Þjóðviljinn - 25.02.1984, Page 8

Þjóðviljinn - 25.02.1984, Page 8
8 SÍOA r- ÞJÓÐVIL'JINN . Helgin 25,-26. /ebrúaf '1984 ' freccasKyrms Sigur í samstöðu Þeir kjarasamningar sem hafa verið undirritaðir undan- farna daga marka tímamót í sögu íslenskrar verkalýðs- hreyfingar, hver með sínum hætti. Annars vegar höfum við heildarsamning ASÍ sem einkennist af aðgerðum fá- einna forystumanna án tengsla við baksveitir verka- fólksins og skilaði sá samning- ur rýrum árangri. Hins vegar eru svo ÍSAL -samningarnir sem voru undirritaðir í gær og skiluðu verkafólki í Straumsvík umtalsverðum kjarabótum, 16 - 20% kauphækkun á samningstím- anum. Þar var baráttan háð með því vopni sem eitt dugar: samtakamætti hinna vinn- andi. Eini samningurinn? Talsmenn atvinnurekenda hafa hver um annan þveran keppst við að lýsa því yfir að kost- urinn við hið nýgerða samkomu- lag ASÍ-VSÍ sé einkum sá að það gildi um allan vinnumarkaðinn. Þeir hafa jafnframt hótað verka- fólki öllu illu ef það sýni andóf og sagt að ekki komi til greina að semja við einstaka hópa umfram heildarsamkomulagið. Talsmenn sömu aðila í ríkisstjórn hafa tekið undir þessar hótanir og sagt að ef verkafólk felli samninginn taki þeir allar sposlur úr ríkissjóði til endurskoðunar. í gær kom svo í ljós að brestir hafa komið í þennan vegg aftur- haldsins. Vinnuveitendasam- bandið hefur neyðst til að sam- þykkja viðræður við Dagsbrún eftir að verkamennirnir sýndu klærnar og það hlýtur að vera fordæmi fyrir fleiri félög um að krefjast slíks hins sama. Það liggur einnig fyrir að þetta nýja samkomulag gildir engan veginn fyrir allt verkafólk. Starfs- menn í Straumsvík hafa upp- skorið árangur með órofa sam- stöðu og fá um 20% kauphækkun fyrir sig og sína. Iðnaðarmenn innan Alþýðusambandsins munu aldrei samþykkja samninga á þeim grunni sem nú er verið að þröngva láglaunafólkinu til að gera. Samninganefnd opinberra starfsmanna hefur vísað á bug hugmyndum ríkisvaldsins um að þeir kyngi sama samkomulagi og ASÍ og VSÍ hefur gert með sér. Síðast en ekki síst skulu menn ekki vanmeta styrk Dagsbrúnar til að ná betri samningi, því saga íslenskrar verkalýðshreyfingar síðustu áratugina sýnir ótvírætt að stærstu áfangarnir í kjarabar- áttunni hafa verið unnir fyrir til- styrk Dagsbrúnar. Ljósir fletir og dökkir Vissulega eru ljósir punktar í þessu samkomulagi ASÍ-VSÍ. Þar er meiri áhersla lögð á að bæta hag þeirra sem allra verst eru settir en dæmi eru til um áður. Einstæðir foreldrar og þeir ■ aðrir sem taka laun undir mannsæmandi mörkum fá umtalsverðar kjarabætur. Flestum hlýtur þó að vera ljóst að þetta nýgerða samkomulag er fyrst og fremst til hagsbóta fyrir íslenska atvinnurekendur. Engin trygging er fyrir þvf að þær litlu kjaraleiðréttingar sem um er samið verði ekki strax hrifsaðar til baka. Ekki þarf að gera annað en að fella gengið lítillega til að ónýta fyrsta áfangann. Unga fólkið er boðið fram á vinnumarkaðinn á afsláttar- kjörum svo að skömm er að. Elli- lífeyrisþegar fá mun minni hækk- anir á grunnlífeyri en það fólk sem þó hefur lágmarkstekju- tryggingu. Með