Þjóðviljinn - 13.12.1983, Síða 19

Þjóðviljinn - 13.12.1983, Síða 19
Þriðjudagur 13. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23 f rá lesendum Frá þorskastríðinu. Aldrei má sofna á verÖinum RUV 1 Þriðjudagur 13. desember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Erfings Siguröarsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Frétir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorö - Jón Ormur Halldórsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Trítlað við tjörnina" eftir Rúnu Gísladóttur Höfundur les (6). 9.20 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.j. 10.45 „Ljáðu mér eyra“ Málmfríöur Sigurðar- dóttir á Jaðri sér um þáttinn (RÚVAK.) 11.15 Við Pollinn Gestur E. Jónasson velur og kynnir létta tónlist (RÚVAK) 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 13.30 Leikin lög af nýjum islenskum hljóm- plötum 14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Bjömsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts- son. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar Brigitte Fassbaend- er syngur Sígaunaljóð eftir Antonin Dvorak og Franz Liszt. Karl Engel leikur á píanó/ Ivo Pogorelich leikur Pianósónötu nr. 6 í A-dúr op. 82 eftir Sergej Prokofjeff. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni. 18.10 Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Tordýfil- linn flýgur í rökkrinu" eftir Mariu Gripe og Kay Pollak. Þýðandi: Olga Guðrún Árna- dóttir. 10. þáttur: „Sundursagaða trébrúð- an“. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikend- ur: Ragnhildur Elfa Arnardóttir, Jóhann Sig- urðarson, Aðalsteinn Bergdal, Guðrún S. Gisladóttir, Jón Júliusson, Sigurveig Jóns- dóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Baldvin Halldórsson, Pétur Einarsson, Róbert Amfinnsson og Guðmundur Ólafsson. 20.40 Kvöldvaka a. Síðustu jól skipverja á mótorskonnortunni Rigmor Gils Guð- mundsson les frásöguþátt eftir Ólaf Elín- mundarson. b. Ljóðalestur Helga Þ. Step- hensen les Ijóð eftir ýmsa höfunda. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Guðmundur Amlaugsson. 21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir hreppstjórans" eftir Þórunni Elfu Magn- úsdóttur Höfundur les (5). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kvöldtónleikar: Clara Wieck, Robert Schumann og skáldið Adalbert von Cham- isso Murray Perahia, Michael Ponti, Vladim- ir Horowitsj, Þuríður Pálsdóttir, Sigriður Ella Magnúsdóttir, Ólafur Vignir Albertsson o.fl. ftytja. - Knútur R. Magnússon kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 2 Rás 2 er útvarpað á FM-bylgju, 99,9 mhz, mánudaga-föstudaga kl. 10-12 og 14-18 fyrst um sinn. Meðan dagskráin er á tilraunastigi verður hún ekkLgefin út fyrirfram. RUV Gamall lesandi skrifar: Ég hef verið kaupandi Þjóð- viljans allt frá því hann byrjaði að koma út. Því fer náttúrlega fjarri að ég hafi alltaf verið ánægður með blaðið og finnst mér að oft hefði mátt halda þar betur á mál- um, einkum nú í seinni tíð. Þjóðviljinn er eina blaðið, sem nokkurs má sín gegn sameinaðri hægri pressunni: Morgunblað- inu, Dagblaðinu-Vísi og Tíman- um. Sjá a'llir