Þjóðviljinn - 27.04.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Föstudagur 27. aprfl 1984
Sprengt
1
Öskju-
hlíð
Óðal hf. hefur hafið fram-
kvæmdir í Öskjuhlíðinni vestan-
verðri og þaðan dynja nú sprengi-
drunur. I gamla grjótnáminu ofan
við bílaleigu Loftleiða, á að rísa
stórhýsi með veitingasölum,
„squash“-sölum og keiluspilsbrau-
tum. Húsið, sem að umfangi mun á
stærð við Laugardalshöll, fellur
inní námuna gömlu og er nú verið
að dýpka hana áður en eiginlegar
byggingaframkvæmdir hefjast.
Sprengimotturnar eru engin smá-
smíði eins og sjá má á þessari mynd.
Ljósm. -Ál.
Framtíðarkönnun - Is-
land næsta aldarfjórðung
Á vegum forsætisráðuneytisins
er nú að fara af stað könnun á lík-
legri framtíðarþróun og stöðu Is-
lands næstu 20 til 30 árin. Tilgang-
urinn með þessari athugun er að
gera stjórnvöldum, atvinnuvegum
og einstaklingum kleift að marka
stefnu á ýmsum sviðum þjóðmála
til lengri tíma.
M.a. verður lögð áhersla á að
greina þróun næstu 20 til 30 ár í
nýtingu auðlinda til lands og sjáv-
ar, á mannafla, menntun og þekk-
ingu landsmanna, alþjóðlegum
viðskiptum og verkaskiptingu,
verðlagningu á helstu aðföngum og
1984 1985
Nýtt happdrættísár
með §ölda stórra vínnínga
Aftur hús
Aðalvinningur ársins er fullgerð vernduð þjónustu-
íbúð á einni hæð að Boðahlein 15, Garðabæ.
í húsinu er fullkomið viðvörunarkerfi, sem tengt er
þjónustu- og öryggismiðstöð í Hrafnistu Hafnarfirði.
Húsið er 83,5 fermetrar með garðhýsi. Gangstéttar
upphitaðar.
Söluverðmæti 2,5 milljónir króna -
Langstærsti vinningur á einn miða hérlendis.
Auk þess ellefu toppvinningar til íbúðakaupa
á 500 þúsund krónur,
100 bílavinningar, 480 utanlandsferðir og fjöldi
húsbúnaðarvinninga.
MIÐI ER MÖGULEIKI
lala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða
og flokksmiða stendur yfir
Happdrættí 84-85 1
afurðum, og áhrifum á atvinnulíf
og afkomu landsmanna og sam-
skipti við umheiminn, og að benda
eftir föngum á þær þjóðfélags-
breytingar og breytingar á gildi-
smati og viðhorfum, sem líklega
eru samhliða þeirri þróun. Athug-
uninni er ekki ætlað að komast að
einni ákveðinni niðurstöðu, heldur
að benda á líklega þróun og afleið-
ingar fyrir íslenskt þjóðfélag. Meta
þarf líklegan afrakstur af auð-
lindum landsins, þekkingu og
hæfni þjóðarinnar, benda á veik-
leika og gera tillögur um úrbætur.
Við framkvæmd verksins er gert
ráð fyrir að 30 til 40 manna ráðgjaf-
arhópur leggi drög að því hvernig
að könnuninni skuli staðið og láti í
té hugmyndir um líklega framtíðar-
þróun. Ur þeim hópi verður síðan 7
manna framkvæmdanefnd, sem
ætlað er að hafa frumkvæði í verk-
inu. Ráðinn verður starfsmað-
ur/verkefnisstjóri, til tveggja ára,
sem mun hafa aðsetur á Þjóðhags-
stofnun og er áætlað að leggja
skýrslu þessa fyrir ríkisstjórnina
fyrir árslok 1985.
-S.S.
Jafnréttisráð:
Staða og störf
kvenna athuguð
Jafnréttisráð hefur ákveðið að
hefja könnun á stöðu og störfum
íslenskra kvenna. Nær hún til sömu
staða á landinu og athugaðir voru
árið 1976 á vegum Kvenna-
ársnefndar. Verða niðurstöðurnar
síðan bornar saman.
