Þjóðviljinn - 25.02.1984, Side 27
• * ♦ »* »
Helgin 25.-26. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Samtök kvenna á vinnumarkaði í áskorun til kvenna:
Skoðið samningana vel
áður en þið samþykkið
Halda fund á Hótel Borg í dag kl. 13.30
Samtök kvenna á vinnumarkaðinum hafa skorað á konur að
skoða vel fyrirliggjandi kjarasamning áður en þær samþykkja
hann. Samtökin hafa boðað til fundar með konum í dag kl. 13.30 á
Hótel Borg I Reykjavík. Fundarefnið er kjör kvenna og nýafstaðin
samningagerð.
í frétt Samtaka kvenna er minnt á samþykkt þeirra frá 29.
janúar þar sem þess er krafist að engir launataxtar verði fyrir
neðan lögboðin lágmarkslaun. Síðan segir orðrétt:
segir Bjarnfríður Leósdóttir
I kjarasamningi ASÍ og Vinnuveitendasambandsins
er gert ráð fyrir 12.660.- króna iágmarkslaunum fyrir
eldri en 18 ára og 11.509.- króna lágmarkslaunum
fyrir 16-18 ára. Hinsvegar eru viðmi'ðunartextar fyrir
yfirvinnuálag, bónusgreiðslur og greiðslur til lífeyris-
sjóða og atvinnuleysissjóðs undir lágmarkslaunum
fyrir stóran hluta verkafólks. Þannig verður viðmið-
unartaxti verkakvenna í flskvinnu samkvæmt 9.flokki
eftir 1 ár 10.575.- kr. sem þýðir að bónusgreiðslur
---------- þessara kvenna miðast við taxta sem er 20% undir
Bjamfríður Leósdóttir: Bónusinn, yfirvinnan, lífeyris- og atvinnuleysis- iægstu launum sem greidd eru í landinu. Sömuleiðis
bætur miðast við taxta undir lágmarkslaunum. fer yfirvinnuálag niður í allt að 17% af lágmarks-
í kjarsamningum ASÍ og fleiri
aðila er þess getið að tímakaup í
eftirvinnu aðildarfélaga skulu vera
40% hærri en dagvinnutaxti og
næturvinna 80% hærri.
í samningum þeim, sem nú liggj a
fyrir, skulu lágmarkslaun fyrir dag-
vinnu vera kr. 12.660 á mánuði eða
kr. 73.04 á tímann í dagvinnu.
Konur eru stærsti láglaunahópur
þessa lands, því kemur það verst
niður á þeim að aðrir taxtar hækka
aðeins um 5%. Þannig reiknast
bónus í fiskvinnu út frá 9. taxta
eftir eitt ár, en hann er 10.575
krónur á mánuði og 61.01 krónur á
tímann í dagvinnu, eða 20% lægri
taxta en lögboðin lágmarkslaun
eru. Eftirvinna á sama taxta er
85.41 krónur á tímann eða aðeins
17% hærri en lögboðni dagvinnu-
taxtinn. Næturvinna á sama taxta
er krónur 109.81 eða 50% hærri en
lögboðni dagvinnutaxtinn. Mánað-
ariaun á 9. taxta eftir sex ára starf
eru 11.606 eða 10.91% lægri en
lögboðnu lágmarkslaunin. Tíma-
kaup í dagvinnu verður 66.96 krón-
ur en var áður 63.77, eða 53 aurum
hærra en lögboðin lágmarkslaun
voru. Eftirvinna á þessum taxta
verður 93.74 krónur eða 28.3%
hærri en lögboðin lágmarkslaun en
voru áður 40% hærri en dagvinnu-
taxtinn. Tímakaup í næturvinnu
verður 120.53 krónur eða 65%
hærri en lögboðin lágmarkslaun í
dagvinnu, en var 80% hærri en
dagvinnutaxtinn.
Ljóst er að slík þróun í launamál-
um láglaunafólks eykur aðeins á
launamisréttið í þjóðfélaginu.
Þannig fær hátekjumaðurinn 5%
hækkun á alla launataxta, og 40 til
80% álag á yfirvinnu, en lág-
launakonan allt niður í 17% álag á
sína yfirvinnu.
