Þjóðviljinn - 30.12.1983, Side 4

Þjóðviljinn - 30.12.1983, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Föstudagur 30. desember 1983 MOWIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Pröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent hf. Enn eykst skattbyrðin Þegar ríkisstjórnin hafði kynnt skattafrumvarp sitt á Alþingi og borgarstjórinn í Reykjavík ákveðið að knýja fram stórfelld raunhækkun á útsvarinu töldu margir að Sjálfstæðisflokkurinn gæti varla gengið lengra í aukningu á skattbyrði almennings. í fyrradag kom hins vegar í ljós að skattagleði Sjálfstæðisflokksins á sér engin takmörk. Fjármálaráðuneyti Alberts Guðmundssonar til- kynnti að fyrirframgreiðsla skatta á fyrri hluta næsta árs yrði 63% þótt ljóst væri að 57% myndu duga ríkissjóði og talan ætti reyndar að vera enn nær 50% markinu ef raunbyrði skattanna ætti ekki að vaxa. Albert Guð- mundsson gat ekki neitað sér um þetta tækifæri til að kóróna svik sín við kjósendur. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði stórfelldri lækkun á sköttum almennings. Hann hefur nú forgöngu um að samþykkt verður á Alþingi veruleg þynging á tekju- skatti, Reykjavíkurborg mun árið 1984 innheimta raunhæsta útsvar sem Reykvíkingar hafa greitt í ára- raðir og síðan knýr fjármálaráðherra fram að fyrirfram- greiðsla skatta af launum fyrri hluta árs verður hlut- fallslega meiri en nokkrum kom til hugar að ákveða í síðustu ríkisstjórnum. Ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu segir í við- tali við Þjóðviljann að þessi háa fyrirframgreiðsla komi ríkissjóði til góða. Hann viðurkennir að hún sé langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Kassinn í fjármálaráðuneytinu muni tútna út meðan byrðarnar þyngjast á fólkinu í landinu. Kosningasvik Sjálfstæðisflokksins í skattamálum voru þegar orðin eindæmi í stjórnmálum síðari ára. Albert Guðmyndssyni hefur með ákvörðuninni um 63% fyrirframgreiðslu tekist að gera þessi svik enn stórbrotnari. Ríkisstjórnin öll hefur enn fremur brotið þau fyrirheit sem gefin voru við setningu kjaraskerð- ingarlaganna á síðastliðnu sumri. f»á var lofað að kjara- skerðingin yrði „mýkt og milduð“ með lækkun skatta. Nú blasir við að skattafrumvarpið, fyrirframgreiðslan og útsvarsálagningin hafa í för með sér mun þyngri skattbyrði en hér hefur þekkst í áratugi. Til viðbótar hinni miklu kjaraskerðingu kemur í upphafi næsta árs stórfelld íþynging skatta. Úrrœðaleysi Og uppgjöf Ríkisstjórnin réttlætir setu sína með yfirlýsingum um að hún sé að treysta grundvöll atvinnulífsins. Málefni útgerðar og fiskvinnslu eru nú eins og ávallt áður próf- steinn á hvernig ríkisstjórn stendur sig við stjórn atvinnumála. Um áramótin er rekstrarvandi útgerðarinnar meiri en hann hefur verið á undanförnum árum. Ráðherr- arnir voru spurðir á Alþingi dagana fyrir jól hvernig ríkisstjórnin hygðist leysa þennan vanda. Það komu engin svör við þeim spurningum. Ríkisstjórnin skilaði auðu. I Morgunblaðinu í gær eru þessar spurningar endur- teknar. Morgunblaðið segir að nauðsynlegt sé „að af opinberri hálfu verði að minnsta kosti veitt leiðbeining svo að ekki sé meira sagt um það hvernig fjárhagsdæmi útgerðarinnar á að reikna til enda. Botnlaus taprekstur blasir annars við með hörmulegum afleiðingum fyrir alla“. