Þjóðviljinn - 04.02.1984, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 04.02.1984, Blaðsíða 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 4.-5. febrúar 1984 Helgin 4.-5. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni Hér er birtur annar kaf li úr leikriti Þjóðleikhússins: Sveyk í síðari heimsstyrjöld- inni eftir Berthoid Brecht, en það verður frumsýnt laugar- dag í næstu viku. Þorsteinn Þorsteinsson er þýðandi. í aðalstöðvum Gestapó í Pets- ékbanka stendur Sveyk (Bessi Bjarnason) ásamt Brettsnæder leynilögreglu- manni (Baldvin Hall- dórssyni) frammi fyrir Lúð- vík Búllinger stormsveitar- foringja (Gísla Rúnari Jónssyni). Einn SS-maður bakatil. Búllinger: Já veitingakráin Bikar- inn virðist vera þokkahreiður fyrir niðurrifspöddur, ha? Búilinger (að bragði): Engan veg- inn, herra sveitarforingi. Kopetska veitingakona er mesta reglumann- eskja og skiptir sér ekki af pólitík; í hópi fastagestanna er Sveyk þessi hættuleg undantekning, og ég er búinn að hafa auga með honum í talsverðan tíma. (Síminn á borði Búllingers hringir. Hann tekur upp tólið og við heyrum ásamt honum rödd úr því). Símrödd: Árásarsveit. Krúsja bankastjóri kveðst ekki hafa sagt orð um banatilræðið, hann hafi ekki getað lesið um það í blöðun- um því það hafi verið búið að hand- taka hann áður. Búllinger: Er hann Verslunar- bankinn? Láta hann fá tíu yfir þjó- hnappana. (Við Sveyk). Jæja, svona ertu þá, skarfurinn þinn. Fyrst legg ég fyrir þig spurningu. Ef þú gatar á henni, svínið þitt, þá tekur Múller 2 - (bendir á SS- manninn) - þig með sér niðrí kjall- ara og kennir þér lexíu; skilurðu það? Spurningin hljóðar: Skíturðu hörðu eða linu? Sveyk: Tilkynni auðmjúklegast, herra sveitarforingi, ég skít eins og þér óskið. Búllinger: Rétt svar. En þú hefur viðhaft ummæli sem ógna öryggi þýska ríkisins, kallað varnarstríð Foringjans árásarstríð, gagnrýnt matvæladreifinguna osfrv. osfrv.. Hvað hefurðu um þetta að segja? Sveyk: Þetta er ansi mikið. Það er vandratað meðalhófið. Búllinger (með þungu háði): Gott að þú hefur skilning á því. Sveyk: Ég hef skilning á hverju sem er. Agi verður að vera, án aga mundi enginn komast neitt einsog liðþjálfinn okkar í nítugustuog- fyrstu herdeildinni var vanur að segja: „Ef maður pínir ykkur ekki áfram þá munduði leysa onum ykk- ur brækurnar og klifra uppí tré“. Þetta sagði ég líka við sjálfan mig í nótt þegar verið var að misþyrma mér. Búllinger: Svo þér var misþyrmt já, þú segir fréttirnar. Sveyk: í klefanum. Það kom inn einhver maður úr stormsveitunum og lamdi mig í hausinn með leður- ól, og þegar ég fór að stynja þá lýsti hann á mig og sagði: „Þetta er vit- laus maður, þetta er ekki hann“. Og brjálaðist svo ofsalega af því Búllinger: „Brettsnæder! Tókuð þér ekki eftir því að maðurinn er fábjáni?". Brettsnæder (særður): „Herra sveitarforingi, Sveyk talaði í Bikarnum einsog fábjáni sem hagar ósvífni sinni þannig að ekki sé hægt að sanna neitt á hann“. Gísli Rúnar Jónsson í hlutverki Búllingers sveitarforingja