Þjóðviljinn - 28.03.1984, Page 8

Þjóðviljinn - 28.03.1984, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Miðvikudagur 28. mars 1984 Friðarfræðsla í skólum og uppeldisstofnunum í síðustu viku áttu sér stað á Alþingi umræður um til- lögu til þingsályktunar um friðarfræðslu sem borin er fram af þingmönnum úr öllum flokkum. Þjóðviljanum þykir rétt að gefa lesendum sýnishorn af þessum um- ræðum, sem er ekki lokið á þingi. Þeir þingmenn sem tai- að hafa í málinu til þessa settu flestir á langar ræður, svo engin tök eru á því að gefa heildarmynd af mál- flutningi þeirra. Það sem hér birtist á eftir eru fyrst og fremst glefsur úr ræðunum er beinlínis snerta friðar- fræðsluna sjálfa, en því mið- ur verður að sleppa lýsingu á heimsmynd viðkomandi þingmanna sem þeir röktu í ýtarlegu máli og komu viða við. Tillagan um friðarfræðslu í skólum hljóðar svo: „Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að hefja undirbúning að frekari fræðslu um friðarmál á dag- vistunarstofnunum, í grunn- skóium og framhaldsskólum landsins. Markmið fræðslu- nnar verði að glæða skilning um grundvallarmannréttindi. Þessi fræðsla skal ná til allra stiga og gerða uppeldis- og fræðslustofn- ana. En eins og ævinlega þegar eitthvað nýtt er til umfjöllunar, veldur það óvissu, jafnvel tor- tryggni. Hvað er friðarfræðsla og hvernig á að framkvæma hana? Þessar spurningar vakna í hugum margra. Það má segja að enn sé ekki til nein alþjóðlega viðurkennd skil- greining á hugtakinu friðarfræðsla. Anato Pikas, dósent í uppeldis- fræði við Uppsalaháskóla, sem hef- ur stjórnað kennslu í friðaruppeldi fyrir þá stofnun, hefur þessa skil- greiningu, með leyfi forseta: Markmið friðaruppeldis „Friðaruppeldi er að móta gerðir og viðhorf manna í þá veru, að það minnki hættu á stríði. Þessi áhrif mega ekki skerða þjóðernislega eða pólitíska vitund manna eða mannréttindi þeirra. Markmiðum friðaruppeldis er unnt að ná með auknum skilningi milli þjóða, sem vígbúnast af ótta hver við aðra. Mikilvægasta tæki friðaruppeldis er aukning á þekkingu og hæfni til að leysa deilur með viðræðum deiluaðila á jöfnum grundvelli." Pikas skýrir skilgreiningu sína nán- ar: „Viðleitni til aukinna gagn- kvæmra friðarviðræðna milli ríkja skírskotar til viðmiðunar við heim- inn, þjóðareiningu, bæjarsamfélag eða stærri hópa. Að þróa sjálfsvit- und, skilning á öðrum og þá hæfi- leika, sem nauðsynlegir eru til að gera einstaklingnum kleift að taka virkan þátt í að mynda réttlát og friðsamleg tengsl við aðra. Að þróa kennsluaðferðir, sem byggjast á samvinnu og hlutdeild í samræmi við það sem að ofan greinir. Framkvœmd friðarfrœðslu Um framkvæmd friðarfræðslu gilda sömu lögmál og annað nám. Það verður að sníða eftir getu og aldri og vera í samræmi við þroska- stig barnsins eða unglingsins. Það er eðlilegt að kenna börnum að kljást við sín eigin vandamál, fyrst og fremst þau sem eru í nánasta umhverfi. I slíkri fræðslu er t.d. bæði auðvelt og eðlilegt að nota leiki sem skapa samheldni og góð- an anda í hópi barna. Með því að höfða til samstarfs má byggja upp gagnkvæman stuðning og um- hyggju barnanna hvers fyrir öðru. Það má sniðganga þá leiki, sem neyða börn til að keppa hvert við annað eða taka þátt í ójafnri keppni. Það er hægt að forðast úti- lokunarleiki, refsileiki, leiki þar sem meiri hluti þátttakenda er ekki virkur, en þeim sem gengur vel, leika lengst