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort Morg- unblaðið fær skýrari svör en Alþingi. Líklega verður niðurstaðan sú sama og með kvótakerfið sem átti að ákveðast fyrir áramót. Ríkisstjórnin hefur gefist upp í fyrstu lotu við að móta þá stefnu. Úrræðaleysi og ring- ulreið einkenna afskipti ríkisstjórnarinnar af höfuð- atvinnuvegi landsmanna. ór klippt Kirkjunnar menn hafa að undanförnu gert ýmsar samþykktir um svokölluð „friðar- mál“. Er kirkjan að verða pólitískari en hún hefur verið fram að þessu? Á kirkjan að taka afstöðu i heitum poMtiskum deilumálum? KIRKJAN OG SAMTIMINN Þrlr kennimenn þjóökirkjnnnar segja álit sitt á trnarviöhorfnm íslendinga, sambandi rfkis og kirkjn, aólld kirkjnnnar aö friðarnmræðn, sálgæsln og helstn áhyggjnefnnm kirkjnnnar Kirkjan og pólitíkin í tilefni jólanna leitaði Tíminn til þriggja kennimanna og lagði fyrir þá nokkrar spurningar. Ein þeirra var á þessa leið: „Kirkj- unnar menn hafa að undanförnu gert ýmsar samþykktir um svo- kölluð „friðarmál". Er kirkjan að verða pólitískari en hún hefur verið fram að þessu? Á kirkjan að taka afstöðu í heitum pólitísk- um deilumálum?“ Svörin við þessari spurningu eru hin athyglisverðustu. Séra Karl Sigurbjörnsson sagði m.a.: „Ég neita því að spurningin um framleiðslu og útbreiðslu ger- eyðingarvopna sé pólitísk spurn- ing og einkamál stjórnmála- manna. Þetta er siðferðileg spurning, spurningin hvort rétt- lætanlegt sé að verja hugviti, kröftum og ógrynni fjár til þróun- ar og framleiðslu slíkra vopna á meðan stór hluti mannkynsins sveltur. Þarna getur kristin kirkja ekki þagað án þess að bregðast köllun sinni“. (Hér er sr. Karl mjög á sömu nótum og Olof Sundby erkibisk- up Svía í viðtali í Morgunblaðinu á aðfangadag: „Sjálft hugtakið friður er grundvallarhugtak krist- indómsins. Kristið trúfélag getur ekki annað en tekið afstöðu til þessara mála“.) Mannleg reisn Séra Bernharður Guðmunds- son svarar í Tímanum á þessa leið: „Kirkjan á ekki að vera flokks- pólitísk. Hún hlýtur að vera pólit- ísk ef hún ætlar að varpa ljósi kristinnar kenningar yfir líf mannsins og það umhverfi sem hann lifir í. Henni er falið að boða Krist. Hún hlýtur því að taka afstöðu með þeim sem minnimáttar er, styðja að því að hver maður fái að njóta sín með fullri reisn. Hún berst fyrir lífi og hlýtur að berjast gegn öllu sem ógnar því“. Gegn skoðanaleysi Séra Valgarður Ástráðsson kemst svo að orði í sínu svari: „Kirkjan á að hafa skoðanir á málum. Til þess er hún kölluð og án þess að hafa skoðanir er hún gagnslaus. Þess vegna hlýtur hún að taka afstöðu í pólitískum mál- um, einkum þeim sem snerta sið- ferðilegan þátt mannlífsins, sam- skipti fólks og ábyrgð einstak- linga og hópa. íslenska þjóð- kirkjan sem stofnun þróaðist snemma á þessari öld til þess að hafa fáar skoðanir og vilja engan meiða. Það hefur líklega verið stærsta niðurlæging hennar. Margir stjórnmálamenn vilja hafa hana þannig áfram og una því illa að það er að breytast. Aðrir fagna því að þannig breyting verði og skynja það að eðli og köllun kirkjunnar er að flytja rödd sannleikans. Ef kirkjan gerir það ekki svíkur hún málstað sinn. Þess vegna verður hún að vera pólitísk og taki hún ekki afstöðu í jafn alvarlegri sið- ferðilegri umræðu og t.d. friðar- málum, þá er hún að bregðast.