Þjóðviljinn - 28.02.1984, Page 10

Þjóðviljinn - 28.02.1984, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. febrúar 1984 Verður Fjalakötturinn varðveittur? Mynd - eik. íbúasamtök Grjótaþorps: Skora á borgina að vernda Fjalaköttinn íbúasamtök Grjótaþorps hafa sent borgarstjórn Reykjavíkur áskorun um að varðveita Fjalaköttinn, Aðalstræti 8 í sem næst upprunalegri mynd sinni. í bréfi til borgarstjórnar benda samtökin á hugsanlega leið í því máli, sem er sú að komast að skynsamlegu samkomulagi við nú- verandi eiganda hússins um yfir- töku þess og eignaskipti. Bent er á eftirfarandi möguleika til að ná aft- ur nokkru af því fé sem slíkt myndi kosta borgina: Húsið yrði selt aftur í heilu lagi eða hlutum til aðila með ýmiss konar starfsemi, svo sem menningarlega eða minni háttar at- vinnustarfasemi gegn kvöðum um endurnýjun og viðhald, hliðstæðar þeim sem gerðar hafa verið um önnur hús sem borgin hefur selt í Grjótaþorpi undanfarin ár. Fram- kvæmdanefnd íbúasamtakanna ritar undir bréfið en hana skipa: Egill Egilsson, Sigurður Rúnar Jónsson og Hendrik Berndsen. Orðsending frá íslenskum heimilisiðnaði 1. mars byrjum við að rýma til fyrir nýjum vörum og veitum þvi 15% afslátt af öllumvörum í versluninni Nú er gullið tækifæri fyrir þá sem ætla að fara erlendis næsta sumar að kaupa gjafir fyrir vini og vandamenn. Peysur, jakkar, teppi, band, keramik, finnska gler- ið ofl. ofl. 15% afsláttur frá 1. mars til 10. mars. íslenskur heimilisiðnaður * RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Tilkynning um vanskilavexti Frá og með mánudeginum 5. mars 1984 verða reiknaðir vanskilavextir á öll vanskil við Rafmagns- veitu og Hitaveitu Reykjavíkur. Gjalddagi er við útgáfu orkureiknings. Eindagi er 15 dögum síðar og er hann tilgreindur á orkureikningi. Ef eindagi er á laugardegi, sunnudegi eða á öðrum frí- dögum flyst eindagi yfir á næsta virka dag á eftir. Sé orkureikningur greiddur eftir eindaga falla á hann van- skilavextir samkvæmt vaxtaákvörðun Seðlabanka ís- lands. Rafmagnsveita Reykjavíkur Guðrún Guðmundsdóttir framkvœmdastjóri Þjóðviljans skrifar: Omerkilegar talnablekKÍngar Sem skilyrði fyrir undirskrift ný- afstaðinna samninga krafðist verkalýðshreyfingin félagslegra umbóta fyrir þá félaga sína sem verst eru staddir, þ.e. hafa mestu framfærslubyrðina. Þeir einstaklingar sem verst standa efnahagslega í dag eru án efa konur með barn eða börn á framfæri þ.e.a.s. konur sem axla sjálfar og einar ábyrgð á sér og sín- um börnum. Undanfarna mánuði hefur mikið verið rætt um hinn síminnkandi kaupmátt launa. í því sambandi hefur hin einstæða móðuir oft verið notuð sem dæmi til að sanna hversu erfitt er að lifa á lágum launum. Hér í Þjóðviljanum var fyrir nokkru viðtal við einstæða móðir með tvö börn. Við hér á Þjóðvilj- anum urðum vör við að þetta viðtal hafði mikil áhrif. Þessi einstæða móðir er bankamaður og hefur fyrir samninga 12.542 kr. á mán- uði, í mæðralaun og meðlag hefur hún 5.039 kr., þannig eru heildar- tekjur hennar 17.581 kr. á mánuði. Áhrif Alþýðusambandssamning- anna á lífsafkomu þessarar konu væru þau að kaup hennar hækkaði í 13.169.- Síðan bætist við meðlags- hækkun, tekjutengdar barnabætur og hækkun mæðralauna sem gera 8.800.-. Heildartekjur þessarar konu eru því í dag 21.969,- en voru 1. febrúar 17.581, þannig hafa laun hennar hækkað um 4.298.- eða um 25% ef við förum í ómerkilegan talnaleik. Viðtalið við þessa konu var í sunnudagsblaði Þjóðviljans 22.