Þjóðviljinn - 11.01.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 11.01.1984, Blaðsíða 8
8 sÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. janúar 1984 , Jíyrnar til viðræðna eru opnar“. Mynd þessi sýnir afstöðu sovéska grínblaðsins Krokodil tii samningatil- boða Bandaríkjanna. Þannig sýnir dagblað í Miinchen þýsku þjóðina lesa í hinni „hvítu bók“ ríkisstjórnarinnar um nauðsyn þess að mæta ógnuninni úr austri með auknum hernaðar- styrk NATO. Stokkhólmsráðstefnan sett í næstu viku Fátt bendir til þess að Stokk- hólmsráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu, Sem sett verður næstkomandi þriðjudag, muni leiða til afgerandi breytinga á stöðu afvopnunarmála og vígbúnaðar- kapphlaupsins í álfunni. í fyrsta lagi er ráðstefnunni ekki ætlað að fjalla um kjarnorkuvopnin sérstak- lega og í öðru lagi þá hafa hvorugt stórveldanna sýnt afgerandi vilja til þess að koma með ný frumkvæði er losað gætu um stöðuna eins og hún er í dag. Stokkhólmsráðstefnan um sam- vinnu og öryggi í Evrópu er fram- hald Helsinki-ráðstefnunnar 1975 og Madrid-ráðstefnunnar sem lauk á síðasta ári. Dagskrá Stokkhólms- ráðstefnunnar var í grófum drátt- um ákveðin á ráðstefnunni í Ma- drid og samkvæmt því á það að vera meginverkefni ráðstefnunnar að styrkja allar þær aðgerðir sem leitt geta til aukins gagnkvæms trausts á milli austurs og vesturs í samræmi við Helsinki-sáttmálann. Inga Thorsson, einn helsti sér- fræðingur Svía í afvopnunarmálum og talsmaður sænsku stjórnarinnar í þeim efnum á vettvangi Samein- uðu þjóðanna segir í nýlegri blaða- grein að beinar umræður um kjarn- orkuvígbúnaðinn í Evrópu og til- löguflutningur þar að lútandi falli í raun ekki undir boðaða dagskrá ráðstefnunnar, og sé því ekki væn- legt til árangurs að taka þau upp á þessu stigi málsins. Segir hún það heldur ekki nauðsynlegt, þar sem önnur verkefni ráðstefnunnar séu nægilega mikilvæg í sjálfu sér, auk þess sem ráðstefnan gefi tilefni til óformlegra skoðanaskipta. Bendir hún á í því sambandi að utanríkis- ráðherrar Nato-ríkjanna muni halda undirbúningsfund í Stokk- hólmi áður en ráðstefnan verður sett, og þá munu þeir Andrej Gromyko og George Shultz hittast á fundinum. Það er álit flestra fréttaskýrendá að staða sú sem komin er upp í afvopnunarviðræðum stórveld- anna eftir að Nato hefur hafið nýja kjarnorkuvígvæðingu í Evrópu og Sovétmenn dregið sig út úr öllum samningaviðræðum hafi aukið á mikilvægi ráðstefnunnar. Sovétríkin í biðstöðu Sovéska flokksmálgagnið Prav- da sagði nýlega að ráðstefnan yrði prófsteinn á það hvort Nato og Bandaríkin væru reiðubúin að gefa afdráttarlaus svör við tillögum So- vétmanna. Sovétríkin hafa haldið að sér höndum eftir að uppúr slitn- aði í Genf og virðast bíða þess að brotthlaupið frá samningaborðun- um í Genf og Vínarborg skili tilætl- uðum árangri. Margt bendir til þess að Sovétmenn muni ekki koma fram með nýjar tillögur, heldur bíði þeir eftir viðbrögðum Nato-ríkjanna. Segja fréttaskýr- endur að nýlegar fréttir um að Hel- mut Kohl kanslari V-Pýskalands hafi fallist á þá hugmynd fyrir jólin að Bretland og Frakkland eigi að taka þátt í afvopnunarviðræðun- um, sýni að þessi afstaða Sovét- stjórnarinnar kunni að skila árang- ri. Þá má