Þjóðviljinn - 15.12.1983, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. desember 1983
Helgi Ólafsson skrifar um skákeinvígin
Æsispennandi skák
lauk með jafntefli
Kortsnoj misnotaði upplagt tœkifœri
til að minnka muninn. Kasparov þarf
aðeins eitt jafntefli í tveim skákum til
að vinna einvígið.
Viktor Kortsnoj og Garrí
Kasparov gerðu jafntefli í 10.
einvígisskák sinni í Lundúnum í
gærkveldi. Skákin var æsi-
spennandi einkum undir lok set-
unnar þegar upphófust stór-
kostlegar flækjur fyrir til verknað
Kasparov. Minntu sviptingarnar
í kjölfarið nokkuð á hina frægu
viðureign þeirra félaga á Olypí-
umótinu í Luzern í fyrra. Kaspar-
ov tók hlutunum með ró í upp-
hafi tafls í gær, virtist ekki ætla
að tefla á tvær hættur með
tveggja vinninga forskot. Beið
hann þess róiegur að Kortsnoj
tæki af skarið eftir afar hægfara
byrjun, en þegar Kortsnoj sýndi
engin merki þess reiddi Kaspar-
ov sjálfur til höggs með fyrr-
greindum afleiðingum.
Skákin var einkum dramatísk
fyrir það að á afar viðkvæmu og
mikilvægu augnabliki missti Korts-
noj af leið sem hefði gefið honum
mikla vinningsmöguleika. Hann
var tveim peðum yfir en kaus að
gefa annað þeirra til baka til þess
að létta á stöðunni. Þetta var mis-
ráðið eins og athuganir á stöðunni
leiddu í Ijós og Kasparov átti ekki í
vandræðum með að rétta sinn hlut.
Geysilegt tímahrak setti mark sitt á
taflmennsku Kortsnojs.
Kasparov hefur nú tveggja vinn-
inga forskot og er aðeins tveim
skákum ólokið. Þarf Kortsnoj að
vinna þær báðar til að eiga mögu-
leika á að halda áfram keppni í á-
skorendaeinvígjunum. Eins og nú
er ástatt bendir allt til þess að ein-
víginu Ijúki á föstudaginn því í 11.
skákinni sem þá verður tefld hefur
Kasparov hvítt. Þeir Zoltan Ribli og
Vasily Smyslov tefla 11. skák sína í
dag.
10. einvígisskák:
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: Garrí Kasparov
Drottningarbragð á vtsu Tartakow-
ers
1. d4 dS
2. c4 e6
3. Rf3 Rf6
4. Bg5
(Kortsnoj bregður sér út í drottningar-
bragð. í síðustu skákum hefur hann
leikið 4. g3 með litlum árangri. Kaspar-
ov hefur sárasjaldan setið svarts megin
í drottningarbragð en hefur hinsvegar
unnið marga frækna sigra með hvítu.)
4. .. Be7
5. Rc3 h6
6. Bh4 0-0
7. e3 b6
(Tartakower-afbrigðið svokallaða sem
er langvinsælasta útgáfan af drottning-
arbragði. Menn minnast gjarnan hinnar
frægu 6. skákar Fischers og Spasskí í
Laugardalshöllinni sumarið góða 1972
þegar hin fræðilega umræða leitar í
þann farveg. En Kortsnoj hefur líka
sitthvað til málanna að leggja; í
heimsmeistaraeinvígjunum við Karpov
bæði í Baguio á Filippseyjum 1978 og í
Meranó á Ítalíu tefldu þeir félagar
þráfaldlega þetta afbrigði.)
8. Db3!?
(Sálfræðingurinn í Kortsnoj segir að
þetta sé besti leikurinn, því á þennan
hátt hefur Kasparov nokkrum sinnum
teflt m.a. í skák við Beljavskí á Sovét-
meistaramótinu 1978).
