Þjóðviljinn - 13.12.1983, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. desember 1983
Fyrsti fundur nýkjörinnar
stjórnar Alþýðubandalagsins
Vilborg stýrir
miðstjórnar-
störfum
Ólafur Ragnar
Grímsson kosinn
formaður fram-
kvœmdastjórnar
Á fyrsta fundi nýkjörinnar
miðstjórnar Alþýðubandalagsins,
sem haldinn var að HverOsgötu 105
um helgina, var kosið í fram-
kvæmdastjórn, fjármálaráð og
verkalýðsmálaráð. Á fundinum
var ákveðið að Vilborg Harðar-
dóttir varaformaður Alþýðu-
bandalagsins stjórnaði fundum
nýrrar miðstjórnar og undirbún-
ingi undir þá, auk þess sem hún
tæki að sér ýmsa þætti í innra starli
Ookksins, svo sem tengsl milli
miðstjórnar og flokksfélaga. Á
fyrsta fundi nýkjörinnar fram-
kvæmdastjórnar, sem haldinn var í
gærkvöldi, var Ólafur Ragnar
Grímsson kjörinn formaður henn-
ar.
Á miðstjórnarfundinum urðu
mikiar og góðar umræður um
stjórnmál, og kjara- og efna-
hagsmál sérstaklega. Fundurinn
starfaði um hríð í fjórum starfshóp-
um um kjara- og efnahagsmál,
sveitarstjórnarmál, flokksstarfið
og fjármál flokksins.
Á miðstjórnarfundinum var
skipað í verkalýðsmálaráð Alþýðu-
bandalagsins og eiga þar nú sæti
300 manns. í framkvæmdastjórn
Alþýðubandalagsins eru Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins, Vilborg Harðardóttir vara-
formaður, Helgi Guðmundsson
ritari og Margrét Frímannsdóttir
gjaldkeri. Á miðstjórnarfundinum
voru kjörin í framkvæmdastjórn
þau Adda Bára Sigfúsdóttir, Art-
hur Morthens, Benedikt Davíðs-
son, Guðbjörg Sigurðardóttir,
Hilmar Ingólfsson, Kristín Á. Ól-
afsdóttir, Ólafur Ragnar Gríms-
son, Rannveig Traustadóttir og
Sigurjón Pétursson. Varamenn
þeirra eru Guðjón Jónsson, Guð-
mundur Þ. Jónsson, Einar Karl
Haraldsspn, Þorbjörg Samúels-
dóttir, Álfheiður Ingadóttir og
Engilbert Guðmundsson. Kosning
fór fram um aðalmenn í fram-
kvæmdastjórn og var Dagbjört Sig-
urðardóttir boðin fram en náði
ekki kjöri. Samkvæmt nýjum
flokkslögum ber þingflokki Al-
þýðubandalagsins að skipa þrjá
þingmenn í framkvæmdastjórn og
hefur hann tilnefnt Guðrúnu
Helgadóttur, Hjörleif Guttorms-
son og Ragnar Arnalds. Varamað-
ur þeirra er Steingrímur J. Sigfús-
son.
Fjármálaráð var einnig skipað á
miðstjórnarfundinum, en það er ný
stofnun innan Alþýðubandalags-
ins. í því eiga sæti Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins,
Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri,
Baldur Óskarsson framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins og for-
menn kjördæmisráða flokksins.
Miðstjórn kýs þrjá menn í fjármál-
aráð og eru þau Sigurður Magnús-
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins um helgina var fjölmennur og þótti heppnast vel. Ljósm. Magnús.
I gær var svo haldinn fyrsti fundur nýkjörinnar framkvæmdastjórnar flokksins.
son, Kristján Valdimarsson og Á miðstjórnarfundinum var starfa áfram fram að næsta mið-
Margret Bjornsdottir fulltruar utanríkismálanefnd þeirri, sem stjórnarfundi.
miðstjórnar í fjármálaráðinu. starfandi hefur verið, falið að _ ekh
Frá Stykkishólmi_
Skelfiskur
er kjölfestan
Frá v.: Guðrún Ársælsdóttir, Baldur Ragnarsson. - Mynd: Magnús.
- Ætli við víkjum þá ekki
fyrst að atvinnumálunum,
þau eru nú hvort sem er undir-
staða efnahagsafkomunnar
hjá okkur eins og annarsstað-
ar. Og um þau er það að segja,
að atvinna hefur verið næg
hér að undanförnu og er svo
enn.
Það voru þau Baldur Ragn-
arsson og Guðrún Ársælsdótt-
ir í Stykkishólmi sem mæltu
svo er fundum þeirra og blað-
amanns bar saman eitt kvöld-
ið hér uppi í kaffistofunni.
- Og það er náttúrlega sjávar-
útvegurinn, sem er gildasti þátt-
urinn í atvinnulífinu og þar hefur
árað vel. Við höfum líka þá sér-
stöðu að hér er það skelfiskurinn
sem er megin uppistaðan í
veiðunum.
5 veididagar
á viku
- Eru margir bátar hjá ykkur á
skelfiskveiðum?
