Þjóðviljinn - 15.02.1984, Qupperneq 7
Migvikudagur 15. febrúar 1984'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
11. Reykjavíkurskákmótið.
Skákskýringar: Helgi Ólafsson. Texti: -Sdór.
Rússabaninn snýr aftur
Benoný Benónýsson svo sannarlega maður kvöldsins eftir jafnteflið við Balashov -
Sævar Bjarnason sneri á hinn frœga Efemi Geller og á drottningu á móti hrók í biðskákinni
19/xi\84
REYKJAVÍKUR
/SKÁKMÓTIÐXl
Rússabaninn snýr aftur, sögðu
menn á Loftleiðahótelinu í gær eftir
að gamia kempan Benóný Benónýs-
son hafði náð jafntefli gegn einum
sterkasta skákmanni heims í dag,
sjálfum Baiashov. Skýringuna á
„Rússabananum“ skulu menn iesa í
skákskýringum Heiga Olafssonar
hér á síðunni. „Nei, þetta var nú
ekkert mjög erfitt, þótti þér ég ekki
vera með væniega stöðu þarna um
tíma?, það leit vei út hjá mér þá. En
svo þegar hann bauð jafntefli þáði
ég það“, sagði Benoný eftir unnið
afrek, þegar fréttamaður Þjóðvilj-
ans ræddi stuttlega við hann, en
Benoný var umsetinn, margir
þurftu að taka í hönd hans.
Þá má ekki gleyma Sævari
Bjarnasyni, sem stóð sig frábær-
lega vel gegn þeim fræga stór-
meistara Efemi Geller. Þegar skák
þeirra fór í bið hafði Sævar drottn-
ingu á móti hrók, en staða Gellers
er samt ekki töpuð, um það voru
allir sammála.
Annars stóðu íslendingarnir sig
vel. Það var vel gert hjá Róberti
Harðarsyni þegar hann lagði hol-
lenska stórmeistarann Ree í 27
leikjum, skákin var gullfalleg frá
hendi Róberts. Friðrik Ólafsson
sýndi gamla góða takta, lenti í
botnlausu tímahraki en vann á
mjög fallegan hátt Þjóðverjann
Meyer. Um tíma hélt maður að
Friðrik væri að falla á tíma, en svo
eins og vant er í tímahrakinu sneri
Skákir dagsins
„Gerði þessi náungi jafntefli? Eg trúi
því ekki“. Larry Christiansen banda-
rískur stórmeistari, einn sá
allrasterkasti í landi sínu, mælti þessi
orð og það áreiðanlega fyrir alla við-
stadda að Hótel Loftleiðum. Benoný
Benediktsson, gamli hafnarverkamað-
urinn, orðinn 66 ára gamall vann
eitthvert eftirminnilegasta skákafrek
síðustu ára þegar hann gerði jafntefli
við hinn ægisterka sovéska stórmeista-
rann Yuri Balashov. Balashov þessi
hefur um langt skeið verið í hópi sterk-
ustu skákmanna veraldar, liðsmaður í
Olympíusveit Sovétmanna og dyggasti
aðstoðarmaður Anatolys Karpovs
heimsmeistara í skák. Skák þeirra fer
hér á eftir. Liggur við að hún sé jafn
ótrúleg og úrslitin sjálf, því svo furðuleg
er taflmennska Benonýs. Við hljótum
að minnast þess þegar þeir kappar Ilie-
vitskí og Taimanov sátu ándspænis Be-
noný fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi síðar.
Þeim skákum lauk með jafntefli, en nú
hefur gamla kempan bætt um betur:
Hvítt: Yuri Balashov.
Svart: Benoný Benediktsson.
Spænskur leikur á Benónýska vísu
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Df6
(Þótt skrítinn sé, þá hefur þessi leikur
sést áður og hann hefur slæmt orð á sér.
En lítið á næsta leik).
4. c3 g5??!
(Eftirlætisleikur Benónýs í öllum stöð-
um!)
5. d4 h6 9- °-° Bc7
6. Bxc6 Dxc6 1°- Hfc' Rf6
7. Rbd2 exd4 fl- R2Í3 0-0
8. Rxd4 Dg6 12- Rfs Bd8
(Ekki verður sagt að svarta staðan sé
fögur. En Benóný er j afnan úrræðagóð-
ur þegar þannig stendur, vanur að fást
við viðsjárverðar stöður).
13. h4 d6 16. exf5 Dxf5
14. hxg5 hxg5 17. Dd4 Kg7
15. Bxg5 Bxf5 18. He3
(Nú virðast öll spjót standa að Benóný
en hann finnur kynngimagnaðan varn-
arleik sem er færir Balashov ýmis erfið
verkefni).
18. ... c5! 20. Bxd8 Rxe3
19. Dxd6 Rg4! 21 • Bc7 RS4
(Þetta er nokkuð lúmskur riddari svo
sem framhaldið leiðir í ljós.)
22. Bxf8+ HxfS
23. Hel Hh8
24. De7?
(Hér misstígur Balashov sig. Hann
hefði átt aðreyna24. Dg3t.d. 24. -Dh5
25. Kfl með hótuninni 26. Rh2)
24. ... Hh5!
(Kemur í veg fyrir 25. Dg5+ og hótar
jafnframt 25. - Dh7).
