Þjóðviljinn - 28.02.1984, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.02.1984, Síða 1
UOBVIUINN Fréttamenn og (jós- myndari Þjóðviljans voru i síðustu viku á ferð um Akureyri í efnissöfn- un. Árangurinn af ferðalagi þeirra birtist í blaðinu í dag og næstu daga. Má segja að blað- ið efni nú til Akureyrar- viku. 8-9 og 16-17 febrúar þriðjudagur 49. árgangur 49. tbl. Félagsfundur hjá Iðju í Reykjavík um samn- ingana í gærkveldi: MUNAÐI MJÓU! 108 greiddu atkvæði með en 89 á móti Mikil ólga var í verksmiðjufólki á fundi Iðju í Iðnó í gær. Þar mæltu Bjarni Jakobsson formaður Iðju og Guðmundur Þ. Jónsson með því að samn- ingarnir yrðu samjaykktir og Ásmundur Stefáns- son formaður ASI gerði grein fyrir hinum nýju samningum. Félagsmenn stigu síðan hver af öðrum í ræðstól og lýstu óánægju sinni með samningana og gagnrýndu þá lið fyrir lið. Iðnó var þéttsetið félagsmönnum sem tóku af krafti undir orð Sigurbjargar Sveinsdóttur saumakonu þeg- ar hún gagnrýndi samninginn. Hún taldi fé- lagsmálapakka ríkisstjórnarinnar það eina skoðunar- verða í kjarasamningnum. Þó taldi hún greiðslur til einstæra foreldra of lágar og fráleitt að barnabæturnar verði teknar af niðurgreiðslum matvæla. Þar með væri fólk að greiða sjálfu sér barnabæturnar. Sigurbjörg skoraði á fólk að skoða ályktun frá Samtökum kvenna á vinnumarkaðinum sem dreift var á fundinum. Skoraði hún á fundarmenn að hafna samningunum og tók salurinn undir það með lófaklappi. Fleiri fundarmenn lýstu óánægju sinni með samn- ingana og var einkum óánægja með unglingataxtann. Á fundinum var borin upp ályktun um samþykki félagsfundarins við ASÍ-VSÍ, en stungið uppá að setja þann fyrirvara um samþykki, að ríkisstjórnin stæði Forseti Alþýðusambandsins og formenn Iðju höfðu orð fyrir samningnum, en allir venjulegir félagsmenn sem tóku til máls nema einn mæltu á móti samningi ASÍ-VSÍ. Talið frá vinstri: Guðmundur Þ. Jónsson, Bjarni Jakobsson, Guðmundur Guðni Guð' mundsson fundarritari og Asmundur Stefánsson í ræðustóli á fundi iðnverkafólks í gær. Mynd-Atli. við sín loforð við samningsgerðina. Guðmundur Þ. Jónsson stakk uppá leynilegri atkvæðagreiðslu sem lyktaði með því að 108 samþykktu samkomulagið en 89 voru á móti. JP Kennarar gegn kjararáni Þyrlukaup Landhelgisgæslunnar: Hvað er ver- ið að fela? Farið er með skýrsluna um málið eins og ríkisleyndarmál Nefnd sú hin stóra, sem send var er- lendis á dögunum til aö skoöa þyrlur fyrir Landhelgisgæsluna, hefurfyrir löngu skilaö skýrslu um málið. Samt sem áöur er farið með þetta plagg eins og ríkisleyndarmál. Hvorki yfirmaöur Landhelgisgæslunnar Gunnar Bergs- teinsson né dómsmálaráðherra vilja láta uppi hvaö ískýrslunni stendur. Þó hefur þaö kvisast út að nefndin leggi til aö keyptar veröi franskar þyrlur að geröinni Daupin. GunnarBergsteins- son vildi hvorki staðfesta þetta né neita því í samtali viö Þjóöviljann. t»að sem vekur athygli við að mælt skuli vera með þessum frönsku þyrlum er að Albert Guð- undsson fjármálaráðherra er franskur konsúll og hann eða heildverslun hans hafði umboð fyrir þessar þyrlur þar til fyrir innan við ári síðan. Þá vakti það líka athygli að ráðherrann hélt sölumönnum þessara flugvéla veislu í ráð- herrabústaðnum, þegar þeir voru hér á ferð og er ekki vitað til þess að öðrum þyrlusölu- mönnum hafi verið haldnar slíkar veislur af ráðherrum. Þar með er ekki sagt að þessar þyrlur séu kannski neitt lakari en aðrar, en slíkt sem þetta hlýtur að vekja tortryggni. Vitað er að í nýlegri prófun í N-Norgi reyndust Daupinþyrlurnar illa þar sem snjóa- samt er, en að öðru leyti eru þær taldar jafngóðar öðrum þyrlum. Spurningin sem eftir stendur er hinsvegar hversvegna svo mikil leynd hvílir yfir skýrslu, sem þó segir ekki annað en frá skemmtiferð 11 manna til að skoða þyrlur á sýningu. -S.dór. Tilbúnir í slaginn - Kennararnir eru gegn kjararáninu og eru tilbúnir í slaginn, sagði viðmæiandi Þjóðviljans úr röðum kenn- ara í gær, en samkvæmt heimildum blaðsins samþyk- kti samninganefnd kennara nú um helgina að hafna samkomulagi á grundveili ASÍA/SÍ samningsins. í dag kemur 60 manna samninga- nef nd BSRB saman og 10 manna nef ndin heidur og viðræður við samninga- nefnd ríkisvaldsins í dag. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans munu kennarar hafa samþykkt í framhaldi af þessu að setja fram tillögu á fundi 60 manna nefndar- innar í dag. Talið er að sú tillaga Hafna samkomu- lagi á grund- velli ASÍ/VSÍ samningsins gangi út á einhvers konar þrýstiað- gerðir gegnvart ríkisvaldinu. Á um 30 manna fundi kennara nú um helgina mun afdráttarlaus vilji þeirra hafa komið í ljós; samn- ingshugmynd á grundvelli ASÍ/VSÍ samningsins hafnað. í þessum hópi voru fulltrúar kennara úr öllum landsfjórðungum. Þeir munu og hafa sameinast um tillögur um að- gerðir. Um 9 kennarar eiga sæti í 60 manna samninganefnd BSRB sem heldur fund í dag. -óg V estmannaeyingar felldu samninginn Á sameiginlegum fundi verkamannafélags Vestmannaeyja og verka- kvennafélagsins Snótar um helgina var samningur ASÍ/VSI felldur með 83 atkvæðum en 37 studdu hann og sex sátu hjá. Samkvæmt upplýsingum forystumanna verkalýðsfélaganna i Eyjum voru fundarmenn á þeirri skoðun að ckki hafi verið gert nóg fyrir flskverkunarfólk. Auk þess þótti mönnum óviðunandi að ungt fólk sem kemur til vinnu á sumrin eigi ekki að fá sambærilegt kaup fyrir sömu vinnu. Mjög góð mæting var á fundinum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.