Þjóðviljinn - 13.12.1983, Side 19
Þriðjudagur 13. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
f rá lesendum
Frá þorskastríðinu.
Aldrei má
sofna á
verÖinum
RUV 1
Þriðjudagur
13. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Erfings Siguröarsonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Frétir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö - Jón Ormur Halldórsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Trítlað við
tjörnina" eftir Rúnu Gísladóttur Höfundur
les (6).
9.20 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.j.
10.45 „Ljáðu mér eyra“ Málmfríöur Sigurðar-
dóttir á Jaðri sér um þáttinn (RÚVAK.)
11.15 Við Pollinn Gestur E. Jónasson velur
og kynnir létta tónlist (RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Leikin lög af nýjum islenskum hljóm-
plötum
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Bjömsson
sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra
Ingvadóttir.
14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar Brigitte Fassbaend-
er syngur Sígaunaljóð eftir Antonin Dvorak
og Franz Liszt. Karl Engel leikur á píanó/ Ivo
Pogorelich leikur Pianósónötu nr. 6 í A-dúr
op. 82 eftir Sergej Prokofjeff.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Tordýfil-
linn flýgur í rökkrinu" eftir Mariu Gripe og
Kay Pollak. Þýðandi: Olga Guðrún Árna-
dóttir. 10. þáttur: „Sundursagaða trébrúð-
an“. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikend-
ur: Ragnhildur Elfa Arnardóttir, Jóhann Sig-
urðarson, Aðalsteinn Bergdal, Guðrún S.
Gisladóttir, Jón Júliusson, Sigurveig Jóns-
dóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Baldvin
Halldórsson, Pétur Einarsson, Róbert
Amfinnsson og Guðmundur Ólafsson.
20.40 Kvöldvaka a. Síðustu jól skipverja á
mótorskonnortunni Rigmor Gils Guð-
mundsson les frásöguþátt eftir Ólaf Elín-
mundarson. b. Ljóðalestur Helga Þ. Step-
hensen les Ijóð eftir ýmsa höfunda. Umsjón:
Helga Ágústsdóttir.
21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Guðmundur
Amlaugsson.
21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir
hreppstjórans" eftir Þórunni Elfu Magn-
úsdóttur Höfundur les (5).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldtónleikar: Clara Wieck, Robert
Schumann og skáldið Adalbert von Cham-
isso Murray Perahia, Michael Ponti, Vladim-
ir Horowitsj, Þuríður Pálsdóttir, Sigriður Ella
Magnúsdóttir, Ólafur Vignir Albertsson o.fl.
ftytja. - Knútur R. Magnússon kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV 2
Rás 2 er útvarpað á FM-bylgju, 99,9
mhz, mánudaga-föstudaga kl. 10-12 og
14-18 fyrst um sinn. Meðan dagskráin er
á tilraunastigi verður hún ekkLgefin út
fyrirfram.
RUV
Gamall lesandi skrifar:
Ég hef verið kaupandi Þjóð-
viljans allt frá því hann byrjaði að
koma út. Því fer náttúrlega fjarri
að ég hafi alltaf verið ánægður
með blaðið og finnst mér að oft
hefði mátt halda þar betur á mál-
um, einkum nú í seinni tíð.
Þjóðviljinn er eina blaðið, sem
nokkurs má sín gegn sameinaðri
hægri pressunni: Morgunblað-
inu, Dagblaðinu-Vísi og Tíman-
um. Sjá a'llir hversu ójafn leikur
það er þótt ekki bætist það nú við
að kaupendur Þjóðviljans séu
einnig, að sínum hluta, látnir
borga ferðaflandur Steingríms og
áróðursstaglsbækling ríkisstjórn-
arinnar. Hér má því ekki láta
deigan síga.
En það er náttúrlega engan
veginn sama hvernig á málum er
haldið. Pólitískur málflutningur í
blöðum er listgrein út af fyrir sig.
Áhrif hans eru kannski ekki alltaf
komin undir magninu ekki held-
ur því að kasta nýrri bombu á
hverjum degi og að þar með sé
málið afgreitt. Þeir vilja eyða
áhrifum hverrar annarrar.
