Þjóðviljinn - 28.02.1984, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 28.02.1984, Qupperneq 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, ÞriSjudagur 28. febrúar 1984 DIODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir. Husmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent hf. Dómur Andrésar Stjórnmálaskrif Tímans eru yfirleitt lofsöngur um ríkisstjórnina, Framsóknarflokkinn og Steingrím Her- mannsson. Þó gerist það við og við að sannleikspistlar fá að fljóta með. í ristjórnartíð Elíasar Snælands Jóns- sonar tók Andrés Kristjánsson að skrifa á ný í Tímann. Greinar hans hafa borið svip þeirrar vitundar sem áður fyrr var samviska þess sem heilbrigðast og best hefur verið í lífshugsjón og réttlætiskennd íslenskra sam- vinnumanna. Greinar Andrésar Kristjánssonar eru því eins konar vikulegar afhjúpanir á áróðursbullinu sem Þórarinn Þórarinsson er látinn skrifa forystunni til dýrðar. Sjálfsagt verður Andrési svo vikið burt líkt og ritstjóranum sem réði hann því að Framsóknarforystan getur ekki liðið sannleikann til lengdar. Á sunnudaginn fjallaði Andrés Kristjánsson um ný- gerða ASÍ/VSÍ samninga og dæmir þá mjög á annan veg en ráðherrar og ritstjórar Framsóknarflokksins. Andrés nefnir fjörur atriði sem setja afar neikvæðan svip á þessa samninga. I fyrsta lagi auka samningarnir bilið milli lægstu og hæstu launa og eru því „gerðir með launamisrétti að leiðarljósi þótt heitið væri hinu gagnstæða“. Bendir Andrés á að þegar menn „eru komnir með svo sem þreföld lágmarkslaun skila fimm prósentin meiri launa- hækkun til hálaunamanna en lágmarkslaunamanna“. í öðru lagi gagnrýnir Andrés Kristjánsson þá köldu kveðju sem unga fólkinu er send í þessum samningum þar sem „stigið er skerf aftur á bak í réttindamálum þess á vinnumarkaðinum“. Og hann bætir við: „Nú eru þeir (sem eru 16 og 17 ára) settir skör neðar og ætlað minna lágmarksaup. Þess væri óskandi að Dagsbrún næði að leiðrétta þetta“. I þriðja lagi harmar Andrés í grein sinni að samning- arnir fela ekki í sér neina leiðréttingu á jafnréttismálum kvenna: „Þessir samningar urðu enginn áfangi til úr- bóta, nema síður væri“. í fjórða Iagi gagnrýnir Andrés Kristjánsson ríkis- stjórnina harðlega fyrir að nota ráðstafanir vegna hinna verst settu „sem skiptimynt og milligjöf í kjarasamning- um“. Hann dæmir þessa stefnu á þann veg að hún sé „siðleysi sem ætti löngu að vera útlægt úr stjórnarfari lýðræðis- og velferðarríkja“. Ráðherrar Framsóknarflokksins og ritstjóri Tímans ættu að lesa dóm Andrésar Kristjánssonar í hvert sinn sem þeir fjalla um hina nýgerðu samninga. Skákafrek Glæsilegur árangur íslendinga á tveimur alþjóð- legum skákmótum sem lokið er í Reykjavík hefur orðið mikið ánægjuefni meðal landsmanna. Það kom í ljós að niðurstaðan á skákmóti Búnaðarbankans var engin til- viljun. Á Reykjavíkurskákmótinu röðuðu fjórir ungir íslenskir skákmenn sér í fimm efstu sætin. Það var aðeins hinn aldni skákhöfðingi Reshevsky sem rauf Islendingamúrinn. Islendingar eiga tvo stórmeistara í skák og það er eins og Helgi Ólafsson hefur bent á í viðtölum við fjölmiðla aðeins spurning um tíma hvenær fjórir stórmeistarar bætast við. Þeir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson og Jón L. Árnason eiga allir mikla möguleika á stórmeistaratitli innan tíðar. íslenska ríkið hefur greitt stórmeisturunum tveim laun og það er rétt og skylt að Alþingi lýsi þeim vilja sínum nú að hinir verðandi stórmeistarar muni geta reitt sig á starfslaun þegar þar að kemur. Það er einnig rétt að minna á að fordæmi eru fyrir því að þegar