-23. október og þar segir blaða- maðurinn: „Viðmælandi okkar er 25 ára reykvísk móðir, - hún er ein með tvö börn og vinnur í banka. Svip- aða sögu má segja um tugi kvenna á hennar aldri, aðrir tugir eru í ann- ars konar þjónustustörfum eða í fiskvinnslunni. Vita menn að í Reykjavík skipta þau börn þúsund- um, sem aðeins hafa eina fyrir- vinnu, - í flestum tilfellum konu sem vinnur láglaunastörf? Hvereru kjör þessara kvenna og hvað mega þessi börn búa við?“ Formaður félags einstæðra for- eldra Jóhanna Kristjónsdóttir hef- ur fordæmt þessar aðgerðir í fjöl- miðlum og segir þær koma einstæð- um foreldrum að litlu gagni. Það er vitnað til Jóhönnu og afstöðu hennar flaggað í leiðara Þjóðvilj- ans 24. febrúar. Blaðið gerir orð hennar að sínum. Upphaf leiðar- ans er: „í viðtali við útvarpið í fyrra- kvöld fjallaði Jóhanna Kristjóns- dóttir formaður einstœðra foreldra um þœr blekkingar sem beitt hefur verið til að telja fólki trú um að í kjölfar hinna nýgerðu samninga kœmi til framkvæmda veruleg kjarabót fyrir einstœða foreldra. Hún rakti að þær tölur, sem nefnd- ar hefðu verið, fœlu í sér ómerki- legar talnablekkingar. í raun vœri í þessum samningum verið að reyna að fá einstæða foreldra til að sœtta sig við froðu í stað raunverulegra kjarabóta“. Og leiðaranum lauk á þessum orðum: „Dómur forystumanns einstœðra foreldra um hliðaraðgerðir ríkis- stjórnarinnar er afdráttarlaus. Þær eru froða og blekkingar, yfirborðs- legar og ófullnægjandi“. Ég held að Jóhanna skilji hvorki reglur hlutfallsreiknings né þekki stöðu kvenna á vinnumarkaðinum en hún hlýtur að vita að meginhluti einstæðra foreldra er konur. Um 82% kvenna sem hafa atvinnutekj- ur höfðu tekjur undir 16.000 kr. 1. febrúar 1984. Börn einstæðra for- eldra munu vera um 6.600 af þeim eiga 2.156 börn foreldri sem hafði 150 þúsund eða minna í tekjur á síðasta ári. Það er þannig einn þriðji einstæðra foreldra með það lágar tekjur að hækkunin verður yfir 20% í upphafi samningstím- ans. Það er margt við þessa samninga sem hægt er að gagnrýna. Kaupmáttur launa féll um 25% á síðasta ári, þetta kaupmáttarfall er óbætt fyrir flest okkar. Hlutfalls- hækkun launa nær upp allan launastigann. Ungt fólk 16 og 17 ára fellur ekki undir nýju tekju- tryggingarmörkin. Það er hægt að halda áfram að telja upp. Þessir samningar hafa samt sem áður kosti. Þeir nást án átaka. Hluti af því fólki sem hefur erfiða framfærslubyrði fær kaupránið bætt. Konur bæta stöðu sína í hlut- falli við karlmenn þar sem þær eru stór hluti hinna lægst launuðu. Samningarnir stöðva þá óberan- legu kjararýrnun sem átt hefur sér stað hjá þorra fólks undanfarna mánuði. Þessi grein er ekki skrifuð til að verja nýafstaðna kjarasamninga. Hún er ekki heldur skrifuð til að klappa fyrir þeim félagsmálapakka sem fylgir. Þessi grein er skrifuð af því mér finnst fólk leggjast lágt og vera illa samkvæmt sjálfu sér, ef það fyrir aðgerðir leggur áherslu á ákveðin atriði sem verði að leiðrétta, í þessu tilviki tekjur þeirra sem hafa þyngstu fram- færslubyrðina, en eftir aðgerðir segir allt sem gert hefur verið til jöfnunar vera froðu og blekkingar þótt tölulegar upplýsingar sýni annað. Ef við ætlumst til þess að okkur sé trúað í framtíðinni skulum við láta okkur nægja að gagnrýna það sem er gagnrýni vert. Það er slæmt að loka augunum og látast ekki sjá það sem vel er gert en það