hinum nýja samningi er launamisréttið stórlega aukið því hátekjumenn fá nú 5% hækkun á alla sína taxta og búa áfram við 40-80% álag á yfirvinnu, rétt eins og margra ára samningar allra launamanna kveða á um. Lág- tekjufólkið missir hins vegar þau umsömdu réttindi fyrir lítillega hækkun á dagvinnutekjutrygg- ingu og fær nú aðeins 17% álag á eftirvinnuna í stað 40% áður. Með þessu er auðvitað verið að útvega atvinnurekendum ódýr- ara vinnuafl en þeir hafa hingað til átt kost á. Kjaraskerðingin staðfest Það hörmulegasta við þennan nýja kjarasamning er þó það að með honum staðfestir forysta ASÍ kjaraskerðingu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar frá sl. ári. Með bráðabirgðalögunum voru hundruð miljóna færð úr vösum launafólks yfir í eldt- raustar fjárhirslur fyrirtækjanna og þeirri ósvinnu hefur Alþýðu- Valþór Hlö&versson skrifar samband íslands ekki einu sinni mótmælt svo eftir verði tekið. Byrðinni létt af VSÍ En það er ekki nóg með að fjár- austur atvinnurekenda úr vösum launamanna sé staðfestur og viðurkenndur heldur er samið upp á þau býti að ábyrgð hvers atvinnurekanda að tryggja sínu verkafólki mannsæmandi laun er varpað yfir á ríkissjóð. Verulegur hluti úrbótanna nú til láglauna- fólksins kemur úr ríkissjóði og allar horfur eru á að sá hluti verði fjármagnaður með því að minnka niðurgreiðslur á landbúnaðar- vörur sem um leið hefur í för með sér stórfelldar hækkanir á öllum nauðþurftum alþýðuheimilanna. Hvað gerist nú? Dagsbrún hefur með samtaka- mætti sínum knúið fram viðræður við atvinnurekendur. Það sýnir að ef verkafólk stendur saman að baki róttækum kröfum er sigur- inn í sjónmáli. 60 manna samn- inganefnd BSRB virðist ákveðin í að knýja fram betri samning fyrir opinbera starfsmenn og sama er að segja um iðnaðarmannastétt- irnar. Verkafólk í álverksmiðju Alusuisse í Straumsvík hefur með órofa samstöðu knúið fram mun hærri laun en íslenskir atvinnu- rekendur voru tilbúnir að greiða sínu fólki. Örfá félög innan Al- þýðusambandsins hafa fjallað um hið nýgerða samkomulag og þar má segja að skipst hafi í tvö horn. Annars vegar eru Dagsbrúnar- menn sem kolfelldu samninginn með rúmlega 700 atkvæðum gegn 17 og hins vegar nokkur verka- lýðsfélög þar sem örfáir tugir manna hafa mætt á fundi. Má nefna sem dæmi Verslunar- mannafélag Reykjavíkur sem tel- ur um 6.300 manns en aðeins 73 þeirra guldu samningnum at- kvæði sitt. Um þessa helgi verða fundir í allmörgum verkalýðsfélögum þar sem félagar þeirra verða að gera upp hug sinn gagnvart samkomu- lagi ASÍ. Sá samningur var án átaka, enda eftirtekjan í sam- ræmi við það. Dagsbrúnarkarlar hafa ekki sagt sitt síðasta orð, en þeir hafa gefið tóninn. Spurning- in er hvort sá tónn nær eyrum félaga í öðrum verkalýðsfélögum um land allt næstu dagana. - v. riCstiórnargrein Loforðin um lœkkun húshitunar- kostnaðar hafa verið svikin Sjö þingmenn Alþýðubanda- lagsins fluttu í nóvembermánuði sl. tillögu á Alþingi um lækkun húshitunarkostnaðar og átak í orkusparnaði. í tillögunni felst að háar gjaldskrár rafveitna og hita- veitna verði lækkaðar