Þjóðviljinn - 11.01.1984, Blaðsíða 11
Enskir
punktar
Hér koma fleiri punktar frá
áhugamanninum um ensku
knattspyrnuna sem sendi okk-
ur skemmtilegheitin á dögun-
um. Meira fræðandi kannski í
þetta skiptið.
Aðeins einn af núverandi
framkvæmdastjórum í Eng-
landi hefur verið markakóng-
ur í 1. deild. Það er Malcolm
MacDonald, framkvæmda-
stjóri Fulham, sem hlaut þann
heiður 1974-75 er hann lék
með Newcastle og skoraði 21
mark.
Tottenham Hotspur hefur
unnið flesta deildarleiki á einu
keppnistímabili í 1. deild, og
reyndar í 2.deildinni líka.
Keppnistímabilið 1960-61
þegar Tottenham vann bæði
deildina og bikarinn, léku þeir
42 deildarleiki og unnu 32, þar
af fyrstu 11 leikina. í 2.
deildinni 1919-20 unnu þeir
einnig 32 leiki af 42.
Fyrsti leikurinn sem leikinn
var undir flóðljósum var á
milli Portsmouth og New-
castle í febrúar 1956.
Fyrsti alþjóðlegi lands-
leikur í heimi var á milli Skot-
lands og Englands 30. nóvem-
ber 1872. Leikurinn var háður
í Glasgow og endaði 0:0.
í 3. umferð bikarkeppninn-
ar í janúar 1959 gerði utan-
deildaliðið Worcester sér lítið
fyrir og sigraði Liverpool 2:1.
Worcester tapaði hins vegar
2:0 fyrir Sheffield United í
næstu umferð.
Sá framkvæmdastjóri í
ensku knattspyrnunni sem
lengst hefur verið hjá einu fé-
lagi er Lawrie McMenemy
sem hefur verið hjá Sout-
hampton frá því 1973. En sá
maður sem lengst af hefur ver-
ið framkvæmdastjóri er nú-
verandi stjóri Carlisle, Bob
Stokoe. Hann hóf feril sinn
hjá Bury árið 1961.
Ekki hverfur Caton-nafnið
út úr leikskránni hjá Manc-
hester City þó svo Tommy
Caton sé farinn til Arsenal.
Sextán ára gamall bróðir
hans, Paul að nafni, hefur
nefnilega getið sér gott orð
sem knattspyrnumaður og
þykir ekki síður efnilegur en
eldri bróðirinn.
Síðasti deildarleikur Manc-
hester United fyrir flugslysið í
Múnchen 1958 vargegn Arns-
naln á Highbury í London.
Man. Utd., oft nefnt „the
Busby Babes“, vann leikinn
5:4.
Skoski knattspyrnukappinn
Denis Law, lék 309 leiki fyrir
Manch. Unitedog skoraði 171
mark. Frá Manch. Utd fór
hann til erkióvinanna Manch.
City, lék þar 68 leiki og
skoraði 30 ntörk. Eitt þeirra,
sem hann skoraði með hæl-
spyrnu vorið 1974, sendi
Manch. Utd. niður í 2. deild!
Law varð svo miður sín að
hann lét tafarlaust skipta sér
útaf.
Mifrvilíudágur li.'ja'nnar 1^84' ÉJÓÍIVILJINN —‘SÍÐA ll
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu:
Opnimarleikuriim
Frakkland - Danmörk
Frakkland gegn Danmörku, All-
an Simonsen og félagar gegn Michel
Platini og félögum. Þetta er svo
sannarlega kræsileg viðureign en
einmitt með henni hefst úrslita-
keppnin í Evrópukeppni landsliða
næsta sumar. Urslitin fara fram í
Frakklandi og standa yfir dagana
12.-27. júní.
Frakkar teljast með sigurstrang-
legri liðum, leika enda á heimavelli
og urðu í fjórða sæti í síðustu
heimsmeistarakeppni. Danir
kontu geysilega á óvart er þeir
ruddu Englendingum og Ungverj-
um úr vegi sínum í undankeppninni
og þeir sigruðu einmitt Frakka á
glæsilegan hátt, 3:1, í vináttulands-
leik í Kaupmannahöfn í septemb-
Dregið var í riðlana í gær. Frakk-
ar og Evrópumeistarar V.-
Þjóðverja voru settir efstir á blað í
riðlunum tveimur og útkoman varð
síðan þessi
A-riðill:
Frakkland
Danmörk
Belgía
Júgóslavia
B-riðill:
V-Þýskaland
Portúgal
Spánn
Rúmenía
Michel Platini og Allan Simonsen
verða væntanlega í sviðsljósinu í
opnunarleik EM í Frakklandi.
að fjölmenna. Það má því búast við
miklum áhorfendafjölda í frönsku
júnísólinni í sumar, ekki síst þegar
þjóðir eins og Frakkland-Belgía og
Spánn-Portúgal mætast.