í SS og Baldvin Halldórsson í hlutverki Brettsnæders Gestapómanns. Ljósm.: eik. hann hafðifariðmannavilltað hann lamdi mig líka yfir bakið. Mann- skepnan er með þeim ósköpum fædd að hún er að gera glappaskot frammí andlátið. Búllinger: Jæja. Og þú játar á þig allt sem hér er haft eftir þér? Sveyk: Ef þér óskið að ég játi, yðar hágöfgi, þá játa ég, mér má vera sama. Ef þér segið hinsvegar: „Sveyk, ekki j áta neitt“ - þá skal ég snúa mig útúr hverju sem er þang- að til ég verð rifinn í tætlur. Búllinger (öskrar): Haltu kjafti! Burt með hann! Sveyk (kominn frammað dyrum í fylgd Brettsnœders, réttir fram hœgri hönd og segir stundarhátt): Lengi lifi Foringi vor Adolf Hitler. Þessa styrjöld vinnum við! Búllinger (dolfallinn): Ertu fá- bjáni? Sveyk: Tilkynni auðmjúklegast, herra sveitarforingi - já. Ég get ekki að þessu gert, ég var rekinn úr hernum vegna heimsku. Lækna- nefndin sem rannsakaði mig kvað upp þann úrskurð að ég væri fáviti. Búllinger: Brettsnæder! Tókuð þér ekki eftir því að maðurinn er fábjáni? Brettsnæder (sœrður): Herra sveitarforingi, Sveyk talaði í Bik- arnum einsog fábjáni sem hagar ósvífni sinni þannig að ekki sé hægt að sanna neitt á hann. Búllingcr: Og þér eruð þeirrar skoðunar að það sem hann var að segja hér núna áðan séu orð manns með fullu viti? Brettsnæder: Sú skoðun mín er óbreytt, herra Búllinger. En ef þér af einhverjum ástæðum viljið hann ekki þá skal ég fara með hann aft- ur. Ég vildi bara benda yður á að við í leitardeildinni höfum ekki ó- takmarkaðan tíma. Búllinger: Brettsnæder, að mínum dómi eruð þér kúkalabbi. Brettsnæder: Herra sveitarfor- ingi, ég þarf ekki á yðar hjálp að halda tilað vita hver ég er. Búllinger: Og mig langar til að þér viðurkennið það. Það er ekki til mikils mælst og yður liði betur á eftir. Viðurkennið að þér séuð kúkalabbi. Brettsnæder: Ég veit ekki hvað kemur yður til að hafa þetta álitá mér, herra Búllinger, ég er sam- viskusamur embættismaður frammí fingurgóma, ég... Símrödd: Arásarsveit, Krúsja hef- ur lýst sig reiðubúinn til að taka bróður yðar inní Verslunarbank- ann sem meðeiganda en harðneitar að hafa viðhaft umntælin. Búllinger: Tíu í viðbót yfir þjó- hnappana, ég þarf að fá ummælin. (Við Brettsnceder, nœstum biðj- andi). Heyrið mig nú, þetta eru nú engin ósköp sem ég fer frammá við yður. Það særir ekki að neinu leyti sóma yðar þó þér játið þetta, það er eingöngu okkar í milli, þér eruð kúkalabbi, hversvegna ekki að viðurkenna það? Ég sem næstum- þvígrátbið yður? (Við Sveyk). Tala þú um fyrir honum. Sveyk: Tilkynni auðmjúklegast áð ég vil helst ekki blanda mér í deilur herranna þó ég skilji sosum hvað þér meinið, herra sveitarforingi. En þetta er sárt fyrir Brettsnæder sem er svo góður sporhundur og hefur nú ekki unnið til þess ef svo mætti segja. Búllingcr (hryggur): Þú ætlar þá að bregðast mér líka, svínið þitt. „Og haninn gól í þriðja sinn“ eins- og stendur í júðabiblíunni. Brett- snæder, einhverntíma skal ég kreista þetta uppúr yður, en ég má ekki vera að