Þjóðviljinn - 20.03.1984, Page 2

Þjóðviljinn - 20.03.1984, Page 2
2 Sít)A - 'Þ.l'Ó&VtUINN Þriðjudagúr 20. iriárs I9Í84 „Það hafa komið fram van- kantar á kvótakerfinu og þá ætlum við að sníða af, en kvót- akerfinu verður ekki breytt á þessu ári“, sagði Halldór As- grímsson sjávarútvegsráðherra á fundi þeim sem útgerðar- menn, sjómenn og fiskverkend- ur efndu til sl. sunnudag í Sig- túni í Reykjavík. Segja má að þetta hafi verið hin eina áþreifanlega niðurstaða þessa fundar, sem annars einkenndist af mikilli gagnrýni á kvótakerf- ið, eins og fram kemur í ályktun þeirri sem samþykkt var í lok fundarins. Það eina sem bent var á að koma ætti í stað kvót- akerfisins, miðað við fiskvernd- un, er 4. málsgrein ályktunár- innar, þar sem segir að sníða beri vankanta af þeim stjórnun- araðferðum sem beitt hefur verið á liðnum árum, skrapdag- akerfinu, og láta það síðan taka við af kvótakerfinu. Tveir af fundarboðendum, Jón Magnússon og Jens Valdimarsson 1. * v. (Ljósm. - eik-) Kvótakerfinu ekki breytt í ár var svar Halldórs Asgrímssonar við áskorunum frá fundarmönnum um að afnema núverandi kvótakerfi Jón Magnússon útgerðarmaður og skipstjóri frá Patreksfirði var sá er mest hvatti til þessa fundar. Hann sagði í upphafi fundar að ástæðan fyrir því að hann var hald- inn hafi verið sú, að mörgum út- gerðarmönnum og sjómönnum hafi blöskrað hvað menn voru komnir iangt af leið með að setja kvótakerfið á. Hann sagðist ekki hafa á takteinum lausn á málinu, en sagðist tilbúinn að vinna með hverjum sem er til að finna betri og réttlátari leið til stjórnunar fisk- veiða en kvótakerfið. Þorsteinn Jóhannesson, sem var einn frummælenda sagðist líta á þennan fund sem aðvörun til manna uppá seinni tímann, svo ekki yrði gerð sama vitleysan aftur og setning þessa kvótakerfis. Jens Valdemarsson kaupfélags- stjóri á Patreksfirði, sem var 3ji frummælandi, sagðist í upphafi hafa verið hlynntur kvótakerfinu, en framkvæmd þess hafi komið, sem köld vatnsgusa yfir hann, einsj og svo marga aðra. Hann sagðisti því vera orðinn andvígur kvóta- kerfinu og vilja afnema það. Hann^ sagðist alltaf hafa hugsað kvóta- kerfið sem stjórnkerfi, en ekki til að taka allt frumkvæði af sjó- mönnum og útgerðarmönnum eins og það gerði í framkvæmdinni. Jón Magnússon benti á að kerfið tæki allt frumkvæði af sjómönnum og útgerðarmönnum og mannlegi þátturinn hefði algerlega gleymst. Nú væri ekki lengur þörf fyrir dugnaðarmenn, allir væru settir í meðalmennskuna. Hvar er formaður LÍÚ? Sigurður Haraldsson útgerðar- maður kom fyrstur í ræðustól að loknum framsöguræðum og spuröi strax um Kristján Ragnarsson, for- mann LÍÚ, en hann var ekki á fundinum og var hann harðlega gagnrýndur fyrir að koma ekki. Sigurður sagði að í kjölfar „svartr- ar“ skýrslu fiskifræðinga hefði komið „svartur" kvóti. Hann sagði fiskifræðinga ekkert vita hvert fisk- urinn færi í sjónum, né hvenær hann kæmi og nefndi mörg dæmi um rangar spár og útreikninga fiskifræðinga, máli sínu til stuðn- ings. Skúli Alexandersson alþingis- maður tók til máls og benti á að þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar kvótakerfinu væru brostnar. Hann sagði ljóst að kvót- inn kæmi ekki í veg fyrir að minna væri veitt, þess í stað væri nú svikið. framhjá vikt og hent í sjóinn lak- asta fiskinum og smáfiski. Þá væri nú þegar Ijóst að sá sparnaður sem menn bjuggust við að leiða rnyndi af kvótakerfinu hefði ekki komið fram. Menn sæktu jafnt stíft og áður meðan fiskur veiðist. „Það má vera að gæði þess afla sem að landi kemur séu betri en áður, en ég spyr, eru ekki til aðrar og betri leiðir til að ná þvf takmarki, en að skammta mönnum aflamagn. Hann taldi að mikið vantaði uppá að ákvörðun um kvótakerfið hefði verið tekin með lýðræðislegum að- ferðum. Það var Fiskiþing sem á- kvað þetta, aðeins annar af tveimur fulltrúum Vestlendinga sat það þing og hafði ekkert umboð til að samþykkja kvótakerfi fyrir alla sjómenn og útgerðarmenn á-Vest- urlandi. Skúli