Þjóðviljinn - 05.01.1984, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNiFimmtudagur 5. janúar 1984
Faizabod
! OSrinagar
Islamabad
Peshawar
Rawalpindi
Kondahar
mmmm
I NDl EN
Þrem breskum blaðamönnum
var boðið að vera viðstaddir árás
skæruliða í Afghanistan á bækistöð
stjórnarhersins. Þeir fengu einnig
að velja daginn sem árásin átti sér
stað. Þeir urðu vitni að tveggja
klukkustunda skothríð sem virtist
lítt skipulögð. Síðan drógu
mujahedín-skæruiiðarnir sig til
baka án þess að hafa orðið fyrir
skoti.
Mánuði seinna hittir einn blaða-
mannanna óeinkennisklæddan
mann ekki Iangt frá árásarastaðn-
um. Hann spyr blaðamanninn
hvernig honum hafi líkað árásin og
hvort myndirnar hafi ekki komið
vel út. Stóð X liðsforingi sig ekki
vel? - Blaðamaðurinn spyr við-
komandi hvort hann tilheyri and-
spyrnuliðinu. - „Ekki mundi ég
orða það þannig... ég er næstæðsti
yfirmaður þeirrar bækistöðvar
stjórnarhersins sem ráðist var á.
Ég er nú í frli með fjölskyldunni, en
ég þarf að fara til bækistöðvanna á
morgun“.
Hvernig stóð þá á árásinni? spyr
blaðamaðurinn.
,J>að er þannig“, segir stjórnar-
hermaðurinn, „að til þess að koma
vopnum til mujahdín-skærulið-
anna verðum við að geta gert grein
fyrir því til hvers vopnin eru notuð.
Þess vegna eru gerðar árásir. Við
setjum því allt saman á svið. Þetta
er líka ágætt fyrir blaðamennina:
myndirnar koma eðlilega út án þess
að um raunverulega hættu sé að
ræða.“
Hvers vegna gerist þú ekki liðh-
laupi? spyr blaðamaðurinn.
„Því miður eru
mujahedín-skæruliðarnir því mót-
fallnir", sagði undirliðsforinginn.
Þannig meðal annars lýsir bresk-
ur blaðamaður, Olivier Roy,
reynslu sinni af 2000 kflómetra
ferðalagi um Afghanistan í blaða-
greinum sem nýverið birtust I
breska dagblaðinu Guardian. I lýs-
ingu hans á þessu ferðalagi kemur
ýmislegt á óvart.
Afghanistan opið land
Afghanistan er opið land, segir
Olivier Roy, og farartálmar eru þar
meiri af erfiðu landslagi og inn-
byrðis skærum fólksins en af hálfu
sovéska setuliðsins og stjómar-
hersins.
Stríðið í Afghanistan er að sjálf-
sögðu ekki leikur einn, en eitt af
því sem kom blaðamanninum á
óvart var, að þrátt fyrir fjögurra
ára styrjöld og þrátt fyrir að allt
stjórnkerfi landsins sé í molum og
fjöldi flóttamanna í Pakistan sé
sagður skipta miljónum, þá virðist
mannlífið í sveitunum furðu eðli-
legt: meirihluti fólksins í sveitun-
um hefur orðið eftir og heldur uppi
landbúnaði, verslun og jafnvel
smáiðnaði í nánd við borgirnar.
Þetta á þó ekki við um frelsuðu
svæðin á Zormatt og Surkhrud-
sléttu, svo dæmi séu tekin, þar sem
blaðamaðurinn sá yfirgefin þorp og
bmnnin hús og eydda garða.
Stjórnkerfið í Afghanistan er svo
lamað, að í 40% sveitarfélaga á
stjórnin í Kabúl alls engan fulltrúa,
en annars staðar nær valdssvið
stjórnarfulltrúanna ekki nema til
nánasta nágrennis aðseturs stjórn-
arfulltrúans. í aðeins 10-20% af
sýslum landsins nær valdssvið
stjórnarinnar út til þorpanna og
þéttbýlissvæðanna að sögn blaða-
mannsins.
Hernaðarleg markmið
Sovétmanna
Stjómarherinn, sem er afar
veikburða eins og ofangreind frá-
sögn ber vitni um, heldur sig innan
takmarkaðs svæðis í kring. um
stærstu borgirnar og á þeim þrem
malbikuðu þjóðvegum sem liggja
um landið. Sama er að segja um '
rússneska innrásarliðið, sem held-
ur sig gjarnan innan víggirtra her-
stöðva. Einstaka sinnum fara þyrl-
ur á loft til að eyða nálægum þorp-
um og hefna fyrir fyrirsát. Meiri-
háttar sóknaraðgerðir hafa einnig
átt sér stað, eins og þegar franski
læknirinn Philippe Augoyard var
handtekinn á síðastliðnu ári (hann
var látinn laus eftir að hafa verið
dæmdur í 8 ára fangelsisvist). En
skortur á baráttuvilja gerir ekki
síður vart við sig hjá sovéska setu-
liðinu en meðal stjórnarhermanna.
