Þjóðviljinn - 28.02.1984, Síða 14
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. febrúar 1984
búsýslan
Gómsætar
BOLLUR
Bolludagurinner
næstkomandi mánudag og
þar sem þetta er síðasta Bú-
sýslan fyrir þann merka dag
birtum við hér tvær uppskriftir
að góðum bollum. Sú hin fyrri
er af klassískum gerbollum,
sem finna má í velflestum
matreiðslubókum og standa
ávallt fyrir sínu. Síðari upp-
skriftin er af mjög fínum boll-
um og kemur hún frá Frakk-
landi.
Rjómabollur (16 bollur)
5 tsk. þurrger eða 50 g pressuger
2 dl mjólk
8 dl hveiti
1 tsk. salt
2 tsk. sykur
50 gr smjörlíki
2 egg
'h tsk. kardimommur
Velgið mjólkina og hrærið ger-
ið út í hana. Blandið saman
hveiti, salti, sykri og kardi-
mommum og myljið smjörlíkið
saman við. Hnoðið eggið upp í og
hellið að lokum mjólkur- og ger-
blöndunni saman við. Stráið dá-
litlu hveiti á borð og látið deigið á
borðið. Nú eigið þiö að hnoða
þar til deigið Ioðir vel saman og er
orðið vel teygjanlegt. Þið þurfið
e.t.v. að hnoða meira hveiti upp í
deigið.
Penslið skál að innanverðu
með matarolíu og látið deigið í
skálina. Breiðið klút yfir og látið
síðan skálina standa á heitum
stað í ca. 30 mínútur eða þar til
deigið hefur tvöfaldast. Þá er
hvolft úr skálinni, deigið hnoðað
lítillega og síðan klipið úr því
hæfilegtmagníeina bollu. Bollan
'er mótuð með höndunum og síð-
an sett á smurða ofnplötu. Boll-
urnar eiga nú að hefast á plötunni
í ca. 30 mínútur, en að því loknu
er þeim stungið inn í 190 gráðu
heitan ofn og bakaðar.
Þegar þær hafa bakast eru þær
teknar úr ofninum og látnar
kólna. Þá eru þær skornar í sund-
ur um miðju, sulta sett á neðri
helminginn og rjómi þar ofan á
og efri helmingnum síðan tyllt
ofan á rjómann. Á efri helming-
inn er ýmist stráð flórsykri eða
bráðnu súkkulaði smurt ofan á.
Einnig má búa til súkkulaði úr
flórsykri og kakói og látið á boll-
urnar.
Eggjabollur (8 bollur)
3 dl vatn
75 g smjör í litlum klípum
1 tsk salt
nutmeg á hnífsoddi
300 g hveiti
5 stór egg
Hitið vatn að suðumarki í stór-
um potti. Látið smjörið, saltið og
nutmeg útí og takið pottinn af hit-
anum þegar smjörið hefur allt
bráðnað. Hrærið hveitinu smám
saman við og hrærið þar til deigið
losnar frá hliðum pottsins.
Hrærið nú með hrærivél eggj-
unum saman við, einu í einu.
Þegar eggjunum hefur verið bætt
útí, á deigið að vera þykkt og
gljáandi.
Hitið ofninn að 220 gráðum og
smyrjið tvær ofnskúffur. Þið get-
ið ánnað hvort sprautað deiginu á
plöturnar með sprautu eða látið
það á með skeið - fallegra er þó
að gera þetta með sprautu og
bollurnar verða miklu lögulegri
þannig. Ekki er ráðlegt að hafa
fleiri en fjórar á hverri ofnplötu,
því bollurnar tútna mikið út í of-
ninum.
Takið nú enn eitt egg út úr ís-
skápnum, brjótið það í skál og
hrærið vel með 'h tsk. af vatni.
Penslið hverja bollu með þessu
áður en þær eru bakaðar, en
bakið síðan í 10 mínútur. Þá
lækkið þið hitann í ca. 190 gráður
og bakið áfram í 25-30 mínútur,
eða þar til þær hafa tvöfaldast að
stærð og eru orðnar fallega gull-
brúnar. Gætið vel að hitanum -
bakaraofnar eru mjög misjafnir,
eins og þið vitið, og því þarf að
fylgjast vel með.
