalagið
fordæmir vígbúnaðarkapphlaup stórveld-
anna og reynslan frá Grenada sýnir þann
lífsháska sem jafnan er búinn litlum þjóð-
um á áhrifasvæði stórveldanna. Við ford-
æmum innrás Bandaríkjamanna í Grenada
og hernám stórveldanna hvar sem er.
- Alþýðubandalagið vill friðlýst og frjálst
Island - herlaust og utan hernaðarbanda-
laga.
Þessir grundvallarþættir í stefnu Alþýðu-
bandalagsins eru allir jafnmikilvægir - eng-
inn einn getur verið án hins, þeir mynda
eina órofa heild í baráttu okkar fyrir nýju
þjóðfélagi jafnréttis, lýðræðis - sósíalisma.
Við teljum að þessi grundvallaratriði sem
ég hér nefndi séu þó þannig að þau eigi að
geta sameinað yflrgnæfandi meirihluta
landsmanna. Það er brýnna nú en nokkru
sinni fyrr að við náum að samfylkja þúsund-
unum um þessi meginatriði. Þar má enginn
skerast úr leik. Baráttan gegn ríkisstjórn-
inni er að því leyti lík verkfallsbaráttu að
verkfallsbrot eins aðila getur molað niður
samstöðuna og lagt öll vopn upp í hendur
andstæðinganna. Það má aldrei gerast.
Mannleg sjónarmið nái
yfirhendinni á ný
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður er það ljóst
nú síðustu daga að við erum að ná árangri.
Það er árangur af baráttu síðustu vikna að
samningabannið hefur verið stytt um tvo
mánuði. Þeirri baráttu þurfum við að halda
áfram uns fjötrarnir falla.
Það er árangur af baráttu síðustu mánaða
- einkum af starfi friðarhreyfingarinnar -
að utanríkisráðherra þorir ekki annað en
lýsa því yfir að hér verði aldrei staðsettar
eldflaugar. Þetta tvennt sýnir að við erum á
, réttri leið.
Höldum áfram að reka flóttann uns sigur
vinnst þar sem hin manneskjulegu sjónarm-
ið ná aftur yfirhendinni yflr öflum miskunn-
arleysisins. Allt sem við þurfum er sam-
staða, baráttugleði og starf og aftur starf.
Landsfundarræða Svavars Gestssonar f Austurbæjarbíói á 15 ára starfsafmæli Alþýðubandalagsins