og keppa um vinning- fræðsla verði tekin upp í tengslum við þá námsefnisgerð og það þró- unarstarf í skólum, sem nú er unnið að. Markmið friðarfræðslu falla mjög vel að þeim markmiðum, sem lýst er í aðalnámsskrá grunnskóla. T.d. hefur sú námsskrá í samfélags- fræði sem gerð hefur verið á vegum skólarannsóknadeildar mennta- málaráðuneytisins markmið sem gæti myndað eðlilegan grundvöll og tengsl við friðarfræðslu. Þessi námsskrá hefur notið styrks frá Fordstofnuninni í New York og hefur ennfremur fengið viðurkenn- ingu frá fulltrúum Sameinuðu þjóðanna, Harvardháskóla og Evr- ópuráðsins. Með leyfi forseta vil ég vitna í aðalnámsskrá grunnskóla í samfélagsfræði, þar sem stendur: „í samfélagsfræði er m.a. stefnt að því að nemendur séu færir um að setja sig í annarra spor og geti þannig gert sér grein fyrir eigin gildismati og annarra, viðurkenni ólík sjónarmið og rétt hvers manns til að hafa sjálfstæða skoðun, hafi áhuga á að kynnast vandamálum í samskiptum manna og leita lausna á þeim. Viðurkenni gildi samstarfs og nauðsyn samhjálpar í sam- skiptum manna. Öðlist nægilegt sjálfstraust til að geta snurðulaust tekið þátt í gagnkvæmum skoðan- akynnum og umborið gagnrýni. Öðlist það viðhorf, að þeir þurfi stöðugt að afla sér nýrrar þekking- Guðrún Agnarsdóttir: Markmið friðarfræðslu faila vel að þeim mark- miðum sem lýst er í aðalnámskrá grunnskóla. fréttum af átökum og styrjöldum og líka í leiknum myndum þar sem einstaklingar beita hver annan grófu ofbeldi í návígi. Tæknin hef- ur líka fært okkur tölvuleiki og þeir eru vinsælt tómstundagaman barna, reyndar svo mikill tímaþjóf- ur að mörgum finnst nóg um. Langflestir þeirra vinsælu tölvu- leikja sem börn sækjast eftir byggj- ast á herskáum baráttuleikjum, sem örva árásar- og varnarvið- Drekasæði kommúnismans eða ræktun friðarvilja? á þýðingu og hlutverki friðar og rækta hæfileika til þess að leysa vandamál án ofbeldis og leita friðar í samskiptum einstaklinga, hópa og þjóða.“ Flutningsmenn tillögunn- ar eru Guðrún Agnarsdóttir (K), Eiður Guðnason (A), Guðmundur Bjarnason (F), Guðrún Helgadóttir (Ab), Gunnar G. Schram (S), Helgi Seljan (Ab), Jóhanna Sigurð- ardóttir (A), Kristín Halldórs- dóttir (K), Kristín S. Kvaran (Bj), Páll Pétursson (F), Sa- lóme Þorkelsdóttir (S), Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir (K) og Stefán Benediktsson (Bj). í anda samþykktar UNESCO Guðrún Agnarsdóttir kom víða við í framsöguræðu sinni og rakti þróun vopnakapphlaupsins frá síðari heimsstyrjöldinni. Hún stillti annarsvegar upp eyðslunni í vopn- aframleiðslu og hinsvegar hinni gífurlegu örbirgð sem við er að etja víða um heim.-Ekki eru tök á að rekja allan þann fróðleik hér en þetta sagði Guðrún Agnarsdóttir um friðarfræðsluna, sem flutnings- menn leggja til að tekin verði upp: „Minnugar máltækisins hvað ungur nemur, gamall temur og með skilningi á því að sá friður sem getur og þarf að ríkja milli manna og þjóða á sér rætur í einstaklingn- um sjálfum hafa æ fleiri þjóðir tekið upp friðarfræðslu í skólum sínum í anda þeirrar samþykktar UNESCO, sem þær eiga aðild að. Þessi samþykkt var gerð 1974 og eiga íslendingar aðild að henni eins og hinar Norðurlandaþjóðirnar. Samþykkt þessi mælir með því að aðildarlöndin beiti sér fyrir fræðslu til eflingar skilnings þjóða á milh, samvinnu og friðar, svo og fræðslu og þjóða á ekki stefna pólitískri og þjóðernislegri vitund manna í hættu. Þetta þýðir að friðaruppeldi í einu landi má ekki hafa það að markmiði að breyta þjóðfélags- skipun annars lands.