Þjóðviljinn - 02.06.1984, Síða 7
Helgin 2. - 3. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Á annað þúsund Baader fiskvinnsluvélar í notkun hérlendis
Þessi tæki þarf að nýta á
allra hagkvæmasta máta
segir Karl Ágústsson fram-
kvæmdastjóri Baader Þjónust-
unnar sem er hér sú umsvifa-
mesta utan Þýskalands
Það er víst að hvergi hérlendis er að finna fiskvinnsluhús
þar sem ekki er unnið með Baader vél. Talið er að á annað
þúsund f iskvinnsluvélar frá Baader séu í notkun hér og marg-
ar þeirra hafa gengið nær stanslaust í áratugi. Til að fræðast
ögn nánar um sögu Baader verksmiðjanna þýsku og þátt
þessra véla í íslenskum fiskiðnaði var rætt við Karl Agústs-
son framkvæmdastjóra Baader þjónustunnar á íslandi en hjá
umboðinu starfa nú 24 menn þar af 14 á verkstæði og við
þróun og smíðar fiskvinnslutækja.
Karl Ágústsson: Góð samvinna vlð flskiðnaðlnn hefur leltt af sér ýmsar
nytsamar lagfæringar og nýjungar. Mynd-Loftur.
Flökunin fundin upp
- Byrjunina má rekja aftur til
ársins 1919 þegar Rudolp Baader
hóf að smíða fyrstu fiskvinnsluvél-
ina í Liebeck. Þá var allur fiskur
unnin í höndunum og hann sá þá
öðrum fremur þá miklu möguleika
sem voru fyrir hendi að vélvæða
þessa vinnslu. Áhuga hans á þess-
um málum má sjálfsagt rekja til
þess að tengdafaðir hans rak niður-
suðuverskmiðju sem m.a. vann úr
fiskafurðum og faðir hans átti véla-
verkstæði.
Þessum manni, Rudolf Baader,
dettur í hug á undan öðrum að
vinna fisk í vélum og í rauninni
finnur hann upp flökunina. Áður
var fiskur annaðhvort saltaður
flattur eða bútaður en flökun sem
slík þekktist ekki.
1921 kom fyrsta vélin á markað-
inn. Hún var kölluð hausunar- og
beinaúrtökuvél en ekki flökunar-
vél sem hún reyndar var.
- Nei ég held að það hafi ekki
gengið sérlega vel að selja þessa vél
í upphafi og það komst ekki skriður
á framleiðslu þessa fyrirtækis fyrr
en eftir síðari heimstyrjöldina. í
stríðinu voru verksmiðjumar tekn-
ar undir hergagnaframleiðslu eins
og allar verksmiðjur í Þýskalandi á
þeim tímum og í stríðinu datt þetta
allt niður. Rússar t.d. og fleiri
höfðu keypt nokkuð af vélum fyrir
stríðið og höfðu mikinn áhuga á
þessum tækjum. Þð er ekki fyrr en
nokkru eftir stríðslok að farið er að
endurreisa verksmiðjuna og fram-
leiðslan hefst af einhverri alvöru.
Þetta er að sjálfsögðu ekki nema
lauslegt yfiríit yfir söguna fyrstu
áratugina og þyrfti að bæta ýmsu
fróðlegu við til að gefa sem fyllsta
mynd af upphafinu.
25 ár á íslandi
- Já hérna heima byrjar þetta
uppúr 1954. Þá var hér á ferð þýsk-
ur maður Ulrich Marth og sá þá
möguleika sem voru á notkun þess-
ara fiskvinnsluvéla hér á landi.
Hann færði þetta í tal úti í Þýska-
landi og var síðan skipaður fulltrúi
verksmiðjunnar hérlendis. Baader
þjónustan h.f. var síðan stofnuð
hér í september 1959 og á hún því
25 ára afmæli núna í haust.
Héma var þá lítið fyrir af vélum
til fískvinnslu þegar þjónustan tók
til starfa. Fyrstu vélamar sem tekn-
ar vom hér í notkun vom langt frá
því eins góðar og þær sem nú em í
notkun í frystihúsum og þær
skiluðu þá lélegri nýtingu en hand-
avinnan. í dag hefur þetta hins veg-
ar snúist við.
Vissulega hafa ekki allir verið
hrifnir af því að taka þessar vélar
inn í vinnsluna. Áður var þetta allt
handunnið og ýms störf féllu því
niður en önnur komu í staðinn eins
og ávallt er þegar tæknin heldur
innreið sína. Þetta gekk því rólega
yfir í fyrstu. Fyrsta stóra flökunar-
vélin fór til Einars Sigurðssonar í
Eyjum og um svipað leiti var send-
ur héðan til Þýskalands 15 manna
hópur til að læra meðferð þessara
véla. Margir þessara manna em í
dag tæpum 30 ámm seinna enn
starfandi við vélarnar bæði hér í
þjónustunni og í fiskvinnsluhúsum.