og við það miðað að ekki þurfi meira en 6 vikna laun á ári samkvæmt dag- vinnutekjutryggingu, þ.e. um 17 þúsund krónur, til að hita upp meðalíbúð. Rafhitunarkostnaður vel ein- angraðrar meðalíbúðar er nú með niðurgreiðslu áætlaður 27- 28 þúsund krónur á ári. Sam- þykkt tillögunnar hefði því í för með sér um 40% lækkun á húshit- unarkostnaði. Hjá dýrum hita- veitum, sem nú njóta engrar nið- urgreiðslu, eins og Hitaveita Ak- ureyrar, yrði um nær 50% lækk- un útgjalda að ræða. Jafnframt þessari lækkun á húshitunar- kostnaði með auknum niður- greiðslum gerir tillagan ráð fyrir stórátaki í orkusparnaði með endurbótum á einangrun og öðr- um frágangi húsnæðis, og að komið verði á sérstakri ráðgjafar- þjónustu á sviði orkusparnaðar. Ekkert bólar á efndunum Við fjárlagaafgreiðslu fyrir jól- in flutti Hjörleifur Guttormsson breytingartillögur um tekjuöflun til að tryggja lækkun hitunar- kostnaðar í samræmi við þessa þingsályktunartillögu Alþýðu- bandalagsins. Gerði tillaga Hjör- leifs ráð fýrir 190 milljón króna viðbótartekjum í ríkissjóð með hækkun á raforkuverði til stór- iðju og/eða sérstökum orku- skatti, sem notaður yrði til að jafna húshitunarkostnað í landinu. Þessi fjáröflunartillaga var felld af stjórnarliðinu, en Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra gaf í umræðunum fyrir- heit um aðgerðir og að sérstakt stjórnarfrumvarp yrði flutt um húshitunarmálin strax að loknu jólaleyfi þingsins. Nú er hinsveg- ar liðinn mánuður síðan þing kom saman eftir jól og ekkert bólar á efndum frá iðnaðarráð- herra. Húshitunarmálin eru ekki að- eins þungbær fólki víða um land, heldur einnig mjög viðkvæm hjá ríkisstjórnarliðinu og málgögn- um þess, svo sem vonlegt er. Fyrir kosningar lofuðu Sjálfstæð- ismenn mikilli lækkun á húshit- unarkostnaði úti um land, ef þeir fengju völdin. í þeim kór hafði hæst Sverrir Hermansson sem bráðum hefur setið í heilt ár í stóli iðnaðarráðherra. í stað þess að lækka húshitunarkostnaðinn, eins og ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar lofaði, hefur hit- unarkostnaður hækkað til muna þrátt fyrir auknar niðurgreiðslur, enda heimilaði ríkisstjórnin gífurlegar gjaldskrárhækkanir sl. sumar. Þetta dæmi er enn hrika- legra, þegar tekið er tillit til kaupskerðingar ríkisstjórnarinn- ar. Þessa dagana stendur fjöldi fólks víða um land ráðþrota með rafmagns- og hitaveitureikninga. Samþykkt á tillögur Alþýðu- bandalagsins um lækkun húshit- unarkostnaðar um 40-50% væri raunhæft skref til að létta á byrð- lim heimilanna á köldu svæðun- um í framhaldi af aðgerðum í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thorodd- sens. Argasta öfugmæli Loforð núverandi ríkisstjórnar og Sverris Hermannssonar iðn- aðarráðherra um húshitunar- Sverrir Hermannsson galaði hæst um stórlækkun húshitunarkostn- aðar fyrir kosningar, en sem ráð- herra hefur hann hækkað til muna. kostnaðinn hafa hinsvegar reynst hið argasta öfugmæli. Ekkert kosningaloforð hefur verið svikið jafn afdráttarlaust og er þar þó af mörgu að taka.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.