Þjóðviljinn - 02.03.1984, Síða 20
uobmuinn I Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími 81663
Föstudagur 2. mars 1984
Forstjóri Mjólkursamsölunnar lét draga yfirlýsingar VSÍ um skaðabœtur á hendur
starfsmönnum til baka í gœrkvöldi
„Kaffítíminn4 ‘ færði sigur
Sérkjaraviðrœður starfsmanna í dag
„Öll þessi deila í dag hefur verið
til þess að fá þessar viðræður sem
við erum loks búnir að fá loforð
fyrir. Það hefði verið nær að lofa
þessum viðræðum þegar í morgun,
því þá hefði þetta ástand aldrei
þurft að skapast.Við vildumað það
yrði talað við okkur eins og menn
og nú eru þeir búnir að skilja það
að við látum ekki sparka í okkur
eins og hunda“, sagði Ólafur Ólafs-
son formaður samninganefndar
Dagsbrúnarmanna hjá Mjólkur-
samsölunni í samtali við Þjóðvilj-
ann seint í gærkvöldi þegar loks
hafði tekist samkomulag milli for-
stjóra samsölunnar og starfsmanna
um að samningafundur um sér-
kröfur verði haldin fyrir hádegi í
dag og allar bótakröfur fyrirtækis-
ins á hendur starfsmönnum vegna
vinnustöðvunar í gær verði felldar
niður. Vinna hófst þvl að nýju í
Mjólkursamsöiunni kl. 6 í morgun.
„Forsaga þessa máls er sú að við
gengum út af samningafundi í
morgun, þegar í ljós kom að for-
ráðamenn Mjólkursamsölunnar
vildu ekkert við okkur ræða, held-
ur höfðu fulltrúar VSÍ tekið yfir af
þeirra hálfu. Það hafa verið í gildi
sérkjarasamningar starfsmanna
við Mjólkursamsöluna frá fyrstu
tíð og við sættum okkur ekki við
annað en það sé rætt við okkur eins
og maður við mann. Fulltrúar VSÍ
hins vegar hreinlega köstuðu okkar
kröfum framan í okkúr aftur“,
sagði Ólafur Ólafsson.
„Við viljum fá fulltrúa samsöl-
unnar að samningaborðinu, og því
settumst við niður á kaffistofunni.
Það var alger samstaða meðal
starfsfólksins og verkakonur úr
Framsókn lögðu einnig niður vinnu
með okkur“.
í hádeginu í gær barst formanni
Dagsbrúnar hraðskeyti frá VSÍ þar
sem verkalýðsfélagið og einstakir
starfsmenn mjólkurstöðvarinnar
voru lýst ábyrg fyrir afleiðingum
vinnustöðvunarinnr og var hótað
bæði sektum og refsingum.
Um miðjan dag í gær náðist sam-
komulag um að VSÍ drægi þessar
hótanir til baka og fulltrúar sam-
sölunnar settust að samningaborði
með starfsmönnum um sérkjara-
mál. Fulltrúar starfsmanna lögðu
þá til að starfsmenn tækju upp
vinnu að nýju. Meirihluti starfs-
manna hafnaði því hins vegar í at-
kvæðagreiðslu en lýsti sig reiðubú-
inn að mæta fyrr til vinnu nú í
morgun en venja er. Þegar þetta lá
fyrir sögðu fulltrúar VSÍ
samkomulagið fallið úr gildi og gaf
VSÍ út fréttatilkynningu þar sem
fyrri hótanir voru teknar upp að
nýju.
Seint í gærkvöldi dró forstjóri
Mjólkursamsölunnar hins vegar
þessa fréttatilkynningu VSÍ til
baka og gaf út yfirlýsingu þess efnis
að Mjólkursamsalan mundi ekki
gera sekta- og skaðabótakröfur á
hendur starfsmönnum fyrirtækis-
ins. Væri yfirlýsing þessi gefin í
trausti þess að vinna hæfist að nýju
með eðlilegum hætti í dag og að
ekki komi til frekari fyrirvara-
lausra vinnustöðvana.
„Við hljótum að líta á þetta
traust eins og traust okkar hefur
verið við þessa menn í dag, metið
að þeirra hálfu. Ég mun mæla með
að þessi yfirlýsing verði samþykkt í
fyrramálið og þá munum við einnig
hefja okkar sérkjaraviðræður",
sagði Ólafur Ólafsson. - lg.
Sjómenn bindast samtökum:
Mótmælum rignir
yfír ríkisstj órnina
vegna fyrirhugaðra breytinga á aflatryggingasjóði
Sjómenn um allt land hafa bund-
ist samtökum um að mótmæla
frumvarpi því til breytinga á
aflatryggingasjóði, sem ríkisstjórn-
in hyggst leggja fram á Alþingi. í
gær höfðu áhafnir 75 skipa sent inn
mótmæli og búist er við að mótmæli
berist frá áhöfnum allra skipa, þar
sem skipstjórinn er ekki jafnframt
eigandi bátsins, sagði Óskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bandsins í gær.
