Þjóðviljinn - 25.02.1984, Síða 4

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Síða 4
4 SÍ»4 - ÞJÓPVILJI^ iHelgji} 2^,-^ febrúar Mari Kollansrud, formaður norsku fornminjasamtakanna: Þegar forhertur piparsveinn hrósar happi yfir því, að hann sé orðinn öruggur gegn öllum ást- arfreistingum, sökum tœmandi þekkingar sinnar á kvenþjóð- inni, á hann það mest á hœttu, að verða leiksoppur draumblíðrar, sextán ára meyjar. Walter Pulitzer. Þeir sem hafa rétt Fjalakettinum gætum við tapað í Noregi, en Skúlagatan yrði ekki framkvæmd vilja fyrir á neinu hinna Norðurlandanna! „Tak áður eyðist, unaðar rós!“ Jón Þorláksson á Bægisá (1744-1819) var höfuðskáld sinnar tíðar og mikill Ijóðaþýðandi. Hér eru sýnishorn af þýðingum hans. Ástarlýsing Hver, sem ást til annars ber, undir þann sig gefur; hinn, sem boðin elskan er, yfirráðin hefur. Hver, sem ást til annars ber, undir gengst að líða; þeir, sem boðin elskan er, álögurnar smíða. (úr latínu) Hver var eg Hver var eg þegar upp hófst öld sem út nú fló? ekkert, sem skapast átti þó. Hver verð eg þegar út fer öld sem upp hefst nú? Guð, minn skapari, það veist þú! (úr latxnu) Viðkvæði Líf svo ei leiðist, lífsvorið glaðvært kjós! Tak, áður eyðist, unaðarrós! (úr dönsku) Svona leit Kirkjustræti í Reykjavík út í byrjun aldarinnar. Enn standa að sjálfsögðu Dóm- kirkjan og Alþingis- húsið og einnig tvö timburhús, hið fjórða og fimmta frá hægri. Fógetagarðurinn til vinstri. friða sér „Það er ekki auðvelt að vera að koma hingað í fyrsta sinn, stoppa nokkra daga og eiga svo að svara svona spurningum. Ég verð samt að segja að ég held að hvergi á Norðurlöndum myndu menn framkvæma þetta svo- kallaða Skúlagötuskipulag ídag. Það er ekki aðeins að þar muni hverfa mörg og sögulega stórhýsi, tengd atvinnu- sögu landsins, heldur mun svipmynd bæjarins breytast stórkostlegatil hins verra. Hvað Fjalaköttinn varðar, þá gerist það því miður á hverjum degi að hús eins og þetta eru rifin og slíku máli gætum við tapað í Noregi í dag. Mér finnst hins vegar ekki að svo ætti að fara. Bíósalurinn ereinstakurog Fjala- kötturinn er hluti af hverfi sem upplagt erað varðveita, umhverfislegaséð. Þið eigið heldur ekki svo mikið af húsum, - menn ættu að hafa efni á að varðveita þetta.“ „Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að þeir sem hafa viljað friða hafa haft rétt fyrir sér. Þegar hús eða önnur mannvirki eru rifin sjá menn eftir því og þegar búið er að gera þau upp í sitt upprunalega horf, þá eru allir sáttir við friðunina“, sagði Mari Koll- ansrud, arkitekt, framkvæmdastjóri norsku fornminjasamtakanna, „Fortidsminnefor- eningen". Mari var hér í síðustu viku í boði Norræna hússins og Árbæjarsafns og hélt nokkra fyrirlestra í Reykjavík og á Akur- eyri. Hún hefur starfað á skrifstofu forn- minjasamtakanna í Osló í 5 ár, en frítímun- um ver hún í annað áhugamál sitt: trjárækt og trjávernd, en hún er formaður í 350 manna hóp sem nefnir sig „Vini trjánna". Norsku fornminjasamtökin eru samtök áhugamanna og eru um 6000 félagsmenn í þeim í 20 deildum víðs vegar um landið. Samtökin voru stofnuð 1844 og eiga nú og hafa umsjón með 36 friðuðum byggingum, þeirra á meðal 8 norskum stafakirkjum sem þau björguðu frá niðurrifi. „Embætti þjóðminjavarðar var ekki stofnað formlega í Noregi fyrr en 1912,“ segir Mari, „og fram tii þess