Þjóðviljinn - 05.01.1984, Page 11

Þjóðviljinn - 05.01.1984, Page 11
FH-ingar eiga erfiðan leik fyrir höndum í Ungverjaiandi á sunnudag. FH-ingar halda utiin á morgun Leika við Tatabanya á sunnudaginn Á morgun leggja FH-ingar uppí langa og erfiða för til Búdapest í Ungverjalandi en þar mæta þeir Tatabanya í 8-liða úrslitum IHF- keppninnar í handknattleik á sunnudaginn. Þetta er fyrri viður- eign liðanna, sú síðari fer fram hér á landi annan laugardag, 14. janú- ar. FH-ingar hafa búið sig vel undir ferðina, allir eru heilir og mikill hugur í mönnum. Það versta fyrir þá er þó sennilega yfirburðastaða þeirra í handboltanum hér heima, FH-ingar hafa í allan vetur verið að leika við lið sem eru mörgum gæða- flokkum neðar og aldrei fengið mótspyrnu í líkingu við það sem reikna má með af hinu öfluga ung- verska liði. - VS. Nýárssund fatlaðra barna á laugardaginn Nýárssund fatlaðra barna og unglinga verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur á laugardaginn, 7. janúar. Dagskráin hefst með hljóð- færaleik og fánahyllingu en síðan verður mótssetning og að henni lokinni er komið að sjálfri sund- keppninni. Þar þreyta sundið börn og unglingar úr röðum hreyfihaml- aðra, blindra- og sjónskertra, þroskaheftra og heyrnarlausra. Verðlaun í mótslok afhendir for- seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir og þá fer einnig fram verðlaunaf- hending vegna Norrænu Trimm- landskeppninnar. Þar verða í for- svari Sven-Erik Carlsson, varafor- maður Norræna íþróttasambands- ins og Sigurður Magnússon, for- maður íþróttafélags fatlaðra. Fimmtudagur 5. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Utnsjón: Víðir Sigurðsson * ...^s Kristján Hreinsson hástökkvari: „Meiðslin ansi þrálát“ ,J>essi meiðsli sem ég varð fyrir sl. sumar hafa reynst ansi þrálát. Ég get hlaupið en ekkert stokkið ennþá“, sagði Kristján Hreinsson, hástökkvari úr Eyjafírði, í samtali við Þjóðviljans. Kristján bætti í fyrrasumar 18 ára gamalt hástökksmet Jóns Þ. Ólafssonar, vippaði sér yfir 2,11 metra, en meiddist skömmu síðar og hefur verið frá keppni. „Þetta var slæm og nokkuð óvenjuleg tognun rétt við hælinn, en ég held að þetta sé alit á réttri leið og býst við að getá farið að stökkva með vorinu. Það er óákveðið hvar ég verð í sumar, helst vil ég vera hér fyrir norðan og æfa á Akureyri, þar er aðstaðan mjög góð, en þó yrði ég sjálfsagt alltaf með annan fótinn fyrir sunnan.“ - Ertu bjartsýnn á að geta bætt íslandsmetið enn frekar? „Það kom mér sjálfum mjög á óvart þegar ég fór yfir 2,11 m í fyrra. Mér hafði verið sagt að ég gæti þetta en ég átti ekki von á því svona snemma. Ef ég held rétt áfram er ég mjög bjartsýnn á að geta bætt mig,“ sagði Kristján Hreinsson, sem keppir fyrir UMSE. Afrek Kristjánsson var eitt það besta sem framið var af íslensku frjálsíþróttafólki á sl. sumri sl. sumri og vonandi koma meiðslin ekki í veg fyrir frekari árangur á árinu 1984. - VS. Rush kominn með góða forystu lan Rush, markamaskínan frá Liverpool, hefur örugga forystu í markakóngskeppni ensku 1. deildarinnar í knattspyrnu. Eftir- taldir leikmenn hafa skorað 7 mörk og fleiri í deildinni í vetur: lan Rush............................16 Steve Archibald, Tottenham..........12 Terry Gibson, Coventry..............12 David Swindlehurst, West Ham........12 Tony Woodcock, Arsenal............... 