því núna að sinna einkamálum, ég á eftir að afgreiða 97 tilfelli. Fleygið þessum fábjána út og reynið nú einusinni að koma með eitthvað skárra. Sveyk (gengur til Búllingers og kyssir hann á höndina): Guðlaun þúsundfalt. Og ef yður skyldi ein- hverntíma vanhaga um hundkríli þá leitið vinsamlegast til mín. Ég versla með hunda. Búllinger: Fangabúðirnar. (Pegar Brettsnœder ætlar öðru sinni að fara að leiða Sveyk burt). Stopp! Skiljið okkur eftir eina. (Brettsnæder reiður út; SS-maður- inn fer einnig). Símrödd: Árásarsveit, Krúsja er búinn að gangast við ummælunum en bara því að sér standi á sama um banatilræðið, ekki að það gleðji sig og ekki að Foringinn sé trúður, heldur aðeins að hann sé líka bara maður. Búllinger: Fimm til viðbótar þang- aðtil það gleður hann og þapgaðtil Foringinn er blóðþyrstur trúður. (Við Sveyk sem brosir vinalega við honum). Veistu að við slítum af þér Brettsnæder (Baldvin Halldórsson): „Og þér haldiö því semsagt fram að Foringinn ætli að leggja undir sig heiminn? Og þurfi ekki bara að verja Þýskaland fyrir óvinum þess, júðunum og auðvaldsríkjunum." Sveyk (Bessi Bjarnason): „Þér megið ekki taka þetta svoleiðis, hann meinar ekkert illt með þessu. Að leggja undir sig heiminn, það finnst honum bara ósköp hversdagslegt einsog yður finnst að fá yður bjór- glas.." Ljósm.: eik. Sveyk (Bessi Bjarnason): „Herra sveitarfor- ingi, leyfist mérað játaað vottorðiðerektaen að ég var líka að gera að gamni mínu, einspg kráareigandinn í Búdejovitse sem sagði: „Ég er að vísu með niðurfallssýki en ég er líka með krabba“, og ætlaði þannig að breiða yfir það að hann var i rauninni gjaldþrota. Eða einsog máltækið segir: Sjaldan er táfýia að- eins af einni tá“. skankana í fangabúðunum - hvern á fætur öðrum - ef þú verður með einhverja hrekki við okkur, skepnan þín? Sveyk: Það veit ég. Þar er það bara kúla í gegnum hausinn áðuren maður getur talið uppað fjórum. Búllinger: Svo þú ert hundaprang- ari. Ég sá þarna niðrá göngugötu um daginn kynhreinan norrænan fjárhund sem mér leist á, með blett í eyranu. Sveyk (grípur frammí): Tilkynni auðmjúklegast að ég þekki gripinn úr starfi mínu. Það hefur margan manninn langað í hann. Hann er með ljósgráan blett á vinstra eyra, er það ekki, og er eign Vojta ráðu- neytisfulltrúa. Hann er auga- steinninn hans og étur ekki nema hann sé beðinn um það á krjúpandi knjánum og ekkert nema kvið- vöðva af kálfi. Það sannar að hann er af hreinum kynþætti. Kynblend- ingar eru gáfaðri, en þeir kyn- hreinu eru fínni og er frekar stolið. Þeir eru flestir svo heimskir að þeir þurfa tvo til þrjá þjóna sem segja þeim hvenær þeir þurfi að skíta og að þeir verði að opna kjaftinn tilað éta. Það er einsog fína fólkið. Búllinger: Ekki orð meira um kyn- þætti, þrjóturinn þinn. f stuttu máli: ég vil fá þennan hund. Sveyk: Þér getið ekki fengið hann, Vojta selur hann ekki. En hvað segir þér um lögregluhund í stað- inn? Svona hund sem þefar strax allt uppi og rekur slóð glæpsins? Kjötkaupmaður í Virsovitse á svo- leiðis