tíma sáu samtökin um verndun og viðhald allra þjóðminja í landinu og höfðu starfsmann sem launaður var af ríkinu. Viss 'auðinn Viss iðinn! værðin sæla, vinui ! bíður þín; gleði; tr! gleym að væla! grafat. mun enda pín. Hvað ( hið valta vina-mæti? víf að kyssa’ og faðma snjallt? Hvað er það allt í heimi kætir hjá því vissa’ að deyja skalt? (upphaf þýðingar úr dönsku kvæði) Mari Kollansrud: Við viljum ekki bara kynnast sögunni af bókum, - með eigin augum. við viljum sjá hlutina Fram til aldamótanna snerist allt um mið- aldirnar, en samkvæmt norskum lögum er allt sem eldra er en frá 1537 friðað. Eftir að þjóðminjavörður kom til skjalanna hafa samtökin einbeitt sér að verndun og friðun þjóðminja sem ekki falla undir embætti hans og við erum sífellt að færast nær nútím- anum í þeim efnum. Til dæmis höfum við friðað nokkur hús frá þessari öld, fúnkis- húsin og sveitser-húsin.“ „Ástæðurnar fyrir því að við viljum varð- veita hús, brýr, vegi og önnur mannanna verk er að við viljum ekki bara sjá söguna á bók, við viljum sjá hana með eigin augum,“ segir Mari. „Forsendurnar hafa breyst með tímanum, - nú eru það ekki aðeins eld- gömul skrauthýsi og hallir sem talið er nauðsynlegt að varðveita, heldur það sem er einkennandi fyrir hvern tíma, gömul úti- hús á bóndabæjum og heilu bæirnir, hverfi í bæjum sem hafa sérstakt svipmót þó hvert hús fyrir sig sé ekki svo merkilegt. Við erum nú farin að leggja áherslu á að varðveita hús frá þessari öld, fúnkis-húsin sem ekki hafa verið metin að verðleikum og smám saman eru að hverfa." „En það er ekki hægt að friða öll hús. Það þarf að sýna eigendunum fram á hvað hann hefur í höndunum og hvernig hann heldur því best við. Fá fólk til að skilja að augnstungur og röng klæðning utaná gam- alt hús er smekkleysa. Þess vega gefum við út leiðbeiningar til húseigenda um endur- nýjun glugga, um þök, um liti og áferð sem tilheyrir hverri húsagerð og hverjum tíma.“ Fortidsminneforeningen gefur einnig út tímaritið Fortidsvern sem kemur út fjórum sinnum á ári og er Mari Kollansrud ritstjóri þess. Hún sýndi leiðbeiningaheftin og tíma- ritið á fyrirlestrum sínum og kennir þar margra grasa. En hvernig er útgáfan og starfsemin kostuð? „Á fj árlögum norska ríkisins fáum við í ár jafnvirði 2,5 miljóna íslenskra króna,“ segir Mari „Fyrir þá fjárhæð höldum við úti skrif- stofú í Osló, en deildirnar 20 eru reknar af sjalfboðaliðum. Meginhlutinn fer í að standa straum af útgáfu, en þegar leggja þarf út í kostnaðarsamar endurbætur á ein- hverjum mannvirkjum getum við sótt um styrki og eins útvegað fé meðal fyrirtækja og einstaklinga.“ Blaðamaður átti þess kost að hlýða á tvo fyrirlestra Mari Kollansrud, annan í Ás- mundarsal um húsavernd og hinn í Árbæj- arsafni um trjárækt. Mari er einstaklega skemmtilegur fyrirlesari sem ekkert er að klípa utanaf gagnrýni sinni á virðingarleysi og smekkleysi nútímasamfélagsins. Hún byggir fyrirlestrana í kringum litskyggnur sem hún hefur sjálf tekið og meðal þess sem hún gagnrýndi harðlega er stolt Oslóarbúa, - Karl Johann. „Sjáiði bara“, sagði hún. „Við allan Karl Jóhann er það aðeins þing- húsið sem ekki er útatað í smekklausum auglýsingaspjöldum. Þeir hafa ekki hleypt flokkunum enn í það, en miðað við þróun- ina gæti allt eins komið að því.“ , 1

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.