sagðist endalaust geta rakið ranglæti þessa kvótak- erfis, rangláta skiptingu milli báta, milli landshluta o.s.frv. Ranglætið væri nær endalaust. Of seint brugðist við Garðar Magnússon sagðist frá upphafi hafa verið á móti kvóta. Nú væri allir gallar hans komnir í ljós. Nú væri fiskiganga, en samt væri engu hreyft, Hafrannnsókna- stofnunin hefðist ekkert að. Jakob Sigurðsson, fiskverkandi, kvað kvótann hafa verið illa undirbúinn og hafa verið settan á alltof skyndi- lega. Á honum væri of margir van- kantar, sem ekki verði unað við. Kristján Pálsson frá Ólafsvík sagðist hafa verið meðmæltur kvóta í upphafi og samþykkt hann á fiskiþingi. Nú hefur komið í ljós að meiri fiskur er á miðunum en búist var við, fjölmargir bátar að verða búnir með kvótann sinn og atvinnuleysi blasti við víða um land. Því þarf að taka málið til gagngerrar endurskoðunar, sagði Kristján. Guðjón Kristjánsson skipstjóri og formaður FFSÍ, benti á að í ára- tugi hefðu verið upp og niður- sveiflur í veiðum. Allt frá 280 til 550 þúsund lesta ársafla á íslands- miðum. Ef aðeins ætti að leyfa veiðar á 220 þúsund tonnum væri ekkert kerfi til sem gæti gengið við slíka viðmiðun. Halldór Ásrímsson sjávarút- vegsráðherra sagði að auðvelt væri að vera á móti stjórnun fiskveiða, en þeir sem það væru yrðu þá að benda á betri leiðir en þær sem þeir væru að gagnrýna. Hann rakti síð- an gang mála frá því „svarta skýrsl- an“ kom frá Hafrannsókn sl. haust og þar til kvótakerfið kom til fram- kvæmda. Hann benti á að þetta kerfi væri sett til eins árs og við það yrðu menn að una, héðan af yrði því ekki breytt, fyrr en á næsta ári og væri þegar hafin vinna við mótun fiskveiðistefnu fyrir næsta ár. Hann þakkaði fyrir þennan fund, svona samkomur gætu aldrei orðið nema til góðs. Fjölmargir aðrir tóku til máls, í allt voru ræður 27 og voru ræðu- menn allir að heita má á einu máli um, að kvótakerfið væri slæmt, því þyrfti að breyta eða afnema með öllu. Síðan var samþykkt ályktun fundarins, sem birt er annarsstaðar hér á síðunni. - S.dór Ályktun Sigtúnsfundarins Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sjó- manna, útgerðarmanna og fiskverkenda á fundi í Sigtúni sl. sunnudag: Almermur fundir sjómanna, úlgerðarmanna og fiskverkenda haldinn í Sigtúni sunnudaginn 18. mars 1984 telur að sú leið sem valin var til stjórn- unarfiskveiða í byrjun úrsins, skipting afla á veiði- skip, með öllu óhœfa þar sem hún leiðir m.a. til óréttlátrar skerðingur á þeirri athöfn fiskimanns- ins, sem leitt hefur sjávarútveginn til að vera meg- instoð þjóðarbúskaparins. Einnig skal bent á hvern vegþessistjórnun leikur atvinnuöryggifólks einstakra byggðarlaga. Fundurinn gengur ekki framlijá þeirri staðreynd að nýta verður fiskistofna með fullri varúð, því • verði að gceta, að friðun hrygningarfiska komi að sem mestu gagni, þá verði og gœtt verndunar ung- fisks. Við takmörkun á sókn í fiskistofna ber að endur- skoða fiskveiðistefnuna ársfjórðungslega með til- liti til framvindu veiða. Fundurinn telur að þeim stjórnunaraðferðum, tímabundnar veiðistöðvanir, sem viðhafðar hafa verið á liðnum árum hafi ekki verið beitt sem skyldi, því verði þœr aðferöir endurskoðaðar, þar sem þœr myndu sníða frá höfuð galla kvótakerfis- ins, en leiða tilþess árangurs, sem kvótakerfinu er œtlað að ná. Fundurinn varar stjórnvöld alvarlega við núver- andi stefnu við stjórnun fiskveiða, sem leiða mun til uppgjafar athafna í fiskveiðum og ófarnaðar sjávarútvegsins. Telur hann því að endurskoða beri nú þegar gildandi reglur. Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands og Guðmundur Hallvarðsson formað- ur Sjómannafélags Reykjavíkur létu sig ekki vænta á kvótafundinum. Allmargir alþingismenn, bæðí núverandi og fyrrverandi mættu á fundinum, hér eru þeir Jón Sólnes fyrrverandi alþingismaður með þeim Skúla Alexanderssyni og Steingrími Sigfússvni alþingismonnum. (Ljosm. - eik - ) '

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.