hund og beitir honum fyrir kerruna hjá sér. Þessi hundur hefur lent á rangri hillu einsog sagt er. Búllinger: Ég er búinn að segja þér að ég vil þann norræna. Sveyk: Bara Vojta ráðuneytis- fulltrúi væri gyðingur, þá gætuð þér einfaldlega tekið hundinn og basta. En hann er aríi, með ljóst skegg, ögn rytjulegt. Búllinger (fullur áhuga): Er hann Tékki í húð og hár? Sveyk: Þér skuluð ekki halda að hann vinni skemmdarverk og út- húði Hitler, þá væri nú málið ein- falt. í fangabúðirnar með hann einsog mig, afþví ég var misskilinn. En hann er samstarfsmaður og meirasegja farið að kalla hann kvisling, það er fjandans ólán uppá hundinn að gera. Búllinger (dregur skammbyssu uppúr skúffunni og fer að hreinsa hana með ögrandi tilburðum): Ég sé þú ætlar ekki að útvega mér hundinn, spellvirkinn þinn. Sveyk: Tilkynni auðmjúklegast að ég skal útvega yður hundinn. En ef það yrði nú farið að spyrja yður útí hvar þér hafið fengið hann, þegar bletturinn sést á eyranu á honum? Búllinger: Ég held ekki að ég verði spurður hvar ég hafi fengið hund- inn minn. (Hann hringir bjöllu). Sveyk: Það er kannski rétt hjá yður, það býst enginn við að hafa neitt uppúr því. Búllinger: Og ég held þú hafir ver- ið að gera gys að okkur með sög- unni um fávitavottorðið; en ég ætfa samt að hlífa þér, af því í fyrsta lagi að Brettsnæder er kúkalabbi og í öðru lagi ef þú kemur með hundinn handa konunni minni, glæpafant- urinn þinn. Sveyk: Herra sveitarforingi, leyf- ist mér að játa að vottorðið er ekta en að ég var líka að gera að gamni mínu, einsog kráreigandinn í Bú- dejovitse sem sagði: „Ég er að vísu með niðurfallssýki en ég er líka með krabba“, og ætlaði þannig að breiða yfir það að hann var í raun- inni gjaldþrota. Eða einsog mál- tækið segir: Sjaldan er táfýla að- eins af einni tá. Símrödd: Árásarsveit 4. Múdra krambúðarkerling neitar að hafa brotið ákvæðin um að opna ekki verslanir fyrir klukkan 9 á morgn- ana og segist meirasegja ekki hafa opnað sína búð fyrren klukkan 10. Búllinger: í steininn með hana lygatæfuna í nokkra mánuði fyrir að halda ákvæðin of stíft! (Við SS- manninn sem kominn er inn og bendir um leið á Sveyk). Laus í bili! Sveyk: Áðuren ég kveð endanlega langar mig að tala máli eins manns sem bíður fyrir utan innan urn hina fangana og mælast til að hann þurfi ekki að sitja með þeim, hann kærír sig ekkert um að á sig falli grunur vegna þess að hann situr á sama bekk og við þessir pólitísku. Hann er hér bara vegna þess að hann reyndi að ræna og myrða bónda frá Holitse. Búllinger (öskrar): Út! Sveyk (hnarreistur): Til þénustu! Ég kem með hundinn um leið og ég næ honum. Gangi yður allt í hag- inn. (Ut ásamt SS-manninum). E © '3 oi m — £L *>«§ Q> 3 > z ■*-* c (ö V>» * w „Spurnlngin hljóðar: Skíturðu hórðu eða linu?“ Sveyk: Tilkynni auðmjúklegast, herra sveitar - foringi, ég skít einsog þér óskið.“ „Ekki orð meira um kynþætti, þrjóturlnn þinn. f stuttu máli: ég vil fá þennan hund.“ Ljósm.: eik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.