25. He4
(Ég er ekki viss um að Balashov eigi
betri leik en þennan. 25. De4 er hreint
hroðalegt vegna 25. - Hhl +! og drottn-
ingin fellur).
abcdefgh
25. ... Hhl+!
(Sennilega enn sterkara en 25. - Dxe4
26. Dxe4 Hhl+ 27. Kxhl Rxf2 og þó
riddaraendataflið sé jafnteflislegt verð-
ur að hafa það í huga að Benóný var
orðinn tímanaumur og ýmsar hættur
gætu orðið á vegi hans fram að 45 Ieikja
markinu). _____
26. Kxhl Rxf2+ 79' Dd5 Dc3+
27. Kgl Rxc4 30- Kh2
28. Dxb7 Df4!
„Remi“, sagði Balashov um leið og
hann lék þessum leik og það þýðir
jafnteflistilboð sem Benóný að sjálf-
sögðu þáði enda býður staðan ekki upp
á annað en þráskák.
Skák Sævars Bjarnason við Efem
Geller einn fremsta skákmann Sovétr-
fkjanna um langt árabil var æsispenn-
andi enda setti gífurlegt tímahrak svip á
taflmennsku sem og ýmsar aðrar skákir
þessarar umferðar. Sævar hafði í fullu
tré við andstæðing sinn og virðist ekki
þurfa að kvart í biðstöðunni. Hann hef-
ur unnið drottningu Gellers fyrir hrók
og tvö peð og hlýtur því að hafa góða
vinningsmöguleika þó óneitanlega sé
staða Gellers föst fvrir.
Úrslit úr
1. umferð
Úrslitin úr 1. umferð 11. Reykja-
víkurskákmótsins í gærkveldi urðu
sem hér segir:
Sævar Bjarnason - E. Geller Bið
L. Christiansen - Karl Þorsteins Vi-
Vi
Balashov - Benoný Benediktsson Vz
- Vz
R. Byrne - J. Hector 1:0
L. Alburt - Elvar Guðmundsson 1:0
Chandler - Taylor Bið
Dan Hansson - deFirmian 0:1
fón L. Árnason - K. Burger Vz - Vz
Friðrik Ólafsson - H. Meyer 1:0
M. Nykopp - T. Wedberg Bið
Róbert Harðarson - H. Ree 1:0
Bragi Kristjánss. - Guðmundur Sig-
urjónss. 0:1
Ágúst Karlsson - V. McCambridge
1:0
Leifur Jósteinss. - Margeir Péturss.
0:1
S. Reshevsky - Magnús Sólmundar-
son 1:0
Ásgeir Þ. Árnason - P. Ostermeyer
Bið
M. Knezevic - Guðmundur Hall-
dórsson 1:0
Bragi Halldórsson - L. Shamkovic
Bið
Helgi Ólafsson - Þröstur Bergmann
1:0
K. Tielemann - H. Schussler 0:1
L. Schneider - Arnór Björnsson Bið
King - Hilmar Karlsson Bið
Haraldur Haraidss. - Jóhann Hjart-
arson 0:1
Gylfi Þórhallsson - Pía Cramling
Bið
A. Ornstein - Benedikt Jónasson
Bið
C. Höi - Björgvin Jónsson Bið
V. Zaltsmann - HalldórG. Einarss.
1:0
Pálmi Pétursson - Haukur Angan-
týss. Bið
E. Lobran - Lárus Jóhannesson 1:0
Andrés Áss - Gutmann Bið
Biðskákirverðatefldarkl. 13.00 í
dag en 2. umferð hefst kl. 17.00 að
Hótel Loftleiðum. -S.dór.
hann á andstæðing sinn og vann
mjög fallega.
Það var vissulega spenna í mörg-
um skákum, eins og svo oft þegar
teflt er eftir Monrad-kerfinu,
jafnteflin duga stutt í því kerfi og
þess vegna tefla menn kannski
djarfara en í lokuðum mótum, þar
sem allir tefla við alla. Vegna þessa
lentu margir í tímahraki og aldrei
er meira gaman fyrir áhorfendur að
fylgjast með en þegar skákmenn
tefla undir tímapressu. Ef svo
heldur fram sem horfir, þá má
vissulega búast við mörgum
skemmtilegum skákum á þessu
móti.
- S.dór.
E E.Gelter
Mtttf *****
j
B -
1 i æ | i
brnÁt^', -
Sævar Bjarnason og Geller við upphaf skákar sinnar í gær. Hún fór í bið og stendur Sævar betur, með
drottningu á móti hrók, en samt er staða Gellers ekki töpuð, þar sem hann hefur tvö frípeð. Að baki þeirra
sést í Robert Byrne t.v. og J. Hector. Sá fyrrnefndi vann í gærkveldi. (Ljósm.:- eik).
Samvinnubankinn á Selfossi
mun frá og með fimmtudeginum 16. febrúar nk.
auka við þjónustusvið sitt og sjá um kaup og sölu
á ferða- og námsmannagjaldeyri.
Þar verður einnig hægt að stofna innlenda
gjaldeyrisreikninga auk þess sem útibúið veitir
alla þjónustu varðandi VISA-greiðslukort.
ERLEND
\TÐS