Þjóðviljinn - 17.01.1984, Síða 15
Þriðjudagur 16. janúar 1984' ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar Irá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Guðmundur Einarsson
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Skóla-
dagar“ eftir Stefán Jónsson Þórunn
Hjartardóttir les (7)
9.20 Leikfimi.9.30Tilkynningar.Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.)
10.45 „Man ég það sem löngu leið" Ragn-
heiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.15 Viö Pollinn Ingimar Eydal velur og
kynnir létta tónlist (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Sexstett Benny Goodmans og B.B.
King og hljómsveit teika.
14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup" eft-
ir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm
Gunnar Stefánsson les (16).
14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðuriregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Sinfóniuhljóm-
sveit islands leikur „Sögusinfóníuna"
eftir Jón Leifs, Jussi Jalas stj.
17.10 Siðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðuriregnir, Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Guðlaug M.
Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdóttir.
20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Leyni-
garðurinn“ Gert eftir samnefndri sögu
Frances H. Burnett. (Áður útv. 1961). 3.
þáttur: „Grátið á ganginum" Þýðandi
og leíkstjóri: Hildur Kalman. Leikendur:
Helga Gunnarsdóttir, Rósa Sigurðardótt-
ir, Gestur Pálsson, Bryndis Pétursdóttir,
Áróra Halldórsdóttir, Lovisa Fjeldsted,
Árni Tryggvason, Sigríður Hagalin og
Erlingur Gíslason.
20.30 „Gamli jakkinn" smásaga eftir
El ísabetu J. Helgadóttur Höfundur les.
20.40 Kvöldvaka a. Almennt spjall um
þjóðfræði Jón Hnefill Aðalsteinsson
tekur saman og flytur. b. Kórsöngur:
Liljukórinn syngur Stjórnandi: Jón Ás-
geirsson. Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Jón Þ. Þór.
21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir
hreppstjorans" eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur Höfundur les. (23).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldtónleikar: Tékkneska fíl-
harmóniusveitin leikur Stjórnendur:
Karel Ancerl og Alois Klima. Einleikari:
Josef Suk. a. Fantasia í g-moll op. 24
fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Josef Suk. b.
Hátíðarmars op. 35c eftir Josef Suk. c.
Fiðlukonsert i a-moll op. 53 eftir Antonín
Dvorák. - Kynnir: Knútur R. Magnússon.
23.45 Fréttir. Ðagskrárlok.
RUV 2
10-12. Morgunútvarp með morgunkvartett rás-
ar 2.
14-16. Gísli Sveinn Loftsson snýr plötum í tvo
tima.
16- 17. Þjóðlagatónlist í víðustu merkingu orðs-
ins. Kristján Sigurjónsson kynnir.
17- 18. Frístund. Eðvarð Ingóllsson sér um
unglingaþátt.
JB
\
RUV
19.35 Ðogi og Logi Pólskur teiknimynda-
flokkur.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Konur og þjóðfélagið Bresk fræðslu-
mynd um vanmat sagnfræðinga á hlut-
verki kvenna í mannkynssögunni. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
21.05 Derrick Maðurinn frá Kiel Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Vetur-
liði Guðnason.
22.05 Setið tyrir svörum Umsjónarmaður
Rafn Jónsson fréttamaður.
22.55 Fréttir i dagskrárlok
frá lesendum
Spurt n m hiinclamál
Reykvíkingur spyr:
Hefur fjármálaráðherra ein-
hvern einkarétt á að brjóta lög?
Ég spyr vegna þess að í Morgun-
blaðinu var hann að grobba sig af
því að hafa hund sem lögum sam-
kvæmt er bannað. Ég hélt að allir
ættu að fara eftir þessum lögum.
Það er svo annað mál með blinda
og hjálparsveitir því í þeim tilfell-
um er hundurinn þjálfaður til
leitar- og hjálparstarfa. Þar eru
hundarnir nauðsynlegir föru-
nautar.
Albert vitnaöi m.a. í liunda
hjálparsveitanna í ofangreindu
viðtali og slíkt þykir mér lágkúra
og ekki samanburðarhæft við
hundahald heilbrigðra einstak-
linga.
Annað hvort er bann eða ekki
bann. Breyting verður að gerast
með lögum en ekki með geð-
þóttaákvörðun einhvers ráð-
herra.
Mér þykir full ástæða fyrir því
að Albert Guðntundsson geri
nánar grein fyrir þessu lagabroti
sínu á opinberum vettvangi.
Helgi Guðjónsson
Vesturbergi 140
Rcykjavík
Hvað
segir
AB um
fæðingar-
orlofið?
Sólveig hringdi vegna lesenda-
bréfs í Þjóðviljanum á
fimmtudag, þar sem ÁG skrifar
um greiðslur til kvenna í fæðing-
arorlofi. Hún sagðist sakna þess
að ítarlegum ályktunum lands-
fundar AB um þetta mál, svo og
önnur mál sem varða jafnrétti
kynjanna, hefði ekki verið gerð
skil í blaðinu. Að málefnaundir-
búningi á þessu sviði unnu fjöldi
kvenna, sagði Sólveig, og niður-
stöður hópanna vöktu miklar
umræður á landsfundinum, þar á
méðal reglan um kvótaskiptingu
kynjanna. Ályktunin um fæðing-
arorlofið var mjög ítarleg sagði
Sólveig ög óskaði eftir því að
blaðið kynnti lesendum sínum
hana.
Sjónvarp kl. 22.05
Setið
fyrir
svörum
Davíð Oddsson borgarstjóri
' Sigurjón Pétursson borgarfulltr.