Því miður hefur það, að mínum
dómi, lengi verið höfuðgalli á
blaðinu að halda ekki nægilega til
streitu málum, sem það fær upp í
hendurnar, eins og t.d. landhelg-
ismálinu og innrás breska flotans
á fiskimiðin okkar. Við höfðum
þá og höfum þetta svokallaða
verndarlið, sem segist vera hér til
þess að vernda okkur fyrir of-
beldi annarrra þjóða. Hvar var
vernd þess þá? Hvað gerði það þá
okkur til varnar? Það hreyfði
hvorki legg né lið og neitaði að
lána okkur skip til þess að verja
okkur fyrir árásum bresku drek-
anna. Og íhaldið var náttúrlega
við sama heygarðshornið og
venjulega. Það komu góðar
greinar um þetta í blaðinu á sinni
tíð en síðan ekki söguna meir. En
á þessu þarf að hamra alltaf öðru
hvoru því það sýnir okkur öllu
öðru betur í hverra þágu þetta
herlið er hér.
Það mætti nú líka rifja upp
hvernig hægri pressan hagaði sér
gagnvart Lúðvík Jósepssyni þeg-
ar hann var að berjast fyrst fyrir
12 mílunum og síðan 50, og for-
sætisráðherra ríkisstjórnarinnar
þá, (50 mflurnar), var kominn á
•fremsta hlunn með að sprengja
stjórnina á þessu máli og hefði
gert það ef hann hefði þorað. Við
mátturn nefnilega ekki koma
okkur út úr húsi hjá Nato með
þessu brölti.
Síðan kemur álmálið og árás-
irnar á Hjörleif fyrir að halda
með einurð á málstað okkar ís-
lendinga.
Þessi mál öll tengjast hvert
öðru. Þau eru öll af sömu rót. Á
bak við afstöðu íhaldsaflanna til
þeirra allra býr sami hugsunar-
hátturinn og hundingseðlið: að
skríða fyrir valdinu, drekka úr
hófsporinu. Þessu þarf sífellt að
halda vakandi því þarna er um að
ræða mál, sem marka megin lín-
ur.
Einn mikilhæfasti stjórnmála-
maður, sem uppi hefur verið með
þessari þjóð, sagði einu sinni við
mig, að Magnús Kjartansson væri
mesti pólitíski blaðamaðurinn,
sem starfað hefði við íslensk blöð
fyrr og síðar. En bætti því við, að
það væri með hann eins og aðra
kommúnista, hann væri svo latur,
að hann nennti ekki að hamra á
sama málinu æ ofan í æ. Það væri
þó nauðsynlegt til þess að höfuð-
ágreiningsefnin gleymdust ekki
eða hyrfu í skugga þess, sem
minna máli skipta. Þetta virðast
pólitískir blaðamenn nútímans
ekki gera sér grein fyrir. Eða er
það leti?
Sjónvarp kl. 22.15
„Skiptar skoðanir“ um mál Skafta
Þriðjudagur
13. desember
19.45 Fréttaágrip á táknmáti
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Bogi og Logi Nýr flokkur Póiskar
teiknimyndir fyrir börn um tvo athafnasama
snáöa, sem lenda i ýmsum ævintýrum.
21.05 Derrick Schubach snýr aftur Þýskur
sakamálamyndatlokkur. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
22.15 Skiptar skoðanir Umræðuþáttur i um-
sjón Guðjóns Einarssonar fréttamanns.
23.15 Dagskrárlok
Guðjón Einarsson, fréttamaður.
Um fátt hefur verið meira rætt í
blöðum og manna á meðal nú að
undanförnu en viðskipti Skafta
Jónssonar blaðamanns og lög-
reglunnar og leggst fjölmiðlunum
alltaf eitthvað til. Þetta mál hefur
reynst hreinn hvalreki bæði fyrir
blað Skafta og annarra. Sýnist
sitt hverjum eins og verða vill.