einnig benda á nýlega kröfur þingflokks Demókrata í Bandaríkjunum um að hafnir verði samningar er taki til bæði meðal- drægra og langdrægra vopna, en slíkt hefur lengi verið vilji Sovét- manna. Þá hefur þessi. afstaða So- vétmanna einnig skilað þeim ár- angri sem teljast má umtalsverður, að ekki ríkir lengur eining á Vest- urlöndum í öryggis- og varnarmál- um, þar sem jafnaðarmannaflokk- ar flestra Nato-ríkja hafa tekið upp stefnu sem stangast í veigamiklum atriðum á við ríkjandi stefnu innan Nato. Er ekki enn séð fyrir endann á því hverjar afleiðingar uppsetn- ing Evrópu-eldflauganna mun hafa fyrir Evrópu, ekki hvað síst eftir að hliðstæð vígvæðing er nú jafnframt hafin í A-Þýskalandi og Tékkósló- vakíu. Kenningin um ógnarjafn- vægið hefur nú tekið á sig þá mynd, sérstaklega gagnvart þýsku þjóð- inni, að stjórnvöld í báðum hlutum Þýskalands munu ekki geta réttlætt hana til lengdar. Beggja vegna landamæra Austur- og Vestur- Þýskalands standa nú SS-21 og Pershing II eldflaugar á skot- pöllum reiðubúnar að leggja austur- og vesturhluta Evrópu í rúst. Eldflaugar þessar eru í einu og öllu á ábyrgð og undir stjórn Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og þegnar A- og V-Þýskalands hafa ekki einu sinni neitunarvald um beitingu þessara vopna. Hér hafa stórveldin komið sér í þá aðstöðu að forræði þeirra verður ekki unað til lengdar, enda brýtur það í bága Við allar grundvallarhugmyndir um fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Þrjár blokkir Væntanlega munu þátttökuríkin á ráðstefnunni í Stokkhólmi, sem verða öll Evrópuríki austan og vestan járntjalds að viðbættum Bandaríkjunum og Kanada skipt- ast í þrjár fylkingar: Varsjárband- alagsríkin, Nato-ríkin og ríkin sem standa utan hernaðarbandalaga. Ekki hefur enn komið fram hvort óháðu ríkin munu taka upp frum- kvæði á ráðstefnunni, en Inga Thorsson segir að Svíum sé væn- legast sem gestgjafa ráðstefnunnar að koma fyrst og fremst fram sem málamiðlarar og sáttasemjarar, og að þeir muni ekki taka upp forustu fyrir tillöguflutningi. Þó er vitað að sænska ríkisstjórnin hefur í undir- búningi að taka upp landhelgisbrot sovéskra kafbáta við strendur Sví- þjóðar og munu þeir Olof Palme og Andrej Gromyko eiga sérstakan fund um þetta mál meðan á ráð- stefnunni stendur. Flest bendir því til að Sovétmenn muni halda að sér höndum á Stokk- hólmsráðstefnunni og varpa sök- inni á hinu herta vígbúnaðarkapp- hlaupi á Bandaríkin. Þannig vænta þeir sér að geta helst knúið fram stefnubreytingu innan Nato, þann- ig að hægt verði í framtíðinni að ganga til samninga út frá nýjum forsendum. Sú fullyrðing tals- manna hins herta vígbúnaðarkapp- hlaups, að uppsetning nýrra eldf- lauga í Evrópu myndi knýja Sovét- menn til samninga hefur reynst röng. Evrópueldflaugarnar hafa veikt Nato innávið og styrkt stöðu Sovétríkjanna gagnvart Vesturl- öndunum á pólitíska sviðinu ef eitthvað er. Það mun væntanlega koma í ljós á Stokkhólmsráðstefn- unni að uppsetning Natoflauganna í Evrópu var ekki skref í átt til betra öryggis eða gagnkvæms trausts. ólg. Sovétríkin halda að sér höndum á meðan ágreiningur um stefnuna í öryggismálum fer vaxandi á Vesturlöndum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.