Þjóðviljinn - 13.12.1983, Side 20
DIÚBVIUINN
Þriðjudagur 13. desember 1983
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt að ná í biaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Hugmynd Ásmundar fékk litlar undirtektir
Formenn verkalý<
vildu ekki reyna
Formenn þriggja verkalýðsfélaga stinga saman nefjum á fundi sambandsstjórnar ASÍ í gær, en þeim fundi
lýkur í kvöld. Frá vinstri Þórður Ólafsson formaður Verkalýðsfélagsins Boðans i Þorlákshöfn, Sigfinnur
Karlsson formaður Verkalýðsfélags Norðfirðinga Neskaupstað og Pétur Sigurðsson formaður Verkalýðsfél-
agsins Baldurs á ísafirði. - Ljósm. Magnús.
Niður-
staða
funda
ASÍ:
Átök ekki
raunhœf á
nœstunni
Það var almennt mat
manna á formannafundi
Alþýðusambands íslands
á sunnudag að ekki væri
raunhæft að stefna í verk-
fallsaðgerðir í bráð. Ás-
mundur Stefánsson forseti
ASÍ viðraði hugmyndir
um að einstök félög
reyndu að ná samningum
sérstaklega og því yrði
ekki um samflot að ræða
við samningagerð á næsta
ári. Hugmyndir Ásmund-
ar fengu litlar sem engar
undirtektir og sama er að
segja um viðbrögð manna
á nýafstöðnum mið-
stjórnarfundi.
í ályktun formannafundarins er
bent á að miðað við aflahorfur á
næsta ári séu líkur á að þjóðartekj-
ur á mann verði allt að 15% lægri
en árið 1981. Hins vegar verði
samningsbundin launakjör um
30% lakari á fyrra hluta næsta árs
en var á árinu 1981. Stóraukin
skattabyrði bætist síðan ofan á
skertan kaupmátt.
Þá segir að markmið verkalýðs-
hreyfingarinnar séu skýr; að
endurheimta það sem af henni hef-
ur verið tekið og með tilliti til að-
stæðna í þjóðfélaginu verði það
ekki gert nema í áföngum. Þá verði
að byrja á því að bæta hag hinna
lægstlaunuðu. Það lýsti hins vegar
fáheyrðu dómgreindarleysi að rík-
isstjórn og atvinnurekendur skuli
skella skollaeyrum við kröfúm
miðstjórnar ASÍ um hækkun lág-
markstekna og taki út yfir allan
þjófabálk þegar VSÍ krefst afnáms
ýmissa félagslegra réttinda sem
harðast hljóti að koma niður á hin-
um tekjulægstu.
í gær hófst sambandstjórnar-
fundur ASÍ en þar er m.a. rætt um
lífeyrismál, atvinnulýðræði, tölv-
umál og síðast en ekki síst skipu-
lagsmál Alþýðusambandsins.
Fundinum lýkur í kvöld.
-v.
Ásgeir Friðjónsson dómari í ávana- og fíkniefnamálum:
Umræðan er komin á
Geirfinnsmálsstig
Föstudagsfrétt Þjóðviljans staðfest
„Ég sagði við biaðamann Morgun-
blaðsins að efnislega hefði ég ekkert út á
frétt Þjóðviljans sl. föstudag að setja. Ég
hefði reyndar viljað hafa aðra fyrirsögn
á þessari frétt, en kjarni málsins kemur
skýrt fram í fréttinni. Undanfarið hafa
þær sögur gengið fjöllunum hærra að
tilteknir aðilar sem umsvifamiklir eru í
rekstri ýmissa fyrirtækja væru viðriðnir
innflutning á fíkniefnum. Með þessu við-
Morgunblaðið birti stutt við-
tal við Ásgeir sl. laugardag þar
sem ítrekað er að engir „fjár-
sterkir aðilar“ sem blandast
gætu stóru fíkniefnamálunum
tveimur hafi fundist, eins og
reyndar kemur fram í frétt
Þjóðviljans. í Mbl. segir Ásgeir
að „blaðamaður hafi hringt í sig
og spurst fyrir um þróun fíkni-
tali vildi Morgunblaðið gera sitt til þess
að slá orðróminn þann niður, því hann
var farinn að hafa áhrif á rekstur fyrir-
tækja þessara manna. Ég veit til þess að
þetta er orðið afar viðkvæmt mál og um-
ræðan er að mínu viti komin á það sem
éjg vil kalla „Geirfinnsmálsstig“,“ sagði
Asgeir Friðjónsson dómari í ávana- og
fikniefnamálum þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann í gær.