8... Bb7
9. Bxf6 Bxf6
10. cxd5 exd5
11. Hd1 He8
(Allt hefur þetta sést áður og gefa bæk-
urnar upp 12. Bd3 Rc6l? eða 12. Be2
c5 13. dxc5 Rd7 með tvísýnni stöðu.
Kortsnoj hefur verið iðinn við að finna
nýja leiki í þessu einvígi og lætur því hið
kynngimagnaða a-peð um næsta inn-
legg í málið.)
12. a3!? c6
13. Bd3 Rd7
14. 0-0 g6
15. Hfe1 Rf8
16. Bb1 Re6
17. Ba2
(Kortsnoj hefur valið afar athyglisverða
teið. Hann heldur niðri framrás c-
peðsins svarta með óbeinum þrýstingi
á d5-peðið. Næstu leikir Kasparovs eru
heldur ráðleysislegir en fela þó í sér
þau skilaboð til andstæðingsins að
honum beri að hræra eitthvað upp í
stöðunni.)
17. .. Dc7
18. Da4 Had8
19. b4 Db8
20. Dc2 Dc7
21. Bb3 Bg7
22. Da2 a6
23. Hc1 Db8
24. Ra4 Da7
25. Rc3 Db8
(Maður hefur ekki í annan tíma séð
Kasparov hringsóla svona með menn
sína. Vísast til aths. við 17. leik hvíts:
það er hvítur sem á að taka af skarið,
svartur bíður atlögunnar af hinni mestu
þolinmæði.)
26. Hb1 Dd6
27. Hbd1 a5!
(En Kasparov er farið að leiöast þófið
og verður þrátt fyrir allt fyrri til að hræra
upp í stöðunni. Leikurinn er langt í frá
galinn, því biskupinn á b7 gæti fengið
reit á a6).
28. bxaé bxa5
29. e4!
(Kortsnoj bregst hart við og í anda gam-
alla kenninga: árás á óvænt skal svar-
að með atlögu á miðborði. Svartur hót-
aði óþægilega 29. - Bf8 sem nú má
svara með 30. exd5 exd5 31. Rb5 Db6
32. a4 Bb4 33. He3 og hvítur stendur
betur að vígi. Næsti leikur Kasparovs
kom flatt upp á alla þá sem fylgdust
með skákinni í salarkynnum Skáks-
ambands (slands að Laugavegi.).
(Stöðumynd eftir 29. 1 svarts.)
29. .. a4?!
abcdefgh
(Tími eftir þennan leik svarts: Hv.: 2.16
Sv.: 2.03. Kasparov teflir eins og kænn
fjárhættuspilari. Leikurinn er stórgall-
aður eins og framhaldið leiðir í Ijós en
hefur engu að síður þann augljósa kost
að setja gífurlega pressu á Kortsnoj
sem þarf að finna mjög sterka leiki á
afar stuttum tíma. Flækjurnar sem nú
koma upp eru hreint augnayndi og tafl-
mennska Kortsnojs sannar aö fáir
standa honum á sporði í stöðum sem
þessum þegar umhugsunartíminn er af
skornum skammti.)
30. Bxa4 dxe4
(Ein hugmyndin með peðsfórninni í 29.
leik var að hrekja biskupinn af skálín-
unni a2 - g8.)
31. Rxe4
(Ekki 31. Hxe4 Rxd4! og svartur er
skyndilega kominn með yfirburðastöðu
vegna máthótana á e1, t.d. 32. Hxe8+
Hxe8 33. Rxd4 Dxd4! o.s.frv. eða 32.
Hexd4 Bxd4 33. Rxd4 Dxd4!)
31. .. Df4
32. d5!
(Þrátt fyrir tímahrakið finnur Kortsnoj
besta leikinn. Hann færir sér í nyt ávinn-
ingana sem hlutust af því að biskupinn
fór til a4.E.t.v. hefur Kasparov ætlað að
leika 32. - Hxd5 33. Hxd5 cxd5 34.
