Þjóðviljinn - 02.06.1984, Side 15

Þjóðviljinn - 02.06.1984, Side 15
Helgin 2. - 3. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Mikill uppgangur í fiskveiðum og vinnslu á Shetlandseyjum en... Arar illa í breskri fiskiskipa- útgerð Það þarf ekki að segja neinum hvernig vegur breskrar togaraútgerðar hefur verið sl. áratug eða frá því breskir tog- arar voru endanlega á brott frá íslandsmiðum. Gömlu síðut- ogurunum var ýmist lagt eða þeir seldir í brotajárn. Það er ekki fyrr en á síðustu árum að Bretar hafa farið að nýta betur eigin heimamið og hafa þar átt í stríði við EBE við að verjast ásókn fiskiskipa nágrannaþjóðanna, og hafa í þeirri baráttu tekið upp sömu röksemdirnar fyrir verndun miðanna og ís- lendingar beittu gegn þeim sjálfum á sínum tíma. í einu nýjasta tölublaði breska fiskveiðitímaritsins Commercial fishing er grein í stuttu máli frá stöðu útgerðar í helstu fiskihöfnum Skotlands og á Shetlandseyjum á sl. ári. Hér verður til fróðleiks grip- ið niður í því helsta sem þar kemur fram. Peterhead Péturshöfuð (Peterhead) norðan við Aberdeen er nú orðin stærsta löndunarhöfn á Bretlandseyjum. Þar hefur verið nokkur uppgangur í útgerð á síðustu árum og var landað þar alls um 97.000 lestum af fiski á sl. ári en tæpum 90 þús. lest- um árið á undan. Nær allur aflinn er botnfiskur. Nærri 400 bátar af öllum stærðum leggja upp afla sín- um í Petershead þar af einungis 110 heimabátar. unarfyrirtækin á sl. ári hafa útgerð- armenn lítinn áhuga á að landa þar lengur. Grímsby Svipaða sögu er að segja frá Grimsby. Löndunarfélagið þar hefur átt í miklum greiðsluerfið- leikum og þrátt fyrir að skip hafi oft á tíðum fengið mjög gott verð fyrir afla sin í Grimsby þá hafa fjölmarg- ar útgerðir flutt skip sín yfir til ann- arra hafna, einkum til Hull en þar er boðið upp á lægri löndunargjöld •en í Grimsby þó að ekki hafi enn fengist eins gott verð fyrir aflann þar. Hull í Hull hefur gengið hálfbrösu- Skuttogarinn Grampian Chieftain frá Aberdeen kom með mestu aflaverðmæti allra breskra togara á land á sl. árl. Hann aflaðl fyrir alls 32,3 miljónir íslenskar. Síldveiðar hafa gengið vel á Shetlandseyjum og mikill hamagangur í öskjunnl við söltunina. Iega síðustu árin og löndunum sí- fellt fækkað þar til að virðist vera að birta eitthvað eilítið til. í fyrra var ekki landað nema 21.000 tonn- um af fiski í Hull en tæpum 28 þús. lestum árið á undan. Forráðamenn hafnarinnar í Hull segja að það sé einkum minnkandi landanir ís- lenskra togara sem ráði þesari þró- un auk þess sem erlendir frystitog- arar hafa fækkað komum sínum til Hull. Shetlandseyjar Á sama tíma og allt virðist niður á við á meginlandinu er bjartara yfir hjá þeim á Shetlandseyjum. Þar hefur aldrei verið landað eins miklum afla og á sl. ári eða tæpum 60 þús. lestum. Afkoman var með besta móti í fiskvinnslunni einnig og menn þar eiga von á enn betri útkomu á þessu ári. Mest er gert út á 80-100 lesta bátum frá Shetlands- eyjum og auk mikilla síldveiða frá eyjunum eru stundaðar þaðan skelfisksveiðar og niðursuðuiðnað- ur stórtækur á eyjunum. -»g Aberdeen Nú eru gerðir út 7 togarar frá Aberdeen þar af tveir gamlir síðu- togarar og þrír nýlegir skuttogarar sem North Star Fishing Company gerir út. Útgerðin hefur gengið al- veg þokkalega hjá skuttogurunum og einn þeirra kom með mest afla- verðmæti allra breskra togara á landi á sl. ári, Grampian Chieftain sem aflaði fyrir alls 788,595 pund eða sem svarar 32,3 miljónum ís- lenskum. Segir í fréttinni að útgerð togaranna gangi ekki síður á þessu ári og nefnt sem dæmi að nýlega hafi einn þeirra