Þjóðviljinn - 11.01.1984, Síða 1
UÚBVIUINN
Hvað segja
menn um Fried-
manssvikin?
Sjá2
janúar 1984
miðvikudagur
49. árgangur
8. tölublað
Borgarstjórn gerir gys að hverfafélögunum:
18 samtök fá
enga úrlausn
Sendu tugi tillagna
vegna auglýsingar
borgarstjóra
Ekki færri en 60 óskir og ábendingar um
framkvæmdir, sem 18 samtök sendu borg-
arstjóra samkvæmt auglýsingu í haust voru
hundsaðar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Reykjavíkur í síðustu viku. Guðmundur Þ.
Jónsson borgarfulltrúi AB sagði að borgar-
stjórn væri með þessu að gera gys að borg-
arbúum og spurði til hvers auglýsingin hefði
verið, fyrst ekkert ætti að gera með hana.
í haust auglýsti borgarstjóri eftir tillögum
frá einstaklingum og félagasamtökum um
framkvæmdir á árinu 1984 og skyldu
óskirnar berast áður en gengið yrði frá fjár-
hagsáætlun. Listi yfir 18 félagasamtök
borgarbúa og helstu óskir þeirra, um 60
talsins, var lagður fram í borgarráði 19. des-
ember, en að öðru leyti hafa þær enga um-
fjöllun fengið. Við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar lögðu Alþýðubandalagsmenn til að 5
miljónum yrði veitt til að mæta einhverjum
þessara óska, en þeirri tillögu var hafnað og
henni vísað til stjórnkerfisnefndar!
Félagasamtökin sem hér um ræðir eru
foreldra- og kennarafélög Vesturbæjar-
skóla, Hlíðaskóla, Laugarnesskóla, Voga-
skóla, Hvassaleitisskóla, Fossvogsskóla,
Breiðholtsskóla, Hólabrekkuskóla, Fella-
skóla, Foreldraráð Melaskóla, Foreldrafé-
lag Breiðagerðisskóla og Ölduselsskóla,
Framfarafélag Breiðholts III, íbúasamtök
Vesturbæjar, fbúasamtök Bráðræðisholts,
Framfarafélag Seláss og Árbæjarhverfis,
íbúar við Kambasel og íbúar við Ála-
granda, Boðagranda og Flyðrugranda.
______________________________________-ÁI_
Sjá bls. 12
Atvinnu-
leysi hjá
Sóknar-
konum
20 konur nú á skrá.
en áður aðeins 2-3
Þjóðviljinn birti í bær upplýsingar um
atvinnuleysi hjá nokkrum verkalýðsfc-
lögum í Reykjavík, þar sem kom fram
nokkur ótti meðal talsmanna félaganna
við að atvinnuleysi væri hér að halda
innreið sína. Þessi ótti staðfestist enn-
frekar, ef haft er í huga, að nú eru um 20
konur hjá Starfsmannafélaginu Sókn á
atvinnuleysisskrá.
Að sögn Aðalheiðar Bjarnfreðsdótt-
ur, formanns félagsins, hafa fram að
þessu aðeins verið 2-3 konur á atvinnu-
leysisbótum hjá félaginu. Aðalheiður
kvaðst óttast, að þessi tala ætti eftir að
aukast. Sparnaðarráðstafanir hafa veriö
boðaðar hjá yfirvöldum og þær hljóta að
koma fram í því að fækkað verður í
störfum sem Sóknarkonur hafa gegnt.
Það er víst óhætt að segja að ekki sé beint greiðfært fyrir
þennan vegfaranda yfir gangbrautina. Þannig er ástandið
víða í höfuðborginni, enda sitja gangstéttir á hakanum, að
sögn gatnamálastjóra. Akbrautir njóta forgangs. Mynd-eik.
Sjá nánar á baksíðu.
Nýir áfangar í hernaðarframkvæmdum í Helguvík
Geir gefur grænt ljós!
Geir Hallgrímsson hefur sam-
þykkt „óformlega" 2. og 3. áfanga í
Helguvík samkvæmt því sem fram
kemur í viðtali Þjóðviljans við
Sverri Hauk Gunnlaugsson utanríkisráðuneytisins.
deildarstjóra í Varnarmáladeild Deildarstjórinn telur að
Dönsku kosningarnar
Óbreytt staða
íhaldsflokkur Schluters vann 16 þingsœti af samstarfsflokkunum
Schluter sigurvegari á kostnað
samstarfsflokkanna.
Frá Halldóri Guðmundssyni
fréttaritara Þjóðviljans í Dan-
mörku:
Þingkosningarnar í Danmörku í
gær leystu engan vanda, hvað þing-
ið varðar, því staðan er óbreytt.
Ihaldsflokkur Schluters forsætis-
ráðherra vann mikinn sigur, eins
og spáð hafði verið, en sá sigur var
á kostnað samstarfsflokks hans í
ríkisstjórn, Mið-demókrata og
flokks Glistrups, sem hann hefur
orðið að styðjast við. Sem sé hægri
sveiflan sem menn bjuggust við
gerðist ekki, aðeins atkvæðatilf-
ærsla milli íhaldsflokka landsins.
íhaldsflokkurinn bætti við sig 16
þingsætum og hefur þá samtals 42
þingsæti. Mið-demókratar töpuðu
7 þingsætum og Glistrups-flokkur-
inn tapaði helmingi þingsæta sinna
eða 9. Kristilegir demókratar halda
sínum 5 sætum. Radikale venstre
bæta við sig einu þingsæti.
Á yinstri væng er staðan svo til
óbreytt. Sósíaldemókratar tapa 2
þingsætum og eru þá með 57 þing-
menn, SF heldur sínum 20 þingsæt-
um og Vinstri sósíalistar halda sín-
um 5 sætum.
Kosningaþátttaka var míkil eða
89%. Schlúter forsætisráðherra
sagði í sjónvarpi í gærkveldi að
hann myndi í dag ganga á fund
drottningar og bjóðast til að mynda
ríkisstjórn, minnihlutastjórn og
styðjast við sömu flokka og áður.
- S.dór
nauðsynlegt sé að endurnýja
stjórnstöðina á Keflavíkurhervell-
inum, en bandaríska þingið hefur
vísað frá beiðni hersins um nýja
stjórnstöð. Ríkisstjórn íslands hef-
ur enn ekki fjallað um stjórnstöðv-
armálið.
Mikið er um útstrikanir í banda-
rísku þingtíðindunum sem greina
m.a. frá beiðni hersins um stjórn-
stöð.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
deildarstjóri upplýsir í viðtalinu að
hann hafi ekki lesið óstytta textana
né heldur séð teikningar af fyrir-
hugaðri stjórnstöð. Hins veg'ar
segir Sverrir Haukur Gunnlaugs-
son deildarstjóri að íslensk
stjórnvöld hafi fengið og geti feng-
ið upplýsingar af slíku tagi.
-óg
Sjá bls. 5