Þjóðviljinn - 15.02.1984, Qupperneq 16
DWDVIUINN
Miðvikudagur 15. febrúar 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starlsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægtað ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Athugasemdir 350 einstaklinga í 38 bréfum
varðandi nýja Skúlagötuskipulagið:
Að engu hafðar
Á fímmtudaginn kemur verður
hækkað nýtingarhlutfall á svo-
kölluðu Skúlagötusvæði tekið fyrir
í borgarstjórn Reykjavíkur í annað
sinn en borgarverkfræðingur hefur
svarað athugasemdum í 38 bréfum
sem 347 einstaklingar hafa skrifað
undir með því einu að þær séu að
engu hafandi. íbúasamtök Skugga-
hverfis ásamt þremur öðrum íbúa-
samtökum í gamla bænum boðuðu
til blaðamannafundar í gær og
sögðu forsvarsmenn þeirra m.a. að
það væri mikið áfall fyrir íbúa
Skuggahverfis að álit þeirra skipti
engu máli.
Forsvarsmenn íbúasamtakanna
sögðu að þeir hefðu boðið borgar-
yfirvöldum fram aðstoð sína til
samstarfs um að skapa gott og
manneskjulegt hverfi en hefðu
ekki fengið nein viðbrögð frá borg-
arstjórn en þess í stað verið hunds-
aðir algerlega. Hverfi með nýting-
arhlutfallið 2, sem nú á að sam-
þykkja, þýðir þéttriðið net háhýsa
á svæðinu en um allan heim er nú
verið að hverfa frá slíku sem æski-
legri íbúabyggð.
Stjórn íbúasamtaka Skugga-
hverfis hefur nú ritað borgarstjórn
áskorun um að fresta afgreiðslu
þesara skipulagsbreytinga til borg-
arafundar og leyfa um það al-
menna umræðu áður en hrapað
verður að því óráði sem þau telja
hér vera stefnt í.
Þess skal að lokum getið að
meirihluti borgarráðs samþykkti
skipulagsbreytinguna í gær og ef
borgarstjórn samþykkir hana á
fimmtudag á einungis skipuiags-
stjóri eftir að staðfesta hana sem
lög. Það er ennfremur athyglisvert
að borgarverkfræðingur, einn af
höfundum skipulagsbreytingarinn-
ar, skuli svara þolendum breyting-
anna en ekki borgarskipulag eins
og eðlilegt væri.
- GFr.
Trúnaðarskýrslan og Morgunblaðið:
Davíð Oddsson borgarstjóri leikur fyrsta leikinn, Davíð fjóra, á Reykja-
víkurskákmótinu í gær. Friðrik Ólafsson kímir. (Sjá skákfréttir á bls. 7).
(Ljósm.: -eik).
Ekki leki úr
ráðuneytinu
sagði utanríkisráðherra og formaður Arvakurs
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra og formaður útgáfustjórnar
Morgunblaðsins sér enga ástæðu til
aðgerða vegna birtingar blaðsins á
glefsum úr trúnaðarskýrslu sem
þrír fulltrúar íslands á þingi SÞ
1972 sendu utanríkisráðuneytinu
það ár. Engin rannsókn hefur farið
fram á því hvernig skýrslan komst í
hendur Morgunblaðsmanna og
sagði ráðherrann á alþingi í gær að
blaðið neitaði að gefa upp hvaðan
hún væri komin. Engu að síður
- Meistarar þverneituðu enn og
aftur að greiða lágmarkslaunin
10.961 krónu, sagði Olafur Jónas-
son formaður Kjaranefndar Iðn-
nemasambands íslands er Þjóðvilj-
inn leitaði fregna af viðbrögðum
Hárgreiðslumeistarafélags íslands
við ítrekuðum kröfum iðnnema um
að meistarar greiddu lágmarks-
laun. Þjóðviljinn greindi á dögun-
um frá ályktun Félags hárgreiðslu-
og hárskeranema, þar sem sagði
frá því að iðnnemar í hárgreiðslu
fullyrti ráðherrann að hún hefði
ekki lekið út úr ráðuneyti sínu.
Miklar umræöur spunnust um
vörslu trúnaðarskjala
utanríkisráðuneytisins í sameinuðu
þingi í gær vegna fyrirspurna Stef-
áns Benediktssonar um þetta mál.
Átöldu þingmenn ráðherra fyrir
léttúð í meðferð málsins og lagði
fyrirspyrjandi áherslu á að svo al-
varlegt mál krefðist rannsóknar og
þess að menn yrðu dregnir til
ábyrgðar.
fái ekki einu sinni greidd lágmarks-
launin, þrátt fyrir heildarsamninga
ASÍ og VSÍ þar um.
- Á mánudaginn fjölmenntu
meistarar á „samningafund" með
okkur, en þeir reyndust ekki reiðu-
búnir til neinna samninga um að
þeir greiddu lágmarkslaunin.
- EinsogJcunnugt er höfum við
iðnnemar ekki verkfallsrétt, svo
við verðum að leita annarra ráða.
Við höfum mörg ráð í pokahorn-
Hjörleifur Guttormsson sagðist
hafa óskað eftir þvi í utanríkis-
málanefnd að ráðuneytið aflétti
trúnaði af skýrslunni, þannig að
hún mætti koma fyrir almennings-
sjónir í heilu lagi og ítrekaði hann
þá ósk sína í umræðunum í gær.
Geír- Hallgrímsson taldi það híns
vegar ekki í verkahring ráðuneytis-
ins að aflétta trúnaðinum; það væri
hlutverk skýrsluhöfunda. Geir
sagði að skýrslan bæri það með sér
að hún væri fjölrituð og hefði hún
inu. Það gengur auðvitað ekki að
nær 200 manns fái ekki einu sinni
greidd lágmarkslaun. Lágmarks-
launin eru nú ekki há, nægja
a.m.k. ekki til framfærslu hjá fjöl-
skyldufólki.
