Þjóðviljinn - 06.03.1984, Side 1
UOBVIUINM
Frystihús
Akureyringa skóp mest
framleiðsluverðmæti allra
frystihúsa í landinu á síð-
asta ári. Þjóðviljinn leit
þar inn á dögunum.
Bls. 8
mars
þriðjudagur
49. árgangur
55. tbl.
• Komið á þriðja miljarð
króna
• Þorsteinn bíður
eftir svörum
og tillögum
frá Albert
• Margir
skyndi-
fundir um
vandann
í gær
Fundi fjárveitinga-
nefndar frestað
Stjórnarand-
staðan boðuð
á fund hjá
fjármálaráð-
herra
Fyrir tveim
mánuðum
sögðu Lárus
Jónsson og
Albert Guð-
mundsson að
fjárlögin væru
marktæk, ábyrg
og raunhæf“!
STORA GATIÐ
Efnt var til formlegra og ó-
formlegra neyöarfunda í gær hjá
þingflokkum og ríkisstjórninni.
I baksölum alþingis var mikið
um slíka skyndifundi og fór
ekki dult að hver ásakar annan í
st j órnarflokkunum.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði í viðtali við
Þjóðviljann í gær, að ráðherrar
og alþingismenn væru kjörnir
til að leysa þennan vanda. Þeg-
ar Þjóðviljinn spurði Þorstein
Pálsson formann Sjálfstæðis-
flokksins hvernig stæði á því að
þetta gat kæmi uppá fyrst núna
rúmum tveimur mánuðum eftir
að fjárlög voru samþykkt á al-
þingi, svaraði Þorsteinn: „Ja,
við höfum ekki fengið nein svör
við því ennþá“. Sagðist Þor-
steinn gera ráð fyrir því að
fjármálaráðuneytið komi með
tillögur til lausnar vandanum.
Þannig virðist stefnt á það
innan Sjálfstæðisflokksins að
gera Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra einan ábyrg-
an fyrir þessu gati.
Lárus Jónsson formaður fjár-
veitinganefndar alþingis sagði
að lausir endar í fjárlögunum
væru fleiri en menn hugðu við
afgreiðslu fjárlaganna. Hann
kvað vandann vera mestan í
tryggingakerfinu. Matthías
Bjarnason tryggingamálaráð-
herra kvaðst hins vegar hafa
farið í einu og öllu eftir forsend-
um fjárlaga í tryggingakerfinu
um samdrátt.
Þegar fjárlagafrumvarpið var
Stóra gatið ífjárlögunum er sífellt að stœkka. Samkvœmtfrásögnum
fjárlagaglöggra manna ígœr mun gatið nú nema á þriðja miljarð króna.
Hér er ekki um vanáœtlanir á fáum málaflokkum að rœða heldur um
ruglandi og vitlausar áœtlanir áfjölmörgum sviðum fjárlaganna. Voru í
gœr nefndar mjög háar tölur á nœr öllum sviðum fjárlaganna, t.d. í
heilbrigðismálum, menntamálum, húsnœðismálum, atvinnumálum,
dómsmálum og áfleiri sviðum. Nefndar voru tölur um vanáœtlanir sem
nœmu 100-200 miljónum á hverju þessara sviða og á sumum þeirra mun
hœrri upphœðir. Virðist hið stóra gat í fjárlögunum saman sett af
mörgum götum út um nœr öllfjárlögin. Þingmenn stjórnarliðsins voru í
senn undrandi, reiðir og hrœddir vegna þessara frétta því ekki eru nema
tveir mánuðir síðan ríkisstjórnin taldi þeim trú um að ífyrsta sinn hefðu
verið samþykkt „raunhœf‘ fjárlög.
til afgreiðslu á alþingi fyrir rúm-
um tveimur mánuðum, lýstu
þeir Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra og Lárus Jónsson
formaður fjárveitinganefndar
því yfir að fjárlögin væru raun-
hæfari og marktækari en áður.
Kváðu þeir fjárlögin marka
stefnu ríkisstjórnarinnar og
vera forsendu hennar. Nú er sú
forsenda fyrir stefnu ríkis-
stjórnarinnar hrunin.
f gær var fundi fjárveitinga-
nefndar frestað vegna funda-
halda í ríkisstjórninni um mál-
ið. Þá boðaði fjármálaráðherra
fulltrúa stjórnarandstöðunnar
á sinn fund til að skýra mála-
vöxtu. Þeir Ragnar Arnalds og
Geir Gunnarsson voru á fund-
inum af hálfu Alþýðubanda-
lagsins, en litið var á upplýsing-
ar ráðherra sem trúnaðarmál.
Á fimmtudag hefur verið boð-
uð umræða um þetta alvarlega
mál á alþingi.
-óg/S.dór.
Sjá 2 og 3
Fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson boðaði Ragnar Arnalds
fyrrverandi f jármálaráðherra og Geir
Gunnarsson fyrrverandi formann
fjárveitinganefndar til fundar í fjár-
málaráðuneytinu í gær til að kynna
þeim gatið. Þessi mynd vartekin við
það tækifæri. Ragnar og Geir töldu
að þessar upplýsingar kæmu sér
ekki á óvart þvi þeir hefðu við af-
greiðslu fjárlaganna í desember
bent á fjölmarga galla við fjárlaga-
gerðina. Mynd - Atli.