12 , Paul Mariner, Ipswich..............11 Garry Birtles, Nottm. For...........10 TrevorChrlstie, NottsCo.............10 Simon Stainrod, QPR.................10 Alan Smith, Leicester................9 Frank Stapleton, Arsenal.............9 Paul Walsh, Luton....................9 Peter Withe, Aston Villa.............9 Peter Davenport, Nottm. For..........8 Eric Gates, Ipswich................ 8 Maurice Johnston, Watford............8 Gary Lineker, Leicester............. 8 Steve Lynex, Leicester...............8 Colin Walsh, Nottm. For..............8 John Barnes, Watford.................7 Mark Falco, Tottenham................7 Terry Fenwick, QPR...................7 Steve Moran, Southampton.............7 Brian Stein, Luton...................7 Deildakeppni í badminton frestað Deildakeppni Badmintonsam- bands íslands, sem fram átti að fara um komandi helgi, hefur verið frestað vegna húsnæðisvanda- mála. Keppnin átti að fara fram í Seljaskóla í Reykjavík. Dagsetning hefur ekki verið ákveðin en hún verður sennilega ekki haldin fyrr en um miðjan febrúar. Friðrik í Breiðablik Markvörðurinn efnilegi úr Fram, Friðrik Friðriksson, hefur gengið yfir í raðir Breiðabliks og leikur með Kópavogsliðinu í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar. Galdrakuklið loks bannað ( Svazilandi í Afríku hefur loks verið bannað að beita töframætti og annars konar galdrakukli í knattspyrnunni. Eftir heitar og langdregnar umræður varð loks niðurstaðan sú að hvorki áhorf- endum né leikmönnum væri lengur heimilt að úða töfravökva á kepp- nisbúninga og vítateiga vallarins. Sú mixtúra átti að draga dug og þor úr framherjum andstæðinganna... s Islandsmet Guðrúnar Guðrún Fema Ágústsdóttir úr Ægi setti á dögunum nýtt íslands- met í 200 m fjórsundi kvenna. Hún fékk tímann 2:00,32 mín. Þá setti Biyndís Ólafsdóttir frá Þorlákshöfn nýtt telpnamet í 50 m flugsundi, 32,0 sek. Yngri flokkarnir í handknattleik: Landsbyggðarlið í sókn í gær birtum við stöðuna í 2. flokki kvenna í handknattleik eftir fyrstu umferðina. Hér kemur framhaldið, staðan í öðrum yngri flokkum. 3. flokkur kvenna: A-riðill: FH.................6 6 0 0 36-13 12 KR.................6 5 0 1 37-18 10 PórVe..............6 3 1 2 34-22 7 Týr................6 3 1 2 34-24 7 Selfoss............6 2 0 4 16-27 4 Haukar.............6 1 0 5 14-36 2 Njarðvík...........6 0 0 6 14-45 0 B-riðill: Víkingur...........7 7 0 0 52-15 14 Fram...............7 5 0 2 37-24 10 Keflavík...........7 4 1 2 30-32 9 Breiðablik.........7 3 1 3 23-27 7 Grindavík..........7 3 0 4 44-36 6 Fylkir.............7 2 1 4 26-41 5 Akranes.........7-1 2 4 16-32 4 HK.................7 0 1 6 15-36 1 C-riðill: Grótta ............7 6 0 1 48-21 12 Stjarnan...........7 5 0 2 48-21 10 Ármann.............7 5 0 2 77-33 10 ReynirS............7 4 0 3 33-36 8 Afturelding........7 4 0 3 45-29 8 (R.................7 3 0 4 43-44 6 Þróttur R.......7 1 0 6 17-79 2 Valur...........7 0 0 7 17-62 0 FH og KR eru langliklegust til að fara í úrslit úr A-riðli og Víkingur úr B-riðli en Fram og Keflavík bítast sennilega um annað sætið þar. Jöfnust er keppnin í C-riðli, fimm, jafnvel sex lið koma til greina í tvö efstu sætin. 