Þjóðviljinn - 02.06.1984, Page 17

Þjóðviljinn - 02.06.1984, Page 17
Helgin 2. - 3> júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 TÖLVUNÁMSKEIÐ Á HEIMASLÓÐUM Kennarar og tœkjabúnaður TÖLVUFRÆÐSLUNNAR semfer út á lands- byggðina ísumar. Taliðfrá vinstri: Kristín Steinarsdóttir kennari, Jóhann Fannberg verkfrœðingur, Gylfi Gunnarsson kennari, Grímur Friðgeirs- son tœknifrœðingur. Aðstöðumunur milli landsbyggðarmanna og þeirra sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa er afar mikill hvað varðar tækifæri tii tölvunáms. Tölvuskólarnir eru nær allir í Reykjavík og landsbyggðarmenn verða að leggja í tímafrekt og kostnaðarsamt ferðalag þangað, til þess að tileinka sér hina nýju tækni. Til þess að gefa landsbyggðarfólki kost á að kynnast tölvum og töivunotkun mun TÖLVUFRÆÐSLAN gera út í sumar tvo námskeiðahópa hringinn í kringum landið. Námskeið verða haldin á rúmlega 50 stöðum og tekur hvert þeirra 18 kennslustundir. Til þess að tryggja fyrsta flokks kennsfu munu 2 vanir kennarar annast hvert námskeið og veita þeir tilsögn á úrvals tölvur: IBM-PC, Eagle, Átlantis, Apple Ile og Commodore. Boðið er upp á tvö byrjendanámskeið - Grunnnám- skeið á tölvur sem veitir undirstöðuþekkingu á tölvum og tölvunotkun og BASIC þar sem forritunarmálið BASIC er kennt. Gefinn er kostur á sérstökum námskeiðum fyrir börn og unglinga, ennfremur ritvinnslu með Apple writer og áætlanagerð með Visicalc og Multiplan. Tölvurnar verða sífellt mikilvægari þáttur í frumat- vinnuvegum þjóðarinnar og því verður á námskeiðun- um lögð sérstök áhersla á notkun tölvutækninnar í atvinnulífi íslendinga. Námskeiðagjald er aðeins kr. 2.500.-. Til þess að efla hag fatjaðra hefur TÖLVUFRÆÐSLAN ákveðið að bjóða fötluðu fólki ókeypis aðgang að öllum þessum námskeiðum. TÖLVUFRÆÐSLAN S/F ■ Ármúla 36, Reykjavík S. 86790 og 687590

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.