unnin hafa verið góð afrek hafi opinberir aðilar jafnt sem einkaaðilar viljað greiða götu afreksmanna til nýrra stóráfanga. klippt IIORGI/NBLADID, 8UNNUDACUR » FTBRDAR IM4 I t-ngu landi gegna dagblöd jafn þJA- inearmiklu hlutverki og í Bandarfkjunum: hvérgi eru blödin sjálfsUeöari, hvergi koma þau jafn miklu til leiAar og hvergi ( hinum frjálsa heimi geta blöðin veriö háskalegri en einmitt ( Bandaríkjunum. Conrad C. Kink, prófessor í bladamennsku viA Ceorgiu-háskóla 1 Bandar(kjunum, er fyrr- um varaforseti AP-frétlastofunnar. Ilann gaf sig einkum að markaðsmálum ( þv( starfí, ferðaðist um Bandarfkin þver og endilöng og gefði úttekt á bandarfskri blaðaútgáfu. Creinarhöfundur átti eftirfar- andi samtal við Fink á liðnu sumri og fjallar það um bandarískan blaðaheim frá ým-sum hliðum. I*ess skal getið til skýr- iócar að Ceorgfu háskóli er í litlum búr, Auvens (skammt frá AtlanU í Georgfu- rfl(i)^þar sem búa um 50 þúsund manns og | vetfum að auki 25 þúsund háskólastúd- enUr. Rsatt viö Conrad C. Fink, prófeaaor í blaöamennaku ofl fyrrum vara- foraeta AP l Bandaríski blaðaheimurinn H«i« Um Þ*' i tnmUi •u blóí rUi "" «0 Hoilunim lil iMjOuiu B( teMM I Michw 1 •óIúu'ÚrfMMuir* MAn H mi iitnlítíSLi_____________________________________________________________________________________________ — _ _ AnA 1«. rau ml Blöð þar og hér Bandaríkjamenn eiga mörg ágæt blöð eins og að líkum lætur, dagblöð, vikublöð, tímarit. Og víða má £ þeim greina einbeitta og sjálfstæða viðleitni til að fjalla um innlend og alþjóðleg vandamál af áleitinni gagnrýni. Að sjálfsögðu eru sum blöð iðnari við hið gagnrýna hlutverk en önnur - sum svo mjög, að Morgunblaðið hefur stundum kvartað yfir því hve neikvæðni væri landlæg í bandarískum blöðum. Þau væru að missa álit vegna þess að þau sýndu ekki Reagan og liði hans nægilega tillitssemi. Þessi afstaða Morgunblaðsins er kapítuli út af fyrir sig: þar hafa menn lengst af leitast við að vera kaþólskari en páfinn og er stórmunur á þvá hverning Morgunblaðið tiplar með sonarlegri viðkvæmni kring- um yfirsjónir bandarískra stjórnvalda og hvernig sæmilega bandarísk blöð halda á sömu mál- um - nú síðast á gjaldþroti Reag- ans í Líbanon. Eitt blað eftir En eins og flestir vita er banda- rískur blaðaheimur allt mögulegt og spannar allt frá nokkrum mjög vönduðum blöðum til hinna ver- stu tilræða við sæmilega dóm- greind og menningarlega við- leitni. Um þennan heim birtist um helgina fróðlegt viðtal í Morgunblaðinu eftir Jakob F. Ásgeirsson, það er við Conrad C. Fink, sem er gamalreyndur í blaðamennsku og nú prófessor í þeim fræðum. Þar kemur margur fróðleikur fram, og ekki er síst ástæða til að velta fyrir sér ýmsu því sem þar segir af blaðadauða í því stóra ríki. Fink segir meðal annars: „Það stefnir allt í það að það verði eitt stórt dagblað í hverri borg, en ekki tvö eða mörg stór blöð eins og áður í einni borg, því ef það eru tvö stórblöð um hituna í einni borg og annað getur sýnt fram á að það sé keypt af 55% heimila í borginni, en hitt einung- is af 45% heimila, þá munu 70% auglýsinga birtast í því blaði sem hefur 55% hlutdeildina. Þess vegna hafa stór og rótgróin dag- blöð verið að hverfa af sjónar- sviðinu undanfarin ár í Banda- ríkjunum: ef útbreiðslan dregst saman eða hlutdeild á tilteknu markaðssvæði, þá minnka aug- lýsingar í margföldu hlutfalli." Sérstœð einokun Það sem er einna athyglisverð- ast við þessa mynd er það, að hér er gert ráð fyrir því sem algjör- lega sjálfsögðum hlut, að auglýs- endur ráði því, hvort blað er til eða ekki - ekkert annað er tekið inn í dæmið. Það