“ Tilvitnun lýkur. Það má samt segja, að rætur friðarfræðslu nái dýpra en svo að þær ætli sér eingöngu að sporna gegn kjarnorkuvopnum og hernað- arlausnum á deilum. Þær leitast ekki síður við að breyta umgengni okkar við jörðina og hvert við ann- að og breyta þeim hugsunarhætti, sem hefur ráðið henni. Friðar- fræðsla leitast við að dýpka vitund, vitneskju og skilning á deilum milli einstaklinga innan þjóðfélags og milli þjóða. Hún rannsakar orsakir deilna og átaka, sem má finna sam- ofna skynjunum, verðmætamati og viðhorfum einstaklinga. Ennfrem- ur má finna orsakir þeirra í félags- legri, stjórnmálalegri og efnahags- legri gerð þjóðfélagsins. Friðar- fræðsla hvetur til þess að leita ann- arra leiða, sem fela í sér lausnir á deilum án ofbeldis og hvetur jafn- framt til þróunar þeirra hæfileika, sem nauðsynlegir eru til að beita slíkum lausnum. Markmið friðar- fræðslu eru að skilja þýðingu og hlutverk friðar og rækta hæfileika til að leita friðar í samskiptum ein- staklinga, hópa og þjóða. Að glæða ábyrgðartilfinningu fyrir eigin ákvörðunum og gerðum. Að þroska skilning á því hve einstak- lingar, hópar og þjóðir er háð hvert öðru. Að skilja eðli og orsakir deilna og athuga, skilja, meta og nýta aðferðir til að leysa deilur. Að þekkja ýmsa líffræðilega og félags- lega þætti, sem hafa áhrif á mann- lega hegðun. Að rækta skilning á réttlæti og velferð með og meðal einstaklinga og þjóðfélaga. Að glæða virðingu og ábyrgðartil- finningu einstaklinga fyrir frelsi einstaklingsins og mannréttindum, menningarlegum fjölbreytileika, umhverfinu, samvinnu bæði innan bekkjarins og utan, hugsun, sem inn. Það á í staðinn að leggja áherslu á leiki, þar sem að það sigra eða tapa er ekki eina viðmiðun vel- gengninnar. Hverjar eru svo þær hetjur sem við bjóðum börnum okkar upp á? Er ekki stríðshetja í gömlum stfl úrelt fyrirbæri á 20. öld, á tímum kjarnorkuvopna? Þurfa ekki börn okkar að hugleiða hetjur af annarri gerð eins og t.d. Mahatma Ghandi, Martin Luther King, Albert Schweitzer, móðir Teresu. Væri ekki nær fyrir börn að heyja hugrekki- og hetjudáðir í daglegu lífi og starfi til að finna nýjar að- ferðir til að skapa betri og réttlátari lífskjör? Ekki aðskilin námsgrein Önnur hlið friðaruppeldis er að kenna börnum félagslega og vitsmunalega færni til samvinnu. Með því að búa til og gera hluti saman og njóta svo saman gleðinn- ar yfir unnu verki. Þau þurfa enn fremur að læra að meta yfirlýsingar og upplýsingar, vera gagnrýnin og þróa með sér hæfileika til að líta á mál frá mismunandi sjónarhól. Friðarfræðsla í skólum erlendis, t.d. í þeim löndum sem við höfum mest menningartengsl við eins og Norðurlöndin, Bretland og Banda- ríkin, er sjaldnast aðskilin náms- grein en er öllu heldur aðlöguð sem ný vídd eða viðurkenning þess, að í hverri námsgrein þurfum við stöðugt að mæta málefnum friðar og deilna í daglegu lfi og á alþjóða- vettvangi. Það er nauðsynlegt að leggja áherslu á, að friðarfræðsla er ekki hugsuð sem ný námsgrein, sem skjóta þurfi inn í námsefni á kostnað einhverrar annarrar náms- greinar. Markmiðið er miklu frem- ur að tryggja það að innan al- mennrar námsstefnu skóla sé skýr stefna um friðarfræðslu. Það er ekki hlutverk Alþingis að hanna námsefni handa börnum landsins, en eðlilegt er að þessi ar og skoða hana gagnrýnum augum.