130 af 482 vélum
hingað til lands
Ég held að mestu straumhvörfín
hafi verið þegar stóra flökunarvél-
in Baader 99 kom og svo aftur 1957
þegar fyrsta flatningsvélin Baader
414 kom. Það varð geysilegur léttir
af að koma þessari erfiðu vinnu í
vélar og em um 130 slíkar vélar í
notkun hér í dag. 1972 kom síðan
ný kynslóð af flökunrvélum. Baa-
der 189 og í mars sl. var búið að
selja samtals í heiminum 482 slíkar
vélar og þar af 130 hingað, en þessi
vél hefur hentað mjög vel fyrir
okkar fiskvinnslu. Þessar tölur
sýna að heimsmarkaðurinn er ekki
stór en hlutdeild íslands er stór á
þessum markaði en vegna þess hve
mikil sérhæfð vinna liggur að baki
þróunar hveríar einstakrar vélar
þá kemur það kannski ekki á óvart
að þetta þykja dýrar vélar en þær
eru líka endingargóðar eins og
reynslan hefur sýn. Það em nokkur
ár síðan allt að 40 ára hausunarvél-
ar vom teknar úr umferð hér, ekki
vegna þess að þær væm úr sér
gengnar, heldur vegna þess að þær
uppfylltu ekki lengur ákvæði um
öryggi og of dýrt þótti að koma
slíkum búnaði fyrir.
Minni þorskafli
kallar á fleiri vélar
Svo undarlega sem það hljómar
þá hefur minnkandi þorskafli og
kvótaskipting aukið mjög eftir-
spurn á vélum frá okkur. Nú er
farið að nýta fleiri fisktegundir en
áður og til þess þarf nýjar og sér-
hæfðar vélar. Kvótaskiptingin er
slæm fyrir mörg frystihúsin því það
þarf að taka upp fleiri vinnslulínur
en áður var en þetta er hagkvæmt
fyrir okkur. Húsin þurfa fleiri vél-
ar. Það er nokkuð um að vélar séu
sérsmíðaðar eða endurbættar fyrir
íslenskan fiskiðnað. Vinnslufiskur
hér er nokkuð stærri en almennt
erlendis. Þá hefur t.d. kolaflökun-
arvélin verið sérútbúin fyrir grá-
lúðuvinnslu. Sú endurbót var fram-
kvæmd af starfsmönnum okkar í
samvinnu við Baader í Þýskalandi
og aðrar þjóðir hafa notið góðs af
því.
Samkeppnin er ekki mikil í þess-
ari vélaframleiðslu, en Baader hef-
ur nokkra sérstöðu þar sem boðið
er upp á svo fjölbreytt úrval véla
auk þess sem stór hluti af hagnaði
fyrirtækisins er lagður í framþróun.
Þar með er ekki sagt að allar nýj-
ungar spretti upp í þeirri þróunar-
deild, en þeir kaupa einnig nýjung-
ar frá einstaklingum og smærri
fyrirtækjum og sjá um útfærsluna.
Hér á íslandi höfum við lagt sífellt
meiri áherslu á þróunarvinnu og
námskeiðahald fyrir þá sem stýra
og stjórna þessum vélum. Góð
samvinna við fiskiðnaðinn hefur
leitt af sér ýmsar nytsamar lagfær-
ingar og nýjungar og m.a. má
nefna að tveir starfsmenn hjá okk-
ur hafa þróað og fengið einkaleyfi á
sérstökum hausunarbúnaði sem nú
er framleiddur í verksmiðjunum
úti og seldur um allan heim og það
er ýmislegt á döfinni bæði hér
heima og erlendis sem m.a. verður
kynnt á sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöllinni í haust.
Hvert gramm
í betri nýtingu
skiptir sköpum
Það sem við höfum verið að
leggja áherslu á í gegnum tíðina og
hefur borið mikinn árangur á síð-
ustu árum, er að þessi stórvirku
tæki séu nýtt á hagkvæmasta máta.
Vélar séu stilltar þannig að há-
marksnýting fáist og þeim sé haldið
vel við. Við skulum átta okkur á
því að illa beittur hnífur getur t.d.
skilið eftir 10 gr. fisktægju á hverj-
um beinagarði. Þetta þykir engum
mikið, en þegar tekið er með í
dæmið að kannski 12000 fiskar
ganga í gegnum þessa sömu vél á
einum degi þá eru þetta samtals
120 kg sem fara forgörðum og það
þýðir minnst hundruð dollara tap í
útflutningstekjum. Hvert smátt
gerir eitt stórt og það sem jákvæð-
ast við þróun síðustu ára er að
menn eru farnir að átta sig á þess-
um hlutum og þrátt fyrir
minnkandi afla þá er ég viss um að
við eigum að geta haldið sama
verðgildi og fyrrum með betri nýt-
ingu.
-»g-
Hér er unnlð af kappl við aðgerð á Siglufirðl snemma á öldlnnl. Þá var það handavlnnan eln sevn dugðl.
Vélvæðlng f flskvinnalunnl er sífellt að verða víðtækarl. Hér er breytt frá því
sem áður var. Einn maður og stór flökunarvél sem afkastar margfalt á vlð
handflökunlna auk þess að sklla betri nýtlngu hráefnlslns.