- VS
Vestur-Þjóðverjar eru líklegast-
ir til sigurs í B-riðlinum en baráttan
gæti orðið geysihörð um úrslitasæt-
ið, eins og reyndar í A-riðli. Fyrsta
viðureignin í B-riðli er V-
Þýskaland-Portúgal og verður
leikið í Strassbourg sem er nálægt
vestur-þýsku landamærunum.
Það sést best nú, hve Frakkland
er heppilegur staður fyrir úrslita-
keppnina í þetta skiptið. Nágrann-
aþjóðirnar Belgía, V-Þýskaland og
Spánn eru allar í úrslitum og
auðvelt er fyrir Dani og Portúgali
Watford
áfram
Nokkrir leikir fóru fram í 3ju
umferð ensku bikarkeppninnar í
gærkveldi. Þar bar það helst til tíð-
inda að Watford sigraði Luton 4:3
eftir framlengdan leik. Það var
Mauric Johnston sem skoraði sig-
urmarkið fyrir Watford. Hin mörk
liðsins skoruðu Wilf Rostron, Ge-
orge Reilly og John Barnes. Fyrir
Luton skoruðu Paul Walsh 2 og
Mal Donaghy.
Önnur úrslit í gær: Birmingham
- Notts County 0:2, Scuntharle -
Leeds 1:1, Swindon - Carlisle 3:1,
Wolves - Coventry 1:1. (eves og
Peate)
Trimmkeppni á skíðum
milli bæja og héraða
Trimmkeppni á skíðum milli
héraða og bæja hér innanlands
hefst á sunnudaginn kemur, 15:
janúar, og stendur allt til 30. apríl.
Hún er nokkurs konar framhald af
norrænu fjölskyldulandskeppninni
sem háð var sl. vetur.
Keppni þessi er liður í þeirri við-
leitni íþróttasamtakanna að efla al-
menningsíþróttir í landinu og
koma til móts við þá mörgu sem
óska eftir að keppa að einhverju
ákveðnu marki, þótt þeir séu ekki í
keppnisíþróttum. Jafnframt er
höfð í huga hollusta þess að hver og
einn stundi einhverja íþrótt við sitt
hæfi og er þessi keppni m.a. fram-
lag Skíðasambandsins í þá átt.
Reglur keppninnar eru einfaldar
og hljóða þannig:
1. Hver þátttakandi skal fara 5 sinn-
um á skíði, eina klukkustund í
senn, og giída þar allar tegundir
skíöa.
2. Þátttakandi fyllir út skráningar-
spjaldið.
3. Hann sendir spjaldið strax og skil-
yrðunum hefur verið fullnægt til
skíðafélagsins á staðnum eða til
Trimmnefndar SKÍ, pósthólf 546,
602 Akureyri.
„Viðbrögðin hjá héraðssam-
böndunum hafa verið óvenju góð,
frá þeim er nú þegar farið að
hringja í okkur og biðja um skrán-
ingarspjöld", sagði Hermann Sigt-
ryggsson, forsvarsmaður Trimm-
nefndar SKí, í gær.
Þrenn aðalverðlaun verða veitt,
sem hér segir:
1-Bikar fyrir bestu þátttöku í
kaupstað sem hefur tíu þúsund
ibúa eða fleiri.
2. Bikar fyrir bestu þátttöku í
kaupstað með 2000-10.000 ibúa.
3. Bikar fyrir bestu þátttöku hjá hér-
aðssambandi.
Innan hvers héraðs er fram-
kvæmd keppninnar falin héraðs-
samböndum, íþróttabandalögum
og skíðaráðum. Þessir aðilar munu
svo skipuleggja keppnina með að-
stoð stjórnar íþrótta- og ung-
mennafélaga hinna einstöku
byggðarlaga, sem síðan leita sam-
starfs við skóla, vinnustaði, áhuga-
hópa og fl. á félagssvæði þeirra.
Trimmnefndin stefnir að því að
fá reglulega upplýsingar um þátt-
tökutölur í hinum einstöku héruð-
um og bæjum þannig að hægt verði
að birta þær af og til meðan á
keppninni stendur.
- VS
Friðbert
í klípu...!
Friðbert Traustason, fyrrum
leikmaður ÍS og landsliðsmaður í
blaki, hefur tekið við þjálfun 1.
deildarliðs Framara í stað Sveins
Hreinssonar. Friðbert þjálfar einn-
ig 2. deildarlið Breiðabliks og
leikur með því og af þeim sökum
blasir snúið vandamál við honum
um næstu helgi, Fram og Breiða-
blik mætast nefnilega í bikar-
keppninni á sunnudaginn kemur!
Ekki hefur frést hvernig Friðbert
hyggst snúa sér í því máli....