Nú hefur Guðjón Einarsson
fréttamaður fengið nokkra menn
til þess að ræða málið í þætti sín-
um „Skiptar skoðanir“ sem er á
dagskrá Sjónvarpsins kl. 22.15 í
kvöld. Þeir, sem koma fram í
þættinum eru: Bjarki Elíasson,
yfirlögregluþjónn, Jónas Krist-
jánsson ritstjóri, Ragnar Aðal-
steinsson, hæstarréttarlögmaður
og fulltrúi frá Lögreglufélagi
Reykjavíkur, sem enn var ekki
ákveðinn hver yrði, þegar þetta
er skrifað. Trúlega verða svo ein-
hverjir teknir tali „úti í bæ“. Ekki
er að efa að fróðlegt verður að
heyra álit og orðaskipti þessara
manna. - mhg.
skák
Karpov að tafli — 249
Á Aljékín-mótinu í Moskvu náði Vasily
Smyslov afbragðsgóöum árangri. Á
tímabili leit jafnvel út fyrir að hann myndi
verða í efsta sæti. Þegar hann tefldi við
Karpov í einni af lokaumferðunum mun-
aði aðeins 'h vinningi á þeim. Karopv
mætti vel upplagður til leiks og vann með
skemmtilegri sóknartaflmennslu.
Karpov - Smyslov
27. h5!-Rd7
28. hxg6-hxg6
29. Hg3!-De5
(Eða 29. - Re5 30. f4. Þá dugar 29. -
Db6 skammt vegna 30. c5! Rxc5 31.
Hh3! og mátar 30. - Da6 má svara með
31. c6!)
30. Hxgd6+-Kh7
31. Hg3-Rf6
32. Dh4+
- og Smyslov gafst upp.
Lokaniðurstaðan á hinu geysisterka
Aljékin-móti varð þessi: 1 Karpov 9 v.
(af 13) 2.4. Kasparov, Polugajevski og
Smyslov 7'h v. hver. 5.-6. Portisch og
Gheorghiu 7 v. hvor. 7.-8. Balashov og
Bel javskí 6 V2 v. hvor. 9.-10. Anderson
og Petrosjan 6 v. hvor. 11.-13. Tim-
man, Torre og Smejkal 5'h v. hver. 14.
Geller 4 v.
bridge
Eftirfarandi spil kom fyrir I tvímenn-
ingskeppni í USA. Flest allir unnu 3
grönd með 3 yfirslögum, nema við örfá
orð. Þar byggðist vörnin á ákveönu varn-
arspili sem menn geta tileinkað sér, til
þess að forðast að „gefa“ óþarfa slagi I
vörn. Lítum á þetta spil:
ÁK104 G86
— D753 Ktí
9652 G7
K10532 Á94
9 G42
985 D83 D10732
D7 ÁK1086 ÁG4
Suður opnar á 1 grandi (15-17) (14-
16), Norður 2 lauf, Suður 1 tigla og
Norður 3 grönd. Útspll Vesturs var hj. 3
(fjórða). Lítið úr blindum og hvað vilt þú
gera með spil Austurs? Já, við drepum á
ásinn en hverju spilum við til baka?
Ef við spilum fjarkanum, gæti makker
freistast til að gefa þann slag í þeirri vopn
að við ættum innkomu og þaö var einmitt
það sem skeði á mörgum borðum. Ef við
hinsvegar spilum níunni til baka, þá lítur
hún út einsog við ættum ekki meira
hjarta og það eru einmitt skilaboðin f
þessu spili. Við viljum aö makker drepi á
kónginn, ef hann á hann, ekki satt? Og
forða þannig óvelkomnum botni í tví-
menningskeppni.
Tikkanen
Það eru bara þær sálir sem
hafna í manneskjum sem verða
óhamingj usamar.
Gœtum
tungunnar
Heyrst hefur: Til sölu er tvéggja
dyra bfll.
Réttværi:.... tvennra dyrabfll.
Eða: ... tveggja hurða bfll.
(Orðið hurð hefur bæði eintölu
og fleirtölu, en dyr einungis
fleirtölu).