Sem kunnugt er hafa bæði út-
gerðarmenn og sjómenn lagt fé í
aflatryggingasjóð og hlutverk hans
hefur verið að bæta útgerðar- og
sjómönnum upp þegar illa gengur.
Þegar fiskverð var ákveðið lofaði
ríkisstjórnin útgerðarmönnum að
fá þeim einum allt fé aflatrygginga-
sjóðs, til að bæta þeim upp minni
aflá vegna kvótakerfisins, sjómenn
fá ekki neitt.
Til þess að gera þetta þarf laga-
breytingu og ríkisstjórnin mun
leggja fram frumvarp á Alþingi í
þessu skyni. Að sjálfsögðu vilja
sjómenn ekki una þessari
eignaupptöku, eða fjárnámi, þar
sem þeir hafa lagt til og eiga því
stóran hluta sjóðsins, sem nú á að
færa útgerðarmönnum, til þess að
greiða upp skuldir þeirra.
„Sjóðurinn hefur tryggt sjó-
mönnum laun, þegar illa hefur
gengið og hafi nokkru sinni verið
ástæða til að styrkja sjómenn í
þessum efnum þá er það nú árið
1984 eins og útlitið er, en nú eins og
svo oft áður er gengið á rétt sjó-
manna, hoggið í sama knérunn ár
eftir ár og menn eru einfaldlega
búnir að fá nóg“, sagði Óskar Vig-
fússon í gær. _ s.dór
Skákmótið í Grindavík:
Jón L. vann Jóhann
McCambridge efstur
Borgarstjórn frestaði
Fjalakettinum:
Yfír 2000
undirskriftir!
í upphafi borgarstjórnarfundar í
gær voru Davíð Oddssyni afhentar
yfir 2000 undirskriftir Reykvík-
inga, sem skora á borgina að gera
allt sem í hennar valdi stendur tii að
vernda Fjalaköttinn.
Málið var hins vegar tekið út af
dagskrá og því frestað án umræðu.
Samkvæmt heimildum Þjóðviljans
mun Davíð Oddsson borgarstjóri
hafa átt frumkvæði að þeirri frest-
un, og mun ætlunin að nota frest-
inn til að ræða við menntamálaráð-
herra um framtíð hússins, en Ragn-
hildur Helgadóttir er væntanleg
eim um helgina. - ÁI.
Jón L. Árnason vann Jóhann
Hjartarson í viðureign þeirra fé-
laga í annarri umfcrð alþjóðiega
skákmótsins í Grindavík í gær-
kvöldi. McCambridge vann
Björgvin Jónsson en öðrum skák-
um lyktaði með jafntefli: Knezevic-
Gutman, Elvar Guðmundsson-
Christiansen, Helgi Ólafsson-
Lombardy, Ingvar Ásmundsson-
Haukur Angantýsson.
í tuttugu leikja viðureign Jóns L.
og Jóhanns sótti hinn síðarnefndi
fast en mun hafa teygt sig helst til
langt og eftir peðsfórn vann Jón L.
mann og þarmeð skákina.
Biðskákirnar úr fyrstu umferð
voru tefldar í gærmorgun og urðu
úrslit heldur dapurleg fyrir
landann; Jón L. tapaði fyrir
McCambridge, Helgi fyrir Gut-
man, Björgvin fyrir Lombardy en
skák þeirra Knezevics og Elvars fór
enn í bið og átti að halda henni
áfram seint í gærkvöldi.
Efstur á mótinu eftir tvær um-
ferðir (að undanskilinni biðskák-
inni) er bandaríski alþjóðameistar-
inn Vincent McCambridge með
2 v. Næstir með 11/2 v. eru Ingvar,
Christiansen, Lombardy og Gut-
man. -m
Síðustufréttir: Elvarog Knezevic
gerðu jafntefli í nótt.
Harðar
deilur
um hand-
knatt-
leikinn
Hörð gagnrýni kemur fram
á ástandið í málcfnum
handknattleiks-íþróttarinnar
t viðtölum sem Þjóðviljinn
birtir á morgun. í þessum við-
tölum koma fram harðorðar
yfirlýsingar frá forystu-
mönnum félaga.
„Ef haldið verður áfram á
þessari braut verður búið að
leggja niður íslenskan hand-
knattleik innan tveggja-
þriggja ára.“ - „Handknatt-
leiksíþróttin er að koðna nið-
ur í höndunum á okkur.“ -
„Þetta er ekki orðið neitt ann-
að en peningaaustur fyrir fé-
Iögin.“ - „Það er verið að
drepa algerlega niður áhug-
ann á handknattleik hér á
landi.“
í Sunnudagsblaði Þjóðvilj-
ans sem kemur út í fyrramálið
er rætt við fulltrúa frá öllum 1.
deildarliðum karla í hand-
knattleik um keppnisfyrir-
komulagið á íslandsmótinu.
Ummælin hér að ofan er að-
eins brot af því sem aðstand-
endur handknattleiksins hafa
að segja um ástandið í sinni
íþrótt. Almenn óánægja með
framkvæmd og skipulagningu
íslandsmótsins og allir við-
mælendur okkar eru hlynntir
breytingum. _VS