Þjóðviljinn - 25.02.1984, Page 7
rielgin 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
L.H. Miiller fór í frækna för uppúr Eyjafirði, suður yfir Sprengisand, árið 1925 og var þessi mynd þá tekin.
Ferðafélagar hans voru Reidar Sörensen, Axel Grímsson og Tryggvi Einarsson frá Miðdal.
Fyrsta stjórn Skfðafélags Reykjavíkur.
sjötiu ára
Reykj avíkur
„Hinn 26. febrúar 1914 er
merkisdagur í skíðasögu
okkar, því þann dag var
stofnað Skíðafélag Reykja-
víkur. L.H. Mullereraðal-
hvatamaður að stof nuninni,
og var að sjálfsögðu kosinn
fyrsti formaður þess, en með
honum í stjórninni félagar
hans, Herluf Clausen og
Tryggvi Magnússon, enn-
fremur Steindór Björnsson
frá Gröf og Pétur Magnússon
(Hoffmann) bróðirTryggva.“
Svo segir í bók Haralds Sigurðs-
sonar, Skíðakappar fyrr og nú, um
stofnun Skíðafélags Reykjavíkur
sem heldur upp á 70 ára afmæli sitt
þennan dag, 26. febrúar. Skíðafé-
lagið hefur fram á þennan dag stað-
ið fyrir ötulli starfsemi og ávallt
verið framarlega í flokki í skí$a-
málum hér á landi.
í sögu félagsins er af mörgu að
taka. Strax eftir stofnfundinn var
efnt til skíðanámskeiðs eða skíða-
skóla sem fór fram á kvöldin, bæði
fræðileg og verkleg kennsla. Einn-
ig var skorað á alla landsmenn að
veita skíðaíþróttinni lið og meðal
þeirra sem lýstu yfir stuðningi við
þá áskorun voru Hannes Hafstein
ráðherra, Jón Þórarinsson fræðs-
lumálastjóri, Þorsteinn Gíslason
ritstjóri og stjórnarmenn íþróttas-
ambands Islands.
Skíðafélag Reykjavíkur reisti
skíðaskálann í Hveradölum og var
hann tekinn í notkun árið 1935. Fé-
lagið hefur síðan séð um rekstur
háns og staðið sig þar með miklum
ágætum. Árið 1937 gekkst félagið
fyrir fyrsta Landsmóti skíðamanna
en þar mættu til leiks keppendur
frá ísafirði, Siglufirði, KR, Ár-
manni og Skíðafélagi Reykjavíkur.
Keppt var í göngu og stökki og í
göngunni var keppt um „Thule-
bikarinn", sem gefinn var af Vá-
tryggingafélaginu Thule.
Fljótlega tóku aðrir aðilar við
framkvæmdum skíðamóta, og þá
beindist starf félagsins um skeið
aðallega að skíðaferðum og rekstri
skíðaskálans. Frá árinu 1961 hefur
félagið staðið fyrir skíðamótum ár-
lega, en þá fór fram fyrsta Múllers-
mótið, í minningu L.H. Múllers,
en ekkja hans og börn gáfu vegleg-
an bikar til að keppa um í sveitak-
eppni í svigi. Það mót hefur farið
fram árlega, að öðru leyti en því að
komið hefur fyrir að þurft hefur að
fella það niður vegna snjóleysis.
Starfsemin hefur aukist jafnt og
þétt síðari ár og félagið á drýgstan
þátt í að endurvekja áhuga fyrir
skíðagöngu sunnanlands. Þá hefur
jafnan verið staðið fyrir skíðak-
ennslu, unglinga- og skólamótum.
Margir hafa komið mikið við
sögu hjá Skíðafélagi Reykjavíkur á
REYK JAVIKUR
þessum sjö áratugum sem liðnir
eru frá stofnun þess og ógjörningur
að koma orðum að nema örfáum
og óhjákvæmilegt að margir verði
útundan. Þó er ekki hægt annað en
að nefna nöfn eins og L.H. Muller,
Stefán G. Björnsson, Kristján Ó.
Skagfjörð, Haraldur Pálsson,
Eysteinn Jónsson og Ellen Sig-
hvatsson. Þetta fólk hefur skilað
miklu og fórnfúsu starfi, sumt um
áratuga skeið og starfar enn eins og
hin óþreytandi Ellen, en fjölmargir
fleiri eiga þakkir skildar.
Skíðafélag Reykjavíkur hefur í
gegnum tíðina unnið mikið og
ómetanlegt æskulýðsstarf sem
seint verður fullþakkað. Megi það
halda áfram á þeirri braut um ó-
komna framtíð.
Til hamingju með afmælið.
-VS
(Byggt á Skíðakappar fyrr og nú eftir
Harald Sigurðsson og samantekt dr.
Ingimars Jónssonar).
Birger Ruud
á afmælismótið
Árið 1939 tókst stjórn Skíðafé- Birger Ruud, sem einnig var
lags Reykjavíkur að fá hingað til heimsmeistari. Koma hans vakti
lands tvöfaldan Ólympíumeist- gífurlega athygli en hann sýndi
ara í skíðastökki, Norðmanninn svig og skíðastökk á 25 ára af-
mælismóti félagsins. _
Birger hreifst mjög af Jóni Þor-
steinssyni frá Siglufirði, sem var
einn fremsti skíðamaður lands-
ins, taldi hann mikið efni og gaf
honum stökkskíði sín. Þá færði
hann Jónasi Ásgeirssyni afreks-
bikar frá norska skíðasamband-
inu fyrir sigur í tvíkeppni. Birger
sýndi heljarstökk á skíðum á
mótinu og þótti slíkt undrum
sætar v
-VS
Skíðaskálinn í Hveradölum, ársgamall. Myndin er tekin er Kristján konungur X. kom í heimsókn.