Þjóðviljinn - 02.06.1984, Síða 17
Helgin 2. - 3> júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Á HEIMASLÓÐUM
Kennarar og tœkjabúnaður TÖLVUFRÆÐSLUNNAR semfer út á lands-
byggðina ísumar. Taliðfrá vinstri: Kristín Steinarsdóttir kennari, Jóhann
Fannberg verkfrœðingur, Gylfi Gunnarsson kennari, Grímur Friðgeirs-
son tœknifrœðingur.
Aðstöðumunur milli landsbyggðarmanna og þeirra
sem búa í þéttbýlinu við Faxaflóa er afar mikill hvað
varðar tækifæri tii tölvunáms. Tölvuskólarnir eru nær
allir í Reykjavík og landsbyggðarmenn verða að
leggja í tímafrekt og kostnaðarsamt ferðalag þangað,
til þess að tileinka sér hina nýju tækni.
Til þess að gefa landsbyggðarfólki kost á að kynnast
tölvum og töivunotkun mun TÖLVUFRÆÐSLAN
gera út í sumar tvo námskeiðahópa hringinn í kringum
landið.
Námskeið verða haldin á rúmlega 50 stöðum og tekur
hvert þeirra 18 kennslustundir.
Til þess að tryggja fyrsta flokks kennsfu munu 2 vanir
kennarar annast hvert námskeið og veita þeir tilsögn
á úrvals tölvur: IBM-PC, Eagle, Átlantis, Apple Ile
og Commodore.
Boðið er upp á tvö byrjendanámskeið - Grunnnám-
skeið á tölvur sem veitir undirstöðuþekkingu á tölvum
og tölvunotkun og BASIC þar sem forritunarmálið
BASIC er kennt.
Gefinn er kostur á sérstökum námskeiðum fyrir börn
og unglinga, ennfremur ritvinnslu með Apple writer
og áætlanagerð með Visicalc og Multiplan.
Tölvurnar verða sífellt mikilvægari þáttur í frumat-
vinnuvegum þjóðarinnar og því verður á námskeiðun-
um lögð sérstök áhersla á notkun tölvutækninnar í
atvinnulífi íslendinga.
Námskeiðagjald er aðeins kr. 2.500.-.
Til þess að efla hag fatjaðra hefur TÖLVUFRÆÐSLAN
ákveðið að bjóða fötluðu fólki ókeypis aðgang að
öllum þessum námskeiðum.
TÖLVUFRÆÐSLAN S/F
■ Ármúla 36, Reykjavík S. 86790 og 687590