Ekki er enn vitað hvernig til-
færslur úr ríkissjóði til úrbóta fyrir
„hina verst settu“ í þjóðfélaginu
eiga að verða. Rætt hefur verið um
að minnka niðurgreiðslur landbún-
aðarafurða, en það þýðir að féð til
úrbótanna er tekið beint úr vasa
launafólks.
í lokin er einnig minnt á niður-
skurð félagslegra þátta í fjárlögum,
umræður um niðurskurð á verka-
mannabústaðakerfinu, og ungling-
ataxtann sem talin er hin mesta
hneisa.
- ekh
Kjarasamningarnir:
Lágu taxtarnir skerða
tryggingarréttinn
launum af þessum sökum. Þá eru greiðslur atvinnu-
rekenda í lífeyrissjóð og atvinnuieysistryggingasjóð
einnig miðaðar við þessa lágu taxta, þannig að réttur
þessa fólks til ellilífeyris, atvinnuleysisbóta og annarra
trygginga verkafólks miðast einnig við taxta sem eru
langt undir greiddum lágmarkslaunum í landinu.
Þetta kemur fram í viðtali við Bjarnfríði Leósdóttur
sem birt verður í Þjóðviljanum á þriðjudag, en
Bjarnfríður sagðist vilja hvetja konur sérstaklega til
að kynna sér efnisatriði samningsins áður en þær
greiddu um hann atkvæði í sínum félögum.
Símalínur glóðu af þakklœti til Dagsbrúnar í gœr:
Verkalýðsfélögin þurfa að
taka upp ný vinnubrögð
segir Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar
„Okkur hafa borist símskeyti og hér glóa símalínur af þakk-
læti og aðdáun til félagsins“, sagði Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar þegar Þjóðvilj inn náði tali af honum.
Guðmundur sagði aðspurður að enginn efnismunur hefði
verið á tillögu stjórnar félagsins um að vísa samningum ASÍ og
VSÍ frá og þeirri tillögu sem borin var upp á fundinum og
samþykkt að fella samninginn. „Þarna var enginn ágreiningur á
milli aðila. Þetta var spurning um orðaval. TiIIaga stjórnarinn-
ar gekk út á höfnun á samningnum og ég lýsti því yfir að til að
samstaða yrði þá skyldum við greiða atkvæði með því að fella
samninginn og ég myndi styðja að samningurinn yrði felldur.“
„Hings vegar lagðist ég ein-
dregið og mjög hart gegn þeirri
tillögu sem borin var upp á fund-
inum um að staða Dagsbrúnar
innan heildarsamtakanna yrði
tekin til endurskoðunar. Þó að
hugur flutningsmanna hafi verið
reiði gegn samningunum, þá yrði
þetta túlkað sem við værum ekki í
ASÍ eða vildum fara úr ASÍ. Það
yrði hörmulegt áfall ef sjálft Al-
þýðusambandið ætti að fara að
liðast í sundur. Við erum stofnfé-
lagar að ASÍ og höfum starfað í
samtökunum alla tíð og oft verið
þar burðarásinn. Ég skoraði á
menn að fella þessa tillögu og hún
fékk milli 40-50 atkvæði en þorri
fundarmanna var á móti henni."
Þú gagnrýndir forystu verka-
lýðshreyfingarinnar á þessum
fundi.
„Já ég sagði m.a. að verka-
lýðsfélögin yrðu að taka upp ný
vinnubrögð. Vera frískari og gera
hinn almenna félaga virkari. Ég
lagði mikla áherslu á að það
þýddi ekkert fyrir þessi félög þeg-
ar þau væru búin að afsala sér
Ahugaleysi og röng vinnubrögð leiddu til þeirra samninga sem Dagsbrúnarmenn kolfelldu, segir Guðmund-
ur J. Guðmundsson.
öllum hlutum og biðjast undan
samningagerð og gera lítið annað
en að kvarta og kveina, að ráðast
síðan óbeint að þeim mönnum
sem er falin sjálf samningagerð-
in. Niðurstaða þessara samninga
sem félagar í Dagsbrún hafa fellt
á svo afgerandi hátt, er fyrst og
fremst röngum vinnubrögðum og
áhugaleysi um að kenna. Þessa
gagnrýni mína ber ekki að túlka
sem persónulegt níð um þá menn
sem stóðu í sjálfri samningagerð
inni“, tók Guðmundur J. Guð
mundsson fram að síðustu.