Bxe8 dxe4 með góðum árangri færum
fyrir skiptamuninn, en hvítur á milli-
leikinn 34. Rf6+! sem gerbreytir stöðu
mála.)
32. .. Rd4!
(Eini leikurinn.)
33. Rxd4 Hxe4
34. Hxe4 Dxe4
35. Bxc6
(Kortsnoj átti nú innan við þrjár mínútur
eftir, Kasparov hinsvegar um 25 mínút-
ur. Rxc6 gekk að sjálfsögðu ekki vegna
35. - Dxa4 sem hótar 36. - Dxd 1 mát.).
35... Bxd4
36. Bxb7 Hb8
37. Db1 Df4
(Atlaga svarts hefur geigað og Kortsnoj
hefur alla möguleika á sigri en leikur
herfilega af sér í þessari stöðu. Með því
að leika 38. Dc2! er hæpið að svartur
sleppi lifandi þar sem hróksendataflið
sem kemur upp eftir 38. - Dxf2- 39.
Dxf2 Bxf2- 40. Kxf2 Hxb7 41. d6 er
auðunnið á hvítt. 38. - Hxb7 gengur
ekki vegna 39. Dc8. Þarna fór senni-
lega síðasta tækifæri Kortsnoj í einvíg-
inu. Næsti leikur ber vott um að hann
hafi talið biskup, á b7 í stórkostlegri
hættu, en svo er ekki.).
38. d6??
(Fótgönguliðinn, sem olli svo miklum
usla í herbúðum svarts í 32. leik, fellur
nú í valinn bótalaust. Hann átti betri
örlög skilið.).
38. .. Dxd6
39. g3 Hxb7
(Annar álitlegur möguleiki var 39. -
Bxf2+ 40. Dxf2 Dc7.)
40. Dxb7 Bxf2+
41. Kxf2 Dxd1
42. Da8+
- Kortsnoj bauð jafntefli um leið og
hann lék þessum leik, sem Kasparov
að sjálfsögðu þáði.
Staðan í einvíginu eftir 10 skákir.
Garri Kasparov 6 - Viktor Kortsnoj
4.
11. skákin verður tefld á föstudaginn.
J0LA-
TILBOÐIN HUOMAVEL
-en hvernig hljóma „græjurnar“?
NAD - hljómtækin sem hin tækin eru dæmd eftir!
NAD5120
Plötuspilari
ÞERFORMANCE TABLE
, J 3 4 5 é 7 g ^
Build quality
Armquality
Feedback isoiation
Ease of use
Appearance & finish
PSRFORMANCE TOTAL
SOUNDQUALITY
VALUE FOR MONEY
94%
94%
NAD7120
Magnari
PERF ORMANCE TABLE
123456789
Build quality
Power output
FM sensitivity
Ease of use
Appearance & f inish
PERFORMANCb TOTAL
’S'ÖUND QuALrrT
VÁLUEFÖR MÖNEY'
Popular Hi-Fi
Magnarar ársins í Danmörku s.l. 3 ár. =
E BHöi5|p=Ð hh ©
Grand Prix sigurvegarar s.l. 4 ár.
7- FfSTJ
•*óöoo:
Hvers vegna mæla allir
með Boston Acoustic?
„Bosfon Acoustic A40 eru litlir hátalarar sem veita
mikiöfyrir lágt verö“. Audio
„Boston Acoustic A40 standast fyllilega samanburð
viö margfaldlega stærri hátalara I mikið hærri
verðflokkum". NewYorkTimes
„Boston Acoustic A40 eru tvímælalaust einhverjir
allra hagkvæmustu hátalarar sem við höfum
kynnst í lengri tíma“. stereo Review
Sound Quality Value for £
Boston Acoustics A40 90% 93%
Popular Hi-FÍ
Þeir sem gera kröfur til tónlistar versla við okkur.