hversu ójafn leikur það er þótt ekki bætist það nú við að kaupendur Þjóðviljans séu einnig, að sínum hluta, látnir borga ferðaflandur Steingríms og áróðursstaglsbækling ríkisstjórn- arinnar. Hér má því ekki láta deigan síga. En það er náttúrlega engan veginn sama hvernig á málum er haldið. Pólitískur málflutningur í blöðum er listgrein út af fyrir sig. Áhrif hans eru kannski ekki alltaf komin undir magninu ekki held- ur því að kasta nýrri bombu á hverjum degi og að þar með sé málið afgreitt. Þeir vilja eyða áhrifum hverrar annarrar. Því miður hefur það, að mínum dómi, lengi verið höfuðgalli á blaðinu að halda ekki nægilega til streitu málum, sem það fær upp í hendurnar, eins og t.d. landhelg- ismálinu og innrás breska flotans á fiskimiðin okkar. Við höfðum þá og höfum þetta svokallaða verndarlið, sem segist vera hér til þess að vernda okkur fyrir of- beldi annarrra þjóða. Hvar var vernd þess þá? Hvað gerði það þá okkur til varnar? Það hreyfði hvorki legg né lið og neitaði að lána okkur skip til þess að verja okkur fyrir árásum bresku drek- anna. Og íhaldið var náttúrlega við sama heygarðshornið og venjulega. Það komu góðar greinar um þetta í blaðinu á sinni tíð en síðan ekki söguna meir. En á þessu þarf að hamra alltaf öðru hvoru því það sýnir okkur öllu öðru betur í hverra þágu þetta herlið er hér. Það mætti nú líka rifja upp hvernig hægri pressan hagaði sér gagnvart Lúðvík Jósepssyni þeg- ar hann var að berjast fyrst fyrir 12 mílunum og síðan 50, og for- sætisráðherra ríkisstjórnarinnar þá, (50 mflurnar), var kominn á •fremsta hlunn með að sprengja stjórnina á þessu máli og hefði gert það ef hann hefði þorað. Við mátturn nefnilega ekki koma okkur út úr húsi hjá Nato með þessu brölti. Síðan kemur álmálið og árás- irnar á Hjörleif fyrir að halda með einurð á málstað okkar ís- lendinga. Þessi mál öll tengjast hvert öðru. Þau eru öll af sömu rót. Á bak við afstöðu íhaldsaflanna til þeirra allra býr sami hugsunar- hátturinn og hundingseðlið: að skríða fyrir valdinu, drekka úr hófsporinu. Þessu þarf sífellt að halda vakandi því þarna er um að ræða mál, sem marka megin lín- ur. Einn mikilhæfasti stjórnmála- maður, sem uppi hefur verið með þessari þjóð, sagði einu sinni við mig, að Magnús Kjartansson væri mesti pólitíski blaðamaðurinn, sem starfað hefði við íslensk blöð fyrr og síðar. En bætti því við, að það væri með hann eins og aðra kommúnista, hann væri svo latur, að hann nennti ekki að hamra á sama málinu æ ofan í æ. Það væri þó nauðsynlegt til þess að höfuð- ágreiningsefnin gleymdust ekki eða hyrfu í skugga þess, sem minna máli skipta. Þetta virðast pólitískir blaðamenn nútímans ekki gera sér grein fyrir. Eða er það leti? Sjónvarp kl. 22.15 „Skiptar skoðanir“ um mál Skafta Þriðjudagur 13. desember 19.45 Fréttaágrip á táknmáti 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Bogi og Logi Nýr flokkur Póiskar teiknimyndir fyrir börn um tvo athafnasama snáöa, sem lenda i ýmsum ævintýrum. 21.05 Derrick Schubach snýr aftur Þýskur sakamálamyndatlokkur. Þýðandi Veturliði Guðnason. 22.15 Skiptar skoðanir Umræðuþáttur i um- sjón Guðjóns Einarssonar fréttamanns. 