“ Orð og verk mannanna Þó sýnast megi, að í þessum svörum gæti mismunandi skiln- ings á því hvað kalla eigi pólitísk mál þá ber þau í raun öll að sama brunni. Þau bera vitni þróun sem hefur gerst með mismunandi hætti og mismunandi hraða í hin- um ýmsu kirkjum og söfnuðum. Henni mætti lýsa á þann veg, að kirkjan léti sér síður nægja en fyrr að annast persónuleg sálarheill en spurði meira um verk manna í mannlegu félagi, um það hvað þeir geri til að vernda frið, bæta böl hungurs, hvort þeir láti sig misskiptingu lífsgæða varða. Og þetta þýðir vitanlega, að enda þótt það sé satt og rétt að kirkja getur ekki verið og á ekki að vera flokkspólitísk, að hún kemur inn á svið þar sem pólitískar hreyf- ingar takast á um skilning á mál- um og lausnir. Og því er það svo, að sú þróun sem hér um ræðir mun vekja upp ýmislega pólitíska gremju og hefur reyndar gert það hér á landi og annarsstaðar. Svo var reyndar einnig um orð og athafnir fyrirlitins farandpré- dikara í litlu skattlandi Rómar fyrir nær tvö þúsund árum. ÁB. ocj skorið Kredit- kortajól Jólin voru mikil kreditkortajól að því er fregnir herma og hefur sú þróun mála fætt af sér ýmsar athugasemdir í blöðum um léttúð ogeyðslusemi landans, sem hefur dansað milli búða síðustu daga fyrir jól í þeirri sæluvissu að syndaflóðið komi ekki fyrr en fyrsta febrúar. En íslendingar eru langt á eftir tímanum í þessum málum eins og vonlegt er. Meðan menn verða að sætta sig við þá kjaraláns- traustsskerðingu að eiga kost á tveim slitnum kreditkortum þá geta þeir í New York sankað að sér svo sem þrjátíu. Komast varla undan því reyndar, því þar í landi líta menn reiðufé hornauga (eins víst að allir stórir seðlar séu fals- aðir) og ef þeir stíga fæti inn í stórverslun er eins víst að það sé mjög að þeim þjarmað til að taka sérstakt greiðslukort þeirrar verslunar eða verslunarkeðju. Kona ein sem var að skrifa New York-bréf í breska vikublaðið Guardian reiknaði það út, að ef fjölskylda hennar þaulnýtti sér kredítkortakeðjuna gæti hún eytt fyrir jólin upp á krít 200 þúsund dollurum eða sex miljónum króna. Og með smáhugviti mætti bæta við svo sem þrem miljónum. Það er því deginum ljósara að Islendingar eiga óralangt í land þar til þeir komast í hina sönnu skuldaparadís. Það sama Jórvík- urbréf sem nú var vitnaé til gefur og til kynna að menn verði að fara að taka sig á, ef þeir eiga ekki að vera eftirbátar granna okkar í gjafamálum. Samkvæmt því er lágmarksgjöf til barna, eða ein- hverra sem menn þekkja ekki mjög mikið, eitthvað sem kostar 27 dollara eða 750 krónur. En ef menn vilja sanna það að þeir séu öngvir aumingjar og viðtakandi gjafar ekki heldur þá er lágmark- ið 100 dollarar eða 6000 krónur. Á þetta er nú minnst hér til að íslendingar ofmetnist ekki af sínu fræga kaupæði fyrir jól. Ljóst er að framfarir okkar í Mammoni og gullkálfsdánsi eru hvergi nærri nógu örar og markvissar. -áb.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.