í þessari könnun verður leitað
svara hjá 560 konum í Reykjavík,
Patreksfirði, Húsavík, Egilsstöð-
um og til bændakvenna víðs vegar
um landið. Tilefni þessarar könn-
unar nú er að á árinu 1985 lýkur
kvennaáratugi Sameinuðu þjóð-
anna. Ætlunin er að athuga ýmsa
þætti í lífi kvenna, m.a. menntun
pg störf þeirra. Vonast
Jafnréttisráð eftir góðum undir-
tektum.
- v.
Fjárhagsstaða sjávarútvegsins
Miljarður
í vanskilum
Uttekt Þjóðhagsstofnunar á fjár-
hagsstöðu útvegsins leiðir í ljós, að
áhvflandi skuldir útgerðar vegna
stofniána námu í árslok 1983 7.470
milj. kr. Þar af voru í vanskilum
1.075 milj. kr. Á sama tíma námu
viðskiptaskuldir útgerðarinnar um
það bil 850 milj., samkvæmt áætl-
un Þjóðhagsstofnunar. Áhvílandi
skuldir útgerðar við Fiskveiðisjóð í
árslok 1983 námu 5.401 milj. kr.
Þar af voru í vanskilum 762 milj.
Þetta kemur fram í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um breytingu á
lögum um Fiskveiðisjóð íslands
þess efnis að stjórn sjóðsins verði
heimilt að áicveða að skuld-
breytingarlán til fiskiskipa, sem af-
greidd verða á yfirstandandi ári,
megi nema allt að 90% af húftrygg-
ingarverði þeirra.
- mhg.
Aðalfundur
Búseta:
Alþingi
samþykki
húsnæðis-
frumvarpið
Aðalfundur húsnæðissam-
vinnufclagsins líúseta í
Reykjavík og nágrennis sain-
þykkti að skora á Alþingi að
samþykkja fyrir þinglok hús-
næðisfrumvarp félagsmála-
ráðherra. Þá samþykkti aðal-
fundurinn einnig að félagið
skyldi beita sér fyrir stofnun
landssambands húsnæðissam-
vinnufélaga fyrir maílok ef
mögulegt væri. Slíkt samband
getur fengið inngöngu í
samtök húsnæðissamvinnufé-
laga á Norðurlöndum en henni
fylgja margs konar réttindi og
samvinna.
Aðalfundurinn var haldinn
hinn 15. apríl að Hótel Borg í
Reykjavík. Á fundinum var
einnig samþykkt að skora á
Alþingi að stuðla að jafnrétti í
húsnæðismáium með lán-
veitingum, sem tryggja að all-
ir landsmenn geti búið við ör-
yggi í húsnæðismálum. Minnt
var á, að lengi hafi verið á-
formað að veita þriðj ungi þess
fjármagns, sem fer í húsnæðis-
lánakerfið, til félagslegra
bygginga, en nú rennur aðeins
um tíundi hluti húsnæðislána
til félagslegra bygginga.
Rekstur íbúða með búsetu-
rétti verður á félagslegum
grundvelli og af þeim ástæð-
um sé eðlilegt að tryggja rétt-
indi húsnæðissamvinnufélaga
til lána úr félagslegum hús-
byggingasjóðum.
A fundinum var Jón Rúnar
Sveinsson endurkjörinn for-
maður félagsins. Stjórnina
skipa að auki: Auður Styrk-
ársdóttir, Ásdís Ingólfsdóttir,
Birna Þórðardóttir, Gísli
Hjaltason, Guðni Jóhannes-
son og Jón Ásgeir Sigurðsson.
Varastjórn skipa: Páll Gunn-
laugsson, Harpa Njálsdóttir,
Sigurjón Þorbergsson, Guð-
ríður Haraldsdóttir og Guð-
munda Helgadóttir.
Skrifstofa Búseta í Reykja-
vík er að Hamragörðum, Há-
vallagötu 24, og síminn er
25262. ast.