- VS
Motherwell
á heimaleik
Á laugardaginn var dregið um hvaða
lið skyldu mætast í 3. umferð skosku
bikarkeppninnar í knattspyrnu. Úrvals-
deildarliðin eiga aðild að eftirtöldum
leikjum:
Berwick Rangers-Celtic
Dundee United-Ayr United
Airdrie-St. Johnstone
Cowdenbeath-Dundee
Motherwell-Queen's Park
Rangers-Dunfermline
Meadowbank-St. Mirren
Aberdeen-Kilmarnock
Hearts-Patrick Thistle
Hiberninan-East Fife
Leikirnir fara fram laugardaginn 28.
janúar.
- VS
Einar með
Magnamenn
Einar Helgason hefur verið ráð-
inn þjálfari hjá 3. deildarliði
Magna, Grindavík, í knattspyrnu.
Einar sem á árum áður lék í marki
1. deildarliðs Akureyringa, þjálf-
aði Leiftur frá Ólafsfirði sl. sumar
og undir hans stjórn varð liðið 4.
deildarmeistari. - VS
Alfreð
skoraði
9af 13
Það var heldur betur stuð á Al-
freð Gíslasyni, handknattleiks-
manni, þegar lið hans Essen lék
gegn Barcelona á Spáni í fyrradag.
Alfreð skoraði 9 af 13 mörkum Ess-
en, en Barcelona sigraði 19:13.
Þetta var fyrri leikur liðanna í 8
liða úrslitum Evrópukeppninnar í
handknattleik. Af frammistöðu
Alfreðs í þessum leik, sem og fleiri
leikjum í vetur sýnir að hann er
orðinn aðalmaður Essen-liðsins og
greinilegt er að hann er í mjög
góðri æfingu um þessar mundir.
Hætt er við að róðurinn verði
þungur hjá Essen-liðinu að vinna
upp 6 marka mun í síðari leiknum,
sem fram fer í Þýskalandi, þótt alls
ekki sé það útilokað. - VS
Nýjar aðferðir
Englendinganna
Ármann með hæsta
skor vetrarins
Englendingar eru í vaxandi mæli
að verða meðvitaðir um hin miklu
skrflslæti sem oft eiga sér stað á
knattspyrnuleikjum þar í landi.
Nokkuð hefur dregið úr þeim und-
anfarið en samt er ávallt harður
kjarni ólátaseggja sem fer á völlinn
eingöngu til að valda vandræðum.
Nýrra leiða er leitað í baráttunni
við vandamálið. Ian McFarlane,
íþróttamálaráðherra Bretlands, og
Gordon Taylor, formaður samtaka
atvinnuknattspyrnumanna, hafa
setið á rökstólum undanfarið og
nýjasta hugmyndin er sú að fá þrjá
af þekktustu knattspyrnumönnum
landsins, Kevin Keegan, Bryan
Robson og Peter Shilton, til að
koma fram í sjónvarpi og tala til
fólksins. Ólíklegt verður að teljast
að þetta leysi allan vanda, en vissu-
lega gæti sjarmör stjarnanna haft
sitt að segja í rétta átt.
- VS
Ármenningar náðu hæsta
markaskori í deildarkeppninni í
handknattleik á þessum vetri er
þeir unnu Ogra 40:18 í Laugardals-
höllinni á laugardaginn. Staðan í
hálfleik var 23:7. Oskar Þorsteins-
son skoraði 12 mörk fyrir Ármann,
Smári Jósafatsson 10 og Haukur
Haraldsson 8.
Þór vann auðveldan sigur á
Skallagrími úr Borgarnesi á Akur-
eyri á laugardaginn. Lokatölur
urðu 27:9 eftir 17:4 í hálfleik. Sig-
urður Pálsson skoraði 10 mörk
fyrir Þór (hans vanalegi
skammtur), Oddur Sigurðsson 5,
Gunnar M. Gunnarsson og Aðal-
björn Svanbergsson 3 hvor. Loks
vann Afturelding hið unga lið Sel-
fyssinga 22:10 að Varmáá í Mos-
fellssveit.
Staðan í 3. deild:
Týf ... 9 8 1 0 228:151 17
Armann ... 10 8 0 2 298:222 16
Afturelding ... 9 7 0 2 229:143 14
Þór Ak ... 8 6 0 2 210:132 12
Akranes ... 9 5 1 3 217:181 11
Keflavík ... 9 4 0 5 213:201 8
Selfoss ... 10 2 0 8 172:207 4
Skallagrímur.... ... 10 1 0 9 148:275 2
Ögri ... 10 0 0 10 146:349 0
Fjögur efstu liðin fara í úrslita-
keppni, þar sem leikin verður tvö-
föld umferð, og taka stigin með sér
þangað. Þýðingarmiklir leikir efstu
liðanna eru á dagskrá um næstu
helgi, Þór og Tyr mætast á Akur-
eyri og Ármann-Afturelding í
Reykjavík. _ k&H/VS