Þjóðviljinn - 15.02.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 15.02.1984, Blaðsíða 5
Samvinnuferðir-Landsýn Miðvikudagur 15. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Fjölbreyttar sumarferðir Samvinnuferðir-Landsýn bjóða í sumar allar ferðir á lægra eða óbreyttu verði frá því í fyrrasumar og nemur verðlækkunin allt að 13%. A fréttamannafundi í gær kom fram að ástæður þessa væru einkum hagstæðir samningar er- lendis og afnám ferðamannaskatts á gjaldeyri. Ferðaskrifstofan Samvinnuferð- ir-Landsýn mun áfram skipuleggja hinar vinsælu ferðir til Rimini, sumarhúsa í Danmörku, sæluhúsa í Hollandi, Grikklands, Júgóslavíu, Kanada, Sovétríkjanna og fleiri landa. Við bætast svo ýmsar nýj- ungar og má þar nefna sæluhús í Kempervennen í Hollandi, Du- brovnik í Júgóslavíu auk þess sem aukin áhersla er lögð á þjónustu við þá sem kaupa „flug og bíl“ pakka um Evrópu. Sumarbæklingur Samvinnu- ferða-Landsýnar kom út í gær og fæst hann afhentur á skrifstofu Margs konar bæklingar og leiðsögurit liggja frammi hjá afgreiðslufólki Samvinnuferða-Landsýnar og því auðvelt að skipuleggja sumarferðina í ár. fyrirtækisins við Austurstræti í Reykjavík svo og hjá umboðs- mönnum víða um land. Með bækl- ingnum er að þessu sinni dreift sér- stöku ferðahappdrættisdagatali og eru vinningar hinir veglegustu, ferðir með alla fjölskylduna til fjöl- sóttra ferðamannastaða víða um Evrópu. Á skrifstofunni í Reykja- vík er hægt að fá lánaða 22 mínútna langa kynningarmynd á vídeóspól- um gegn 300 króna tryggingu sem síðan fæst endurgreidd er spólunni er skilað. - v. Finnlandskynn- ing hjá BSRB Ferðanefnd Bandalags starfs- manna ríkis og bæja skipuleggur leiguflug til Helsinki 30. júní - 16. júlí í sumar. Þátttakendum gefst kostur á mismunandi ferðatil- högun á mjög hagstæðum kjörum. Fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.30 verður haldin Finnlandskynning í húsakynnum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja að Grettisgötu 89. Þar verður sýnd kvikmynd, land og þjóð verð- ur kynnt og lýst ferðaáætlunum og gistiaðstöðu. Einnig gefst tækifæri til þess að panta í ferðirnar. Náttsöngur í Hallgrímskirkju:_ Pétur Jónasson spilar og telur þá eðlilegan þátt í lagfær- ingu lífskjara lágtekjufólks en slík- ir styrkir hafa lengi tíðkast í öllum nálægum löndum. Fundurinn bendir á að húsaleiga hefur ekki lækkað til samræmis við laun, en sumsstaðar hækkað þrátt fyrir kjaraskerðinguna. Nauðsynlegt er því að setja lög um ákvörðun leigugjalds og almennan heimilis- rétt sem tryggir leigjendum þau grundvallarmannréttindi að geta búið í öruggu húsnæði. Fundurinn fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á lögum um húsaleigusamninga og væntir samþykkis þess með áorðnum breytingartillögum Leigjendasam- takanna. Þá telur fundurinn að endurskoða þurfi ný lög um Húsn- æðisstofnun og allt húsnæðiskerfið í heild, þar sem verðtrygging húsn- æðislána og breytt kjör kalli á nýja húsnæðisstefnu. “ Frá aðalfundi Leigjendasamtakanna: Húsaleiga hefur ekki lækkað til samræmis við launin Á aðalfundi Leigjendasamtak- samþykktar tvær ályktanir, sem anna um síðustu mánaðamót voru birtast hér á síðunni. Skorað á stjórnvöld að styrkja Aðalfundur Leigjendasamtak- anna haldinn að Hótel Borg 28. jan. 1984 fagnar þeim undirtektum sem húsnæðissamvinnufélagið Búseti hefur hlotið hjá almenningi. Þær undirtektir sýna í skýru ljósi, hvernig ástand húsnæðismála er hér á landi og hvaða leið fólkið vill fara til að leysa húsnæðisvanda sinn til frambúðar. Fundurinn vek- ur sérstaka athygli á því að slík samvinnufélög hafa lengi starfað í flestum eða öllum nálægum löndum og gegnt þar mikilvægu hlutverki við lausn húsnæðismála, enda hugmyndin þangað sótt, en þess sérstaklega gætt við undirbún- ing félagsstofnunarinnar að félagið tæki tillit til íslenskra aðstæðna m.a. með því að samræma lög þess gildandi lögum um samvinnufélög. Stofnun Búseta hefur vakið upp Búseta áhuga víða um land og er stofnun fleiri húsnæðissamvinnufélaga í undirbúningi. Hér er því um að ræða öfluga félagslega hreyfingu sem Leigjendasamtökin hafa hrundið af stað þar sem lausn hús- næðisvandans er í sjónmáli, fái þessi hreyfing þann stuðning sem til þarf. Skorar fundurinn á stjórnvöld að styrkja hina nýju húsnæðishreyf- ingu og tryggja henni fjármagn og annan stuðning sem til þarf svo hún nái því markmiði sínu að leysa húsnæðisvandamál landsmanna til frambúðar. Af sérstöku tilefni vill fundurinn mótmæla fullyrðingum sem fram hafa komið þess efnis að húsnæðis- samvinnufélög séu ekki félagsleg lausn. „Aðalfundur Leigjendasamtak- anna haldinn að Hótel Borg 28. 1. ’84 skorar á stjórnvöld að ráða bót á því alvarlega ástandi sem ríkir í húsnæðismálum leigjenda hér á landi. Nauðsynlegt er að koma í framkvæmd húsnæðismálastefnu, þar sem gætt er hagsmuna leigjenda ekki síður en húseigenda og húsbyggjenda. Ljóst er að leigjendur hér á landi eru að stór- um hluta lágtekjufólk sem hefur orðið hart úti nú vegna efna- hagsráðstafana stjórnvalda á síðast liðnu ári. Enn má benda á að fjöldi íbúð- areigenda eignaðist íbúðir sínar og annað húsnæði með verðbólgu- styrkjum og skattaafslætti, meðan leigjendur greiddu sinn húsnæðis- kostnað óstuddir. Lýsir fundir yfir stuðningi við tillögur forystu- manna BSRB um húsaleigustyrki í kvöld, miðvikudaginn 15. febrúar, verður haldinn Náttsöngur í Hall- grímskirkju á vegum Listvinafélags kirkjunnar. Hinn góðkunni gítar- leikari Pétur Jónasson leikur þar lútusvítu nr. 1 í e-moll eftir Jóhann Sebastian Bach. Náttsöngurinn hefst kl. 22 í kvöld og er öllum opinn. Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.