“ Tilvitnun lýkur. Á að koma í veg fyrir einhliða áróður Sumir hafa látið í ljós ótta um það að friðarfræðslá verði vett- vangur einhliða áróðurs. Þeim mundi ég svara að ofangreind markmið friðarfræðslu ættu ein- mitt að koma í veg fyrir að einstak- lingar verði einhliða áróðri að bráð. Friðarfræðsla miðar að því að auka víðsýni, umburðarlyndi, skilning og þekkingu. Það er miklu fremur þegar skilningur og þekk- ing á málefni er fyrir hendi að hægt er að draga sjálfstæðar ályktanir og mynda sér skoðanir óháðar áróðri. Brýna nauðsyn ber ennfremur til að byrja nú þegar að velja og útbúa viðeigandi námsefni sem nota mætti við friðarfræðslu. Má í því sambandi vísa til úrvalsnámsefnis um þessi mál hjá Norðurlanda- þjóðum, Bretum og Bandaríkja- mönnum. Foreldrar, skólar og aðr- ir uppalendur geta ekki stungið höfðinu í sandinn og neitað að taka tillit til þeirra áhrifa, sem börn og unglingar verða fyrir í nútíma- þjóðfélagi. Auk félaganna eru fjöl- miðlar, þrýstingur almennings- álitsins og aldarandinn allur virkir þættir til mótunar barna okkar, skoðana þeirra, viðhorfa og hegð- unar. Á þeim dynur auglýsinga- og upplýsingaflóð, umhverfi þeirra, hlutverk og hagir allir hafa ger- breyst frá því sem foreldrar þeirra vöndust. Heimilisgerðin er önnur og möguleikar til samskipta milli fólks á mismunandi aldri eru mun minni en áður. Börn og unglingar eru meira samskiptum við eigin aldurshópa en áður og er líklegt að það þrengi lífssýn og lífsreynslu þeirra að ýmsu leyti. Fjölmiðlar verða æ aðgangsfrekari á tíma ein- staklingsins og sjónvarp og mynd- bönd flytja ofbeldi í auknum mæli að augum og gljúpum hugum barna og unglinga. Er það bæði í brögð. Stríðsleikföng eru seld af fjölbreytilegri gerð og gerast sífellt margslungnari. Oft eru þau svo eðlilegar eftirlíkingar af raunveru- legum fyrirmyndum sínum að glæpamönnum tekst að blekkja fórnarlömb og lögregla með leikfang að vopni. Friðsamleg umfjöllun Hvað er það sem við viljum leggja áherslu á að draga fram í fari barna okkar? Hvers konar áhrifa- valda og umhverfi veljum við þeim og hvernig framtíð viljum við búa þeim? Þó að einhver ágreiningur geti verið um áherslur og leiðir, tel ég þó fullvíst, að flestum foreldrum og uppalendum sé það sameigin- legt að vilja búa börnum sínum sem best veganesti til lífsgöngunnar. Slíkt veganesti hlýtur að miða að því að börnunum takist að lifa af og sú lífsafkoma megi verða þeim sem farsælust. Allt það sem ógnar lífs- afkomu og hag barna hlýtur því að verða foreldrum mikið áhyggju- efni. Svo mikið ábyggjuefni að þeir og aðrir uppalendur geti sameinast til varnar. Það ber því að fagna að nú nýlega voru stofnuð samtök um friðaruppeldi hérlendis. Þessi samtök ætla einkum að stuðla að því að nám og uppeldi rækti með fólki friðarvilja þess, veki skilning á öðrum þjóðum og umburðar- lyndi með þeim og hvetji til alþjóð- legrar samvinnu. Það er ennfremur eðlilegt og skylt að Alþingi álykti og setji lög um þau málefni sem mættu verða til lífs og velfarnaðar fyrir landsmenn. Því vona ég að alþingismenn fjalli friðsamlega um þetta mál af víðsýni, velvild og skilningi.“ Ónothœft uppeldiskerfi Guðrún Helgadóttir sagði m.a. í ræðu sinni: „Þetta uppeldiskerfi okkar er orðið ónothæft og við vitum það

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.