Þátturinn „Setið fyrir svörum"
er á dagskrá sjónvarpsins á eftir
Derrick í kvöld.
Sigurjón Pétursson fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í borgarstjórn
og Davíð Oddsson borgarstjóri
sitja fyrir svörum blaðamann-
anna Álfheiðar Ingadóttur og
Ásdísar Rafnar.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur
og borgarmálin verða í brenni-
depli.
Álfheiður Ingadóttir er frétta-
ritariÞjóðviljans íborgarstjórn og
Ásdís J. Rafnar er fréttaritari
Morgunblaðsins þar.
Stjórnandi umræðnanna er
Rafn Jónsson fréttamaður.
Álfheiður Ingadóttir blaðamaður
Ásdís J. Rafnar blaðamaður
Rás 1 kl. 20.00
Leynigarðurinn
Framhaldsleikritið „Leyni-
garðurinn“ verður á dagskrá út-
varpsins í kvöld, kl. 20.00. Þetta
er þriðji þáttur og nefnist
„Grátið á ganginum“.
f síðasta þætti kom fram að
Maríu litlu þykir vistin í Akur-
gerði heldur einmanaleg þrátt
fyrir allsnægtir. Frændi hennar
er fjarverandi og stjórnar Meta
ráðskona öllu með harðri
hendi. Maríu finnst undarlegt
að mega ekki fara frjáls ferða
sinna um húsið og grunar að þar
sé eitthvað sem haldið er leyndu I
fyrir henni. Hún furðar sig líka
á því að einn af skrúðgörðum
staðarins er læstur og girtur
háunt ntúr. Þar hefur enginn
fengið að stíga fæti sínunt í tíu
ár; síðan kona frænda hennar
dó.
María er þó ekki alveg vina-
laus. Marta og Tumi, sem eru
þjónustufólk á staðnum, vor-
kenna henni og reyna að stytta
henni stundir, þó að hún sé
býsna erfið í untgengni og hafi
vanist því að líta niður á þeirra
líka og skipa þeirn fyrir.
Leikendur í 3. þætti eru:
Helga Gunnarsdóttir, Rósa
Sigurðardóttir, Gestur Pálsson,
Bryndís Pétursdóttir, Áróra
Halldórsdóttir, Louisa Fjeld-
sted, Árni Tryggvason, Sig-
ríður Hagalín og Érlingur
Gíslason. Leikstjóri er Hildur
Kalman og kynnir er Jónas Jón-
asson.
Utvarpsleikgerð og þýðingu
gerði Hildur Kalman eftir sam-
nnefndri sögu Frances H. Burn-
ett.
bridge
Leikur sveita Ólafs Lárussonar og
Þórarins Sigþórssonar í 2. umferö
Reykjavíkurmótsins - undanrásum á
dögunum, var ansi fjörugur. Spil dagsins
er úr þessum leik. Það er af svæsnari
gerðinni:
K1082
982
ÁG864
10
973
Á1074
D7
ÁK98
Vestur (Guöm. Sveinss.) opnaði á 1
tígli, Norður sagði pass, Austur pass og
Suður (Ólafur Lár.) doblaði. Vestur sagði
pass, Norður pass Austur (Þorgeir Eyj.)
sagði 2 lauf, Suður doblaði, Vestur pass,
Norður (Hermann Lár.) sagði 2 spaða,
Austur pass, Suður 2 grönd (til að spila,
hélt undirritaður), Vestur pass og Norður
var í baráttustuði og lyfti í 3 grönd. Austur
var búinn að fá nóg af þessu og doblaði.
Útspil Vesturs var laufagosi. Hvernig list
ykkur á samninginn?
Nú jæja, þeir hafa sést verri við spila-
borðið. Sagnhafi drap laufagosann meö
ás heima og spilaði lágu hjarta að
heiman. Vestur lét lítið og Austur drap á
gosa. Nú kom tigulnían frá Austri (ekki
besta spilið fyrir vörnina) og Suður stakk
upp dömunni. Vestur hikaöi yfir henni en
lét hana svo fara. Nú spilaði sagnhafi
laufaáttunni og Austur drap á drottningu
og spilaði hjarta til baka. Sagnhafi hleypti
því og Vestur fékk slaginn á drottningu.
Nú koma spaðadrottning frá Vestri og
sagnhafi setti kónginn. Hann hélt. Nú
spilaöi sagnhafi lágu hjarta úr borði,
Austur lét lítið og Suður stakk upp ás.
Vestur henti tigli i hjartaásinn. Nú var
spilið nokkuð augljóst. Austur hafði byrj-
að með 6 lauf, 4 hjörtu, 2 spaða og 1 tígul
(nían stök). Og þvingan var sett á Vestur.
Sagnhafi tók nú laufakóng og eftir mikla
umhugsun henti Guðmundur tigli. Nú
kom laufanían og aftur hugsaði Guö-
mundur lengi. Loks birtist spaðaásinn
(og sagnhafi hugsaði með sjálfum sér:
Þetta gat hann, helv..) Það blasti nú við
að Austur ætti spaðagosann eftir stakan,
auk allra slaganna hinna. Nú jæja, látum
reyna á það. Lokastaðan var þessi::
10
ÁG8
97
10
7
Nú spilaði Suður tígulsjö, tían kom frá
Vestri, gosinn átti slaginn og spaðatíu
gluðrað út. Lítið frá Austri og BINGÓ,
Vestur átti gosann. Áttundi og nlundi sla-
gurinn komu svo á ás-áttu í tigli í borðinu.
Furðurlegt spil var komið í höfn, 750 til
sveitar Ölafs, sem vann leikinn með
60:52 (13:7).