Olivier Roy segir að hernaðar-
aðgerðir Sovétmanna hafi tvö meg-
Sovéskir skriðdrekar í Afghanistan.
Fjórum árum eftir innrás Sovétríkjanna í Afghanistan er
stjórnkerfi landsins í molum en andspyrnuhreyfingin er
jafnframt fjötruð í viðjum œttarsamfélags og klerkaveldis.
inmarkmið: Annars vegar að halda
opinni línu frá norðurlandamærun-
um að Sovétríkjunum um Kabúl til
Jalalabad í suðri. Meginhluti so-
véska setuliðsins og tvær stærstu
herstöðvarnar eru á þessari leið og
í kringum hana hafa einnig meginá-
tökin átt sér stað. Annað langtím-
amarkmið Sovétmanna er að koma
upp varnarlínu í vestri í kringum
••borgina Herat til þess að verjast
meintri ógnun frá íran, sem Olivier
Roy telur orðum ýkta. Hins vegar
telur hann bækistöðvar Sovét-
manna á þessum slóðum hugsan-
lega geta haft þýðingu komi til
meiriháttar hernaðarátaka í kring-
um Persaflóa.
Olivier Roy segist hafa orðið var
við hin óvenjulegustu samskipti
innrásarliðsins og valdhafanna
annars vegar og andspyrnunnar
hins vegar. Þannig séu blómstrandi
frjáls markaðsviðskipti m.a. í Haz-
arajathéraði og þaðan er selt mikið
af varningi til höfuðborgarinnar.
Viðskipti þessi eru í raun í höndum
andspyrnuhreyfingarinnar, en So-
vétmenn kjósa fremur að viðhalda
þeim en að þurfa sjálfir að sjá höf-
uðborginni fyrir þeim nauðsynjum
sem þannig fást. Segist blaðamað-
urinn hata víða orðið var við slíkt
samlífi andstæðinganna í þessu
flókna stríði, og sé erfitt að átta sig
á hver muni hagnast á slíku samlífi
þegar til lengdar lætur.
Olivier Roy segir að sé litið til
þjóðarinnar í heild, þá sé hún næst-
um einróma á bandi andspyrnu-
hreyfingarinnar - en það þurfi ekki
endilega að vera af pólitískum
ástæðum. Þar ráði persónuleg
tengsl og vensl oft meiru en pólitísk
hugmyndafræði. Ríkjandi þáttur í
Afghönum sé sú tilfinning að þeir
tílheyri ákveðinni ætt eða samfélagi
og þeir lita trekar á stríöiö gegn
innrásarliðinu sem „heilagt trúar-
stríð“ en sem baráttu fyrir þjóð-
frelsi. Olivier Roy segir að í landi
eins og Afghanistan, þar sem til-
finningin fyrir því að tilheyra ák-
veðinni þjóð sé tiltölulega ný, og
þar sem menn líta á ríkisstjórnina
sem utanaðkomandi afl og sérhver
kenni sig við sitt nánasta samfélag
eða ætt, þá sé það trúin, Islam, sem
fyrst og fremst geti myndað sam-
eiginlegan grundvöll fýrir fólkið.
Andspyrnan gegn sovéska
innrásarliðinu er fyrst í stað sjálf-
sprottin meðal hinna ýmsu ættar-
samfélaga og eitt helsta vandamál
andspyrnuhreyfingarinnar er trú-
lega enn hversu sundurleit hún er.
En nauðsynin hefur kallað fram
myndun stjórnmálaflokka, sem sjá
um að dreifa vopnum og vistum til
muj ahedín-skæruliðanna.
Stjórnmálaflokkar
Þessum flokkum er venjulega
skipt í tvennt: Islam-flokkanna og
svokallaða traditionalista sem stýrt
er af ættarhöfðingjum, leiðtogum
fyrri stjórnvalda og hefðbundnum
trúarleiðtogum. Isíam-flokkarnir
voru til þegar fyrir valdatöku
kommúnista í apríl 1978, og innan
þeirra er að finna menntamenn
sem byggja á bræðralagskenningu
múslima. Olivier Roy telur Islam-
flokkana betur skiplagða og fram-
sýnni, en innan þeirfa er einnig
klofningur á mili svokallaðra rót-
tækra múslima og hinna, þar sem
þeir róttæku hafa hneigst til mun
gerræðislegri starfshátta. Þjóðern-
ishyggja og frjálshyggja gegna afar
litlu hlutverki í Afghanistan að
mati Oliviers, og hafa ekki fest ræt-
ur nema meðal útlaga og að ein-
hverju leyti í Pushtun-héraði í
suðurhluta landsins. Annars staðar
er það Islam-trúin sem er grund-
völlur hinnar pólitísku hugmynda-
fræði meðal fólksins.
