Þjóðviljinn - 04.02.1984, Blaðsíða 13
Helgin 4.-5. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Búnaðarbankamótið í skák:
Helgi erefstur
Pia missti af vinningi í tímahraki
Rauður:
þríhymingur
= Viðvörun
Gera aukaverkanir lyfsins
sem þú tekur þig hættulegan
í umferðinni?
yUMFERÐAR
RÁD
Tímahrak var einkennandi
fyrir sjöttu umferð Búnaðar-
bankaskákmótsins. Síðustu
mínúturnar í mótinu minntu
satt að segja meira á hraðskákir
en kappskákir. Þannig átti Jón
Kristinsson aðeins sex mínútur
eftir af tíma sínum í skák sinni
við Helga Ólafsson, til að leika
tíu leiki.
DeFirmian lenti í svipuðu
tímahraki í skák sinni við Piu
Cramling og var asin á honum
svo mikill að hann hafði ekki
tíma til að skrifa niður leikina
hvað þá meira. Pia var einnig í
nokkru tímahraki og sást henni
yfir vinningsleið í óðagotinu.
Áhorfendur þyrptust að þeim
Piu og DeFirmian líkt og járn
að segulstáli enda lék De-
Firmian eins og hann ætti lífið
að leysa síðustu mínútuna og
tókst honum að ná fjörutíu
leikja markinu á síðustu
stundu. Biðskák þeirra er mjög
tvísýn' en hún verður tefld á
morgun.
Jóhann Hjartarson lenti
einnig í tímahraki í skák sini við
L. Shamkovich en náði þó
Biðstöðurnar
úr 6. umferð
Skák nr. 1) Hvítt: Pia Cramling.
Svart: DeFirmian. Hvítur lék bið-
leik.
fjörutíu leikja markinu en staða
hans er þó nokkru lakari.
Sitthvað gekk á í skák Mar-
geirs Péturssonar við Lev Al-
burt en hún fór í bið. Alburt á
þrjú peð gegn biskup hjá Marg-
eiri og líkur eru á jafntefli.
Skák Jóns Kristinssonar og
Helga var mjög jöfn en Jón lék
af sér í miklu tímahraki. Hann
átti eftir þrjá leiki en átti innan
við hálfa mínútu eftir af tíma
sínum þegar hann gaf.
Jón L. Árnason og Guð-
mundur Sigurjónsson sömdu
jafntefli án þess að lenda í tíma-
hraki merkilegt nokk. Einnig
sömdu Sævar Bjarnason og
Knezevic jafntefli.
Staðan í mótinu að loknum
sex umferðum, er þá þessi: í ef-
sta sæti er Helgi Ólafsson með
fjóra vinninga, í öðru sæti er Pia
Cramling með þrjá og hálfan
vinning og tvísýna biðskák, í
þriðja sæti er Knezevié með
þrjá og hálfan vinning, í fjórða
til sjötta sæti eru þeir: Jóhann
Hjartarson, DeFirmian og
Margeir Pétursson allir með
þrjá vinninga og biðskák. í sjö-
unda sæti er Guðmundur Sigur-
jónsson með þrjá vinninga, í
áttunda sæti Samkovich með
tvo og hálfan vinning og bið-
skák, í níunda sæti Jón L. með
tvo og hálfan vinning, tíunda
sæti Sævar Bjarnason með tvo
vinninga, í ellefta Lev Alburt
með einn og hálfan vinning og
biðskák og í tólfta Jón Kristins-
son með einn og hálfan vinning.
Biðskákirnar verða tefldarj
dag,laugardag.
Á sunnudaginn verður tefld
sjöunda umferð að Hótel Hofi
kl. 14.00. Skák þeirra Piu
Cramling og Helga Ólafssonar
vekur líklega mesta athygli.
Aðrar skákir eru: Knezevic -
DeFirmian, Shamkovich -
Sævar, - Jóhann - Jón L., Al-
burt - Jón Kr., Guðmundur -
Margeir. HHjv/HBA
Skák nr. 2) Hvítt: L. Shamkovich.
Svart: Jóhann Hjartarson. Svartur
lék biðleik.
Skák nr. 3) Hvítt: Margeir Péturs-
son. Svart: L. Alburt. Svartur lék
biðleik.
Svart-hvít Ijósmyndaþjónusta sf.
Auóbrekku 14,200 Kópavogi,
P.O. Box301, Sími 46919
Bilasýning
í dag *kl. 10-5 **
Nýir og notadir bílar til sýnis og sölu
sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti
(könnun verðlagsráðs) og ekki síst fyrir hátt endursöluverð.
Nú hefur útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd,
stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og
endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Verð við birtingu auglýsingar kr.
199.500.-
Bifreiðar &
Sifelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36
VERÐLISTI
Lada 1300 .........163.500.00
Lada 1300 SAFÍR ...183.000.00
Lada 1200 station .175.500.00
Lada 1500 station .196.500.00
Lada 1600 .........206.000.00
Lada SPORT 4x4 ....294.000.00
IJ 2715 sendibíll .109.500.00
UAZ 452 frambyggður 298.100.00
UAZ 452 m/S-kvöð ....234.100.00