23.15 Dagskrárlok Guðjón Einarsson, fréttamaður. Um fátt hefur verið meira rætt í blöðum og manna á meðal nú að undanförnu en viðskipti Skafta Jónssonar blaðamanns og lög- reglunnar og leggst fjölmiðlunum alltaf eitthvað til. Þetta mál hefur reynst hreinn hvalreki bæði fyrir blað Skafta og annarra. Sýnist sitt hverjum eins og verða vill. Nú hefur Guðjón Einarsson fréttamaður fengið nokkra menn til þess að ræða málið í þætti sín- um „Skiptar skoðanir“ sem er á dagskrá Sjónvarpsins kl. 22.15 í kvöld. Þeir, sem koma fram í þættinum eru: Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn, Jónas Krist- jánsson ritstjóri, Ragnar Aðal- steinsson, hæstarréttarlögmaður og fulltrúi frá Lögreglufélagi Reykjavíkur, sem enn var ekki ákveðinn hver yrði, þegar þetta er skrifað. Trúlega verða svo ein- hverjir teknir tali „úti í bæ“. Ekki er að efa að fróðlegt verður að heyra álit og orðaskipti þessara manna. - mhg. skák Karpov að tafli — 249 Á Aljékín-mótinu í Moskvu náði Vasily Smyslov afbragðsgóöum árangri. Á tímabili leit jafnvel út fyrir að hann myndi verða í efsta sæti. Þegar hann tefldi við Karpov í einni af lokaumferðunum mun- aði aðeins 'h vinningi á þeim. Karopv mætti vel upplagður til leiks og vann með skemmtilegri sóknartaflmennslu. Karpov - Smyslov 27. h5!-Rd7 28. hxg6-hxg6 29. Hg3!-De5 (Eða 29. - Re5 30. f4. Þá dugar 29. - Db6 skammt vegna 30. c5! Rxc5 31. Hh3! og mátar 30. - Da6 má svara með 31. c6!) 30. Hxgd6+-Kh7 31. Hg3-Rf6 32. Dh4+ - og Smyslov gafst upp. Lokaniðurstaðan á hinu geysisterka Aljékin-móti varð þessi: 1 Karpov 9 v. (af 13) 2.4. Kasparov, Polugajevski og Smyslov 7'h v. hver. 5.-6. Portisch og Gheorghiu 7 v. hvor. 7.-8. Balashov og Bel javskí 6 V2 v. hvor. 9.-10. Anderson og Petrosjan 6 v. hvor. 11.-13. Tim- man, Torre og Smejkal 5'h v. hver. 14. Geller 4 v. bridge Eftirfarandi spil kom fyrir I tvímenn- ingskeppni í USA. Flest allir unnu 3 grönd með 3 yfirslögum, nema við örfá orð. Þar byggðist vörnin á ákveönu varn- arspili sem menn geta tileinkað sér, til þess að forðast að „gefa“ óþarfa slagi I vörn. Lítum á þetta spil: ÁK104 G86 — D753 Ktí 9652 G7 K10532 Á94 9 G42 985 D83 D10732 D7 ÁK1086 ÁG4 Suður opnar á 1 grandi (15-17) (14- 16), Norður 2 lauf, Suður 1 tigla og Norður 3 grönd. Útspll Vesturs var hj. 3 (fjórða). Lítið úr blindum og hvað vilt þú gera með spil Austurs? Já, við drepum á ásinn en hverju spilum við til baka? Ef við spilum fjarkanum, gæti makker freistast til að gefa þann slag í þeirri vopn að við ættum innkomu og þaö var einmitt það sem skeði á mörgum borðum. Ef við hinsvegar spilum níunni til baka, þá lítur hún út einsog við ættum ekki meira hjarta og það eru einmitt skilaboðin f þessu spili. Við viljum aö makker drepi á kónginn, ef hann á hann, ekki satt? Og forða þannig óvelkomnum botni í tví- menningskeppni. Tikkanen Það eru bara þær sálir sem hafna í manneskjum sem verða óhamingj usamar. Gœtum tungunnar Heyrst hefur: Til sölu er tvéggja dyra bfll. Réttværi:.... tvennra dyrabfll. Eða: ... tveggja hurða bfll. (Orðið hurð hefur bæði eintölu og fleirtölu, en dyr einungis fleirtölu).

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.