Hugmyndafræði
og hernaður
Olivier Roy segir að sovéski her-
inn hafi verið illa undir það búinn
að berjast við skæruliðasveitir
bænda þegar hann réðst inn í
landið í desember 1979. Enda var
tilgangurinn þá að ráða niður-
lögum stjórnar Amins. Ófarir so-
véska hersins hafa leitt til þess að-
siðferðisstyrkur hermannanna hef-
ur einnig brotnað, og eru dæmi
þess að þeir selji vopn sín fyrir mat-
væli og hassis, segir Olivier. En
engu að síður hefur innrásarliðinu
tekist að rétta hlut sinn að nokkru
leyti með breyttri tækni. Það hefur
þó ekki haft nein úrslitaáhrif á gang
stríðsins í heild önnur en þau, að á
liðnu ári drógu Sovétmenn úr hern-
aðaraðgerðum sínum miðað við
árin 1981-82 en lögðu þeim mun
meiri áherslu á hina pólitísku og
hugmyndafræðilegu baráttu. Ann-
ars vegar var um að ræða eins kon-
ar sovétiseringu til frambúðar og
hins vegar friðun einstakra svæða
til skemmri tíma. Það sem breski
blaðamaðurinn kallar „sovétiser-
ingu“ er að koma upp stjórnkerfi
að sovéskri fyrirmynd á þeim af-
mörkuðu svæðum þar sem ættar-
samfélagið hefur verið upprætt, en
slík sovétiersing jafngildi í raun
innlimun í sovéska ríkjasamband-
ið.
„Friðun“
„Friðunin“ felst hins vegar í því
að beita leyniþjónustunni Khad
(sem stýrt er af KGB) til þess að
kynda undir sundrungu meðal
hinna einstöku ættarsamfélaga á
Iandsbyggðinni og fá einstaka
skæruliðahópa til að snúast á band
með stjórnarhernum með því að
gefa þeim vopn eða aðra fyrir-
greiðslu án þess að sett séu önnur
hugmyndafræðileg skilyrði. Þar
sem þessi aðferð hefur tekist hafa
völdin verið færð í hendur ættar-
höfðingjanna sem kallaðir eru
„föðurlandsvinir“ og mynda jafn-
framt með sér samtök sem heitir
„Föðurlandsfylkingin“. Segir Oli-
vier Roy að Sovétmenn beiti hér
nákvæmlega sömu aðferðum og
Bretar beittu á síðustu öld þegar
þeir voru að gera Afghanistan að
breskri nýlendu. Þar sem hin
menningarlega og hugmyndafræði-
lega gjá sem ríkir á milli sovéska
innrásarliðsins, stjórnarhersins
eða Kommúnistaflokksins annars
vegar og ættarsamfélagsins hins
vegar, þá fer „friðunin“ fram með
þeim hætti að ættarhöfðingjunum
eru falin áfram öll völd og jafn-
framt veittur stuðningur stjórnar-
innar í Kabúl gegn loforðum um
samstöðu gegn nærliggjandi
mújahedín-skæruliðum. Þessi
stefna hefur það jafnframt í för
með sér að gllar hugmyndir komm-
únistaflokksins um skiptingu jarð-
næðis til landslausra, um baráttu
gegn ólæsi, frelsun kvenna og
menntun æskunnar eru lagðar á
hilluna.
Þessi drottnunaraðferð gengur
því þvert á „sovétíseringuna" sem
gerð er undir forystu kommúnista-
flokksins og má því segja að leyni-
þjónustan og flokkurinn beiti
gagnstæðum aðferðum, þótt end-
anlegt markmið kuni að vera það
sama.
Fáir hafa orðið til þess að spá því
að lausn sé í sjónmáli á stríðinu í
Afghanistan um þessi áramót. í so-
véskum dagblöðum var fjallað um
málið um áramótin og sagði Izvest-
ija, málgagn sovéska kommúnist-
aflokksins, að stríðið myndi halda
áfram og það myndi krefjast enn
fleiri sovéskra mannfórna. Sovésk-
ir fjölmiðlar halda því fram að
Bandaríkin, Pakistan og fleiri ríki í
vestri og austri standi í vegi fyrir
pólitískrí lausn deilunnar.
ólg tók santan.
Afghanistan. Sovéski innrásarherinn og stjórnarherinn halda sig mest við þjóðveginn frá Sovétríkjunum um
Kabúl til Pakistan og við borgina Herat í vestri.
Þrátefli í
Afghanistan