er ekki um það spurt, hvað gerist ef eitt blað fær ■ raunverulega einokun á borg eða svæði (hverfablöð eru til líka en skipta litlu máli í þessu sam- bandi). Hér einkum átt við þetta: hvaða “rétt“ eiga þau 45% sem hafa kannski viljað áfram annað blað sem hefði aðrar áherslur, annan smekk, kannski annan pólitískan boðskap en það blað sem hafði náð forskoti, hafði náð 55% útbreiðslu? Eins og fyrr segir: auglýsendur yfirgefa þann sem er ögn smærri - og gera fjár- hagslega möguleika hans til að halda áfram margfalt lakari en keppinautarins, sem hafði ekki ýkja mikið forskot áður. Verður nýja blaðið betra en hin tvö? Það er vafasamt, þótt það verði kann- ski stærra. (Þegar nokkuð var lið- ið síðan Vísir og Dagblaðið sam- einuðust sagði einn af tillags- mönnum DV við klippara: „Þeir hafa sameinað það lakast úr báð- um blöðum“. Og sem fyrr segir: það hlýtur að verða þrengra um raunverulega möguleika í frelsi til skoðunamyndunar eftir að hin óheftu lögmál auglýsingamark- aðarins hafa unnið sitt verk. Hver rœður? Þessi þróun hefur líka sitt að segja á landsmælikvarða, eins þótt um gífurlega stórt ríki sé að ræða. Það má vel hugsa sér þá þróun, að bandaríski dagblaða- heimurinn þokist í átt til eins „súperblaðs", sem er saman sett með svipuðum hætti allsstaðar, úr hinum algengustu einkennum einokunarblaðsins á hverjum stað. Hægt og bítandi verður sigur auglýsenda, big business, meiri 7 enda ræður hann líka yfir sjónvarpinu og yfir kosninga- sjóðum þeim sem auglýsa upp pólitíska frambjóðendur og svo mætti áfram telja. Á þetta er nú minnt hér, vegna þess að við búum í þjóðfélagi sem hefur vaxandi tilhneigingu til að apa sem flest eftir Bandaríkjun- um í smáu sem stóru. Líka vegna þess, að við erum löngu komin háskalega nálægt einokun Morg- unblaðsins á íslenskum dagblaða- markaði - ekki síst ef það er haft í huga, að síðdegisblaðið DV er svosem álíka „óháð“ í pólitískum boðskap og Morgunblaðið sjálft. -áb. og skoriö Bókin og tungan Jóhannes Helgi, rithöfundur og útgefandi, er svartsýnn á stöðu bókarinnar í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu fyrir helgi. Jóhannes segist vera mjög ugg- andi um framtíð bókarinnar. „Eg tel að þáttaskilin hafi einmitt orð- ið núna um síðustu áramót. Á síðustu árum hefur orðið um 50% samdráttur í bóksölu og ber þar margt til. Elsta kynslóðin sem bar uppi bókmenninguna er ýmist látin eða komin inn á elliheimili og kaupir þar af leiðandi ekki bækur lengur. Miðaldra fólk kaupir einngi lítið af bókum því viðkvæðið hjáþví er gjarnan: það eru allar hillur orðnar fullar hjá mér, börnin mín sýna þeim engan áhuga og hver á að taka við þessu eftir minn dag? Jóhannes Helgi talar um stóraukna notkun á sjónvarpi og myndböndum, út- þenslu dagblaða og fleira þess- legt. Síðar segir hann: „Myndbönd og kvikmyndir geta þó aldrei komið í staðinn fyrir hið ritaða orð, og ég held að bókin sé hollari til að rækta upp sköpunargáfu og ímyndunarafl en kvikmyndir og snældur. En þjóð sem missir tungu sína er orð- in all önnur þjóð en hún var“. Svo gæti virst að undir lokin tæki Jóhannes Helgi allt af stórt stökk frá kreppu bókaútgáfu i dag til þess að tungan sé í hættu. En hann hefur að vissu leyti rétt fyrir sér. Ef það reynist rétt, að áhugi á því sem skrifað er á ís- lensku og hugsað eigi eftir að dvína jafnt og þétt undan þrýst- ingi þess hamingjudraums sem skammsýnir menn sjá í tuttugu sjónvarpsrásum í einu - þá er þar með um að ræða þróun sem getur síðar meir teflt sjálfri þjóðtung- unni í mikinn háska. -áb

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.