selt tæp 100 tonn af botnfiski fyrir 2.5 miljónir. En tog- urum sem gerðir eru út frá Aberde- en hefur fækkað mjög á síðustu árum og athafnalífið við löndunar- höfnina ekki svipur hjá sjón frá því sem áður var. Á síðasta ári var alls landað 52 þúsundum lesta af fiski í Aberdeen sem er rúmum 3000 tonnum meiri afli en árið 1982. Menn eru því vongóðir um betri tíð en bæði belgískir og danskir fiski- bátar hafa verið nokkuð iðnir við að landa í borginni síðustu mánuði. Fleetwood Fleetwood má muna fífil sinn feg- urri sem fiskihöfn því aldrei hefur jafn litlum afla verið landað þar í manna minnum og á sl. ári og í ár er útlitið fyrir enn minni landanir. Það eru ekki nema 10 ár síðan 60 úthafstogarar lögðu upp afla sínum í þessri sömu höfn. Þá var aflinn um og yfir 40 þúsund lestir en í fyrra aðeins tæpar 5000 lestir. Telja menn víst að Fleetwood muni brátt deyja út sem fisklöndunarhöfn því þrátt fyrir að borgaryfirvöld hafi mokað yfir 1/2 miljón punda í lönd- „Megum una vel við okkar hlut“ segir Rafn Jóhannesson vélstjóri á Þórsnesinu Rafn Jóhannsson er vél- stjóri á Þórsnesinu frá Stykk- ishólmi. Þjóöviljinn bankaði uppá hjá honum um daginn til að spyrja hvernig vertíðin hefur gengið. - Við höfum verið á netum unda- nfarinn tvo og hálfan mánuð en kláruðum ekki kvótann. Við fi- skuðum rúm 500 tonn og vantaði eitthvað 3 tonn uppá. - Er það ekki sæmilegt? - Jú, ég held að við megum vel við una. Það gerði góða hrotu fyrr í vetur en eftir páska var ekki neitt að hafa. Við erum með færri net en í fyrra og færri áhöfn. Nú vorum við 9 með 126 net en í fyrra vorum við 11 með 150 net. Svo erum við með dráttarkarl sem sparar einn mann. Hann gaf góða raun. - Hvað gerir þetta í hlut? - Fyrsta mánuðinn var háseta- hluturinn 70-80 þúsund krónur en 40-45 þúsund seinni mánuðinn. í maí var bara tryggingin. - Hefur vertíðin gengið alls stað- ar jafnvel hér á Snæfellsnesi? - Ég hef heyrt að þeir væru ekki ánægðir úti á Nesinu. - Hvernig hefur kvótinn komið við ykkur? út hérna. Þessar sérveiðar, skelin kvótanum. Hann hefur farið allt - Hann hefur komið djöfullega Qg sfldin, taka svo mikið frá þorsk- niður í 3-4 tonn hjá sumum bátum Rafn Jóhannsson vélstjóri á Þórsneslnu: Erum að fara á stórlúftu. Liósm.: G.Fr. og þá tekur ekki að byrja. Hér eru tveir bátar sem legið hafa bundnir við bryggju síðan í endaðan febrú- ar. Þeir geta ekki farið á neinar veiðar. - Og hvað tekur nú við hjá Þórsnesinu? - Við förum sennilega á stórlúðu á mið sem eru 90-100 mílur út af Jökli. - Eru það ábatasamar veiðar? - Það er nú dálítið skrýtin verð- lagningin á fiskinum miðað við önnur iönd. Við fáum 40 krónur fyrir kg af lúðunni til skipta en Norðmenn t.d. fá 115 krónur fyrir sama fisk. Hér fást 7 krónur fyrir kg af steinbít en í Færeyjum borga þeir 17 krónur. Voru þeir ekki að tala um að það væri svo lítil fram- leiðni hér á landi? - Telur þú það? - Sóunin er náttúrlega ofboðs- leg, bæði í fiskvinnslu og landbún- aði. - Voruð þið á skel fyrr í vetur? - Já, áður en við fórum á netin. - Eru skelveiðarnar ábata- samar? - Skelin gefur öllum góðar tekj- ur nema þeim sem vinna við hana í landi. Hásetahluturinn var 60-70 þúsund krónur á mánuði og var þó aðeins róið 5 daga vikunnar, farið út kl. 6-7 á morgnana og oft komið í land uppúr hádegi. Miðin eru mikil hér í kringum Stykkishólm og eins í kringum Flatey og Bjamareyjar. Það er aldrei lengra en þriggja tíma stím. - Eru þetta skemmtilegar veiðar? - Nei, þær eru leiðinlegar og sálarlausar. Við þökkun fni fyrir spjallið. - GFr.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.