er ennþá verra að umsnúa því og rangfæra. Rvík 24. febr. ’84. Guðrún Guðmundsdóttir Kvennaskóli í Kvennaskóla Leikfélag Kvennaskólans: Rógburður Höfundur: Lillian Hellmann Leikstjóri: Vilborg Halldórsdóttir. Föstudaginn 17. febrúar frum- sýndi Leikfélag Kvennaskólans í Reykjavík „Rógburð“ (The Children’s Hour) eftir Lillian Hell- mann. Leikfélag þetta var stofnað s.l. haust og er Rógburður því fyrsta viðfangsefni þess. Lillian Hellmann fæddist í New Orleans árið 1905. Hún stundaði háskólanám bæði í heimaborg sinni og í New York, vann síðan sem bókmenntagagnrýnandi og blaða- maður um nokkurt skeið áður en hún tók til við að skrifa leikrit. Rógburður er fyrsta verk hennar, frumflutt árið 1934 og vakti þá gífurlega athygli og deilur og var bannað að sýna það bæði í Boston og Chicago. Eins og þýðingin á nafni verksins bendir til, fjallar það um illmælgi og róg og hvernig eitraðar tungur geta haft úrslitaáhrif á líf og fram- tíðarmöguleika einstaklingsins. Örlagavaldurinn í Rógburði er Mary Tilford, 14 ára skólastúlka, sem hefnir sín á umhverfi sínu með því að breiða út sögur um óeðlilegt kynferðissamband milli tveggja kvenna, Mörtu og Karenar, en þær reka stúlknaskóla sem Mary sækir. Með veikum rökum tekst henni að sannfæra ömmu sína, frú Tilford, sem er áhrifamikil kona og fólk tekur mikið mark á. Sú gamla beitir þessum áhrifum sínum í her- ferð gegn Mörtu og Karen og ann sér vart hvíldar fyrr en allar stúlk- urnar hafa verið teknar burt úr skóla þeirra. Þær stöllur, Marta og Karen, höfða mál gegn frú Tilford, Súsanna Svavarsdóttir skrifar um leikhús en tapa því, aðallega vegna þess að frænka Mörtu, Lily Tilford, neitar að vera vitni þeirra í réttarhöldun- um. Þar með eru framtíðarmögu- leikar þeirra orðnir að engu. Eins og fyr segir er þetta fyrsta verkið sem Leikfélag Kvenna- skólans setur upp. Jafnframt erþað frumraun Vilborgar Halldórsdótt- ur sem leikstjóra. Það verður að segjast eins og er, að sýningin bar þess merki og þá sérstaklega fyrri hluti hennar. Alveg fram að hléi var þetta stórkostlega verk mjög kraftlaust og óáhugavert. Þáttur- inn byggir mest á frænkunni Lily (Margréti Ólafsdóttur) og á krakk- aorminum Mary (Bryndís Marsibil Gísladóttir). Túlkunin á þessum tveimur var í hæsta máta ósann- færandi og birtist Mary sem leiðinda væluskjóða í stað þess andstyggðar flagðs sem hún er. í seinni hlutanum er hinsvegar megináherslan á stöllunum Mörtu (Halla Stefánsdóttir) og Karen (Steinunn Knútsdóttir) og áttu þær ágætisleik og jafnvel svo á köflum að reynsluleysi þeirra týndist. Um frammistöðu leikaranna skal fátt annað sagt hér. Þó get ég ekki látið hjá líða að nefna Þóru Friðriks- dóttur í hlutverki frú Tilford. Fra- msögn hennar var einkar skýr og eðlileg og leikurinn lofsverður. Það sem skemmdi sýninguna ekki hvað síst var lýsingin. Henni var eingöngu beint inn á sviðið, þannig að allt sem gerðist framan við það mitt, var hulið myrkri og engin svipbrigði því greinanleg hjá leikurum. Án efa hefur það átt sinn þátt í því að draga úr kraftinum. Leikmyndin var hinsvegar mjög sniðuglega unnin og búningarnir einstaklega skemmtilegir. Þrátt fyrir þá vankanta sem á sýningunni voru vona ég að Leikfé- lag Kvennaskólans láti ekki deigan síga, en haldi áfram að kynna fyrir okkur leikrit eftir konur, það eru víst ekki of margir sent taka það að sér. Súsanna Svavarsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.