- Þeir eru einir 14 og stærð
þeirra er þetta frá 15 og upp í 170
tonn. Á hverjum báti eru 5-7
menn. Veiðar eru leyfðar 5 daga í
viku og hver bátur má veiða 120
tonn á mánuði. Þessari veiði er
nú að ljúka í bili því kvótinn er að
verða búinn en þær hefjast svo
aftur í janúar-febrúar.
- Og menn hafa góðar tekjur
af þessum veiðum?
- Já, þær eru mjög góðar hjá
sjómönnum en þær mættu nú
vera meiri hjá landverkafólki.
- Eru það mörg fyrirtæki í
Stykkishólmi sem vinna skelfisk?
- Þau eru þrjú. Það er Skel-
vinnsla Sigurðar Ágústssonar hf.,
Rækjunes hf. og Þórsnes hf., sem
tók til starfa í haust.
- Og nægur markaður fyrir
skelina?
- Já, nægur og góður markað-
ur vestanhafs og afurðirnar selj-
ast næstum eftir hendinni. Skel-
vinnslan og Rækjunes sjá sjálf
um sína sölu en Þórsnesið selur í
gegnum Sambandið.
Einingahúsin
eftirsótt
- Hvað um iðnað í Hólminum?
- Jú, hann er töluverður.
Starfandi eru tvær trésmiðjur og
hafa báðar mikið að gera. Tré-
smiðjan Ösp framleiðir eininga-
hús og er mikil eftirspurn eftir
þeim. Það er láng mest byggt hér
af þesskonar húsum. Voru þón-
okkur í byggingu í sumar og verið
,er að vinna að þeim enn. Fólk
gengst eðlilega fyrir því hvað
byggingartími þessara húsa er
stuttur. Þetta líða ekki nema
svona þrír mánuðir frá því að
byrjað er að reisa húsin og þar til
fólk getur flutt inn í þau.
Svo er það Skipasmíðastöðin,
sem segja má að veiti alhliða
þjónustu. Atvinna hefur verið
þar alveg sæmileg en líklega er nú
eitthvað að dofna yfir henni núna
þótt vonandi sé það aðeins tíma-
bundin lægð.
Ófullnægjandi
skólahúsnæði
- Við vorum að tala um íbúð-
arhúsin en hvað þá um aðrar
byggingar?
- Jú, þær eru einnig nokkuð á
dagskrá. Verið er að koma upp
nýbyggingu fyrir Grunnskólann.
Hún á ennþá nokkuð í land en
mun þó komin undir þak. Gagn-
fræðadeildin er nánast húsnæðis-
laus en hefur fengið inni í Hótel-
inu. Það er auðvitað alger bráða-
birgðalausn. Tónlistarskólinn
hefur raunverulega hvergi fastan
samastað. Hann er bara hingað
og þangað um bæinn. - Nú svo er
verið að byggja kirkju.
Samgöngumálin
- Hverjar hafa verið helstu
framkvæmdir hjá bænum í ár?
- Þar er nú einkum að nefna
framkvæmdir við varanlega
gatnagerð. Þær hafa verið aðal
verkefnið hjá bænum í sumar.
Meiri hluti gatnanna er nú kom-
inn undir olíumöl.
- Aftur á móti er ekki ástæða
til að hæla vegakerfinu hér innan
sýslunnar. Þó að menn kunni að
steinsofa í bílum á meðan vérið er
að nálgast héraðið þá er engin
hætta á að farþegar vakni ekki
upp viö hristinginn þegar komið
er inn fyrir sýslumörkin.
- Hvernig eru flugsamgöngur
við Stykkishólm?
- Þær mega heita mjög góðar.
Flogið er fimm daga í viku og sér
Arnarflug um það. Völlurinn er
upplýstur og þótt á hann vanti
slitlag ennþá má hann heita góð-
ur. En þegar rætt er um flugvöll-
inn þá er ástæða til að nefna nafn
Jóhanns Rafnssonar, en hann
hefur verið mjög skeleggur bar-
áttumaður fyrir umbótum á flug-
vellinum.
Gott félagslíf
- Hvernig er svo félagslífið hjá
ykkur í Stykkishólmi, því ekki
lifið þið nú fremur en aðrir af
einu saman brauði?
- Það er víst óhætt að segja að
það sé bæði mikið og gott félagslíf
í Hólminum. Það eru nú auðvitað
þessir blessaðir klúbbar, af flest-
um tegundum sem til eru. En
kannski er okkur nú einna efst í
huga Leikfélagið. Það er mjög at-
hafnasamt. í haust var það með
sýningar á Delerium bubonis og
til stendur sýning á því verki milli
jóla og nýárs. Leikritið var sýnt á
Seltjarnarnesinu en að öðru leyti
hefur ekki verið farið með það út
fyrir heimabyggðina. Jón Júlíus-
son sá um leikstjórnina. Leikfé-
lagið hefur verið með sýningar á
einu til tveimur leikritum á ári. í
fyrra fékkst það við Skugga-
Svein og Sólarlandaferð.
Og ekki má gleyma lúðra-
sveitunum. Ætli þærséu ekki ein-
ar þrjár, Tónlistarskólinn með
tvær og svo þessi gamla góða.
En það er í fleiri horn að líta en
hjá Þjóðviljanum þegar skroppið
er til höfuðborgarinnar. Og því
var ekki um annað að gera en slá
botninn í spjallið að sinni.
- mhg