Þjóðviljinn - 11.01.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 11.01.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. janúar 1984 Hvað segja þeir um Friedmanssvindlið? Pýðing sú á grein í breska blaðinu The Guardian, sem birtist í Þjóðviljanum í síðasta helgarblaði, um falsanir Nóbels- verðlaunahafans Miltons Friedmans hefur vakið mikla athygli. The Guardi- an greindi hin 25. desember frá nýút- komnu riti eftir David Hendry, einn þekktasta og virtasta hagfræðing Breta af yngri kynslóðinni, þar sem hann gagnrýnir Friedman fyrir að hafa vísvit- andi beitt rangfærslum á mælanlegum staðreyndum í bók sinni: „Monetary Trends in the United States and United Kingdom“. Þetta gerði Friedman til þess að fylla út í þá fræðikenningu sína að verðbólga orsakaðist af peninga- magni í umferð, segir Hendry. Þjóðviljinn leitaði til nokkurra hag- fræðinga á íslandi og kannaði hug þeirra til þessara tíðinda og fara svör þeirra hér á eftir. Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur BHM: „Svakaleg tíð- indi af Nóbels- verðlaunahafa „Ég hef ekki lesið rit David Hendrys, en mér sýnist hann gera tvennt. Annars vegar sýna fram á, hversu mikil lokleysa peninga- magnsfræði Miltons Friedmans er og hins vegar að Friedman hafi lagað til gögn, svo þau falli betur að kenningunni. Þetta fyrrnefnda hef- ur nokkuð verið fjallað um áður, en hið síðarnefnda eru geysileg tíð- indi“, sagði Birgir Björn Sigurjóns- son, hagfræðingur Bandalags há- skólamanna. *v Birgir Björn hefur raunar sjálfur fjallað um peningamagnskenningu Friedmans og gefið út bók á ís- lensku um hana undir heitinu „Lokleysur peningamagnshag- fræðinga." Birgir Björn sagði í samtali við Þjóðviljann, að Nóbels- verðlaunahafinn Milton Friedman hafi nánast verið tekinn í guðatölu við ýmsa háskóla heimsins og nefndi sem dæmi Stokkhólmshá- skóla, þar sem Birgir Björn nam hagfræði. Allri gagnrýni á kenn- ingu Friedmans hafi .verið tekið óstinnt fram að þessu. „Milton Friedman er Nóbels- verðlaunahafi og því eru þessi vinnubrögð hans mikið áfall fyrir vísindagreinina. Ég veit hins vegar ekki hvort hægt er að kalla þetta áfellisdóm yfir hagfræðinni sem Birgir Björn Sigurjónsson, hag- fræðingur BHM fræðigrein; hún skiptist í margar stefnur eins og raunar allar fræði- greinar og peningamagnsfræðin er aðeins ein þessara stefna og ég hef persónulega alltaf vonast til, að hún væri aðeins stundarfyrirbrigði. Flvort þessi nýju tíðindi breyta stefnu peningamagnssinna er hins vegar annað mál“. ast Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar: , ,Henchy hejur sitthvað ón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- til síns máls u „Mér hefur verið kunnugt um skoðanaskipti David Hendrys og peningahyggjumanna. Hendry hef- ur bent á margt í peningamagns- keningunni, sem þarfnast nánari skoðunar og er mikilsmetinn fræði- maður og ég hygg, að hann hafi nokkuð til síns máls“, sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar. stofnunar Jón kvaðst ekki hafa kynnt sér niðurstöður Hendrys um að Milton Friedman, Nóbelsverðiaunahafi, hafi vísvitandi rangfært staðreyndir til þess að fylla út í niðurstöður sínar. „Ég vil því ekki tjá mig um það mál“, sagði Jón að lokum. ast Þráinn Eggertsson, prófessor: allar hellur u „Deilurnar um peningamagns- kenninguna hafa á báða bóga ein- kennst mikið af hártogunum. Það er einhver sannleikskjarni hjá báð- um aðiium og þeir rífast út frá sín- um eigin skoðunum en líta framhjá kjarnanum sem hinn er með“, sagði Þráinn Eggertsson, prófessor við Viðskiptadeild Háskóla ís- lands. Þráinn kvað Friedman og aðra mónetarista ýmsa þekkta fyrir að endurskoða sínar tölur og fara á stundum frjálslega með, en það gilti raunar um fleiri. „Mér finnst ótrúlegt ef það er rétt sem ég hef rekist á, að Hendry taki á málinu þannig, að hann gefi sér fáránlega útgáfu af kenningum Friedmans og ráðist á þá útgáfu", sagði Þráinn. „Þetta gerir Friedman raunar sjálf- ur þegar hann er í ham og satt að segja finnast mér þessi skoðana- skipti fyrir neðan allar hellur á þeim grunni sem þau hafa verið á“. Þráinn kvaðst að lokum ekki hafa Þráinn Eggertsson, prófessor kynnt sér nýjasta rit Davids Hend- rys og því ekki vilja tjá sig um það. ast A prophet confounded J,AST WEEK witnessed an event which should not pass without comment in the annals of British economic history. During the past four and a half years, when monetarist economic doctrines have been all the rage in the UK, ‘ The Observer * has at times felt almost alone in opposin^ the intellectual basis—let alone the s^ consequences — of these Neaj^j policies. The simple belief compl phenomenon, but th^ ^ increases in the this country tration, ^ ribed by Vaul Samuel- Tin wonder of the T how you score the riut he was awarded a the 1970s, and his name was constantiy cited as giving justification to the economic policy of trying to control the money supply, regard^ output and emplo^g A new stucb^ and Mr ________ book nited States and !T seen by Professor fe most widely respected of Jeneration of economists) to ámply incredible ’ manipulation lial data; according to Hendry „ ,.ost every assertion in the book is false. ’ .tnd Professor Friedman has not exercised his right to reply In the past two years opposition to monetarist policies has grown, and ‘The Observer * no longer feels so isolated in its stance. The fact remains that although monetarism has been quietly jettisoned as a guiding light, its influence still permeates the Government’s approach to the econ- omy. We shall all benefit if they take note of Professor Hendry and Mr Ericsson. Leiðari úr The Observer:________________________ Spámaður lagður að velli Leiðari breska blaðsins The Observer sunnudaginn 18. desember síðastliðinn fjallaði um afhjúpun fræðikenningar bandaríska hagfræð- iprófessorsins og nóbelsverðíaunahafans Miltons Friedmans um pen- ingamagnið. Leiðarinn ber fyrirsögnina „Spámaður lagður að velli“ og hljóðar svo í íslenskri þýðingu: „í síðustu viku gerðust tíðindi sem ættu ekki að fara athugasemda- laust inn í annála breskrar hagsögu. í þau síðastliðin fjögur og hálft ár sem kenningar mónetarista um peningamagnið hafa farið sem eldur um sinu uni gjörvallt Bretland hefur The Observer oft á tíðum verið einmana í andstöðunni við hinn fræðilega grundvöll svo ekki sé minnst á félagslegu afleiðingarnar - þessarar Neanderthalsstefnu í stjórnmálum. Sú einfalda trú, að verð- bólga sé ekki flókið félagslegt fyrirbæri, heldur bein afleiðing umfram- framboðs á peningum, barst hingað til lands í gegnum stjórnarlið frú Thatchers, en hún var hins vegar upprunalega komin frá pfófessor Milton Friedman. Á sjöunda áratugnum lýsti bandaríski hagfræðiprófessorinn Paul Samuelson, starfsbróður sínum Friedman sem „áttunda eða níunda heimsundrinu, allt eftir því hvar menn settu Grand Canyon-gljúfrið í þá röð“. En honum voru úthlutuð Nóbelsverðlaunin á áttunda ára- tugnum, og stöðugt var til hans vitnað sem réttlætingar þeirrar stjórnmálastefnu sem gekk út á viðleitni til að hæfa stjórn á peninga- framboðinu án þess að hirða um áhrifin sem það hefði á framleiðslu eða atvinnutækifæri. Ný rannsókn þeirra David Hendry prófessors og N. R. Ericsson frá Nuffield College í Oxford hefur algjörlega rústað þá einu vísindalegu rannsókn sem vegsemd Friedmans byggðist á. Bók Friedmans um Monetary Trends in the United States and United Kingdom" hefur að mati prófessors Hendry að geyma „hreint ótrúlegar" rangfærslur á opinberum upplýsingum. Prófessor Hendry, sem er einn af okkar virtustu hagfræðingum af yngri kynslóðínni, segir að „svo að segja allar fullyrðingar í þessari bók séu falskar“. Og prófessor Friedman hefur ekki notfært sér rétt sinn til andsvara. Síðustu tvö árin hefur andstaðan gegn kenningum mónetarismans farið vaxandi og The Observer er ekki eins einmana og áður í afstöðu sinni. En hitt er engu að síður staðreynd, að þótt kenningu mónetar- ismans hafi þegjandi og hljóðalaust verið varpað fyrir róða sem leiðarljósi, þá gegnsýra áhrif hennar alla efnahagsstjórnun ríkisstjórn- arinnar. Við mundum öll njóta góðs af, ef henni lánaðist að taka mark á prófessor Hendry og herra Ericsson." Vilhjálmur Egilsson, hag- fræðingur Vinnuveitendasambands- ms: „Hef ekki kynnt mér málið“ „Ég hef ekki séð eða kynnt mér þessa bók breska hagfræðingsins David Hendrys og veit ekki um hvað máiið snýst“, sagði Vilhjálm- ur Egilsson, hagfræðingur Vinnu- veitendasambandsins. Vilhjálmur sagði, að sér fyndist mjög ótrúlegt að Milton Friedman hefði falsað tölur í bók sinni og ef svo væri, væri það með ólíkindum. „Kannski er þetta spurning um mismunandi skilgreiningu þessara tveggja hagfræðinga á peninga- magni - oft snýst ágreiningur um skilgreiningar. En nú er ég bara að spekúlera. Ég vill ekki leggja neinn dóm á þetta því ég hef ekki kynnt mér málið“. ast Vilhjálmur Egilsson hagfr. Vinnu- veitendasambandsins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.