3. flokkur karla: A-riðill: Fram............6 5 1 0 98-57 11 Víkingur........6 4 1 1 75-59 9 Keflavík........6 3 1 2 83-85 7 FH..............6 3 0 3 81-75 6 Afturelding.....6 2 1 3 76-85 5 Ármann..........6 2 0 4 53-70 4 Njarðvík........6 0 0 6 63-102 0 B-riðill: Stjarnan............6 6 0 0 84-51 12 Grótta..............6 4 0 2 70-62 8 Akranes.............6 4 0 2 61-50 8 Þróttur R...........6 2 1 3 58-74 5 Fylkir..............6 2 0 4 52-53 4 Haukar..............6 2 0 4 67-77 4 HK..................6 0 1 5 42-67 1 C-riðill: KR.................5 4 0 1 57-40 8 ÞórVe............5 2 1 2 47-46 5 Selfoss..........5 2 1 2 43-49 5 Valur............5 2 1 2 51-46 5 ÍR...............5 2 0 3 46-54 4 Týr..............5 1 1 3 50-59 3 Fram, Stjarnan og KR stefna í úrslit en tvísýnt er um önnur sæti. Víkingur og Keflavík og jafnvel FH berjast í A-riðli, Grótta og Akranes í B-riðli og öll lið C-riðils eiga mögu- leika. 4. flokkur karla: A-riðill: ÍR 4 1 1 50-32 9 Týr 6 4 0 2 49-35 8 HK 6 3 1 2 42-33 7 Víkingur 6 2 2 2 38-34 6 Þróttur 6 3 0 3 30-34 6 Akranes 6 2 0 4 22-48 4 ÞórV 6 1 0 5 30-45 2 B-riðill: KR 6 6 0 0 95-22 12 Stjarnan 6 5 0 1 57-35 10 FH 6 3 0 3 51-68 6 Afturelding 6 3 0 3 48-51 6 Breiðablik 6 2 1 3 47-65 5 Ármann 6 1 1 4 52-64 3 Keflavík 6 0 0 6 41-86 0 C-riðill: Selfoss..........7 5 2 0 86-58 12 Fylkir...........7 6 0 1 64-36 12 Grótta...........7 4 2 1 53-42 1« Haukar...........7 3 3 1 67-51 9 Njarðvík.........7 2 1 4 59-66 5 Valur............7 1 2 4 56-70 4 Skallagrímur....7 1 0 6 54-90 2 Fram.............7 1 0 6 42-68 2 KR og Stjarnan ættu að komast í gegn en í A og C-riðlum eiga mörg lið möguleika. 5. flokkur karla: A-riðill: Valur..............7 7 0 0 68-22 14 Akranes............7 5 1 1 44-29 11 FylkirB............7 4 1 2 51-50 9 Grótta.............7 4 0 3 43-32 8 Selfoss............7 3 0 4 38-44 6 ÍR.................7 2 0 5 38-44 4 HK.................7 1 0 6 27-57 2 Afturelding........7 1 0 6 37-65 2 B-riðill: Fram...............6 6 0 0 58-23 12 Týr................6 4 0 2 41-36 8 ÞórVe..............6 3 1 2 32-44 7 Keflavík...........6 2 1 3 43-40 5 KR.................6 1 2 3 27-34 4 Njarðvík...........6 1 2 3 42-52 4 Ármann.............6 0 2 4 44-58 2 C-riðill: Stjarnan..........7 6 0 1 6$43 12 Víklngur..........7 5 0 2 73-36 10 Skallagrímur......7 4 2 1 77-48 10 FH................7 5 0 2 55-35 10 Þróttur...........7 2 2 3 57-59 6 Haukar............7 2 0 5 38-67 4 Breiðablik........7 2 0 5 37-69 4 FylklrA...........7 0 0 7 35-78 0 Valur og Fram standa mjög vel að vígi en mörg lið berjast um önnursæti. Það er athyglisvert hve mikill uppgangur er í yngri flokkun- um utan Reykjavíkursvæðisins, Skallagrimur úr Borgarnesi er kominn með öflugt 5. flokkslið, Selfyssingar eru í mikilli sókn eink- um í 4. flokki, sömuleiðis Eyjaliðin, Akurnesingar og Keflvíkingar. Ekki er um að villast að nýleg og glæsi- leg íþróttahús á þessum stöðum eiga þar einna stærstan hlut að máli, skortur á þeim hefur staðið uppgangi handknattleiksíþróttar- innar úti á landi fyrir þrifum. Það gefur auga leið að í kaupstað eða þorpi þar sem eina aðstaðan er gamall leikfimisalur uppá 10x20 metra eða þaðan af minni verður aldrei komið upp frambærilegu handknattleiksliði. -VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.