Þjóðviljinn - 13.12.1983, Qupperneq 5
Þrjgjudagur 13- <tesemþer, 1,983 ÞJÓÐ.VILJJNN - SÍÐA 5
Það var glatt á hjalla á fjölskylduhátíðinni í Ölfusborgum.
Fjölskylduhátíð
í Ölfusborgum
Samvinnuferðir-Landsýn efndu
til fjölskylduhátíðar í Ölfusborgum
síðustu helgina í nóvember ásamt
ASÍ og Alþýðuorlofi.
Um 100 manns troðfylltu orlofs-
húsin og komust færri að en vildu.
Þetta er í fyrsta sinn sem fjölskyld-
uhátíð opin öllum er haldin í orlofs-
húsum verkalýðshreyfingarinnar,
en ætlunin er að halda áfram á
þessari braut. Orlofshúsin eru ekki
í fullri notkun á veturna, en þar er
góð aðstaða fyrir samkomur.
Á fjölskylduhátíðinni í Ölfus-
borgum, sem hófst á föstudags-
kvöld og lauk á sunnudagskvöld,
voru kvöldvökur, gönguferðir,
jólaföndur, pylsupartí, leikir,
sögustundir, dans og söngur og
keppni um ferðaverðlaun. -ekh
Helgi M. Guðjónsson: Ráðamenn ættu að vera í sporum þeirra sem hafa
11 þúsund kr. á mánuði.
Helgi M. Guðjónsson skrifar
Launþegar þurfa
líka að lifa
Núna, þegar jólin nálgast, segir
ríkisstjórnin okkur að herða sult-
arólina. En kaupmenn og bókaút-
gefendur halda ekki að sér hönd-
um. Það er öðru nær. Þeir auglýsa
meira en oftast áður og hvetja fólk
til að kaupa vörur sem varla er
hægt að telja til lífsnauðsynja.
Ný útvarpsrás byggir eingöngu á
auglýsingum, eldri útvarpsrásin og
sjónvarpið eru einnig með mikið af
auglýsingum, og svo mikið er af
auglýsingum í sumum dagblöðum
að aðsent efni verður að bíða í
heilan mánuð. Bendir þetta ekki til
þess að einhverjir hópar í þjóðfé-
laginu hafi nóg af peningum?
Almenningur má ekki láta glepj-
ast af auglýsingunum. Fólk ætti að
hugsa um jólin sem gleðihátíð
mannanna, fara í kirkju og gleðjast
með fjölskyldunni. Launafólk hef-
ur ekki efni á að kaupa dýrar jól-
agjafir fyrir launin, og ekki þýðir
að fara í bankana til að biðja um
lán. Þeir hafa eytt peningunum í
dýr útibú, en enginn í ríkisstjórn-
inni virðist hafa vald til að stöðva
slíka vitleysu.
Verk ríkisstjórnarinnar eru nú
ekki öll í þágu þeirra sem lægst hafa
launin. Ékki kemur það þeim til
góða þó lækkuð séu aðflutnings-
gjöld af hljómplötum, myndbönd-
um og tölvuspilum. Nær væri að
lækka tolla af hjólbörðum svo um-
ferðarörygginu sé ekki stefnt í
hættu af þeim sökum.
Leiðtogar þjóðarinnar, bæði
ráðherrar, þingmenn o.fl. hafa svo
gott kaup að þeir eiga erfitt með að
setja sig í spor launafólks og ör-
yrkja, sem þurfa að láta sér nægja
ellefu þúsund krónur á mánuði. En
ráðamennirnir ættu að hafa í huga
að launþegar þurfa líka að lifa.
Úttekt á atvinnusögu Norðfjarðar
Norðfjörður - saga út-
gerðar og fískvinnslu
Um þessar mundir er að koma út
bókin Norðfjörður - saga útgerðar
og fiskvinnslu eftir Smára Geirsson
skólameistara í Neskaupstað. Bók-
in er gefin út af Samvinnufélagi út-
gerðarmanna og Sfldarvinnslunni
hf. í Neskaupstað í tilefni af því að á
árinu 1982 voru 50 ár liðin frá
stofnun fyrrnefnda félagsins og 25
ár frá stofnun hins síðarnefnda.
Bók þessi er sagnfræðileg úttekt
á helstu þáttum norðfirskrar
atvinnusögu allt frá þeim tíma að
fiskvinnsla og útgerð varð sjálf-
stæður atvinnuvegur í byggðar-
laginu. í bókinni er fjallað um
ýmsa þætti er snerta atvinnuþróun
á Austfjörðum á þessum tíma og er
því óhætt að fullyrða að ritið höfð-
ar ekki einvörðungu til Norðfirð-
inga, heldur einnig til allra sem
áhuga hafa á austfirskri atvinnu-
sögu og sögu sjávarútvegs al-
mennt.
Norðfjörður - saga útgerðar og
fiskvinnslu er tæplega 380 blað-
síður í stóru broti og eru um 300
ljósmyndir í bókinni. Formála ritar
Lúðvík Jósepsson, formaður
stjórnar Samvinnufélags útgerðar-
manna.
Prentsmiðjan Hólar hf. annaðist
vinnslu bókarinnar, en Árni Pét-
ursson hannaði kápu. Innkaupa-
samband bóksala annast dreifingu.
J0LA-
TILB0ÐIN HU0MAVEL
-en hvernig hljóma „græjurnar“?
NAD - hljómtækin sem hin tækin eru dæmd eftir!
NAD5120
Plötuspilari
PERFORMANCE TABLE__
123456789
Build quality
Armquahty
Feedback isoiation
Ease of use
Appearance& finish
PERFORMANCETOTAL
SOUND QUALITY
VALUEFOR MONEYi
94%
94%
NAD7120
Magnari
PERFORMANCE TABLE
123456789
Build quality
Power output
FM sensitivity
Ease of use
Appearance & f inish
PERFORMANCb TOTAL
sound'qualijy;
VALUEFORMÖNEY
Popular Hi-Fi
Magnarar ársins í Danmörku s.l. 3 ár.
=dL
/ORANDPfUXl
AWAND
Grand Prix sigurvegarar s.l. 4 ár.
Hvers vegna mæla allir
með Boston Acoustic?
„Boston Acoustic A40 eru litlir hátalarar sem veita
mikiöfyrir lágt verð". Audio
„Boston Acoustic A40 standast fyllilega samanburö
viö margfaldlega stærri hátalara í mikiö hærri
Verðflokkum". NewYorkTimes
„Boston Acoustic A40 eru tvímælalaust einhverjir
allra hagkvæmustu hátalarar sem við höfum
kynnst í lengri tíma". stereo Review
Li!
Sound Quality Value for £
Boston Acoustics A40 90% 93%
Popular Hi-Fi
Þeir sem gera kröfur til tónlistar versla við okkur.