- Hárgreiðslunemar eru eini
hópur launamanna sem ekki fá
einu sinni greidd lágmarkslaunin.
Við það verður ekki unað lengur,
sagði Ólafur Jónasson formaður
Kjaranefndar INSÍ að lokum.
-óg.
því farið um margra hendur. Trú-
legast væri að úr slíkum höndum
hefði hún borist Morgunblaðinu en
ekki lekið út úr ráðuneytinu.
Páll Pétursson sagðist ekki koma
því heim og saman að skýrsluhöf-
undar hefðu merkt plaggið sem
trúnaðarmál og síðan komið því í
hendur Morgunblaðsins til birting-
ar, en slíkt fælist í orðum ráðherra.
Ólafur Þórðarson sagði að sá einn
sem vissi hvernig skýrslan hefði
komist í hendur Morgunblaðsins
gæti fullyrt að hún væri ekki þang-
að komin frá utanríkisráðu-
neytinu. Sighvatur Björgvinsson
spurði ráðherra hvort fleiri skýrsl-
ur frá sömu mönnum væru til í
ráðuneytinu, - hann hefði grun um
að svo væri. Ráðherrann sagðist
ekki vita til þess en það yrði kann-
að.
-ÁI.
Rokk-
Rokk-
Rokk
Rokkhátíð hefst að nýju
veitingahúsinu Broadway nú um
helgina. Hún tókst með eindæmum
vel á síðastliðnu ári. Rokkararnir
tóku sig vel út á sviðinu í Broadway
í fyrra þegar þeir sungu gömlu
rokklögin.
Æfingar hafa staðið á þriðju
viku. Af þeim að dæma er góð sýn-
ing á ferðinni. Þeir sem koma fram
eru eftirtaldir: Guðbergur
Auðunsson, Sigurður Johnnie,
Sigurdór Sigurdórsson, Mjöll
Hólm, Einar Júlíusson, Stefán
Jónsson, Þorsteinn Eggertsson,
Engilbert Jensen, Garðar Guð-
mundsson, Astrid Jensen og Berti
Möller. Stefán Stefánsson mun
þenja baritón saxófón ásamt blás-
urum sveitarinnar. Dansflokkur
Sóleyjar mun dansa af hjartans list.
Allskyns uppákomur munu gera
sýninguna sem fjölbreyttasta og
verður ljúffengur kvöldverður á
boðstólum á þessari rökkhátíð.
Flugleiðir og Broadway munu gera
fólki úti á landsbyggðinni kleift að
komast í Broadway. Upplýsingar
veitir Björgvin Halldórsson í
símum 77500 og 687370. J.R.
Meistarar neita enn!
Samkeppni
um
Arnarhól
Borgarráð samþykkti í gær til-
lögu Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra um að haldin skuli tveggja
þrepa skipulagssamkeppni um
Arnarhólinn og nánasta umhverfi
Seðlabankans.
í tveggja þrepa samkeppni felst
að nokkrum tillöguhöfundum úr
fyrra þrepi er gefinn kostur á að
útfæra tillögur sínar nánar, e.t.v.
samkvæmt breyttum forsendum í
síðara þrepi. Þessi tillaga borgar-
stjóra hefur hvorki verið rædd í
skipulagsnefnd né umhverfismála-
ráði en hún var samþykkt sam-
hljóða á fundi borgarráðs í gær;
Lárus Jónsson beið lœgri hlut í bankaráði Búnaðarbankans
fyrir forystuna“
„Þetta er mikið áfall fyrir hina
nýju forystu Sjálfstæðisflokks-
ins“, sagði einn af þingmönnum
Framsóknarflokksins, sem mikið
hefur komið við sögu
bankastjóramála í Búnaðarbank-
anum, í gær, „en besta lausnin
fyrir bankann“. í gær var Jón
Ádólf Guðjór.sson aðstoðar-
bankastjóri ráðinn bankastjóri í
stað Magnúsar heitins Jónssonar
með atkvæðum Stefáns Valgeirs-
sonar Framsóknarflokki, Helga
Seljan Alþýðubandalagi og
Hauks Helgasonar Alþýðuflokki
gegn atkvæðum tveggja fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í banka-
ráðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn taldi sig
eiga bankastjóraembættið og
vildi setja Lárus Jónsson alþingis-
mann og formann fjárveitingar-
nefndar niður í bankanum. í
fyrrakvöld var allt útlit fyrir að
tekist hefði að tryggja stuðning
Alþýðuflokksins við þá ráðstöfun
og byggðist frétt Þjóðviljans í gær
á þeim tíðindum.
Jón Baldvin Hannibalsson al-
þingismaður og Sighvatur Björg-
vinsson, sem nú situr á þingi sem
varamaður, höfðu samið við for-
ystu Sjálfstæðisflokksins um að
Haukur Helgason, fulltrúi Al-
þýðuflokksins í bankaráðinu,
greiddi Lárusi atkvæði sitt, en
þegar til kom reyndust þeir ekki
hafa þingflokkssamþykkt eða
þingflokksfund að baki sínum
samningum. Kjartan Jóhannsson
kvað uppúr um, að Haukur
Helgason hefði lokaorðin í þess-
um efnum og stóð hann fast við
áður yfirlýsta afstöðu sína í
bankaráði.
Jón Adólf Guðjónsson er 44
ára viðskiptafræðingur. Hann
hóf störf í Búnaðarbanka íslands
árið 1970 sem forstöðumaður
hagdeildar bankans. Hann var
ráðinn aðstoðarbankastjóri 1977.
- ekh.