Þjóðviljinn - 05.01.1984, Side 1
UOBVIUINM
Fjórum árum Æ
eftir innrás So- Æ
vétmanna í Af- £m
ghanistan er þar \ • " - ' f /\
enn blóðugt þrá- s ' £
tefli. ■J
11 ' K *ií’ * >T (; e ; T ■
Sjá6 i,.. ? / I t U i í « !
januar
fimmtudagur
49. árgangur
3. tölublað
Sjómenn á Snæfellsnesi:
Neita að hefja róðra
nema þeir fái tryggingu fyrir sömu launum og landmenn bátanna
„Segja má að þessi hringlandaháttur hafi sett
allt úr skorðum hérna. Fyrst var ákveðið að
netaveiðar hæfust ekki fyrr en 15. feb. og menn
bjuggu sig undir línuveiðar en svo kemur allt í
einu ákvörðun um að netaveiðar megi hefjast
strax og þá með minni möskva en venjulega á
vetrarvertíð. Ofan á allt saman bætist svo að
undirmenn á bátunum neita að hefja línuveiðar
nema þeim verði tryggð laun sem ekki eru lægri
en landmenn viðkomandi báta hafa“, sagði
Kristján Jónsson skipstjóri á Hellissandi í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Kristján sagði að landmenn bátanna hefðu
ákveðna þóknun fyrir hvert bjóð sem þeir beita
og væru laun þeirra um 30 þúsund krónur á
mánuði. Aftur á móti næðu sjómennirnir aldrei
hærri launum en 20 þúsund krónum á mánuði í
því aflaleysi sem nú er. Þetta veldur að sjálf-
sögðu óánægju meðal þeirra.
Og fyrir skömmu héldu undirmenn á bátum
frá Rifi, Hellissandi, Ólafsvík og Grundarfirði
með sér fund, þar sem ákveðið var að fara ekki á
sjó, nema útgerðarmenn tryggðu þeim sömu
laun og landmönnum. Útgerðarmenn bátanna
eru nú með þessa kröfu í athugun.
Kristján sagði að hann hefði ekki trú á því að
bátarnir færu á net strax, þar sem þeir hefðu allir
verið búnir að ráða sér landmenn og gera klárt
fyrir línuveiðar, vegna yfirlýsinga sjávarútvegs-
ráðherra í allt haust að netaveiðin hæfist ekki
fyrr en 15. febrúar.
- S.dór.
Stórveður gekk yfir landið í gœr
Annað áhlaup var
yfirvofandi í nótt
Mikið óveður skall yfir landið í gærmorgun,
fyrst á suður- og suðvestur-landi en færðist síðan
Kári Þórðarson lét ekki ófærðina og hríðarkófið á
sig fá í gær. Hann lagði ótrauður í bæjarferð vei búinn
kiæðum og á skíðum. Hann var á leiðinni upp Laugar-
veginn og ætlaði á Hlemm þegar tíðindamenn Þjóð-
viljans rákust á hann. Ferðamáti Kára minnir á það
að hrakningar fólks á höfuðborgarsvæðinu í illviðrum
stafar fyrst og fremst af því að mennreiða sig um of á
bflana, og búa hvorki þá né sig undir að mæta snjóum.
Og fólk lætur allar viðvaranir í útvarpi eins og vind
um eyru þjóta þangað til bflarnir sitja fastir í snjó-
skafli og það verður að leita aðstoðar. Kári gat hins-
vegar smeygt sér brosandi milli bílanna sem hvarvetna
sátu fastir og miðaði vel áfram á skíðunum.
Ljósm. -eik.
yfir landið allt. Þar sem þetta mikla hríðarveður
skall fyrst á, var það gengið niður um kl. 17 en
síðan skall á annað áhlaup í gærkveldi og kólnaði
þá verulega. Á höfuðborgarsvæðinu urðu
feiknarlegir erfiðleikar í öllum samgöngum í
gærdag og safnaðist fólk saman á ýmsum stöðum
í borginni eftir að bflar þess höfðu fests á götun-
um. Á öðrum stöðum á landinu urðu einnig
erfiðleikar miklir og má heita að allir vegir
landsins hafi orðið ófærir og engin leið að ryðja
þá í gær.
- S.dór.
Sjá 2 og 3
Snjóflóð féll úr Kubba
á ísafirði í gœr
Húsið fyllt-
ist af snjó
Tuttugu mínútur fyrir tvö í gær-
dag féll snjóflóð úr Kubba á húsvið
Kjarrholt í nýjasta hverflnu á ísa-
flrði ofan við dalbotninn. 5 manns
voru í húsinu þegar snjóflóðið féll á
það, en allir sluppu ómeiddir út.
Húsið fylltist að stórum hluta af
snjó og urðu töluverðar skemmdir
á húsinu.
Mikil smóflóðahætta var í Holta-
hverfi á Isafirði í gær og lét al-
mannavarnarnefnd bæjarins rýma
öll hús við efstu byggðir í hverfinu
og að auki við Dalbraut í Hnífsdal
eftir að flóðið féll úr Kubba.
Snjóflóðið sem féll á íbúðarhúsið
var 120 metra breitt og 80 cm,
þykkt, svokallað flekahlaup.
Almannavarnarnefnd ísafjarðar
var í beinu sambandi við snjóflóða-
deild Veðurstofunnar í allan gær-
dag og nótt vegna snjóflóðahættu
úr Kubba en að sögn heimamanna
var ekki talið að nein hætta steðj-
aði að mönnum, enda gjörla fylgst
með ástandinu í fjallinu.
-Ig-
Kubbi er fjallið til hægri beint fyrir ofan byggðina í Holtahverfi sem er nýjasta hverflð á ísafirði og fyrir botni
Skutulsfjarðar. Snjóflóð hafa áður fallið úr Kubba en þetta er í fyrsta sinn sem snjóflóð lendir á íbúðarhús-
næði. Örin sýnir hvar flóðið féll úr fjallinu, en þessi mynd var tekin fyrir þremur árum og byggðin orðin
töluvert meiri en sýnir.