Þegar bollurnar eru bakaðar
takið þið þær úr ofninum og
skerið litla rauf í hverja þeirra til
þess að hleypa gufunni út (þær
eiga að vera holar að innan).
Slökkvið á ofninum um leið og
þið takið bollurnar út og látið nú
bollurnar aftur inn í ofninn og
geymið þær í eins og 10 mínútur.
Þá takið þið þær út og látið kólna
alveg.
Skerið þær í miðju og fyllið
með sultu og rjóma. Mjög gott er
reyndar að hafa ís í milli, og það
getið þið prófað líka. Ofan á er
síðan sett bráðið súkkulaði.
Lýsi h.f.:
Nýr heilsuvökvi íslenskur
Frískamín heitir nýtt íslenskt
fjölvítamín frá Lýsi h.f., sem
nýkomið er í verslanir. Það er
selt í 250 ml flöskum og kostar
hverþeirra49krónur.
Lýsið okkar er feikilega auðugt
af ýmsum vítamínum, sem við
þurfum mjög á að halda í skamm-
deginu. Mörgu foreldri gengur
býsna illa að koma því ofan í
börnin. Lýsi h.f. hefur að undan-
förnu verið að prófa sig áfram
með bragðbætingu á lýsi, og hef-
ur Baldur Hjaltason, efnaverk-
fræðingur, haft veg og vanda af
þeim prófunum. Frískamín er ein
afurðin sem sprottin er úr þessum
prófunum, en auk þess að inni-
halda öll efnin, sem eru í lýsi, er
að auki bætt í það öðrum vítamín-
um, þannig að kalla má þetta
fjölvítamín.
Það skal tekið fram, að Búsýsl-
unni þykir fulllítið af C-
vítamínum í Frískamíni til að það
uppfylli heitið fjölvítamín að
fullu. En þar sem komið hefur í
ljós með rannsóknum, að íslensk
skólabörn eru yfirleitt vel haldin
af C-vítamíni en aftur á móti verr
haldin af A og D vítamínum, má
með sanni segja, að Frískamín
komi að góðu haldi. Það er ágætt
á bragðið (a.m.k. ekki vont -
bragðið er frekar hlutlaust) og
börnin ættu frekar að fást til að
Verðkönnun NAN:
leggja sér það til munns heldur en
feitt lýsið.
Ódýrast í Hrísalundi
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis hefur gert könnun á
verði nokkurra vörutegunda í sex
verslunum á Akureyri og í
kaupfélögunum á Svalbarðseyri
og á Grenivík. Umtalsverður
munur er á verði í þessum versl-
unum.
Könnunin stóð yfir dagana 1.
og 2. febrúar sl. og náði til þess-
ara verslana: Hagkaupa, KEA
Hrísalundi, KEA Sunnuhlíð,
Búrsins, KEA Strandgötu, Hafn-
arbúðarinnar, KEA Grenivík og
KEA á Svalbarðseyri. Kannað
var verð á 31 vörutegund, þ.á.m.
hveiti, sykur, púðursykur, hafra-
grjón, lyftiduft, nautahakk,
kjúklingar, egg, sólblóma, epli,
appelsínur, súkkulaðibúðingur,
Bragakaffi, tekex, eldhúsrúllur,
Dixan þvottaduft og Plús mýk-
ingarefni.
Lagt var saman verð á 20 teg-
undum af þeim 31, sem kannað-
ar voru. Hefðu þær allar verið
keyptar hjá KEA í Hrísalundi
hefðu þær kostað samtals 919,75
krónur og var það ódýrasta versl-
unin. Hefðu þær allar verið
keyptar í Hagkaupum hefðu þær
ksotað 927,50 krónur, hjá KEA
Sunnuhlíð hefur þær kostað
991,50 krónur, hjá Búrinu 985,25
krónur, hjá KEA Strandgötu
1.020,60 krónur, hjá KEA Gren-
ivík 1.041,70 krónur og hjá KSÞ á
Svalbarðseyri hefðu þessar vörur
kostað 1.060,55 krónur. Það
virðist því hagstæðast fyrir
neytendur að versla við KEA í
Hrísalundi, en Hagkaup fylgja
fast á eftir.
Upplýsingar þessar má nálgast
í nýjasta fréttabréfi Neytendafé-
lags Akureyrar og nágrennis,
Eiðsvallagötu 6, sími 22506.
Skrifstofan er opin þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 4-6 síðdegis.