efnamála almennt en alls ekki
hin tvö nýlegu mál sem nú eru
til rannsóknar,“ eins og það er
orðað í fréttinni. Rétt er að það
komi fram að undirritaður
blaðamaður spurði Ásgeir um
þessi tvö tilteknu mál og svar-
aði hann því til að rannsókn
þeirra væri í miðjum klíðum.
Hann sagði ennfremur að þeir
aðilar sem væru í gæsluvarð-
haldi væru ekki þessir „fjár-
sterku aðilar“ sem svo mjög eru
til umræðu þessa dagana.
í viðtali Þjv. við Ásgeir
kvaðst Ásgeir ávallt leggja á
það ríka áherslu að kveða niður
sögusagnir um menn sem ekki
ættu við rök að styðjast, eða
eins og hann orðaði það: „Það
Ásgeir Friðjónsson dómari í ávana-
og fíkniefnamálum á skrifstofu
sinni í gær. - Ljósm: Magnús.
er að sjálfsögðu sama að hverj-
um slíkar kviksögur beinast.
Ávallt er jafn rík ástæða til að
kveða þær niður, ef ekkert
bendir til þess að fyrir þeim sé
flugufótur.“ -hól.
Hvað gerist þegar
ríkissjóður selur
hlutabréfin í Flug-
leiðum? _______________
Ríkis-
ábyrgðin
og salan eru
alveg að-
skilin mál!
segir Albert
Guðmundsson
fjármálaráðherra
„Kíkisábyrgðin hangir ekkert
saman við hlutabréfasöluna. Flug-
leiðir verða að starfa áfram og
standa skil á sínum lánum þótt rík-
ið selji sín hlutabréf í fyrirtækinu“,
sagði Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra þegar Þjóðviljinn
spurði hann í gær hvort það fylgdi
ekki sölu ríkissjóðs á hlutabréfum
sínum I Flugleiðum, að fyrirtækið
tæki yfir á sínar herðar þær ríkisá-
byrgðir sem hvfla á lánum til fyrir-
tækisins og voru veittar þegar
hlutur ríkisins var aukinn.
Alls hvíla nú rúmlega 275 milj-
ónir á ríkissjóði vegna ríkisábyrgða
á lánum sem Flugleiðir tóku fyrir
nokkrum árum þegar félagið átti í
verulegum rekstrarerfiðleikum. Þá
var það skilyrði ríkisstjórnarinnar
að ríkissjóður eignaðist hlutabréf í
fyrirtækinu út á þessar miklu ríkis-
ábyrgðir.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra telur hins vegar að þarna
sé ekkert samband á milli og því
muni ríkissjóður áfram bera
ábyrgðina á þessu láni sem nú telur
rúmar 275 miljónir þrátt fyrir að
hlutabréfin verði seld. „Ríkis-
skuldabréfin koma sölu hlutabréf-
anna ekkert við. Það eru alveg að-
skilin mál“, sagði ráðherra.
-fg-
Tóbak og
áfengi
hækka
Flestar tegundir áfengis og
tóbaks hækka talsvert í verði í
dag en aðrar 'lækka. Stafar
það af breyttum reglum varð-
andi útreikninga á útsöluverð-
inu og verður það nú í sam-
ræmi við mismunandi
innkaupsverð vörunnar.
Amerískar sígarettur
hækka um 11-15% en enskar
standa í stað, svo dæmi séu
nefnd. Áfengistegundir sem
eru dýrar í innkaupi eins og
t.d. koníak hækka í allt að 700
kr. flaskan en aðrar tegundir
eins og t.d. íslenskt brennivín
stendur í stað. Flestar
rauðvínstegundir hækka.